Dagur - 23.03.1989, Side 1
Mvnd: TLV
Klofningurinn í Skólanefnd Akureyrar:
„Ekki ástæða að óttast um
framkvæmdir við eldri skóla“
- segir Sigrún Sveinbjörnsdóttir skólanefndarmaður
Heilsupóslurinn
2
Bakþankar
KrislinsG.
rÁ
Mömmusleikin
er alitaf ógœt
- Þorgeir B. Hlöðversson
í helgarviðtali
8&13
Póskamynda-
góta
19
Richard Burton
+
a
kvikmyndasíðu
6
Eins og kunnugt er klofnaði
Skólanefnd Akureyrar í
afstöðu sinni til tillögu for-
manns nefndarinnar um að
fresta því um ótilgreindan tíma
að hafa tvo safnskóla á Akur-
eyri fyrir 7.-9. bekki grunn-
skóla. Samkvæmt tillögunni
eiga börn í Síðuhverfi að sækja
7.-9. bekkjarnám í Síðuskóla.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, vara-
bæjarfulltrúi, ræddi um skóla-
málin á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag, en hún á sæti í skóla-
nefnd. Hún lét bóka að hún væri
sammála tillögu formannsins,
Björns Jósefs Arnviðarsonar,
enda væri hún í samræmi við
stefnu Alþýðubandalagsins. Hún
benti á að samkvæmt nútímahug-
myndum um stærð og staðsetn-
ingu skóla væri mikilvægt að
endanlegt skipulag Giljahverfis
miðist við að í því miðju verði
byggður tveggja hliðstæðna
grunnskóli fyrir 6-16 ára nernend-
ur hverfisins.
Sigrún sagði m.a. á bæjar-
stjórnarfundinum að ef fólk vildi
ekki byggja einnar hliðstæðu
skóla í Giljahverfi af hagkvæmnis-
ástæðum, væri einfalt að stækka
hverfið þannig að skólinn þar
gæti orðið tveggja hliðstæðna.
Börnin þyrftu þá ekki að fara yfir
hættulegar umferðaræðar og slík-
ur skóli gæti orðið eðlileg félags-
miðstöð hverfisins alls. Sér sýnd
ist hugmyndir manna um íbúa-
fjölda í Giljahverfi vera þannig
að slíkt vel orðið.
Varðandi það sem Kolbrún
Þormóðsdóttir hefði sagt um að
framkvæmdum við aðra skóla
myndi seinka, ef tillaga formanns
skólanefndar næði fram að
ganga, þá hefðu skólastjórar
talið, þegar þetta barst í tal á síð-
asta skólanefndarfundi, að ekki
þyrfti að hafa áhyggjur af við-
haldi og framkvæmdum við eldri
skóla þótt tillaga formannsins
yrði samþykkt. Skölastjórarnir
hefðu allir, fyrir utan skólastjóra
Gagnfræðaskóla Akureyrar, sem
ekki hefði tekið þátt í umræð-
unni, verið sammála skólastjóra
og kennurum Síðuskóla um að
ekki þyrfti að að hafa minnstu
áhyggjur af þessu máli. £pjB