Dagur - 19.10.1989, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 19. október 1989
frétfir
Aðalfundur Iðnþróunarfélags Þingeyinga:
Rætt um verksmiðjur til framleiðslu á raka-
þolnum spónaplötum, myndbandsspólum og skyrtum
„Ég var ánægður með stemmn-
inguna, fannst málum tekið
mjög vel og koma fram að
menn vilja taka á,“ sagði
Asgeir Leifsson, iðnráðgjafi
hjá Iðnþróunarfélagi Þingey-
inga eftir aðalfund félagsins
sem haldinn var um helgina.
Asgeir kynnti tíu kosti at-
vinnuþróunarverkefna á fund-
inum og sýndu menn nokkrum
þeirra talsverðan áhuga.
Hugmynd hefur komið fram
um virkjun Köldukvíslarfoss, 2
km ofan við Kvíslarhól á Tjör-
nesi. Aðilar frá Orkustofnun
hafa gert frumáætlun um virkjun-
ina, er þar gert ráð fyrir 3.5 ntw
virkjun, en toppálag rafmagns-
notkunar á Húsavík nemur 2.5
mw. Byggingarkostnaður er tal-
inn nema 4-500 milljónum króna.
Svör hafa ekki fengist við mörg-
um óvissuþáttum og samkvæmt
frumáætluninni er virkjunin
óhagkvæm. Áætlaður rannsókn-
arkostnaður fyrir frumhönnun
virkjunar nemur 2-300 þúsund
krónum og fram kom áhugi um
að láta kanna staðhætti og fleiri
þætti nánar, til að fá nákvæmari
svör um hagkvæmni og hugsan-
lega virkjunarmöguleika.
Kynntir voru möguleikar á inn-
flutningi tilbúinna verksntiðja,
eins og fram hefur komið í frétt í
einnig um virkjun Köldukvíslarfoss á Tjörnesi
Degi fyrir helgina. í samtali við
Dag sagði Ásgeir að núna væri
söguleg nauðsyn á að koma upp
útflutningsiðnaði, en þarna væri
um stórt fjárhagslegt dæmi að
ræða. Ef veruleg samstaða
skapaðist ætti þetta þó að geta
gengið og von er á ýtarlegri upp-
lýsingum og frekari gögnum um
fleiri kosti erlendis frá. Mest var
rætt um verksmiðjur til fram-
leiðslu á rakaþolnum spónaplöt-
um, myndbandsspólum og skyrt-
um, á fundinum. Ásgeir hefur
hug á að gefa fleiri sveitarfélög-
um kost á að fylgjast með þessunt
möguleikum og hyggst ferðast
um og kynna málið á næstunni.
Hraðréttaframleiðsla er einn
hinna tíu kosta sem kynntir voru
og aðilar hafá sýnt því verkefni
áhuga og eru að þreifa fyrir sér.
Á fundinum var kynntur
möguleiki á innflutningi nýs
tækis, einskonar tveggjahjóla
traktors með aldrifi. Var hæfni
farartækisins sýnd á myndbandi
og er hún einstök til ferðalaga á
vegleysum, auk þess sem marg-
vísleg verkfæri og búnað, t.d. til
landbúnaðar, er hægt að fá til að
tengja við tækið. Pað er líkast
mótorhjóli í sjón, en er sagt
valda minni skemmduni á náttúr-
unni en önnur þekkt torfærufar-
artæki. Auk hjólsins, kynnti
Ásgeir hugmynd um innflutning
á samanbrotnum bátum og há-
kuldatjöldum.
Á fundinum kom fram sú hug-
mynd að Iðnþróunarfélagið boð-
aði til fundar byggingamanna til
umræðu um atvinnuhorfur og
jafnvel til fundar járniðnaðar-
manna og fleiri starfstétta um
horfur í sínum atvinnugreinum.
Ákveðið var að halda fram-
haldsaðalfund 10. des. Stjórn var
falið að gera úttekt á starfshátt-
um félagsins fyrir fundinn, en
fram hafa komið hugmyndir um
að breyta því í hlutafélag. IM
Eiga Húsvíkingar eftir að eignast myndbandaverksmiðju? Mynd sem Ásgeir
Leifsson, iðnráðgjafi hjá Iðnþróunarfélagi Þingeyinga tók í einni slíkri verk-
siniðju sem hann skoðaði í sumar. Ásgeir segir að ýmsar gerðir verksmiðja
séu til sölu og kynnti 10 hugmyndir um atvinnuuppbyggingu á aðalfundi
félagsins. Ásgeir Leifsson
Fræðslumál og vinnubrögð Brunamálastofnunar voru hclstu málin á Lands-
þingi slökkviliðsmanna, sem haldið var á Akureyri um síðustu helgi.
Landsþing slökkviliðsmanna:
Mynd: KL
Hörð gagnrýni á
Brunamálastoíhim
Á Landsþingi slökkviliðs-
manna sem haldiö var á Akur-
eyri helgina 13.-15. október sl.
kom fram hörð gagnrýni á
Brunamálastofnun íslands.
Slökkviliðsmenn telja að stofn-
unin sinni alls ekki því hlut-
verki sem henni er ætlað,
t.a.m. í fræðslumálum, sem
voru mikið til umræðu á þing-
inu.
Gunnlaugur Búi Sveinsson hjá
slökkviliði Akureyrar sagði að
helsta mál landsþingsins hefði
verið fræðsla slökkviliðsmanna,
eða réttara sagt skortur á henni.
„Okkur finnst að fræðslu
slökkviliðsmanna sé mjög ábóta-
vant, t.d. varðandi eiturefni, en
þar er ástandið ákaflega bágbor-
ið. Brunamálastofnun á að sjá
um þennan fræðsluþátt en hún
stendur sig ekki í stykkinu,“
sagði Gunnlaugur Búi.
I framhaldi af umræðum um
fræðslumálin kom fram harkaleg
gagnrýni á Brunamálastofnun.
Landsþingið samþykkti ályktun
þar sem lagt er til að slökkviliðin
og tryggingarfélögin yfirtaki
Brunamálastofnun Islands. Þing-
ið taldi þessa aðila betur færa um
að sinna því hlutverki sem stofn-
unin hefur vanrækt. SS
íslenskir dagar hjá KEA:
KyraiingarátaMð nær
hámarki ran helgina
I dag verða vörukynningar í
ýmsum verslunum KEA í
tilefni af íslenskum dögum, en
þessir kynningardagar eru nú
að ná hámarki. Það má búast
við stórtíðindum um helgina
en laugardagurinn 21. október
er lokadagurinn í kynningar-
átakinu á íslenskum vörum
sem hófst 12. október sl.
Við greinum frá því á morgun
hvað verður á döfinni um helg-
ina, en það er ekkert leyndarmál
að neytendafrömuður Spaugstof-
unnar, Kristján Ólafsson, mun
leggja sitt af mörkum til að fólk
kaupi íslenskar vörur. Þá má
minna á kynninguna frá Leir og
postulíni sem verður í Svarfdæla-
búð á Dalvík í dag og í Járn- og
glervörudeild KEA á morgun.
Það er alltaf eitthvað um að
vera í flestum deildum Kaupfé-
lags Eyfirðinga þessa daga. Til
dæmis má geta þess að Trésmiðj-
an Vinkill á Akureyri kynnir
uppsettar TV-innréttingar í
Byggingavörudeild KEA, en ís-
lenskur innréttinga- og húsgagna-
Akureyri:
Fargjöld strætis-
vagna hækka
Stjórn Strætisvagna Akureyrar
samþykkti á fundi sínum í byrj-
un október að hækka fargjöld
strætisvagna bæjarsins.
Einstök fargjöld fullorðina
hækka í kr. 55,- og einstök far-
gjöld barna hækka í kr. 17.-.
Kort fullorðina (20 stk.) kostar
framvegis kr. 825.-, kort barna
(20 stk.) kostar kr. 225.- og kort
aldraðra (20 stk.) kostar kr. 410.-.
iðnaður hefur ávallt staðið í
harðri samkeppni við innfluttar
vörur. SS
Kópasker:
Framleiða
blóðmör og
lifrarpylsu
„Við höfum nóg að gera við
sláturgerðina. Eins og er vantar
mannskap,“ segir Jón Gríms-
son á Kópaskeri, sem vinnur á
fullu við sláturgerð á vegum
Kaupfélags Þingeyinga.
„Við göngum frá bæði lifrar-
pylsu- og blóðmörskeppum í
kassa sem eru sendir í verslanir
víða um land, annaðhvort soðnir
eða ósoðnir. Ég hygg að stærsti
hlutinn fari í verslanir syðra,“
sagði Jón.
Auk sláturgerðarinnar verða
verkuð svið á Kópaskeri. Jón
segir þá vinnu lítið komna af
stað.
„Uppskriftin af slátrinu og lifr-
arpylsunni er leyndarmál. Við
höfum notað þessa uppskrift hér
í mörg ár og hún hefur líkað
mjög vel. Eigum við ekki að
segja að þetta sé sérstakt Kópa-
skersslátur,“ bætti Jón við.
Að öllu óbreyttu verður unnið
í allan vetur við sláturgerð á
Kópaskeri. Jón segir að út af fyrir
sig sé það mjög jákvætt en hins
vegar komi hún aldrei í stað
sauðfjárslátrunar á Kópaskeri.
óþh
rni
ÓlafsQörður:
punktar
■ Bæjarráð samþykkti nýlega
að taka tilboði frá Tréveri hf.,
í steypu gangstétta og fl. en
auk þess barst tilboð í verkið
frá Steypustöðinni á Dalvík.
■ Fjögur tilboð bárust í
varmaskipti við íþróttavöll og
samþykkti bæjarráð að taka
tilboði Landssmiðjunnar og
jafnframt var samþykkt að
taka tilboði frá ís’eifi Jónssyni
í stjórnbúnað.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
erindi frá stjórn verkamanna-
bústaöa. þar sem þess er farið
á leit að samþykktar verði
umsóknir um lán til kaupa á 4
fbúðum úr Byggingarsjóði
verkanranna v/úthlutunar úr
sjóðnum árið 1990.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
tillögu skólanefndar Tónlistar-
skólans, að ráða Kormák
Bragason skólastjóra skólans í
50% starfi og að pólsku hjónin
Jakub og Lidia Koloswski
verði ráðin kennarar í V/i
stöðu.
■ Bæjarstjórinn á Akureyri
upplýsti nýlega á fundi bæjar-
ráðs, að Akureyrarbær hafi
sótt um aðild að héraðsnefnd
Eyjafjarðar. Jafnframt er
hvatt til að Ólafsfjörður og
Dalvík sæki um aðild.
■ Magnús Sigursteinsson hef-
ur sagt upp starfi sínu sem
slökkviliðsstjóri frá og með
áramótum. Bæjarstjóra var
falið að ræða við Magnús og
auglýsa starfiö laust til
umsóknar.
■ Vilhelmína Héðinsdóttir
hefur lokið við tölvuskráningu
bókasafnins, sem telur 6242
bækur. Eitthvað er til af
óskráðum bókum bæði í
heimahúsunr og í togurunum
sem ckki hefur verið skilað en
bókaverði hefur tekist að ná
inn mörgum bókunr sem árum
saman hafa verið í útláni.
■ Á fundi menningarmála-
nefndar fyrir skömmu, upp-
lýsti bókavörður að Ingibjörg
Asgrímsdóttir heföi gefið
safninu 50 myndasögubækur.
■ Halla Harðardóttir hjúkr-
unarforstjóri Hornbrekku hef-
ur sagt starfi sfnu lausu frá 1.
ágúst að telja. Stjórn Horn-
brekku hefur auglýst starfið
laust til umsóknar.
■ Á fundi stjórnar Horn-
brekku fyrir skömmu var sam-
þykkt að öska eftir því við
félagsmálaráð í samvinnu með
félagi eldri borgara og þjón-
ustuhóps aldraðra, að könnuð
yrði þörf fyrir þjónustuíbúðir
handa öldruöum.
■ Bæjarstjóri skýrði á fundi
bæjarráðs nýlega frá fundi
oddvita, sveitarstjóra og
bæjarstjóra af Eyjafjarðar-
svæðinu nýlega. Þar konr fram
eindreginn vilji til að stofna
sameiginlega gjaldheimtu á
Eyjafjarðarsvæðinu. Einnig
kom fram að það væri ekki
unní nenra Ólafsfjörður væri
með.