Dagur - 20.12.1989, Blaðsíða 4
4- — DAGUR — Mldvlkudagur 20. desember 1989
Jólaundirbmringur á Bestabæ
- „Yndislegur árstími,u segir Helga Nína
Á íjölda heimila norðanlands er búið til laufa-
brauð fyrir jólin. Eitt þessara heimila, og
með þeim alíra íjölmennustu, er Bamaheimil-
ið Bestibær á Húsavík. Þar vom gerðar 80
laufabrauðskökur 4. desember. Starfsfólkið
greip í laufabrauðsgerðina milli verka og skar
út í kökumar, en dagheimilisbörnin fengu síð-
an að bretta upp laufunum. Það lá jólaundir-
búningsstemmning í loítinu, jólalög vom leikin
af snældu, jólastjaman komin á borðið, og þar
var meira að segja nammi í skál. í eldhúsinu
tóku Guðrún Guðbjömsdóttir og Sigríður
Þórðardóttir við kökunum og steiktu þær.
Forstöðumaður Bestabæjar er Helga J.
Stefánsdóttir og hún var beðin að segja okkur
svolítið frá laufabrauðsgerðinni og öðmm jóla-
ímdirbúningi á Bestabæ.
„Það eru alls 120 börn hér á
Bestabæ, á dagheimili og leik-
skóla. Við höfum látið dagheimil-
isbörnin sitja fyrir við laufa-
brauðsgerðina því það eru þau
sem koma til með að fá brauðið
með jólamatnum. Ég hef haft
þann sið frá upphafi, að á litlu-
jóladaginn okkar hef ég boðið
öllu starfsfólki; fastráðnu fólki,
ræstingafólki og afleysingafólki,
til hátíðaverðar og þá er að sjálf-
sögðu borðað laufabrauð með
jólamatnum.
Við laufabrauðsgerðina látum
við börnin ekki skera út kökur,
en þau fletta laufunum og eru
mörg mjög snjöll og vinna þetta
fallega. Sum eru búin að hjálpa
til við laufabrauð heima og önn-
ur eiga það eftir. Börnin geta öll
flett, bara ef þau fá smávegis
tilsögn, og mér finnst að foreldr-
ar ættu allir að leyfa þeim að
fletta og skera, því annars læra
þau það ekki. Ég er alveg á móti
því að nota laufabrauðshjól, því
mér finnst að kunnátta glatist ef
við kennum börnunum ekki að
skera. Einnig finnst mér kökurn-
ar virka eins og vélunnar þegar
hjólin eru notuð, þær verða ekki
nógu persónulegar og skemmti-
legar, eins og þær sem handunn-
ar eru.
Mér finnst börnin hafa gaman
af laufabrauðsgerðinni hérna.
Þetta er framandi fyrir sum, sér-
staklega þau sem ekki eru inn-
fæddir Húsvíkingar, þó ekki hafi
alveg allir vanist laufabrauðs-
gerð hér, en fyrir flest innfæddu
börnin virðist þetta vera eðlileg-
ur þáttur jólaundirbúningsins."
- Er þetta í eina skiptið á
árinu sem börnin fá að hjálpa til
við matargerð eða önnur eldhús-
verk?
„Eiginlega, þó hafa þau fengið
að baka brauð, og svo vinna þau
úr leikdegi sem stundum er bak-
að í ofni. Þau fá að vera í eldhús-
inu þegar verið er að poppa
handa þeim og þegar við grillum
fá þau meira og minna að vera
með, þó þau séu aldrei látin ein
um þessa hluti."
- Gætir jólaundirbúningsins
mikið á Bestabæ?
„Við leggjum áherslu á jólin,
af hverju þau eru haldin, hvert er
tilefni jólanna. Við höfum rólega
stund, alla daga í desember, í
rökkri með kertaljós. Þá eru sagð-
ar jólasögur og sungin jólalög.
Börnin vinna við þetta hefð-
bundna föndur; jólaskóinn, jóla-
trésskraut og á hverju ári gera
þau jólagjafir handa foreldrum,
mismunandi gjafir frá ári til árs.
Börnin útbúa jafnvel jólapappír-
Unga fólkið á Bainaheimilinu Bestabæ á Húsavík leggur síðustu hönd á laufabiauðskökuinai áðui en þeim
ei stungið í pottinn.
inn, merkimiðana og jólakortin
með aðstoð starfsfólksins. í ár
æfa eldri börnin jólaleikrit, einu
sinni í viku komum við saman á
sal og syngjum og nú erum við
að æfa jólalögin fyrir jólaballið.
Þannig að jólaundirbúningur er
talsverður og flest börnin taka
virkan þátt í honum.
Starfsfólkið kemur alltaf sam-
an einn dag fyrir jólin og málar
gluggana með helgi- og jóla-
myndum. Krakkarnir búa líka til
skraut, ásamt starfsfólkinu. Við
erum með jóladagatal og ræðum
um hvern dag aðventunnar,
þannig að það er jólasvipur á
heimilinu hjá okkur."
- Býrð þú til laufabrauð
heima hjá þér?
„Já, og ég bý alltaf til laufa-
brauðsdeigið sjálf og flet það út.
Get ekki hugsað mér ennþá að
kaupa það, en það getur breyst
með árunum. Ég get ekki heldur
hugsað mér að nota laufa-
brauðsjárn. Börnin mín hafa lært
að skera frá unga aldri og halda
því áfram. Eins og hér hef ég
jólastemningu heima, við spilum
jólalög, höfum kertaljós og gott-
erí í skál, því laufabrauðsdagur-
inn er svolítill jólahátíðardagur. “
- Ertu farin að hlakka til jól-
anna?
„Já, ég hlakka alltaf til jól-
anna. Ég er alltaf sama barnið og
hlakka tií, mér finnst þetta
yndislegur árstími. “ IM
Við steikaipottinn: Guðiún Guðbjöinsdóttii og Sigríðui Þóiðaidóttii.
Myndir: IM
Helga Nína laðar tilbúnum laufabiauðskökum
Þæi eiu fallega skornai kökurnar hjá starfsfólkinu.