Dagur - 20.12.1989, Side 6
V — flTTOACÍ — OHfif OS 7uQeFirrAc/fíilA
6 - DAGUR — Miðvlkudagnr 20. desember 1989
(f
Nfc
Sendum öllum viðskíptayinum
okkar óskir um
gleðileg jól
og farsældar á komandi ári
GPedíSmynd/jr'
Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4
/
J
Óskum viðskiptavinum okkar svo og
öllum landsmönnum
gleðUegra jóla og
farsæls komandi árs
ikapli
öilum 13 I Akure)
hf
Furuvöllum 13 I Akureyri
Sfmi 96-23830
J
/F*
k
Gleðileg jól
og farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
f\
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
J
»
t
Óskum viðskiptavinum okkar
svo og öllum landsmönnum
gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs.
SIÓVÁ^^ALMENNAR
Ráðhústorgi 5, símar 22244 og 23600.
t
\
Sendum viðsldptavinum og starfsmönnuin okkar
bestu- jóla og nýársóskir,
farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103, sími 23399 og
Sunnuhlíð 12, sími 26399.
0
' i
Ni
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári
Sigurður Hannesson,
byggingameistari k
_________Austurbyggð 12________ ýL
Sigurður Ingóirssun.
„Sagan var eMd samin sér-
staldega fyrir keppnina44
- segir Sigurður Ingólfsson, höfundur verðlaunasögunnar
Sigurvegarinn í smásagnasam-
keppni Dags og MENOR, Sigurð-
ur Ingólfsson, stundar bók-
menntanám við Háskóla íslands.
Hann kom norður til að taka á
móti verðlaunum sínum, 60 þús-
und krónum, og var viðstaddur
ásamt fjölskyldu sinni við verð-
launaafhendinguna í Gamla
Lundi föstudaginn 15. desem-
ber.
Sigurður bar sigur úr býtum í
ljóðasamkeppni MENOR og
Ríkisútvarpsins á Akureyri fyrir
fáeinum árum með prýðilegri
sonnettu. Hann var skólaskáld í
Menntaskólanum á Akureyri og
ég spurði hann fyrst hvort hann
væri alltaf að skrifa.
„Já, svona í og með. Ég fæst
aðallega við að yrkja Ijóð en er
minna í sögunum. Leikritin hef
ég ekki reynt við ennþá," sagði
Sigurður.
Ljóð eftir þennan 23ja ára
Akureyring hafa m.a. birst í
Tímariti Máis og menningar og
Morgunblaðinu á undanförnum
árum. Hann lýkur BA-námi í bók-
menntum næstkomandi vor og
aðspurður um framtíðina kvaðst
hann stefna að því að fara til
Frakklands næsta vetur.
„Mikil uppörvun“
- Þú hefur nú þegar getið þér
gott orð fyrir hugverk þín,
Sigurður, en hvenær fáum við að
sjá bók eftir þig?
„Það er aldrei að vita. Vissu-
lega er það mikil uppörvun að
hafa fengið verðlaun í ljóða- og
smásagnasamkeppni og þetta
veitir manni hvatningu. Það gæti
hugsast að eitthvað kæmi út eft-
ir mig á næsta ári, en það er best
að lofa sem minnstu."
- Hvað geturðu sagt mér um
verðlaunasöguna Sanctus? Er
þetta kannski saga sem þú
samdir sérstaklega fyrir keppn-
ina?
„Nei, reyndar ekki. Ég setti
hana þó sérstaklega á blað fyrir
keppnina. Hún var komin í smá-
brotum töluvert löngu áður og
þegar ég frétti af keppninni fann
ég uppkastið hjá mér og fór að
vinna í því. Ég lauk við söguna,
fínpússaði hana og sendi hana
síðan í keppnina, en hún var alls
ekki samin sérstaklega fyrir
þessa samkeppni, aðdragandinn
var lengri. “
Ljóðræn saga
- En efni sögunnar, er það sótt í
raunveruleikann?
„Nei, það er varla hægt að
segja það. Ég veit heldur ekki
hvort það væri rétt að segja frá
því, en það má örugglega finna
ýmislegt áþreifanlegt í henni, að
minnsta kosti bæinn. “
Sigurður vildi lítið gefa út á
það hvort skynsamlegt væri að
beita ævisögulegum rannsókn-
araðferðum við greiningu sög-
unnar Sanctus, enda ber sagan
frekar keim af hugveruleika en
raunveruleika. Þá er óþarfi að
reyna að heimfæra efni skáld-
verks upp á ævi eða sálarlíf
höfundar, skáldverkið á að geta
staðið sem sjálfstætt listaverk.
Sanctus er ljóðræn saga og
lýsti Sverrir Páll Erlendsson, for-
maður dómnefndar, henni þann-
ig: „Þetta er saga sem stendur
nærri mörkum ljóðs. Höfundur
dregur upp mynd, sem er full af
ljóðrænni dul, og sú mynd helst
óskert alla söguna án nokkurra
stílbrota. Þetta er saga sem gerð
er af fagurri og listilegri íþrótt."
Lesendur geta sjálfir greint
verðlaunasöguna Sanctus sem
birtist hér í blaðinu en Dagur
þakkar Sigurði fyrir spjallið og
óskar honum til hamingju með
sigurinn í þessari vel heppnuðu
smásagnakeppni Dags og
Menningarsamtaka Norðlend-
inga. SS
Bestu jóla-
og nýárskveðjur
til viðskiptavina, starfsmanna
og annarra landsmanna, með
þökk fyrir árið sem er að líða.
FLUGLEIDIR
Innanlandsflug