Dagur - 28.07.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 28.07.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 28. júlí 1990 Dalvíkurkirkja: Byggingarframkvæmdir haíhar við safiiaðarheimili Drif sf. Húsavík: Ljósleiðari lagður með nýrri ýtu Hafín er uppsláttarvinna við safhaðarheimiiisbyggingu á Dal- vík sem tengist kirkjunni með sérstakri tengibyggingu. í fyrrahaust var tekinn grunnur að heimilinu og steyptir sökklar. en nú verður húsið sjálft steypt upp. Samið hefur verið um kaup á 13 radda pípuorgeli frá Askov í Danmörku sem staðsett verður að mestu í tengibyggingunni, sem verður einangruð og kirkjukórn- um búin þar aðstaða í vetur. Fjárhagsleg geta leyfir ekki meiri framkvæmdir við safnaðarheimil- ið að sinni, en verklok eru fyrir- huguð á þessu byggingarstigi 15. október, en orgelið er væntanlegt til Dalvíkur í byrjun nóvem- bermánaðar, en það tekur um þrjár vikur að koma því upp, þannig að ef allar áætlanir stand- ast munu kirkjugestir á Dalvík heyra í nýju pípuorgeli í byrjun aðventu. Orgelið kostar hingað komið tæpar níu milljónir króna sem er nokkur hækkun frá upphaflegri áætlun, en samið var um að við orgelið bættist hálf rödd. í orgel- sjóð hafa safnast um 4,5 milljón- ir króna vegna gjafa og sam- skota, en mjög jákvæður hugur virðist vera meðal sóknarbarna og brottfluttra Dalvíkinga til byggingar safnarheimilis, en nýlega gáfu niðjar Jófríðar Þor- steinsdóttur og Porsteins Þor- steinssonar á Hálsi eitt hundrað þúsund krónur í orgelsjóð. GG frá nýju sjónarhorni hvernig hún vinnur. Ýtan með plógnum kostar hátt í ellefu milljónir. Það mun vera nýjung hér á landi að sama verk- færið geti borið rúllu með streng, plægt hann niður og sett um hann hlífðarrör um leið, en hingað til mun hafa þurft tvær ýtur og mun fleiri menn til vinna við slík verk- efni. Einnig er það nýjung hér að á plógnum er víbrun, þannig að hann hristist er hann ryður frá sér grjótinu og minna átak þarf til að draga plóginn og síður er hætta á að hann festist. Eigendur Drifs sf. eru bræð- urnir Björn, Sigurður og Þórður Sigurðssynir og Jóhannes Helga- son. IM inn frá Akureyri að Lundi í Öxarfírði, 146 km leið og þar af um 30 km í það grýttan jarð- veg að klæða þarf strenginn í plaströr til hlífðar. I sumar hafa 6-10 manns atvinnu hjá Drif við lagningu strengsins. Samið var um verkið sam- kvæmt tilboði sem hljóðaði upp á rúmmar 30 milljónir króna. Ýtan sem Drif sf. hefur tekið í notkun er af gerðinni Liebherr 722. Þetta er fyrsta ýtan þeirrar gerðar hér á landi að hægt er að fara með stýribúnaðinn út úr stýrishúsinu, þó er hann tengdur með kapli, en ýtustjórinn getur gengið við hlið eða á eftir ýtunni og stýrt henni, meðan hann sér Dalvíkurkirkja. Drif sf. á Húsavík tók í notkun nýja 16 tonna jarðýtu um helg- | ina, og er hún með útbúnaði til að plægja niður kapal og jafn- framt að klæða hann í hlífðar- rör. Framan á ýtunni er búnað- ur til að flytja rúllur með strengjum og rörum. Drif sf. vinnur í sumar fyrir Póst og síma að lagningu Ijósleiðara- strengs, við einn af þrem áföngunum milli Akureyrar og Egilsstaða. Drif leggur streng- Volvo 760 GLE í árekstri sem settur er á svið fyrsta skipti hér á landi Rútuferðir Norðurleiðar h/f: Nóg að gera í þessum mánuði - eftir rólega byrjun í sumar -1 Sunnudaginn 29. júlí n.k. kl. 17.00, verður settur á svið árekst- ur á Sæmundargötunni fyrir framan aðalbyggingu Háskóla íslands. Það eru Volvo verk- smiðjurnar og Brimborg hf. sem standa að þessum árekstri í sam- ráði við Umferðarráð, lögregl- una, Gatnamálastjóra, íþrótta- og Tómstundaráð Reykjavíkur. Áhugahóp um bætta umferðar menningu og SEM hópinn. Bif- reiðin sem notuð verður í þennan áresktur er af gerðinni Volvo 760 GLE og má þega þess að slík bifreið kostar rúmar þrjár millj- ónir króna. Áreksturinn fer þannig fram að bifreiðin verður keyrð beint á sjö tonna stálvegg sem komð verður fyrir á Sæmundargötunni. í bifreiðinni verða tvær brúður frá rannskóknarstofum Volvo. Brúður þessar eru mjög nákvæm eftirlíking af mannslíkamanum og kosta þær um fimm milljónir króna. Bifreiðinni verður fjar- stýrt á vegginn af sérfræðingum frá Volvo sem koma hingað til að framkvæma áreksturinn. Eftir að bifreiðin hefur lent á veggnum verður almenningi gefinn kostur á að skoða hana. Volvo framkvæmir árekstur sem þennan fyrir almennig út um allan heim á hverju ári. Til- gangurinn er að sjálfsögðu sá að vekja athygli á þeirri miklu áherslu sem Volvo leggur á öryggi bifreiða sinna. Tilgangur- inn er einnig að vekja fólk til umhugsunar um öryggi í umferð- inni og notkun bílbelta. Rann- sóknir hafa sýnt að fólk sem hef- ur upplifað árekstur á beinan eða óbeinan hátt ber annan hug til aksturs og öryggis í umferðinni á eftir. Það er von þeirra sem standa að þessum árekstri að svo verði einnig í þessu tilfelli. Sætanýting hjá Norðurleið hf. á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar hefur verið mjög góð í júlímánuði, eftir frekar rólega byrjun í sumar. Þor- varður Guðjónsson hjá Norðurleið sagði að júní hafi ekki verið eins góður og við var að búast, og öllu verri en síðustu sumur. Spilar þar inn í minni umferð erlendra ferða- manna til landsins í júní en oft áður. Þorvarður sagði það vera til- fellið að ef meira væri um ráð- stefnur í Reykjavík í júní þá væri minna að gera í áætlunarferðum, „hvort sem það er meginorsök- in,“ sagði Þorvarður. „En júlí hefur verið góður, öllu betri en síðasta sumar.“ Yfir sumartímann og fram á haust hefur Norðurleið verið með síðdegisferðir undanfarin 4- 5 ár á milli Akureyrar og Reykja- víkur. Þorvarður sagði að þær ferðir hafi verið mjög vel sóttar í sumar og væru stöðugt að sækja í sig veðrið. Yfir háannatímann á sumrin eru farnar 4 síðdegisferðir í viku, en fyrst á vorin og yfir haustið eru 2 ferðir á föstudögum og sunnudögum. í fyrra stóðu síðdegisferðir yfir um helgar alveg fram að jólum og nýtti skólafólk sér þær ferðir mjög vel. Norðurleið hf. er einnig í hóp- ferðum og að sögn Þorvarðar hafa þær einnig gengið vel. M.a. hefur verið boðið uppá ferðir yfir Sprengisand og Kjöl, sem hafa verið vel sóttar. Þar er matarbíll með í för, ásamt rútu og leið- sögumanni. -bjb DAGIJR Akureyri Norðlenskt dagblað

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.