Dagur - 28.07.1990, Blaðsíða 15

Dagur - 28.07.1990, Blaðsíða 15
Laugardagur 28. júlí 1990 - DAGUR - 15 Myndin er tekin við afhendingu fullgildingarskjala íslands. F.v. Michel Hansenne, forstjóri ILO, Kjartan Jóhannsson sendiherra, Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu og Stefán Jóhannsson sendifulltrói. ísland Mgildir tvær al- þjódasamþykktir Alþjóða- vimiumálastofnunarinnar dagskrá fjölmiðla Á Stöð 2 er á dagskrá kl. 17.00 á laugardag nýsjálenski framahaldsflokk- urinn Glys. Á síðasta Alþingi voru sam- þykktar tvær þingsályktunartil- lögur sem félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, lagði fram um heimild fyrir ríkisstjórn- ina til að fullgilda tvær alþjóða- samþykktir Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar (ILO). Hér er um að ræða alþjóðasamþykkt nr. 122 frá árinu 1964, um stefnu í atvinnumálum, og nr. 159 frá árinu 1983, um starfsendurhæf- ingu og atvinnumál fatlaðra. Kjartan Jóhannsson, sendi- herra íslands hjá alþjóðastofnun- um í Genf, afhenti forstjóra alþjóðavinnumálastofnunar í Genf, Michel Hansenne, fullgild- ingarskjöl íslands meðan 77. Alþjóðavinnumálaþingið stóð hinn 22. júní sl. Viðstaddir athöfnina voru Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðu- neytinu og Stefán Jóhannsson sendiráðsritari. Þetta eru fyrstu fullgildingar íslands á alþjóðasamþykktum ILO í 10 ár. Samtals hefur ísland nú fullgilt 16 af 169 samþykktum sem þing Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar hafa afgreitt frá árinu 1919. Alls hafa forstjóra ILO borist 5.010 fullgildingar- skjöl frá aðildarríkjum stofnun- arinnar sem eru 150 talsins. Þess skal getið að í alþjóðasamþykkt- unum felast skuldbindingar um lágmarkskröfur á hinum ýmsu sviðum vinnu- og félagsmála. Alþjóðasamþykkt nr. 122, um stefnu í atvinnumálum, felur í sér skuldbindingu um að aðildarríki lýsi því m.a. yfir sem meginmark- miði að framfylgja stefnu er miði að því að veita öllum næga, arð- bæra atvinnu eftir frjálsu vali. í tillögum sem fylgja samþykktinni er ýtarleg útfærsla á því hvernig markmiði tillögunnar verði náð. Þessi samþykkt er talin ein af mikilvægari samþykktum Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar og hafa 73 af 150 aðildarríkjum stofnun- arinnar fullgilt hana. Samkvæmt alþjóðasamþykkt nr. 159, um starfsendurhæfingu og atvinnumál fatlaðra, skal móta, hrinda í framkvæmd og endurskoða með ákveðnu milli- bili stefnu ríkisins í starfsendur- hæfingu og atvinnumálum fatl- aðra. Samkvæmt samþykktinni skal umrædd stefna miða að þvi að allir hópar fatlaðra hafi aðgang að endurhæfingarstarfsemi við sitt hæfi og að því að fjölga atvinnutækifærum fyrir fatlaða á hinum almenna vinnumarkaði. Með þessum hætti miðar sam- þykktin að því að bæta stöðu fatl- aðra almennt í þjóðfélaginu. Samþykktin hefur verið fullgilt af 30 aðildarríkjum ILO. í þeim hópi eru öll Norðurlöndin. Sjónvarpið Laugardagur 28. júlí 16.00 íþróttaþátturinn. Fylgst verður með íþróttaviðburðum líð* andi stundar, Bikarkeppninni í frjálsum íþróttum í Mosfellsbæ og Friðarleikunum í Seattle. 18.00 Skytturnar þrjár (15). 18.25 Ævintýraheimur prúðuleikaranna (1). (The Jim Henson Hour.) í þessum fyrsta þætti verður rifjuð upp saga þáttanna Sesame Street. Gestur: Bill Cosby. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Ævintýraheimur prúðuleikaranna framhald. 19.30 Hringsjá. 20.10 Fólkið í landinu. Björg í Lóni. Ævar Kjartansson ræðir við Björgu Áma* dóttur, organista og kórstjóra í Lóni í Kelduhverfi og Kirkjukór Keldhverfinga syngur nokkur lög. 20.30 Lottó. 20.40 Hjónalíf (11). (A Fine Romance.) 21.10 Drengurinn sem hvarf. (Drengen der forsvandt.) Jónas er þrettán ára og orðinn lang- þreyttur á erjum foreldra sinna. Hann ákveður að strjúka að heiman í þann mund sem fjölskyldan er að leggja af stað í sumarleyfið. Aðalhlutverk: Mads Nielsen, Kirsten Olesen og Millie Reingaard. 22.30 Hættuleg ástriða. (Dangerous Affection.) Bandarísk spennumynd með garaansömu ivafi frá árinu 1987. í myndinni segir frá bamshafandi konu og syni hennar en um líf þeirra situr morðingi sem drengurinn veit deili á. Aðalhlutverk: Judith Light, Jimmy Smits og Audra Lindley. 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Sunnudagur 29. júlí 16.00 Friðarleikamir i Seattle. 17.40 SunnudagBhugvekja. 17.50 Pókó (4). 18.05 Boltinn. (Bolden.) Myndin gerist í upphafi sjötta áratugar- ins og íjallar uœ ungan dreng sem dreym- ir um að leika fótbolta á Ólympiuleikum. 18.25 Ungmennafélagið (15). Fótbolta sparkað. Umsjón Valgeir Guðjónsson. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Vistasklpti (8). 19.30 Kastljós. 20.30 Guð er ekki fiskmatsmaður. (God is not a Fish Inspector.) Myndin gerist á elliheimili í Gimh og segir frá Fúsa nokkrum Bergman sem er ekki á þvi að gefast upp fyrir Elli kerlingu. Aðalhlutverk: Ed McNamara og Rebecca Toolan. 21.00 Á fertugsaldri (7). 21.45 Listasmiðjan. Pálssonar, Mob Shop IV, við Viborg í Dan- mörku. 22.35 Vegurinn heim. (The Long Way Home.) Bresk heimildamynd um Boris Greben- shikov, einn fremsta dægurtónhstarmann Sovétríkjanna. 00.05 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Mánudagur 30. júlí 17.50 Tumi. (Dommel). 18.20 Litlu prúðuleikararnir. (Muppet Babies.) 18.50 Táknmálsfróttir. 18.55 Yngismær (130). 19.20 Við feðginin (2). 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Ljóðið mitt (9). Að þessu sinni velur sér ljóð Ingólfur Guðbrandsson tónlistar- og ferðamála- frömuður. Umsjón: Valgerður Benediktsdóttir. 20.40 Ofurskyn (3). (Supersense). Þriðji þáttur: Hljóð og heyrn. Einstaklega vel gerður breskur fræðslu- myndaflokkur í sjö þáttum þar sem fylgst er með því hvernig dýrin skynja veröldina í kringum sig. 21.10 Skildingar af himnum. (Pennies from Heaven). Fimmti þáttur. Breskur myndaflokkur í sex þáttum. aðalhlutverk: Bob Hoskins. 22.40 Friðarleikarnir. 23.00 EUefufréttir. 23.10 Friðarleikamir frh. 00.00 Dagskrárlok. Stöð 2 Laugardagur 28. júlí 09.00 Morgunstund með Erlu. 10.30 Júlli og töfraljósið. 10.40 Perla. 11.05 Stjörnusveitin. 11.30 Tinna. 12.00 Smithsonian. (Smithsonian World.) 12.55 Lagt i'ann. 13.25 Eðaltónar. 14.00 Veröld - Sagan í sjónvarpi. (The World - A Television History.) 14.30 Á uppleið. (From the Terrace.) Paul Newman leikur unga stríðshetju sem reynir að ávinna sér virðingu föður síns með.þvi að ná góðum árangri í fjár- málaheiminum. Þetta markmið hans verður til þess að hann vanrækir eigin- konu sína og hún leitar á önnur mið. Aðalhlutverk: Paul Newman og Joanne Woodward. 17.00 Glys. (Gloss.) 18.00 Popp og kók. 18.30 Bilaíþróttir. 19.19 19.19. 20.00 Séra Dowling. (Father Dowling.) 20.50 Stöngin inn. Við fylgjumst með lífi fótboltamanna utan vallar, þeir m.a. heimsóttir í vinnuna. Dómarar fá einnig sinn skammt og verður greint frá nokkrura athyglisverðum augnablikum í dómgæslunni. 21.20 Sagan um Karen Carpenter.# (The Karen Carpenter Story.) Mynd þessi er byggð á raunverulegum atburðum um hina kunnu söngkonu Kar- en Carpenter. Hún þjáðist af megrunar- veiki, sem varð henni að aldurtila. Aðalhlutverk: Cynthia Gibb, Mithell Anderson og Peter Michael Goetz. 22.55 Hugarflug.# (Altered States.) í New York starfar sálar-lífeðlisfræðingur- inn Jessup við vafasamar tilraunir á vit- und mannsins. Hann gerir tilraunir á sjálfum sér í keri þar sem hann er sviptur allri skynjun svo sem á ljósi, hljóði, þyngd- arlögmáli og svo framvegis. Aðalhlutverk: WUliam Hurt og Blair Brown. Stranglega bönnud börnum. 00.35 Undirheimar Miami. (Miami Vice.) 01.20 A1 Capone. (Capone.) Þessi mynd er frá árinu 1975 og fjaUar um uppgangsár þessa Ulræmda manns. Aðalhlutverk: Sylvester StaUone, John Cassavetes og Susan Blakely. Stranglega bönnuð börnum. 02.55 Dagskrárlok. Stöð 2 Sunnudagur 29. júlí 09.00 í Bangsalandi. 09.20 Popparnir. 09.30 Tao Tao. 09.55 Vélmennin. 10.05 Krakkasport. 10.20 Þrumukettirnir. 10.45 Töfraferðin. 11.10 Draugabanar. 11.35 Lassý. 12.00 Popp og kók. 12.30 Viðskipti í Evrópu. 13.00 Fullttungl. (Moonstruck.) Þreföld Óskarsverðlaunaraynd um vanda- mál innan fjölskyldu af ítölskura ættum. Þetta er bráðskemmtUeg mynd þar sem vandamáhn eru skoðuð frá öðru sjónar- horni en við eigum að venjast. Aðalhlutverk: Cher, Nicolas Cage, Danny AieUo, Juhe Bovasso, Feodor Chaliapin og Olympia Dukakis. 15.00 Listamannaskálinn. (Southbank Show.) Toulouse Lautrec. 16.00 íþróttir. 19.19 19.19. 20.00 í fréttum er þetta helst. (Capital News.) 20.50 Björtu hliðarnar. 21.20 Van Gogh. (Van Gogh.) Fyrsti hluti af fjórum í nýrri mynd sem gerð hefur verið um ævi og list Vincent Van Gogh en í dag er þess minnst að eitt hundrað ár eru liðin frá þvi að Vincent lést. Annar hluti er á dagskrá annað kvöld. 22.20 Alfred Hitchcock. 22.45 Sofðu rótt prófessor Ólíver. (Sleep WeU Professor Oliver.) Spennumynd um prófessor nokkurn sem fer að rannsaka óupplýst sakamál sem hann vUl kenna djöfladýrkendum um. Aðalhlutverk: Louis Gossett jr. og Shari Headley. Stranglega bönnuð börnum. 00.15 Dagskrárlok. Stöð 2 Mánudagur 30. júlí 16.45 Nágrannar. (Neighbours.) 17.30 Kátur og hjólakrílin. 17.40 Hetjur himingeimsins. 18.05 Steini og Olli. 18.30 Kjallarinn. 19.19 19.19. 20.30 Dallas. 21.20 Opni glugginn. 21.35 Töfrar. (Secret Cabaret.) 22.00 Van Gogh. Annar hluti vandaðrar framhaldsmyndar um líf og störf þessa einstæða lista- manns, en í gær var einmitt hundrað ára ártíð hans. Þriðji og næstsíðasti hluti verður sýndur á morgun. 23.00 Fjalakötturinn. Mikli McGinty. (The Great McGinty.) Sagt er frá iðjuleysingja sem er komið í áhrifastöðu fyrir tilstilli spilltra pólitískra afla. Þegar hann reynir að vera heiðarleg- ur og sinna starfi sinu af drengskap kemst hann að raun um það að slíkt er ekki vel séð. Aðalhlutverk: Brian Donlevy, Akim Tam- iroff og Muriel Angelus. 00.20 Dagskrálok. Hvers vegna er nágranni þinn áskrifandi að Heima er bezt Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hériendis. Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir sent heim til þín í hverjum mánuði. Útfylltu þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“. Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti. x----------------------------------------- Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri. Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu „Heimaerbezt". □ Árgjald kr. 2.000,00. □ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990. Nafn: _________:__________________________ Heimili: I Ríkissjónvarpinu er á dagskrá kl. 20.30 á sunnudag þátturinn Lista- smiðjan.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.