Dagur - 28.07.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 28. júlí 1990
ferðamál
Litið við á Hótel Þelamörk í Hörgárdal:
„Einhvem tímann verður
maður að setjast að“
- hótelstjórinn, Guðmundur Árnason frá Reykjavík, tekinn tali
Guðmundur Árnason stýrir Hótel Þelamörk í fyrsta sinn í sumar, en hann er menntaður í hótelstjórn og ferðamála-
fræðum frá skóla í Sviss. Myndir bjb
Hótel Þelamörk í Hörgárdal er
sennilega það hótel á landinu
sem stendur einna næst við
þjóðveg nr. 1, aðeins nokkra
metra frá malbikinu. Reyndar
er það aðeins rekið sem sumar-
hótel, en heimavist fyrir Þela-
merkurskóla á veturna. Það er
Ferðaskrifstofan Nonni á
Akureyri sem rekur hótelið í
sumar og er þetta annað
sumarið sem Nonni gerir það.
Áöur var hótelið í umsjá
Ferðaskrifstofu Akureyrar.
Hótelstjóri í sumar er Guð-
mundur Árnason, sem kemur
frá Reykjavík, og stýrir Hótel
Þelatnörk í fyrsta sinn. Blaða-
maður átti nýlega leið framhjá
Þelamörk og ákvað að taka
hótelstjórann tali.
Guðmundur er enginn nýgræð-
ingur í ferðamannabransanum.
Hann var mörg sumur fararstjóri
á Spáni fyrir Úrval og Polaris, en
árið 1987 ákvað hann að mennta
sig í hótelstjórnun og ferðamála-
fræði. í þeim tilgangi fór hann til
Sviss og þess á milli á sumrin
vann Guðmundur á Hollydav Inn
í Reykjavík, þar sem hluti af
náminu var að starfa á h'óteli.
Guðmundur lauk náminu um síð-
ustu jól og fram til vorsins var
hann á ferðinni í Evrópu. En
hvað kom til að hann réðist sem
hótelstjóri í Þelamörk?
Eins og langur
veiðitúr á sjó
„Pegar ég kom heim til íslands í
vor frétti ég að það væri laus
staða hótelstjóra hér og ég ákvað
að sækja um. Ég fékk svo stöð-
una og hef verið hér síðan.“
Guðmundur sagði að síðustu
sumur hafi gengið illa á láta enda
ná saman á Þelamörk, t.d. hafi
síðasta sumar komið illa út. „En
það gengur vel núna og augljóst
mál að það verður enginn tap-
rekstur á hótelinu að þessu
sinni,“ sagði Guðmundur.
- Hvernig var að koma út á
land eftir að hafa starfað fyrir
sunnan og stundað nám erlendis?
„Svona vinna er þannig að það
er alveg sama hvar þú ert. Maður
er hérna allan daginn alla daga.
Ég hef engan frídag tekið frá því
ég byrjaði, en það stendur til
bóta um þessa helgi. Það verður
eina helgarfríið sem ég tek. Þetta
er bara eins og langur veiðitúr á
sjó eða vertíð.“
Hver krókur fullur
síðan hlýindin byrjuðu
- Er búið að ganga vel í sumar
hjá Hótel Þelamörk?
„Já, ég held það megi segja
það. í júní sýndist mér reksturinn
alveg standa undir sér en ég er að
vona að það verði einhver
afgangur eftir þennan mánuð.
Það er búið að vera mjög mikið
að gera og nýtingin það sem af er
þessum mánuði hefur verið um
70%. Það er gott miðað við hvað
þetta er lítið þekkt hótel og sam-
keppnin við Eddu-hótelin hörð.
Við höfum fengið mikið af
útlendum ferðamannahópum
sem koma reglulega, aðallega
þýska, svissneska og franska. Við
sjáum varla orðið útlendinga frá
t.d. Skandinavíu, Bretlandi og
Bandaríkjunum.“
- Hvað með íslendingana, hafa
þeir lítið sést hér?
„Jú, íslendingar sáust hér til að
byrja með. En eftir að kuldakast-
ið kom 17. júní og stóð fram í
júlí, þá minnkaði umferð þeirra
mjög mikið. Þá var góða veðrið
fyrir sunnan og enginn hreyfði sig
af stað. Svo gerðist það í kringum
10. júlí að allt fór af stað aftur.
Það hefur hver krókur verið full-
ur síðan og 100% nýting upp á
hvern einasta dag.“
Nóg ad gera í
„ættarmótabransanuin“
Hótel Þelamörk er með 24 her-
bergi, þar af 22 tveggja manna.
Guðmundur sagði að pláss væri
fyrir 46 gesti. Hótelið býður einn-
ig upp á svefnpokapláss og sagði
Guðmundur að í kringum það
væri mjög góð aðstaða. „Fyrir þá
sem gista í svefnpokaplássi eða í
tjöldum við hótelið er aðstaða að
kennslueldhúsi skólans, þar sem
m.a. eru þrjá eldavélar. Þetta er
aðstaða sem er yfirleitt ekki boð-
ið upp á öðrum hótelum, svo ég
viti til, og er mjög vinsæl.“
Aðspurður sagði Guðmundur
að eitt og annað væri í boði fyrir
hótelgesti á Þelamörk. Tengist
það aðallega þeirri þjónustu sem
Ferðaskrifstofan Nonni býður
upp á. „Síðan höfum við verið
aðeins í „ættarmótabransanum“.
Við höfum verið með 60 manna
ættarmót upp í það að vera með
350 manna mót, sem var hér
nýlega. Þá voru dekkuð borð í
íþróttasal og kennslustofum skól-
ans og mikið um að vera. Það
lagðist allt á eitt, yfir 20 stiga hiti
og veðrið frábært. Hótel Þela-
mörk er kjörinn staður fyrir
mannamót af þessu tagi, hér er
góð sundlaug og næg tjaldstæði."
Sundlaugin í Þelamörk
vinsæl
Guðmundur minntist á sundlaug-
ina, en það má segja að hótelið sé
einna nafntogaðast fyrir hana. í
Þelamerkursundlaug er talið að í
fyrsta sinn á íslandi hafi farið
fram formleg sundkennsla, og við
laugina er skjöldur til merkis um
það. Það var skáldið Jónas Hall-
grímsson sem var einn af frum-
kvöðlum þess að kenna sund á
Þelamörk. Guðmundur sagði að
búið væri að taka sundlaugina
alla í gegn og þessa dagana er
verið að taka í notkun heitan pott
og gufubað við hana. „Það er
mikið um að Akureyringar komi
hér daglega til að taka sundsprett
á bökkum Hörgár. Laugin er
vinsæl, enda er hún höfð heitari
en gengur og gerist í venjulegum
sundlaugum," sagði Guðmund-
ur.
Vantar meiri samgöngur
framhjá hótelinu
- Nú er hótelið mjög nálægt
þjóðveginur.i. Hefur það áhrif til
hins betra eða verra?
„Ég mundi segja að það hafi
áhrif til hins betra. Hótelið er
mjög vel staðsett og tilvalið fyrir
ferðafólk á bílum að líta við. Ég
hef látið merkja hótelið betur við
veginn. Margir taka náttúrlega
stefnuna inn á Akureyri og ætla
sér að dvelja á hóteli þar. Ef allt
er fullt þar er nokkuð um að fólk
kemur hingað. En ég mundi
segja að hérna væri að mörgu
leyti mun betri aðstaða fyrir fjöl-
skyldufólk, því það er nóg við að
vera fyrir krakka. Gallinn er sá
að hér eru engar samgöngur, sér-
staklega fyrir þá sem eru ekki á
bíl. Það ganga engar rútur hér
framhjá nema Norðurleið. Ef þú
ætlar t.d. inn á Akureyri þá fer
Norðurleiðarrútan bara einu
sinni framhjá. Dalvíkurrútan
kemur hér stöku sinnum. Ég þarf
að hringja í hana áður og ef hún
er full þá kemur hún ekki. Þetta
gerir það að verkum að hótel-
gestir stoppa yfirleitt ekki nema
yfir eina nótt.“
Þetta hefur verið
lærdómsríkur tími
- Hvenær lýkur svo vertíðinni í
sumar?
„í byrjun september. Það er
vel bókað fram í miðjan ágúst, en
eftir það fer umferðin að minnka
verulega. Annars fer þetta svolít-
ið eftir veðrinu. Sumarhótel-
rekstur er þannig að júlí er
háannatíminn, fyrir og eftir það
er minna að gera.“
- Gætirðu hugsað þér að vera
hér áfram á Þelamörk næsta
sumar?
„Ég verð áfram í þessum
„ferðabransa“, það er alveg aug-
ljóst mál. Ég er ekki búinn
að ákveða það endanlega.
Gjarnan vildi ég að það yrði hér á
íslandi. Einhvern tímann verður
maður að setjast að einhvers
staðar. Ég hef verið mikið á
flakki, bæði búið, unnið og lært
erlendis. Ég ætla að láta það ráð-
ast hvað býðst í haust. Mér finnst
gaman af þessu og aldrei að vita
nema ég komi hér aftur næsta
sumar. Þetta hefur verið lær-
dómsríkur tími. Hér hafa unnið
með mér sjö ungir og hressir
Akureyringar, miklir dugnaðar-
forkar en reynslulaus í ferða-
þjónustu áður en þau byrjuðu
hér. Það hafa allir lært heilmikið
og ekki síst ég. Gestirnir hafa far-
ið héðan mjög glaðir þannig að
ég get ekki verið annað en
ánægður með dvölina hér,“ sagði
Guðmundur að lokum. -bjb
Guðmundur við bakka sundlaugarinnar á Þelamörk, sem þykir vinsæl og nú
bætist við heitur pottur og gufubað. „Það er ekki amalegt að hafa fagran
Hörgárdalinn í baksýn,“ sagði Guðmundur þegar blm. smellti af.