Dagur - 14.12.1990, Qupperneq 5
Föstudagur 14. desember 1990 - DAGUR - B 5
Garðskirkja eins og hún er í Jag.
sinnum. Áriö 1904 er kirkjugarö-
urinn stækkaður og lagður gang-
stígur úr grjóti frá sáluhliði að
kirkjudyrum.
1901 semur sóknarnefndin við
Sveinunga Sveinungason vinnu-
mann í Lóni um að mála nýja alt-
aristöflu i Garðskirkju, og noti til
fyrirmyndar gömlu töfluna sem
orðin var mjög fornfáleg. Var hin
nýja tafla tilbúin 1903, er það
Kristsmynd, snoturt og vandað
verk sem enn er í allgóðu standi.
1916 er kirkjugarðurinn stækk-
aöur aftur og það sama ár sett
nýtt fótstykki við norðurhlið, og
nýjar þiljur neðan við glugga,
kirkjan einnig máluð og settar á
þakrennur.
1926-27 er sett ný girðing um
kirkjugarðinn, úr vírneti á hvít-
máluðum tréstólpum, endurnýj-
að fótstykki og þiljur á austur-
gafli og keypt nýtt orgel á kr.
700. Og það gamla selt á 100 kr.
Árið 1937 er gerður nýr graf-
reitur um 400 m noröaustur af
kirkjunni, var hann girtur og frá-
genginu á næsta ári, og rúmar 160
leiði.
1949 er steypt utan um alla
kirkjuna, og árið eftir er steypt
forkirkja og turn, múrhúðað og
klætt marmaramulningi og hrafn-
tinnu 1952. Rafmagn var leitt í
kirkjuna til ljósa og upphitunar
1967. Steypt gólf 1970 og það
teppalagt stuttu síðar.
Garðskirkja eins og hún var um 1910.
Þá átti kirkjan í sjóði frá
undangengnum árum um 2700
kr. Á þessu tímabili þjónaði
Garðskirkju séra Þorleifur Jóns-
son er sat á Skinnastað frá 1881-
1911.
Þann 9. sept. 1890 kemur sett-
ur prófastur Halldór Bjarnason í
Presthólum, að Garði til að
skoða og taka út hina nýju
kirkju, en séra Halldór er skipað-
ur prófastur síðnr sam: ár.
1 úttektarbréfi er þess getið að
prófastur luifi fundið að því að
ekki var búið að festa kirkjuna
niður á grunninn.
Einnig er þess getiö að innan-
klæðning hafi gisnað verulega og
sums staðar gengin úr falsi, mest
af kirkjunni var einmálað, hvelf-
ingin blá, veggir hvítir ofan að
brjóstlistum, en gulir neðan við
glugga, listar og bekkir í sama lit,
altari og predikunarstóll er gul-
málað með hvítum spjöldum.
Þá er byggingarkostnaður orð-
inn 3.470 k'r. og 75 aurar, og eru
smíðalaun og fæði og ferðakostn-
aður smiða rúmur helmingur af
þeirri upphæð eða 1.842 kr.
Tveimur árum eftir að kirkjan
er tekin í notkun eða 6. ágúst
1892 vísiteraði biskupinn Hall-
grímur Sveinsson kirkju og söfn-
uð í Garði, hafði þá ekki verið
GarAskirkja eftir breytingarnar árið 1952.
vísiterað þar síðan 1828 af
Steingrími Jónssyni b;skupi, eða
fyrir 64 árum, svo biskupsheim-
sóknir hafa ekki vcrið mjög tíðar
á þeim tímum.
Þá hafði biskup gren..slast eftir
kirkju- og kristilegu hugarfari
safnaðarins, og var það taliö í
góðu lagi, og sérstaklega tekið
fram af presti og sóknarmönnum,
að sá orðrómur sem um allmörg
ár hcfði legið á þessari sveit, fyrir
vantrú og trúarvillu, væri nú og
hefði verið um mörg ár með öllu
ástæðulaus. Þá kemur fram í
sömu greinargerð að kirkjan
skuldar vegna byggingarinnar
700 kr. og 53 aura.
Fyrst maður er komrnn svo
langt aftur í fortíðina, er rétt að
geta þess, að til er heimild frá
1848, um að þáverandi prestur í
Garði Magnús Jónsson hafi rað-
að mönnum til sætis í kirkjunni,
þar sem hver bóndi átti sinn sess,
eftir efnum og ástæðum, á kon-
urnar er hvcrgi minnst einu oröi.
Þessi sætaskipun er vel þekkt
víða, en hefur cf til vill haldist
lengur við í Garðskirkju cn ann-
ars staðar.
Þó kirkjan sé tekin í notkun
1890 er samt margt ógert, og ver-
ið að setja járnþak á hana í
áföngum allt til 1901 eða 1902.
Árið 1898 var byggt nýtt
klukknaport í kirkjugarðshliði,
og strax eftir aldamót byrjar
viðhald, gallar komu fram í stein-
lími við fótstykki kirkjunnar og
þurfti það viðgerða við hvað eftir
annað.
Á fyrstu 10 árunum er kirkjan
máluð utan og innan tvisvar
Þá voru settir í hana nýir
gluggar með lituðu gleri.
Fastur söngkór var stofnaður
við kirkjuna 1945 undir stjórn
Bjargar Björnsdóttur Lóni sem
starfar enn undir hennar stjórn.
Björg hcfur verið organisti við
kirkjuna síðan 1942.
Áður höfðu Vilborg Þórarins-
dóttir Kílakoti og Árni Björns-
son Lóni verið organistar við
kirkjuna og æft kóra er sungu við
messugjörðir.
Einnig Steinþór Þorgrímsson
og fleiri. Orgel hefur verið í
kirkjunni síðan fyrir eða um
aldamót.
Kirkjunni hafa verið gefnir marg-
ir góðir gripir í gegnum árin og
má þar nefna orgel, skírnarfont,
kertastjaka, messuklæði, altaris-
dúk, Kristsmynd og Ijósakross
sem skartar á turni hennar, og
margt fleira mætti til nefna.
Þá hefur kirkjan fengið mikið
af áheitum í gegnum árin, og fær
enn. Hefur það þótt gefast vel að
heita á Garðskirkju þegar mikið
liggur við.
Eins og stendur í dag er hið
upprunalega kirkjuhús, með
þeim endurbótum sem á því hafa
verið gerðar, í allgóðu standi.
Aftur á móti er að verða að-
kallandi að gera við forkirkju og
turn, vegna sigs á undirstöðu,
leka og fúa í turni.
Vonandi á Garðskirkja eftir að
gegna sínu hlutverki enn um
langa framtíð, eins og verið hefur
hingað til, því:
Er sem sterkur ofinn þrádur
ítök kirkju á lífsins brautum.
Hún verdur nú sem ætíd ádur
okkar skjól í gleði og þrautum.