Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. desember 1990 - DAGUR - B 7
Brytjið súkkulaðið niður.
Hrærið öllu saman og rúllið í
lengjur. Sneiðið þær niður og
setjið kökurnar á ofnplötuna.
Bakið við um 200 gráður.
Sýnishom úr eld-
húsi skólastjórans
Haframjölið er greinilega vinsælt
hráefni í jólakökubaksturinn.
Benedikt Sigurðarson, skóla-
stjóri Barnaskóla Akureyrar,
gefur hér uppskrift að hafra-
mjölskökum.
Haframjölskökur
2 bollar haframjöl
IV2 bolli hveiti
1 bolli rúsínur
1 bolli smjörlíki
IV2 bolli sykur
2 tsk. natron
2 egg
Hnoðið deigið eftir kúnstar-
innar reglum. Benedikt mælir
með því að brytja rúsínurnar.
Mótið í litlar kökur á plötu og
bakið í ofni við ca. 200 gráður.
Auk þessarar ágætu uppskrift-
ar gefur Benedikt lesendum hér
uppskrift að dýrindis „Brúnsneiða-
tertu“. Undirtitill uppskriftarinn-
ar er „uppskrift Steingerðar1' og
mun skólastjórinn hafa fengið
hana úr smiðju móður sinnar.
Brúnsneiðaterta
500 g hveiti
250 g sykur
250 g smjörlíki
1 tsk. hjartasalt
3 tsk. lyftiduft
2 msk. (ekki stór) síróp
1 tsk. kanill
2 skeiðar kakó
1 tsk. allrahanda
e.t.v. mjólk
e.t.v. egg
Hnoðið saman (ekki í hræri-
vél). Fletjið út á tvær plötur.
Bakið eftir auganu! Ekki of
mikið! Vanillukrem og sulta sett
á milli laga. Látið brjóta sig.
Margrét
í marsipaninu
Margrét Blöndal, dagskrárgerð-
armaður á Útvarpi Norðurlands,
sagðist ekki vera í vandræðum
með að velja uppskrift fyrir les-
endur Dags. Hún dró upp úr
pússi sínu verðlaunauppskrift í
smákökusamkeppni Rásar 2 árið
1984. „Ég hef bakað þessa
uppskrift fyrir jólin síðustu sex
ár. Mig minnir að dómnefndin
hafi á sínum tíma borða sig á gat
af þessum kökum," sagði Mar-
grét. Hún sagðist ekki vera viss
um hvaða nafn uppskriftin bæri,
en ákvað að nefna hana „marsi-
pannúgatkökur".
Marsipannúgatkökur
1 kg marsipan (mælt með Odense
renro)
6 eggjahvítur
250 g flórsykur
200 g núgat
Setjið marsipan, egg og flór-
sykur í pott. Hitið við vægan hita
og hrærið saman. Kælið og setjið
í sprautupoka. Skerið núgatið í
litla teninga (ca. 1 cm á kant).
Sprautið maripanhrærunni í litla
hringi á plötuna (hafið bökunar-
pappír á plötunni). Setjið núgat-
teningana á hringina og síðan
toppa af marsipanhræru ofan á.
Bakið við 225 gráður í 5-7 mínút-
ur. óþh
Benedikt Sigurðarson.
Óskum viðskiptavinum og
starfsfólki okkar
gleðilegra jóla og farsœldar
á komandi ári
K. Jónsson og Co. hf.
Niðursuðuverksmiðja Akureyri.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
Pökkum viðskiptin á árinu.
Bílaval Notað innbú
Strandgötu 53 Hólabraut 11
Sími 21705 Sími 23250
Stjórnusól Stjörnuræktin
Geislagötu 12 Geislagötu 12,
Sími 25856 Sími 11041
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.
óskar öllum viðskiptavinum sínum
og starfsfólki
gleðilegra jóla og góðs árs.
Bestu jóla- og nýársóskir
sendum við öllum
viðskiptavinum okkar
Þökkum viðskiptin.
Bílaverkstæði
Þ. Jónsson
Frostagötu 1b, Akureyri
Sími 26055.
pottinum og látið aftur krauma í
stutta stund. Kælið niður, en
gleymið ekki að hræra annað
slagið í pottinum. Setjið síðan
appelsínubörkinn út í og appels-
ínusafann ef vill. Hellið hrærunni
í litlar konfektöskjur (sem fást í
flestum matvöruverslunum) og
geymið á köldum stað.
í staðinn fyrir appelsínusafann
má nota 2-3 matskeiðar af
rommi, koníaki eða líkjör. t>á er
ekki nauðsynlegt að hafa Nes-
kaffið með í uppskriftinni.
Haframjölskúlur (40-45 stk.)
125 g smjör
100 g haframjöl (3 dl)
35 g kókosmjöl (1 dl)
75 g flórsykur (IV2 dl)
3 msk. kakó
1 tsk. vanillusykur
2 msk. rúsínur
25 g hnetukjarnar
1 msk. kaffi
Blandið saman smjörinu og
haframjölinu. Bætið við flórsykr-
inum, kakóinu, vanillusykrinum
og rúsínunum. Brytjið hneturnar
í smábita og blandið þeim saman
við. Bætið síðan kaffinu út í,
hnoðið „deigið" og mótið litlar
kúlur. Að lokurn er þeim velt
upp úr kókosmjöli eða annarri
skreytingu sem fólki dettur í hug.
Dórukonfekt
(úr smiðju Halldóru Bjarnadótt-
ur, starfsmanns Krabbameinsfé-
lags Akureyrar og nágrennis.)
500 g Odense-marsipan
1 kg Renro-marsipan
300 g Blöd-nougat
Súkkulaði (suðu- eða hjúpsúkku-
laði)
100-150 g kókosmjöl
2 glös (125 g) rauð kokteilber
Döðlur (smátt saxaðar)
Hnoðið saman marsipanteg-
undunum og bleytið með safan-
um af kokteilberjunum. Bætið
síðan kókosmjölinu, nougatinu,
kokteilberjunum og suðusúkku-
laðinu út í.
Síðan er öllu hnoðað saman og
mótað í lengjur og settar í frysti.
Lengjurnar skornar niður í bita
og settar í lítil pappírsform. Síð-
asta stigið er að hjúpa bitana með
Linduhjúp.
Óskum Húsvíkingum svo og
landsmönnum öllum
gkðilegra jók
ogfarsœls komandi árs
Þökkum samstarfið á árinu.
Bæjarstjórn Húsavíkur