Dagur - 14.12.1990, Síða 15
Föstudagur 14. desember 1990 - DAGUR - B 15
— spjallað yið Bjama Har í Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki
>i
sem einnig var snætt í. Ætli ég hafi ekki
verið nteð þeim yngstu í hópnum og þetta
var mjög spennandi og gaman að mér
fannst. Unnið var frá klukkan sjö á morgn-
ana og til klukkan sjö á kvöldin og ég er
hræddur um að fólki nú til dags þættu
pásurnar hafa verið ansi fáar. Þarna voru
alls konar persónur og ég man sérstaklega
eftir einum karli sem mér eldri strákar
voru alltaf að espa upp með því að snúa út
úr fyrir o.fl.
Frí var aðra hverja helgi og ansi gaman
að koma heim á föstudegi. Seinnipart
sunnudags var síðan hossast aftur norður í
boddíbíl. Lífið í vegagerðinni var
skemmtilegt og karlarnar voru oft að segja
okkur strákunum hinar ótrúlegustu lyga-
sögur."
Dátar á Króknum
Eftir vegavinnuna fór Bjarni að vinna á
síldarplani á Króknum og kynntist þar allt
öðrum handlegg. Hann segir stemmning-
una á planinu hafa verið alveg jafnmikla
og af er látið, þó að planið á Sauðárkróki
hafi trúlega ekki verið það fjörugasta og
aldrei dansað þar svo hann muni. En
hvernig snertu hernámsárin Króksara?
„Þá voru hér hermenn, en ekki ntargir
og ekki lengi. Það voru einir tveir braggar
úti á Eyri og þeir hertóku Hótel Tindastól.
Dátarnir settu svip á bæjarlífið og myndar-
strákar innan um, annars var ég nú svo
ungur að ég man ekki hvort við bæjar-
strákarnir höfðum einhverjar áhyggjur af
því hvort stúlkurnar hlypu upp í fangið á
dátunum. Þeir gengu stundum um bæinn
með byssu um öxl, en héldu sig annars
mest við braggana.“
- Hvernig var að alast upp á Króknum?
„Það var ágætt og mér þykir alltaf vænt
um Sauðárkrók. Þetta er orðinn byggileg-
ur bær núna, en hér eins og annars staðar
í litlum þorpum man ég eftir að fátækt var
og litla vinnu að hafa. Menn fóru á suður á
vertíð og gott þótti að komast í vega-
vinnu.“
- Manstu eftir einhverjum eftirminni-
legum persónum í bæjarlífinu frá þínunt
uppvaxtarárum?
„Þá voru margir góðir hér sem höfðu
mikla frásagnargáfu. Ég man t.a.m. eftir
Óskari Þorleifssyni, Húnvetningi að ætt,
sem kom frá Skagaströnd og haföi frá
mörgu að segja og sagði vel frá. Sumir
sögðu að hann skáldaði sögurnar að stór-
um hluta, m við krakkarnir höfðum samt
gaman af að hlusta á þær. Hann var hér til
sjós og sn íðaði einnig og sögurnar sem
hann sagc/ voru aðallega af honum sjálf-
um. Óskar \ar ekkert að ljúga upp á aðra
og þótt sögurnar væru stundum ótrúlegar
var gaman að hlýða á kallinn.“
Meiri barlómur í fólki en áður
Bjarni tók við verslun föður síns árið 1959,
en var búinn að hjálpa mikið til í henni
áður. Hann segist litlar breytingar hafa
gert frá því hann tók við henni, þó að auð-
vitað hafi orðið þróun í viðskiptum eins og
öðru. Þessu til staðfestingar rekur blaða-
maður augun í forláta Mercedes ritvél sem
er komin til ára sinna, en ennþá notuð til
að fylla út ýmis plögg.
„Búðin er að mestu leyti eins og hún var
þegar ég tók við henni ’59. Nýr búðarkassi
og nýtt búðarborð er nánast eina breyting-
in. Núna er einnig meira af sauntuðum
fatnaði, en hér áður fyrr var vefnaðarvara
í metravís."
Upphaflega var Verslun Haraldar Júlíus-
sonar timburhús, en síðan var byggt utan
um það steinhús og að lokum bætt við ann-
arri hæð á það og þannig lítur húsið út í
dag, en verslunin er bara í litlum hluta
þess.
- Er öðruvísi að vera kaupmaður nú til
dags en fyrir þrjátíu árum?
„Já, að vissu leyti. í dag er meiri velta og
kúnninn hefur tryggari vinnu, en aö mínu
mati er samt meiri barlómur í fólki núna
en áður var.“
Bjarni segir vöruúrvalið hjá sér vera
frekar hefðbundið. Plássið sé ekki það
mikið að hægt sé að bæta við sig að ein-
hverju ráði. Lengi hefur þó verið sagt að
ýmislegt fáist hjá Bjarna Har sem ekki
fáist annars staðar. Að eigin sögn segir
hann þeim vörum samt fara fækkandi. En
eru sömu viðskiptavinirnir í verslun hjá
honum og fyrir þrjátíu árum?
„Já, það má segja það. Margir af þeim
sem þá versluðu við mig versla hér enn.
Ungt fólk rekst einnig hér inn og aðallega
er það nú olíusalan sem eykur viðkomu
manna, en hér hefur verið selt bensín og
olía svo lengi sem ég man eftir mér."
Fjör á Sæluviku
- Hcfur bæjarlífið á Sauðárkróki ekki tek-
ið miklum breytingum á þessum árum frá
því þú varst að alast upp?
„Jú, það hefur gert það og t.d. er Sælu-
vikan orðin allt önnur en þegar ég var
yngri. Hér áður var hún veigamikill þáttur
í lífi Skagfirðinga og stóð frá sunnudegi til
sunnudags. Bíósýningar voru og mikið af
sjónleikjunt, leikritum og revíum, og
dansað á hverju kvöldi. Yfirleitt var byrj-
að á dagskránni fljótlega upp úr hádegi,
enda lítil vinna í þá daga. Fleira fólk var í
sveitum þá en nú og skipti það með sér
verkum þannig að einhverjir voru fyrstu
dagana á Króknum, en fóru síðan heim og
aðrir komu í staðinn. Fólk gisti á hótelinu
eða hjá kunningjum og alltaf var glatt á
hjalla. Ég man að þegar ég var að byrja að
fara á böllin í Sæluviku stóð ballið til
klukkan tvö á þriðjudegi og lengdist síðan
um klukkutíma á hverju kvöldi. Dansað
var í Bifröst, Gúttó og stundum í þriðja
húsinu einnig, enda veitti ekki af því mig
minnir að á einu laugardagskvöldi hafi
selst 900 eða 1000 miðar. Oft voru ntenn
kátir og heimilisiðnaðurinn entist vel.
Nú er þessu viðbrugðið og asi hvers-
dagsins virðist gera það að verkum að fólk
hefur ekki tíma til neins og sjónvarpið
glepur sjálfsagt eitthvað, enda Sæluvikur
ekki orðnar merkilcgar miðað við það sem
áður var.“
Jólaundirbúningurinn
- Hver voru fyrstu jólin sem þú manst
eftir?
„Ætli ég hafi ekki verið fimm ára gamall
á fyrstu jólunum sem ég man ennþá eftir.
n
Jójlatréð og annað sem glepur börn eins og
gjafir er það sent lifir í minningunni og hér
hjá mínum foreldrum átti ég alltaf góð jól.
í sambandi við það að þótt mikið sælgæti
væri í búðinni var alltaf reynt aö halda í
við mig í sælgætisáti, jafnvel um jólin og ég
fékk sko ekki að valsa í því eins og ég
vildi."
- Hvernig er undirbúningi kaupmanns-
ins Bjarna Har háttað fyrir jól í dag?
„Ég kaupi inn jólaglingur, bæði til gagns
og gamans. Úrvalið er orðið það mikið að
maður saknar ekki neins sem hætt hefur
veriö að frantleiða og alltaf koma vörur í
vöru stað. Sumt var erfitt að fá fyrir ára-
tugum og ég man t.d. eftir því að ávextir
sáust ekki í búðinni nema rétt fyrir jólin.
Nú er þetta orðið allt annað og sumir
kaupmenn setja upp jólaskraut og tilheyr-
andi í nóvember. Ég læt mér hinsvegar
nægja að byrja þetta 1. des. eins og siður
var og hengi þá upp svipað skraut og ég
hef alltaf gert. Það furðulegasta við þróun-
ina er samt e.t.v. það, að fólk virðist vera
seinna til að kaupa jólagjafirnar en áður
var, en alltaf er samt verið að skoða."
Tíminn líður hraðar
- Heldurðu að það sé mikill munur á að
koma inn í Verslun Haraldar Júiíussonar
jólin ’90 og að koma þar inn fyrir fimmtíu
árurn?
„Já, ég held að ntunurinn sé nú dálítill.
Núna er miklu meira úrval, en andrúms-
loftið er e.t.v. það sama, að minnsta kosti
ekkert betra. Oft komu hér sérkennilegar
persónur sem lifa í minningunni þó að ég
hafi bara verið krakki þegar ég sá þær og
heyrði. í þá daga var allt miklu rólegra og
verslanir mikið notaðar til að rabba saman
um leið og innkaupin voru gerð. Ég sakna
þessa dálítið, en ég er sjálfur farinn að eld-
ast og tíminn líður þá hraðar, svo árið er
runnið á enda áður en maður veit af.“
Tcxíi o«4 myndir:
Skúli Bjöm Gunnarsson