Dagur - 14.12.1990, Side 18
18 B - DAGUR - Föstudagur 14. desember 1990
Sungið af hjartans lyst.
isaiuur tsaiavinssnn syngur einsong með kornum.
Karlakórinn Hreimur í Hvammi:
Heimilisfólkið kunni vel að
meta sönginn og heimsóknina
Karlakórlnn Hreimur heimsótti nýlega Hvamm, dval-
arheimili aldraðra á Húsavík, og söng nokkur lög fyrir
heimilisfólkið. Var kómum vel tekið og ekki leyndi sér
að heimamenn kunnu vel að meta söng hans og þá ekki
síður heimsókn svo margra vaskra manna. Milli laga
var talsvert hvíslast á um ættir kórfélaga og uppruna og
reynt að kenna svip manna af minningum um svipmót
feðra þeirra og áa. Stóð kona ein á því fastar en fótun-
um að Robert Faulkner, stjómandi kórsins, væri greini-
lega ættaðxu- úr Mývatnssveit og líklegast náskyldur
Práni Pórissyni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Hreimur kemur og syngur í
Hvammi, kórinn var stofnaður
1975 og er því 15 ára. Söngmenn
kórsins eru úr sex hreppum Suð-
ur-Þingeyjarsýslu auk Húsavík-
ur. Tvö síðustu árin hafa hjónin
Juliet og Robert Faulkner frá
London starfað með kórnum,
hann sem stjórnandi en hún sem
undirleikari, þau eru tónlistar-
kennarar við Hafralækjarskóla
en kórinn kemur saman til æfinga
þar og að Ydölum. Einsöngvarar
með kórnum eru Rangárbræður,
Baldur og Baldvin Kr. Baldvins-
synir.
Kórinn hefur haldið fjölda tón-
leika á Norðurlandi, einnig hefur
hann tekið þátt í kóramótum og
haldið tónleika á Selfossi og í
Reykjavík nú í nóvember. Þrisv-
ar hefur kórinn farið erlendis í
söngferðir; til Færeyja, Noregs
og Englands.
Gestkvæmt á aðventu
Pað var gestkvæmt í Hvammi um
mánaðamótin, í sömu viku og
Hreimur var á ferðinni kont einn-
ig kór Barnaskóla Húsavíkur og
söng fyrir heimilisfólkið undir
stjórn Line Werner. Kvenfélagið
í Mývatnssveit kom í heimsókn,
en kvenfélögin í sýslunni hafa
það fyrir reglu að heimsækja
Hvamm til skiptis mánaðarlega.
Lionsmenn komu síðan eitt
kvöldið og héldu félagsvist í
Hvammi. Venjulega mun vera
mikið urn það að ýmsir hópar
komi í heimsókn í Hvamm fyrir
jól en síðan eru færri á ferðinni
eftir áramót. Lions- og Kiwanis-
klúbbarnir koma þó 1-2 sinnum á
vetri og eitthvert kvenfélaganna
mánaðarlega, eins og fram hefur
komið.
„Heimilisfólkinu líkar þessar
heimsóknir mjög vel og það hef-
ur ekki síst gaman af söng,“ sagði
Hörður Arnórsson, framkvæmda-
stjóri Dvalarheimilis aldraðra,
aðspurður um heimsóknirnar.
Hörður tók undir það að þeir
sem kæmu í Hvamm hefðu ekki
síður gaman af heimsóknunum
en heimilisfólkið. Það er sannar-
lega ekki síður notalegt á aðvent-
unni en á öðrum árstímum, að
setjast niður hjá göúilum kunn-
ingjum og heyra sögur af öfum og
ömmum og þeim tímum þegar
fólk var ekki alltaf að flýta sér
svona óskaplega mikið. Og
kannski er velþegnasta jólagjöfin
sem við getum gefið, svolítið af
okkur sjálfum og ofurlítið af tíma
okkar.
Skreytum og höfum
hátíðlegt um jól
í vor verða liðin 10 ár frá því að
fyrstu íbúarnir fluttu í Hvamm.
Nú eru 50 heimilismenn í aðal-
byggingunni og þangað koma
einnig 10-12 manns sem eru í
dagvist. Hús með þjónustuíbúð-
um hafa verið reist við Hvamm,
þegar hafa 11 íbúðir í níu húsum
verið teknar í notkun og verið er
aö byggja hús meö fjórum íbúð-
um sem taka á í notkun í janúar.
- Hvernig eru jólin í Hvammi?
„Það er messað hér á jóladag
og á annan í jólum koma Lions-
menn í heimsókn. Fólkið fer í
heimsóknir til barna og annarra
ættingja hér í bænum en það er
ekki mikið um að fólk fari af heim-
ilinu til að gista, nema þá þeir
sem fara út í sveit.“
- Ég hef trú á því að þú sért
sjálfur talsvert mikið í Hvammi
um jólin.
„Alltaf á aðfangadagskvöld
erum við hérna bæði hjónin. Þá
borða allir saman en síðan fer
fólk talsvert inn á sín herbergi
því það sest snemma að. Við
reynum að skreyta hérna og hafa
það svolítið hátíðlegt um jólin.“
Kristín Sigurbjörnsdóttir og Sigríður Jónsdóttir.
Heimilisfólk á tónleikunum.
Dóróthea Jónsdóttir, Hulda Valdimarsdóttir og Guðrún Gísladóttir hlusta hugfangnar á sönginn.