Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 20. desember 1990 Ómar og Þor- grímur árita Rithöfundarnir Ómar Ragn- arsson fréttamaður og Þor- grímur Þráinsson ritstjóri leggja í dag land undir fót í þeim tilgangi að árita nýút- komnar bækur sínar. Þeir félagar verða staddir í Bókabúð Brynjars á Sauðár- króki í hádeginu í dag en halda síðan sem leið liggur til Akureyrar, loftleiðis í „Frú“ Ómars. Peir verða síðan í Tölvutækjum/Bókvali frá kl. 16.00-18.00 og í Bókaverslun- inni Eddu frá kl. 19.30-21.00. Ómar áritar bók sína „í einu höggi“ og Þorgrímur unglingabókina „Tár bros og takkaskór". Báðar þessar bækur eru útgefnar af Fróða. FSA: - um jól og áramót Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á heimsóknar- tímum á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri vegna hátíðarinnar sem í hönd fer. Heimsóknartímar á FSA eru að venju öllu rýmri á stór- hátíðum en aðra daga og svo er einnig nú. Helstu breyting- ar eru þær að á aðfangadag og gamlársdag er heimsóknartím- innfrákl. 18.00 til kl. 21.00. Á jóladag, annan dag jóla og nýársdag eru heimsókn- artímar frá kl. 14.00-16.00 og kl. 19.00-20.00. Að öðru leyti eru heimsókn- artímar samkomulagsatriði við viðkomandi deildir sjúkra- hússins. Akureyri: Breyttur afgreiðslu- tímiÁTVR Afgreiðsla Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á Akureyri verður opin held- ur lengur en venja er næstu daga. I dag, fimmtudag, verður opið frá kl. 10.00 til 20.00 og á morgun föstudag, verður opið frá kl. 10.00 til 22.00. Síðan verður afgreiöslan lokuð þar til á milli jóla og nýárs. Fimmtudaginn 27. og föstu- daginn 28. desember verður opið frá klukkan 10.00 til 18.00. Vakin er athygli á því að afgreiðslan er opin í hádeg- inu alla þessa daga. Loks verð- ur opið frá kl. 9.00 til kl. 12 á hádegi á gamlársdag. Akureyri: Jólasveinarnir fljúga norður Jólasveinar ætla að bregða sér í flugferð í dag. Síðdegis koma nokkrir þeirra með Flugleiða- vél frá Reykjavík og ætla þeir að skemmta börnum og for- eldrum í flugstöðinni á Akur- eyri í dag kl. 17.50. Þær fregn- ir hafa borist á undan köllun- um að í pokum þeirra leynist eitthvað gott handa börnun- um. (Tilkynning) frétfir íh Undantarin ár hefur Kaupfélag Eyfirðinga sent börnum sem þess óska kort frá jólasveinum KEA. Þar er átt við þá jólasveina sem hafa skemmt börnum á Akureyri reglulega í byrjun desember síðustu ár, af svölum Vöruhússins. Hátt í eitt þúsund börn hafa þegar óskað eftir korti frá jólasveinunum. Einnig hafa börn sent inn teikningar tengdar jólunum til KEA og hafa fjölmargar teikningar þegar borist. Þær eru nú til sýnis í Vöruhúsi KEA og þar var þessi inynd tekin í gær. Mynd: Golli Samband íslenskra samvinnufélaga: Rekstri Jötuns verður breytt í hlutafélag um áramót Sauðárkrókur: Hlutafélagið Jötunn mun um áramótin taka yfir rekstur þann sem „Jötunn - deild í $ambandinu“ hefur haft með höndum á yfirstandandi ári. Á hluthafafundi í Jötni hf. í fyrradag var ákveðið að auka hlutafé úr 934 þúsundum í 140 milljónir króna og er það allt innborgað. Hluthafar í Jötni hf. eru Sam- bandið og tvö samstarfsfyrirtæki þess, Reginn hf. og Dráttarvélar hf. Jötunn hf. er nú opinn öllum kaupfélögunum og samstarfsfyr- irtækjum Sambandsins svo og öðrum viðskiptaaðilum eftir nán- ari ákvörðun stjórnar. Starfsemi Jötuns hf. skiptist á fimm svið, bíladeild, véladeild, fóðurvörudeild, raftæknideild og þjónustudeild. í stjórn Jötuns hf. voru kosin Guðjón B. Ólafsson, stjórnarfor- maður, Sigurður Kristjánsson Selfossi, Sigurður Gils Björgvins- son Reykjavík. Til vara Þórhalla Snæþórsdóttir Stöðvarfirði. Framkvæmdastjóri verður Sigurður Á. Sigurðsson, sem ver- ið hefur framkvæmdastjóri „Jöt- uns-deildar í Sambandinu". óþh Samþykkt að stofiia félagsmiðstöð Mikil umræða hefur verið á Sauðárkróki síðustu vikur um félagsaðstöðu fyrir unglinga. Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju- dag var síðan samþykkt fund- argerð félagsmálaráðs sem inniheldur eftirfarandi sam- þykkt varðandi stofnun félags- miðstöðvar í félagsaðstöðu Gagnfræðaskóla Sauðárkróks: „Félagsmálaráð leggur til að ráðinn verði hið fyrsta starfsmað- ur til þess að hafa umsjón með félagsstarfi fyrir unglinga á Sauð- árkróki. Starfið miðast við 35 klst. vinnuviku, ennfremur er óskað eftir að lausráða annan starfs- mann í 10 klst. á viku. Félagsmálaráð fer þess á leit að starfið verði auglýst nú þegar. Um er að ræða starf til skóla- loka og skoðast þetta sem reynslutími á þessa starfsemi. Við gerð fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir að endurskoða þurfi tímann í haust, í ljósi reynslunn- ar. Jafnframt samþykkir félags- málaráð að þegar starfsmaður hefur verið ráðinn, þá verði kannað með framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöð á Sauðár- króki.“ Matthías Viktorsson, félags- málastjóri, sagði að auglýst yrði strax eftir starfsmanni ög vonáð- ist hann til að hægt yrði að hefja starfsemina af fullum krafti eigi síðar en í lok janúar. Allt færi það eftir því hve margar umsókn- ir bærust og síðan þyrfti að útbúa starfsaðstöðu fyrir starfsmann- inn, en vonandi gengi þetta allt saman upp innan tíðar. SBG Byggðanefnd undir forystu Stefáns Guðmundssonar: Skilar tiUögum snemma á næsta ári Stefán Guðmundsson alþingis- maður gekk í gærmorgun á fund Steingríms Hermanns- sonar, forsætisráðherra, til viðræðna um störf byggða- Skákfélag Akureyrar stóð fyrir Haustmóti barna og unglinga í hraðskák um síðustu helgi. I flokki 13-15 ára sigraði Þórleif- ur Karl Karlsson með yfirburð- um. Hann vann allar sínar skákir og hlaut 16 vinninga. I 2. sæti varð Örvar Arngríms- son með 11V2 v., Gestur Ein- arsson varð í 3. sæti með 8 vinninga og Páll Þórsson í 4. sæti með 8 vinninga. í drengja- og telpnaflokki, 12 ára og yngri, voru 24 keppendur og tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad kerfi, tvær skákir við hvern andstæðing. Flóvin Næs frá Færeyjum tefldi sem gestur í þessum tlokki og gerði sér lítið fyrir og sigraði glæsilega. Hann hlaut 14 vinn- inga af 14 mögulegum. Flóvin er íslenskur í móðurætt og átti heima á Akureyri fyrir fáeinum árum. Einar Jón Gunnarsson varð 2. með 10 vinninga og er hann haustmeistari í hraðskák í þess- nefndar sem Stefán veitir for- stöðu. Hlutverk nefndarinnar er að gera tillögur um aðgerðir í byggðamálum og breytingar á lögum um Byggðastofnun og um flokki. Næstir komu Hafþór Einarsson, BárðurH. Sigurðsson og Gunnþór Jónsson. Birna Baldursdóttir varð efst telpna og Auður Dóra Franklín varð önnur. SS Skákfélag Akureyrar: Jón Björgvinsson bikarmeistarí Jón Björgvinsson varð bikar- meistari Skákfélags Akureyrar 1990. Bikarmótið er útsláttar- keppni og detta menn úr keppni eftir að hafa misst þrjá vinninga. Þetta eru hálftíma skákir. Arnar Þorsteinsson varð í öðru sæti, Þór Valtýsson í þriðja og Þórleifur Karl Karlsson í fjórða. Næsta mót hjá Skákfélagi Akureyrar er 10 mínútna mót fimmtudaginn 20. desember kl. 20. SS starfsemi hennar. Forsætisráðherra skipaði tvær byggðanefndir í haust. Nefnd sem Jón Helgason var formaður í lauk störfum fyrir nokkru. Eftir það tók nefnd Stefáns Guð- mundssonar til starfa, og er vinna við nýjar tillögur í byggðamálum langt komin. Að sögn Stefáns verða tillögurnar kynntar snemma á næsta ári, og má búast við að þær veki verðskuldaða athygli. Stefán vildi ekki tjá sig um efni þeirra, en sagði þó að margt væri þar í þeim anda sem Norðlendingar hefðu horft til undanfarna mánuði. Vinna við endurskoðun laga um Byggða- stofnun er ekki eins langt komin. í nefndinni eiga sæti, auk Stefáns, þeir Zóphanías Zóphaníasson, Trausti Þorláks- son, Ragnar Arnalds og Sighvat- ur Björgvinsson. „Ég vona að okkur miði vel áfram, og fljótlega upp úr ára- mótum fari að komast verulegur skriður á starfið. Segja má að til- lögur um fyrstu aðgerðir í byggðamálum sé það sem fólk horfi mest á, enda hafa þær tekið mestan tíma. Ég vildi sjá niður- stöðu nefndarinnar sem Jón Helgason veitti forstöðu áður en við færum af stað. Ég hef trú á að fjörugra frétta verði að vænta eft- ir áramótin frá nefndinni," segir Stefán. EHB Jólasveinar voru á ferð um helgina á vegum Lundarkjörs á Akureyri og fóru þeir um á lyftara og sungu hástöfum. Einnig sóttu þeir nokkur börn heim á lyftaranum og færðu þeim góðgæti. Mynd: Goiii i skák t Haustmót barna og unglinga í hraðskák: Þórleifur með Mt hús - Einar Gunnarsson haustmeistari í yngri flokki

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.