Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 20. desember 1990 - DAGUR - 11 Myndlistaskólinn á Akureyri: Jólasýning Pálínu og Rögnu í dag, fimmtudaginn 20. des- ember kl. 17, verður opnuð sýning á verkum Rögnu Her- mannsdóttur og Pálínu Guð- mundsdóttur í Myndlista- skólanum á Akureyri. Á sýningunni verða bæði mál- verk og trélistaverk og voru þæt stöllurnar í óða önn við að hengja upp verkin þegar blaða- menn Dags bar að garði í gær. Pær hafa báðar sýnt á Akureyri áður. Sýning Pálínu og Rögnu verð- ur opin fram á Þorláksmessu, sunnudaginn 23. desember, og einnig 26. og 27. desember. SS Leyfilegt áfengismagn í blóði: Meiríhluti vill lækkun prómillmarkaima Hagvangur gerði nýlega skoð- anakönnun fyrir Umferðarráð, þar sem meðal annars var Messur um jól og áramót: Leiðrétting - við Hríseyjar- prestakall í jólablaði Dags sem út kom í gær, miðvikudaginn 19. desem- ber, er rangt farið með eina tíma- setningu í Hríseyjarprestakalli; á upplýsingasíðu um messur um jól og áramót á Norðurlandi. Par stendur að kveikt verði á leiða- lýsingu í Stærri-Árskógskirkju klukkan 23 á Porláksmessu en hið rétta er að kveikt verður á henni kl. 18. Hlutaðeigandi eru beðnir vel- virðingar á þessari misritun. Svört læða týndist Fyrir nokkrum dögum týndist svört læða á Akureyri. Hún hvarf frá húsi við Munkaþverárstræti. Kisa var með brúna leðuról þegar hún fór, en á ólina var ritað síma- númerið 24649. Tveir litlir dreng- ir sakna jólakattarins síns sárt, og ef einhver veit hvar svarta læðan er niður komin er viðkomandi beðinn að hringja í ofangreint símanúmer. spurt um afstöðu fólks til frum- varps Árna Gunnarssonar og fleiri alþingismanna til lækk- unar leyfilegs áfengismagns í blóði ökumanna. Einnig var spurt um afstöðu til notkunar negldra hjólbarða í umferð- inni. Loks var spurt hvaða aðili hefði á undanförnum árum beitt sér mest fyrir notkun bíl- belta hér á landi. • Af þeim sem tóku afstöðu vildu 55% breytingu á umferöar- lögum, sem gerir ráð fyrir að lækka leyfileg mörk. 45% vildu ekki brcytingar. • Mun fleiri konur vilja að þessi mörk verði lækkuð en karlar. Af konutn sent tóku afstöðu vildu 65% lækkun markanna, en 35% vildu óbreyttar reglur. • Meirihluti karla vill óbreytt mörk eða 55%. 45% vilja að mörkin verði lækkuð. • Talsvert fleiri vilja nota neglda hjólbarða í ár, en fram kom í sambærilegri könnun frá því á síðasta ári. Um 10% fleiri á höf- uðborgarsvæðinu vilja nota neglda hjólbarða en í könnun frá síðasta ári. • Umferðarráð og framkvæmda- stjóri þess Óli H. Þórðarson eru taldir vera sá aðili sem rnest hefur beitt sér fyrir notkun bílbelta hér á landi. 47% aðspurðra nefna Umferðarráö, cn 14% Óla H. Þórðarson. 5% nefna trygginga- félög og lögreglu og 8% nefna ýmsa aðra aðila. 26% tilgreina engan aðila. Af þeim sem nefna einhvern nefna 81% Umfcrðar- ráð eða Óla H. Þórðarson. Jólasveinarnir koma fljúgandi með Flugleið- um, fimmtudaginn 20. desember og lenda ó Akureyrarflugvelli kl. 17.50. Þeir skemmta bömum í flugstöðinni og gefa jólapoka. FLUGLEIÐIR innanlandsflug og jólasveinarnir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.