Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 20. desember 1990 - DAGUR - 5
Hafrannsóknastofnun:
BÓKABÚÐ JÓNASAR |
Jón Hjaltason
áritar bók sína
SÖGUAKOREYRAR
í verslunni í dag kL 4-6 e.h.
Verið velkomin með áður keypt eintök
B0KABUÐ .!
JONASAR Jlll VillsL
Hafnarstræti 108 Sími 96-22685
Nokkur hætta gæti stafað af
rekís á siglingaleiðum í vetur
- helstu niðurstöður hita- og seltumælinga í leiðangri
Bjarna Sæmundssonar 6.-29. nóvember sl.
„Rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson var í loðnu- og
sjórannsóknaleiðangri á mið-
unum umhverfis landið dagana
6.-29. nóvember. Leiðangurs-
stjóri var Hjálmar Vilhjálms-
son, skipstjóri Sigurður Árna-
son og Stefán S. Kristmanns-
son sá um sjórannsóknirnar.
Hér verður greint frá helstu
niðurstöðum hita- og seltu-
mælinga í lciðangrinum:
Hlýsjórinn fyrir Suður- og
Vesturlandi var í meðallagi heit-
ur og saltur (>6.5°C, >35.1 0/
00). Hans gætti einnig mfðdýpis á
landgrunninu austur með öllu
Norðurlandi að Langanesi (4-5°,
34.9-35 0/00). Petta er breyting til
batnaðar frá fyrri hluta árs 1990
þegar enginn hlýsjór fannst á norð-
urmiðum, en í ágúst varð hans
vart í nokkrum mæli eftir þriggja
ára hlé (1987-1990). Það kann
því að rætast nokkuö úr um
þorskárganginn frá 1990 þrátt
fyrir mjög litla seiðagengd í
sumar. Astand sjávar á norður-
miðum í haust er hliðstætt því
sem var á árinu 1983. Þá var eng-
inn hlýsjór á norðurmiðum fyrri
hluta árs, en hann skilaði sér svo
á miðin seinni hluta ársins 1983
og hélt velli til 1987, samhliða
góðum þorskárgöngum 1983 og
1984. Uppeldisskilyrði flestra
helstu nytjafiska hafa því batnað
mikið frá því sem verið hefur
nokkur undanfarin ár.
Ofan á hlýsjónum á vestur-
hluta norðurmiða var að vanda á
þessum árstíma seltulítið yfir-
borðslag, en skilin við kaldan
pólsjóinn í Grænlandssundi voru
tiltölulega skammt undan landi
sem og rekísinn (vesturís).
Nokkur hætta gæti því stafað af
honum á siglingaleiðum í vetur í
óhagstæðum vindáttum (miðs-
vetrarís).
Pólsjávar gætti á hinn bóginn
ekki í kalda sjónum í Austur-
íslandsstraumi í haust og er
hafíss því vart að vænta úr þeirri
átt (austurís). Athuganirnar í
kalda sjónum djúpt norður af
landinu sýna enn, eins og 1989
ríkjandi svalsjó án tiltölulega
hlýs millilags. Þetta ástand hefur
f kvöld, fimmtudaginn 20. des-
ember kl. 20.30, verða hinir ár-
legu jólasöngvar fjölskyldunnar í
Akureyrarkirkju.
Það er orðinn árlegur viðburð-
ur í starfi safnaðarins að koma
saman til fjölskyldusamveru f
kirkjunni laust fyrir jól og undir-
búa komu jólanna og þátttöku í
helgihaldinu með því að syngja
jólasálma og hugleiða orð úr
helgri bók undir leiðsögn organ-
áður reynst lífríkinu á djúpmið-
um erfitt og m.a. á helstu ætis-
svæðum loðnunnar. Sú var
reyndin 1981-1983 og er aftur nú
1989-1990 þegar loðnustofninn
mælist með minnsta móti. Horfur
í þessum efnum eru e.t.v. betri
fyrir næstu tvö ár en svo getur
aftur horfið til verri vegar í sjón-
um samkvæmt mælingum á ástandi
sjávar í hafinu suður og norður af
landinu.
Þannig er ástandið í hlýja sjón-
um á norðurmiðum í haust liugs-
anlega hagstætt fyrir þorsk en
óhagstætt í þeim kalda fyrir
loðnu. í vetur og næsta vor og
sumar verður að vanda áfram
fylgst mcð ástandi sjávar á mið-
unum við landið," segir í frétt frá
Hafrannsóknastofnun.
istans og prcstanna.
Auk þess að söfnuðurinn syngi
jólasálma af sálmabók, ntun að
þessu sinni sr. Jón Helgi Þórar-
insson, formaður sálmabókar-
nefndar, kynna og kenna þrjá
nýja sálma úr væntanlegum viö-
bæti við sálmabókina.
Vonandi geta sem flest okkar,
eldri og yngri, gefiö sér tíma til
að setjast niður í annríkinu miðju
og njóta þessarar stundar í kirkj-
unni.
Jólasöngvar í Akureyrarkirkju
Jólasveinar
' koma í heimsókn
I kl. 14-16 í dag
t ^
Veríö velkomin.
HAGKAUP
Akureyri
Aígreiðslutínii verslaua
í desember umfram veiiju
Fimmtudagimi ........... 20. desember frá lel. O0.OO-2S.OO
Föstudaginn ............ 21. desember frá Xd. 09.00-22.00
Laugardaginn .......... 22. desember frá kl. 10.00-23.00
Mánudagbm .............. 24. desember frá kl. 09.00-12.00
Kaupfelag Eyfirðinga — Kaupmannafélag Akureyrar