Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 20.12.1990, Blaðsíða 13
bœkur Fimmtudagur 20. desember 1990 - DAGUR - 13 V Spfl og spádómar Bókaútgáfan Setberg hefur sent frá sér bókina Spil og spádómar í þýðingu Óskars Ingimundarson- ar. í kynningu frá útgefanda segir m.a.: „Hvaða vitneskju getum við fengið um framtíð okkar og örlög? I þessari bók eru lesend- um kynntar margar þær aðferðir sem menn hafa þekkt í aldaraðir til að sjá fyrir óorðna hluti. Hér er horft inn í framtíðina, fjallað um spilaspár, stjörnu- speki, lófalestur, drauma- ráðningar og margt fleira.“ Spil og spádómar er 136 blað- síður í stóru broti. Bókin kostar 1.680 krónur. Hrossin í Skorradal Örn og Örlygur hafa gefið út barnabók sem nefnist Hrossin í Skorradal, eftir færeyska höfund- inn Ólav Michelsen og mynd- Jólagjöf hestamannsins fæst hjá okkur! Reiðbuxur, mikið úrval. Skálmar á góðu verði. Loðfóðraðir gallar. Beisli, hringaméll, múlar. Sindrastangir, venjulegar stangir skeifur og ótal margt fleira, til dæmis allt til járninga. Hestasport Helgamagrastræti 30 Sími 21872. Opið alla virka daga frá 10-18 og á laugardögum frá 10-12. wutfxjom, hlýleg jólagjöf FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA ^Stingaekki ^Úr fínustu merinóull ®Mjög slitsterk • Má þvo viö 60°C W EYFJORÐ Hjalteyrargbtu 4 ■ Siml 22275 skreytt af Erik Hjort Nielsen. Hjörtur Pálsson íslenskaði. Sagan gerist í Færeyjum og Bretlandi. Höfundur lýsir örlög- um rauðs fola sem er handsamað- ur og fluttur til Skotlands eftir að hafa notið frelsis í fjallasal með öðrum stóðhestum sem hann fór fyrir heima í Færeyjum. í sög- unni sent er rómuð fyrir náttúru- lýsingar, er teflt frant skörpunt andstæðum; frelsi og fegurð ann- ars vegar og ómildri meðferð manna á þarfasta þjóninum hins vegar. Þáhló þingheimur Hörpuútgáfan hefur sent frá sér bókina Þá hló þingheimur. „Hér er á ferðinni bók, sem er engri annarri Iík og lumar á ýmsu af baksviði stjórnmálanna, sem ætti að geta komð mörgum skemmtilega á óvart. Efni hennar mun vafalítið kitla hláturtaugarn- ar og gleðja fólk á öllum aldri. í bókinni eru skopsögur, vísur og gamanbragir um þingmenn, eftir þá og tengda þeim á ýmsa vegu. Á annað hundrað teikningar eftir SIGMUND eru sannkallað krydd í þessa tilveru." segir í frétt frá útgefanda. Þá hló þingheimur er 198 blað- síður að stærð. I henni eru 130 skopteikningar eftir Sigmund Johannsson. Útgefandi er Hörpuútgáfan. Uppfimiinga- bókin Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur sent frá sér bók er nefnist Uppfinningabókin. Hin nýja Uppfinningabók er erlend að stofni til og skiptist efni hennar eftir eðli uppfinninganna. íslenskar uppfinningar eru í sér- stökum bókarauka. Hér er á ferðinni bók með safaríkum texta og miklum fjölda Ijósmynda, og mörgum þeirra í lit, sem segir sögu uppfinninga og uppfinn- ingamanna sem með einum eða öðrum hætti hafa breytt veraldar- sögunni með uppfinningum sínum. Björn Jónsson skólastjóri þýddi erlenda hluta bókarinnar, en Atli Magnússon blaðamaður safnaði íslenska efninu. Tjúlli lán í óláni Út er komin hjá Erni og Örlygi barnabókin Tjiilli - lán í óláni eftir þá félaga Halla og Inga, eða Harald Siguröarson og Inga Hans Jónssonar eins og þeir heita fullu nafni. Von er í framtíðinni á fleiri bókum um köttinn Tjúlla en hver þeirra verður sjálfstætt ævintýri. Fyrsta bókin segir frá fyrstu ævintýrunt Tjúlla eftir að hann verður heimilisköttur hjá Siggu gömlu. Hvað áður hafði hent þennan rófubrotna ræfil veit enginn. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI Meinatæknar Meinatækni vantar í fullt starf á rannsóknastofu Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri frá 15. mars 1991 eða eftir samkomulagi. Vinnuaðstaða rannsóknastofunnar er mjög góð. Laun eru skv. kjarasamningum ríkisins. Nánari uppiýsingar gefur yfirmeinatæknir fyrir hádegi virka daga í síma 22311. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Skrifstofa hjúkrunarstjórnar: Óskum að ráða RITARA í 50% starf, frá og með 15. janúar 1991 til og með 1. september 1991, eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að umsækjandi hafi kunnáttu í: • Ritvinnslu • Bréfaskriftum • Tungumálum, t.d. ensku, sænsku • Að vinna sjálfstætt • I mannlegum samskiptum. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, Ólína Torfadótt- ir, eða staðgengill hennar, viðtalstími milli kl. 13.00- 14.00 alla virka daga. Sími 22100-270. Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga í 60% starf, þar af 40% næturvakt á Lyfjadeild II. Deildin er 5 daga deild, opin frá mánudegi til föstudags og rúmar 9 sjúklinga. Upplýsingar gefa Sonja Sveinsdóttir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, sími 22100-271 eða Elín Hallgríms- dóttir deildarstjóri, sími 22100-317. Fjórðungssjúkrahúsið ó Akureyri. JM Höfundarnir, Halli og Ingi, kynntust á Reykjalundi, þar sent þeir voru báðir í endurhæfingu eftir umferðarslys. Ingi er höfundur sögunnar, en Halli teiknar myndirnar. Ingi litar svo myndirnar að lokum. Hverri bók fylgir laus mynd af Tjúlla til þess að hengja á vegg og auk þess fylgir líka límmiði með mynd af söguhetjunni. Hverri bókabúð er auk þess sent talsvert magn af þessum Tjúlla Ii'mmiðum sem börn geta fengið afhenta ókeypis í búðunum. Hemámið - hin hiiðin ÍSAFOLD hefur sent frá sér bók- ina „Hernámiö - hin hliðin“ eftir Louis E. Marshal, fyrrum ofursta í Bandaríkjaher, en hann gegndi herþjónustu á íslandi á árunum 1943-1945. Áslaug Ragnars bjó bókina til prentunar. Louis E. Marshall er 87 ára að aldri og hefur starfað sem lög- maður í San Antonio í Texas- fylki. Fyrir nokkrum árum öðlað- ist hann doktorsnafnbót í hag- fræði. í bókinni Hernámiö - hin hlið- in segir fyrst frá uppvexti höfund- ar í Texas, leik, starfi og her- kvaðningunni. Þá víkur sögunni til andstæðnanna: íslands í snjó og kulda. Höfundur segir frá því sem honum fannst sérstakt við íslenskt þjóðlíf frá sjónarmiði hermannsins eins og nafn bókar- innar gefur til kynna. Louis E. Marshall er einn þcirra hermanna sem eiga íslenskt barn. í bókinni segir hann frá sambandi sínu við kon- una sem ól honunt barnið og samskiptum við það áratugum seinna. Áætlunarferðir: Akureyri - Dalvík - Ólafsfjörður: Frá 14. desember 1990 til 3. janúar 1991: Miðvikudagur 19. des. Fimmtudagur 20. des. Föstudagur 21. des. Föstudagur 21.des. Laugardagur 22. des. Mánudagur 24. des. Fimmtudagur 27. des. Föstudagur 28. des. Mánudagur 31.des. Miðvikudagur 2. jan.’91 Fimmtudagur 3. jan. ’91 frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. frá Dalvík kl. 15.00 frá Akureyri kl. 17.00. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 15.00. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.00. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl.12.30. frá Ólafsfirði kl. 08.30 frá Akureyri kl. 12.30. tekur við venjuleg áætlun. SÉRLEYFISHAFI. d Föðursystir mín, ÞÓRHILDUR HJALTALÍN, Grundargötu 6, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 17. desember. Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. desember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Rafn Hjaltalín. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU JÓNSDÓTTUR THORLACÍUS, fyrrum ijósmóður og húsmóður i Hvassafelli, til heimilis að Tjarnarlundi 15 g, fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 21. desember kl. 13.30. Jarðsett verður að Grund sama dag. Halla Benediktsdóttir, Björgvin Runólfsson, Haukur Benediktsson, Þuríður Benediktsdóttir, Einar Benediktsson, Álfheiður Björk Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð, við fráfall og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS STEFÁNSSONAR, Víðilundi 24. Birna Jónsdóttir, Lilja Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Rúnar Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móðir okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSFRÍÐAR SIGTRYGGSDÓTTUR, Samkomugerði II. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kristnesspítala fyrir góða umönnun. Sigryggur Jónsson, Jóhanna Valdimarsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Halla Jónsdóttir, Páll Magnússon, Helga Jónsdóttir, Sverrir Magnússon, Sigfús Jónsson, Guðrún Olafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.