Dagur - 29.12.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 29.12.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 29. desember 1990 fréttir Akureyri: Námskeið í reykbindindi F Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, gang- ast fyrir námskeiði í byrjun næsta árs, fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Námskeiðið fer fram á FSA, kennslustofu á 2. hæð. Undir- búningsfundur verður haldinn 14. janúar nk. en síðan eiga þátt- takendur að hætta að reykja þann 26. janúar. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Ásgeir R. Helgason leið- beinandi Krabbameinsfclagsins í reykbindindi, Sigurður Árnason krabbameinslæknir, Halldóra Bjarnadóttir hjúkrunarfræðing- ur, Friðrik Yngvason lungnasér- fræðingur og Þóra Ákadóttir hjúkrunarfræðingur. Farið verður yfir fjölmarga efnisþætti á námskeiðinu og má þar nefna, undirbúningstíma, fræðslufyrirlestra, streitu og reykingar, persónuleika og reyk- ingar, nikótínfíkn, megrun og matarvenjur, grundvallaratriði í sjálfsdáleiðslu og ráð til að draga úr löngunum. Auk þess verða sýndar fræðslu- og gamanmyndir. Skráning á námskeiðið fer fram í síma 27077 á milli kl. 13 og 16 og þar eru einnig veittar nán- ari upplýsingar. Slökkviliðið á Akureyri: „Aðgát skal höfð“ - segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri Slökkvilið Akureyrar hefur svarað um 80 brunaútköllum á árinu 1990. Tölur um sjúkra- flutninga iiggja ekki fyrir, en reikna má með að Slökkviliðið sinni þremur útköllum á sólar- hring að jafnaði. Þessar upp- lýsingar fengust hjá Tómasi Búa Böðvarssyni, slökkviliðs- stjóra á Akureyri. „Árið hefur verið nokkuð gott, ef hægt er að tala um slíkt, þegar rætt er um þanrn máiáflökk sem við slökkviliðsmenn vinnum að. Við sinntum nokkrum stórum útköllum í byrjun ársins. Þegar talið er saman, þá hefur Slökkvi- lið Akureyrar sinnt um 80 útköll- um vegna elds og annríkið í sjúkraflutningum er mikið. Nú fer sá tími í hönd, er fólk með- höndlar stjörnuljós og flugelda Húsavík: Eldur í jóla- skreytingu Það var heppni að ekki skyldi fara verr er eldur varð laus í jólaskreytingu á skrif- borði ungs manns á Húsavík séint á jóladagskvöld. Ungi maðurinn var ekki heima er kviknaði í út frá kerti. Er hann kom heim var herbergið fullt af sóti og reyk og ennþá glóð í skrifborðinu en eldurinn kafnaður. Jóla- skreytingin var brunnin og skifborðið ónýtt, einnig fatn- aður sem á borðinu var og brunagöt á teppinu við það. Mála þarf herbergið en mikil mildi þykir að ekki varð meira tjón af völdurn eldsins, hvorki á mönnurn né munum. IM og því er full ástæða til að benda fólki á að fara varlega. Fólk þarf að hafa fullan vara á hvað það er með í höndunum og haga sér samkvæmt öllum leiðbeiningum. Ljót slys hafa orðið á fólki og eignum þar sem ekki er farið að settum reglum. Eldvarnir verða að sitja í fyrirrúmi og fólki ber að beina flugeldum að óbyggðum svæðum. Þessir flugeldar, sem nú fást, eru það öflugir að þeir fara í gegnum hvaða glugga sem er og dæmi eru til, að þeir hafi farið í gegnum timburveggi og þá er ekki að sökum að spyrja. Aðgát skal höfð þegar nýju ári er fagnað," sagði Tómas Búi Böðv- arsson, slökkviliðsstjóri á Akur- eyri. ój Nýlega afhentu hjónin Friðrik Vestmann og Guðrún Hjaltadóttir í Pedrómyndum á Akureyri, barnadeild FSA pen- inga og leikföng að gjöf. Fyrirtækið Pedrómyndir á 25 ára afmæli á þessu ári og þar sem Friðrik og Guðrún eiga þrjú barnabörn, ákváðu þau að peningagjöfin skyldi verða 1000 kr. fyrir hvert ár fyrirtækisins og sú upphæð marg- földuð með fjölda barnabarnanna, samtals 75.000 kr. A myndinni tekur Baldur Jónsson yfirlæknir barnadeildar við pcningagjöfinni úr hendi Guðrúnar. Til hliðar við þau eru Friðrik Vestmann og Anna Lilja Filipsdóttir. Mynd: Golli HÍ heilsugæslustöðvarnar: Fá 15 milljónir króna til ráðstöfimar á næsta árí Heilbrigðisráðuneytið hefur fengið 15 milljónir króna til ráðstöfunar á næsta ári til að bæta starfskjör starfsfólks á þeim H1 heilsugæslustöðvum sem erfiðlega hefur gengið að manna. Þeirra á meðal eru heilsugæslustöðvarnar á Þórs- höfn og Vopnafirði. Eins og fram hefur komið í Mannfjöldi á landinu 255.855 þann 1. des sl.: Flutningur frá landinu meiri en til landsins - barnsfæðingum fjölgar um 100-200 á milli ára Mannfjöldi á íslandi þann 1. desember sl. var 255.855, sam- kvæmt bráðabirgðatölum frá Ilagstofunni. Karlar voru 128.381 en konur 127.474. Á einu ári nemur fjölgunin 2.355 íbúum, eða 0,93%. Þetta er heldur meiri fjölgun en árið 1989 en þá fjölgaði fólki á landinu um 1.810, eða 0,72%. Hlutfallsleg fjölgun hafði þá ekki orðið minni flest ár undan- farna sjö áratugi. Á því tímabili varð minnst fjölgun árið 1970, 0,56% og hún varð 0,6-0,7% árin Dansleikur verður haldinn í Hamri, félagsheimili Þórs laugardaginn 29. des. og hefst kl. 21.00. Hljómsveitin Hreinir sveinar leikur fyrir dansi. Aðgangur er ókeypis og eru allir Þórsarar og aðrir velunnarár félags- ins velkomnir. Veitingar verða seldar á staðnum. Nefndin. 1937, 1941, 1969, 1977 og 1985. Nákvæmar tölur um breytingar mannfjöldans árið 1990 liggja ekki fyrir en svo virðist sem tala brottfluttra frá landinu hafi orðið um 700 hærri en tala aðfluttra, en tala fæddra um 3.000 hærri en tala látinna. Lifandi fædd börn á árinu 1990 verða um 4.800 og á árinu deyja um 1.800 manns. Tii landsins flytjast um 3.400 manns en frá því um 4.100. Horfur eru á að tala barnsfæð- inga árið 1990 verði um 100-200 hærri en árin 1988-1989 en þá hafði fæðingum fjölgað um 7-800 frá árunum 1985 og 1986. Þar áður hafði hún fallið mikið. Árin 1985 og 1986 fæddust færri börn en nokkurt ár síðan 1947 og hafði þó tala kvenna á barnsburðar- aldri ríflega tvöfaldast síðan þá. Fæðingartalan 1990 er hins vegar svo há að það er aðeins á árunum 1959, 1960 og 1963, sem fleiri börn hafa fæðst. En konur á barnsburðaraldri eru miklu fleiri nú en þá var og svarar fæðingar- tíðnin 1990 til þess sem var árin 1981 og 1982 en hún er minni en nokkurt ár fyrir þann tíma. Degi er Læknafélag Islands og heilbrigðisráðuneytið sammála um að til þess að unnt sé að manna H1 heilsugæslustöðvarnar verði að færa launasamninga lækna á þeim til samræmis við launasamninga sjúkrahúslækna. Um þetta náðist ekki sam- komulag við fjármálaráðuneytið og var vísað til margnefndrar þjóðarsáttar í því sambandi. í ljósi þess var farin sú leið að fá ákveðna fjárupphæð á þessu og næsta ári til þess að bæta ástand mála á nokkrum H1 stöðvum. Á sl. hausti voru keyptar torfæru- bifreiðar til nota við fjórar heilsu- gæslustöðvar, þ. á m. Þórshöfn. Ekki hefur verið ákveðið með hvaða hætti áðurgetinni upphæð, 15 milljónum króna, verðurskipt á milli heilsugæslustöðvanna, en miðað er við að heilbrigðisráðu- neytið geri það í samræmi við aukin útgjöld þeirra. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu er samdóma álit heilbrigðisráðu- neytisins og Læknafélags íslands að í framtíðinni verði að ganga frá þessum málum í kjarasamn- ingum við lækna og aðrar heil- brigðisstéttir sem vinna á þessum heilsugæslustöðvum. óþh h bridds i Bridgefélag Vestur-Húnvetninga: Jólahraðsveitakeppni og tvímenningur Jólahraðsveitakeppni Bridge- félags Vestur Húnvetninga var haldin í byrjun desember. Fjórar sveitir mættu til leiks og voru pör dregin saman. Sigur- vegarar urðu Unnar Atli Guðmundsson, Erlingur Sverrisson, Flemming Jessen og Eggert Karlsson, með 64 stig. I öðru sæti urðu Karl Sigurðs- son, Kristján Björnsson, Guð- mundur Haukur Sigurðsson og Sigurður Þorvaldsson með 59 stig. Jólatvímenningur félagsins fór fram þann 11. des. sl. og mættu 10 pör til leiks. Meðalskor var 108 en úrslit urðu þessi: stig 1. Karl Sigurðsson/Kristján Björnsson 135 2. SigurðurPorvarldss./GuðmundurH.Siguröss. 125 3. Unnar A. Guðmundsson/Eriingur Sverrisson 123 4. Flemming Jessen/Eggert Karlsson 122 Einnig var spilaður tví- menningur 18. des. sl. og þá mættu 10 pör til leiks. Meðalskor var 108 en úrslit urðu þessi: stig 1. Unnar A. Guðmundsson/Erlingur Sverrisson 126 2. Rúnar Einarsson/Kristín Jónsdóttir 125 3. Bjarni R. Brynjólfsson/Eggert Ó Levy 111 4. Flemming Jessen/Eggert Karisson 111

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.