Dagur - 29.12.1990, Blaðsíða 22

Dagur - 29.12.1990, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 29. desember 1990 ' dagskrárkynning Um áramót bregða sjónvarpsstöðvarnar á leik og freista þess að hafa ofan af fyrir landsmönnum með skemmti- legri dagskrá. Við ætlum nú að líta á nokkra liði næstu daga og víst er að þar kennir ýmissa grasa. Laugardagur 29. des. Sjónvarpið kl. 22.00: Umhverfis Stuðmenn á 40 mínútum Árni Þórarinsson rekur feril Stuömanna, bregður nálinni á nokkur víö- fræg lög þeirra og spjallar við þá félaga. Einnig eru teknir tali nokkrir vinir og vandamenn sem vel þekkja til Stuðmanna, auk þess sem sýndir eru valdir kaflar úr eldri upptökum og bíómyndum hinna fram- takssömu listamanna, en svo sem kunnugt er hafa þeir verið atkvæðamiklir í kvikmyndagerð. Stöð 2 kl. 23.40: / Ijósum logum Þetta er stórmyndin Mississippi Burning. Þrír menn sem vinna í þágu mannréttinda hverfa sporlaust. Tveir alríkislögreglu- menn eru sendir á vettvang til að rannsaka málið. Þegar á staöinn er komið gengur erfiðlega að vinna að framgangi málsins. Enginn vill segja frá og kynþátta- hatrið kemur berlega í Ijós. Sunnudagur 30. des. Sjónvarpið kl. 15.00: Árið 1890 Arthúr Björgvin Bollason hefur umsjón með þessum þætti sem var áður á dagskrá í júní. Hann bregður uþp fjölda gamalla Ijós- mynda og fléttar leiknum atriðum inn í þennan annál. Má þar nefna kafla úr leikriti Matthíasar Jochumssonar, Helga magra, en verk þett tengist minningarhátíð í tilefni þúsund ára byggðar í Eyja- firði. Margt fleira er á dagskrá í þættinum. Rás 1 kl. 14.00: Gústi guðsmaður Ágúst Gíslason sjómaður og trúboöi setti sterkan sviþ á Siglufjarðarbæ um fjörutíu ára skeið. Hann predikaði guðsorð með [Drumuraust á Ráðhústorginu og stundaði útgerð með Drottni á trillu sinni Sigurvin. Gústi léstárið 1985 hátt á níræðisaldri. í þessari dagskrá verður talað við fjölda Siglfirðinga um kynni þeirra af Gústa og leiknar verða upp- tökur með söng og messugjörð trúboðans. Umsjónarmaður er Kristján Sigurjónsson og þátturinn kemur frá Ríkisútvarpinu á Akureyri. Gamlársdagur Sjónvarpið kl. 22.30: Áramótaskaup Nei, það er þó alveg á hreinu að ekki líðum við skauplaus í aldanna skaut. Skaupið er orðið jafnómissandi íslensku þjóðinni og greiðslu- kortin. Andrés Sigurvinsson leikstjóri leiðir harðsnúinn og óvæginn flokk í krossferð útúrsnúninga, afbakana og eggbeits háðs um atburði og persónur nýliðins árs. Á þriðja tug leikara blandast inn í Skaupið með einum eða öðrum hætti en handritshöfundar eru Gísli Rúnar Jónsson og Randver Þorláksson. Rás 2 kl. 13.00: Á síðustu stundu Á gamlársdag kveður Rás 2 árið með stórhátíð í beinni útsendingu. Þátturinn er sendur út frá Gauki á Stöng og verða rifjaðir upp eftir- minnilegir atburðir á árinu og rætt við fólkið sem þar átti hlut að máli. Þátturinn er þriggja stunda langur. Stöð 2 kl. 20.25: Þögull sigur Sannsöguleg mynd um ungan bandarískan fótboltakappa sem á hátindi ferils síns greinist með mjög alvarlegan sjúkdóm. Lækn- arnir telja að hann muni aðeins lifa eitt ár enn en með hjálp konu sinnar og barna heldur hann ótrauður áfram. Nýársdagur Stöð 2 kl. 22.00: Hver drap sir Harry Oakes? Hann var einn ríkasti maður heims og mjög áhrifamikill á Bahama-eyjum. í júli 1943 var honum misþyrmt grimmilega og síðan var hann brenndur til dauða. En hver drap Harry Oakes? Þetta er vel gerð og spennandi framhaldsmynd í tveimur hlutum. Sjónvarpið kl. 15.00: Wolfgang Amadeus Á árinu sem nú fer í hönd verða 200 ár liðin frá því að einn mesti tónsnillingur er mannkyn hefur eignast var jarðsettur í ómerktri fjöldagröf í fátækrakirkjugarði í Vínarborg. Þetta var Wolfgang Amadeus Mozart. Við fáum nú að sjá samevrópska mynd um þennan snilling. Miðvikudagur 2. janúar Sjónvarpið kl. 20.35: Rýnt i kristais- kúluna Meö hinu nýja ári hefst jafnframt nýr áratugur og hafa spár hag- fræðinga og annarra spekinga verið lítt uppörvandi hvað afkomu og efnahag lýöveldisins og íbúa þess varðar. Á vegum innlendrar dagskrárdeildar Sjón- varpsins verður efnt til umræðu- fundar í sjónvarpssal og það er Þráinn Bertelsson leikstjóri sem mun stýra umræðuml SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.