Dagur - 29.12.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 29. desember 1990
Minnisverðir atburðir á árinu 1990
- nokkrir valinkunnir einstaklingar líta um öxl
Valdimar Bragason:
Ánægður með
efiiahagsbataim
„Breytingarnar í ríkjum Aust-
ur-Evrópu og opnun þjóðfélag-
anna þar bera hæst af erlend-
um vettvangi. Þessi þjóðfélags-
opnun leiðir hugann að lífs-
kjörunum þar eystra og hvern-
ig Vesturlandabúar geti komið
í veg fyrir að fólk í þessum
löndum búi við hungurmörk,“
sagði Valdimar Bragason,
bæjarfulltrúi á Dalvík og fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Dalvíkinga.
„Af innlendum vettvangi er ég
ánægður með þann árangur sem
náðst hefur í efnahagsmálum.
Hér hefur náðst jafnvægi sem
bætir rekstrarskilyrði atvinnuveg-
anna til muna.
Þá er eftirminnilegt hvernig
ríkisstjórninni, þessari margra
flokka samsteypustjórn, hefur
tekist að standa af sér ýmsa
storma. Ég nefni sem dæmi
aðförina í tengslum við bráða-
birgðalögin margumtöluðu.
Af persónulegum högum er
mér efst í huga hvernig ég hef
smám saman náð heilsunni á ný
eftir umferðarslys sem við hjónin
lentum í á árinu 1989.“ óþh
Skúli Pálsson:
Opnun Múla-
ganga og
kaup Sæbergs
„Mér eru minnisstæð þau stór-
kostlegu vonbrigði mín að
Sjálfstæðisflokkurinn skyldi
gera sig að því fífli að mótmæla
bráðabirgðalögunum. Ég var
stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins, en þessi afstaða hans
kom mér til að láta af þeim
stuðningi. Ég hugsa ekki meir
um þennan flokk,“ sagði Skúli
Pálsson, lögreglumaður og
sjónvarpsfrömuður í Ólafs-
flrði.
„Stærsti viðburður ársins fyrir
Ólafsfjörð og Ólafsfirðinga er
opnun Múlaganganna. Auk þess
má ekki gleyma uppstokkun í
útgerð og fiskvinnslu hér á staðn-
um í þessum mánuði, þ.e. kaup-
um Sæbergs á Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar. Þessi kaup gera það
að verkum að fólk hér getur nú
hugsað til framtíðar. Það er vitað
mál að fyrirtækið hefði farið á
hausinn, jafnvel á næsta ári,
hefði þetta ekki komið til.
Þegar litið er út fyrir landstein-
ana kemur Persaflóamálið upp í
hugann. Ég geri mér vonir um að
deiluaðilar nái sáttum. Ég hrein-
lega trúi því ekki að verði stríð
þarna." óþh
Sigríður Friðjónsdóttir:
Sammála Möggu
tunsain-
einingu Evrópu
Sigríður Friðjónsdóttir er
sýslufulltrúi á Sauðárkróki og
ein af stofnendum kvenna-
smiðju í Skagafirði. Hvað
skyldi henni flnnast eftirminni-
legast frá árinu sem er að líða?
„Mér er minnisstætt þegar
Mandela var látinn laus hvort
sem það var á þessu ári eða í
fyrra. Afsögn Möggu í Bretlandi
kom mér einnig dálítið á óvart og
hún snertir alla umræðu um sam-
einingu Evrópu og sameiginlega
markaði að vissu leyti, því að
Magga var á móti því öllu saman
og ég er sammála henni um það
að þetta muni aldrei ganga ijpp.
Innrásin í Kúvæt er mér sem öðr-
um í fersku minni og í sambandi
við það er örugglega margt sem
ntaður veit ekki um hér norður
undir heimskautsbaug vegna
einhliða fréttaflutnings frá svæð-
inu.
Ef ég lít mér nær að einhverju
sem snertir mitt starf er riðumál
Gunnars í Flatatungu mjög eftir-
minnilegt, málaferli hans gegn
landbúnaðarráðherra en í það
fór mikill tími. Gjaldþrotin þrjú
sem komu með stuttu millibili
hér í Skagafirði í haust gleymast
heldur ekki og endurspegla það
sem er að gerast í þjóðfélaginu.
Stofnun Kvennasmiðjunnar og
allt starfið í kringum hana er mér
einnig ofarlega í huga þegar litið
er til baka og hvað það er allt
saman búið að vera gaman. Ekki
má heldur gleyma Landsmóti
hestamanna sem haldið var á
Vindheimamelum í sumar, en
það fannst mér mjög glæsilegt í
alla staði.“ SBG
Lilja Skarphéðinsdóttir:
Kosnbigasigur-
inn í vor
„Héðan frá Húsavík er mér
minnisstæðastur kosninga-
sigurinn í bæjarstjórnarkosn-
ingunum í vor. Mér er minnis-
stæð þessi undibúningsvinna
og árangurinn sem við náðum;
tvöföldun á bæjarfulltrúum,
frá tveimur og upp í fjóra fyrir
Framsóknarflokkinn. Mér
fannst þetta alveg stórkostlegt
og er kosninganóttin minnis-
stæð, sérstaklega þegar fyrstu
tölurnar komu,“ segir Lilja
Skarphéðinsdóttir, bæjarfull-
trúi og Ijósmóðir á Húsavík.
„Af erlendum vettvangi nefni
ég þrennt: Sameining þýsku ríkj-
anna finnst mér standa uppúr.
Opnari, jákvæðari og aukin sam-
skipti stórveldanna, Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna, og svo
innrás Irana í Kuwæt.
Hvað innlenda atburði varðar
finnst mér jákvætt þetta stöðuga
verðlag í landinu.
Ég minnist einnig fertugs-
afmæla á árinu, bæði Húsavíkur-
bæjar og þessa ágæta ’50 árgangs
okkar.“ IM
Sigrún Sveinbjörnsdóttir:
Loksbis gert
við Sól-
borgarvegbm
„Af erlendum vettvangi eru
mér ofarlega í huga atriði sem
koma í kjölfar endaloka kalda
stríðsins. Sameining Þýska-
lands er þar efst á blaði og mér
fannst friðarverðlaun Gorbat-
sjovs eiga vel við. I hans
heimalandi er þungur róður að
breyta kerfum. Það varð mér
mikið áfall þegar Shevardnadze
sagði af sér skömmu fyrir jól.
Sú afsögn getur dregið dilk á
eftir sér og mér flnnst miður að
Shevardnadze sé ekki lengur
við hlið Gorbatsjovs,“ sagði
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, for-
stöðumaður Vistheimilisins
Sólborgar á Akureyri.
Persaflóadeilan hefur verið
mikið í fréttum og vofir enn yfir
okkur. Einn af jákvæðari atburð-
um á árinu erlendis var forseta-
kjör á írlandi, en þar hlaut kosn-
ingu kona, Mary Robinson.
Hér heima bera hæst sveitar-
stjórnarkosningarnar, því ég
tengdist þeim persónulega. Þá
fannst mér mjög jákvætt það
framlag til menningarmála að
afnema virðisaukaskatt af
íslenskum bókum. Göngin í
Ólafsfjarðarmúla er gleðilegur
viðburður. Nú þori ég að fara til
Ólafsfjarðar og því má segja að
ég hafi persónulegan ávinning af
göngunum.
Einnig vil ég nefna að loksins
eftir langa bið var gert við veginn
hingað upp að Sólborg. Ég og við
öll sem hér erum munum minnast
þess lengi.
Árið hefur verið mér einstak-
lega viðburðaríkt og skemmti-
legt. Ég skipti um starf 1. janúar
sl. og hef því fengið tækifæri til
að takast á við ýmis ný viðfangs-
efni.
Við heimsóttum son okkar og
tengdadóttur til Svíþjóðar á
árinu og það var afar skemmti-
legt. Ferðalag á Strandir og
Norðurland vestra er mér einnig
mjög eftirminnilegt. Við ókum
ekki þessar venjulegu leiðir á
Norðurlandi vestra, heldur fór-
um fyrir nesin og gáfum okkur
góðan tíma til að skoða okkur
um. Þetta var alveg stórkost-
legt.“ óþh
Björn Snæbjörnsson:
Slæmt atvbrnu-
ástand á Eyja-
Qarðarsvæðbm
„Af erlcndum vettvangi koma
breytingarnar í Austur-Evrópu
fyrst í hugann, auk hörmung-
anna í Kúvæt og við Persafló-
ann. Fall Margrétar Thatcher
kom óvænt, það var merkur
atburður. Þá er mér minnis-
stætt að landsstjórnin í Græn-
landi fékk á sig mikla gagnrýni
vegna áfengiskaupa og óráð-
síu, en hér á landi hefur
eyðslusemi ráðherra einmitt
verið til umræðu,“ sagði Björn
Snæbjörnsson, varaformaður
verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri.
„Af innlendum vettvangi eru
kjarasamningar um þjóðarsátt
eftirminnilegir, og baráttan sem á
eftir kom um að láta þá samninga
halda. Þær vonir sem menn
bundu við samningana hafa ræst,
í meginatriðum. I sambandi við
þetta reyndi mest á bankana,
þjóðarsáttin átti í vök að verjast
vegna vaxtastefnu þeirra.
Slæmt atvinnuástand á Eyja-
fjarðarsvæðinu er mér ofarlega í
huga, þótt reyndar hafi ástandið í
fiskvinnslunni verið skárra nú en
undanfarin tvö ár, þegar fisk-
vinnslufyrirtæki lokuðu mörg
hver í desember. Almennt
atvinnuástand hefur þó verið
slæmt á svæðinu, og óvissa um
framtíðina. Við misstum stór-
iðjuna suður fyrir heiðar, og ekki
varð það til að auka mönnum
bjartsýni. Minnkandi atvinna og
aukið atvinnuleysi, minni yfir-
borganir óg samdráttur í yfir-
vinnu koma illa niður á heimilun-
um. Það sorglega er að meiri
órbyrgð ríkir víða en áður, og
það verðum við varir við hjá
verkalýðsfélögunum.
í persónulegum málum mínum
og fjölskyldunnar hefur þetta ár
verið lærdómsríkt og ánægjulegt
um margt. Ég tók samfellt
sumarfrí í fyrsta sinn, og fór tvær
rútuferðir til fjalla, önnur ferðin
var dagsferð með aldraða Eining-
arfélaga. Þá var það góð reynsla
fyrir mig að starfa í framkvæmda-
stjórn Verkamannasambands
Islands og formaður þeirrar
deildar sambandsins sem snýr að
starfsfólki sem vinnur hjá ríki og
bæ,“ segir Björn Snæbjörnsson.
EHB
Gunnar Oddsson:
Enn til tveir
hagfræðingar
Riðumál Gunnars Oddssonar,
bónda í Flatatungu í Skagaflrði
hefur verið töluvert í fréttum
sl. ár og endaði það fyrir
Hæstarétti. En hvað skyldi
Gunnari flnnast minnisstæðast
frá líðandi ári.
„Þjóðarsáttina ber einna hæst
á árinu og einkum það, að hún
skuli haldast enn. Á því má
greinilega sjá að enn eru til tveir
hagfræðingar í landinu, þeir Ein-
ar Oddur og Gvendur jaki. Hún
snertir okkur langmest allra mála
og vaninn hefur verið að þó reynt
hafi verið að koma skikki á verð-
lagsþróun, þá hefur það alltaf
farið út um þúfur innan tíðar.
Það að svona vel hefur gengið að
þessu sinni, er stefnumótun
Jakans og Bjargvættarins að
þakka. Þjóðin var orðin lang-
þreytt á þeirri vitleysu sem við
höfum búið við og ég er orðinn
bjartsýnn á að þetta lukkist og
vilji almennings er það eindreg-
inn um að þessi stöðugleiki hald-
ist áfram, að þeir hópar sem vilja
sprengja þjóðarsáttina eiga
stöðugt erfiðara uppdráttar,
samanber þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins.
Sameining Þýskalands gekk
hraðar fyrir sig en búast mátti
við, en ekki er séð fyrir endann á