Dagur - 29.12.1990, Page 14

Dagur - 29.12.1990, Page 14
14 - DAGUR - Laugardagur 29. desember 1990 Heppin fjölskylda á Sauðárkróki. Þorsteinn, Jón Grétar, Örvar og María með Katrínu í fanginu eftir að þau hrepptu stóran vinning í Lottóinu. NOVEMBER 1. „Atvinnumálaumræðan ein- kennist af kveinstöfum og úrtöl- um,“ sagði Sigmundur Guð- bjarnarson, rektor Háskóla Islands, í útskriftarræðu um helg- ina. Hann sagði umræðuna ein- kennast af ástæðulausu vonleysi sem drægi kjark og þrek úr yngra fólki. Vandinn væri í raun fram- taks- og fyrirhyggjuleysi því vissulega ættum við auðlindir sem yrðu enn eftirsóknarverðari þegar fram líða stundir. 6. Fimm manna fjölskylda á Sauðárkróki hlaut tæpar 14 millj- ónir króna í lottóvinning á laug- ardagskvöld. Húsmóðirin, María Ásgrímsdóttir, hafði keypt tíu sjálfvaldar raðir í lottóinu á föstudag og ein þeirra gaf af sér fyrsta vinninginn, sem ekki skipt- ist milli fleiri aðila. 7. Atvinnuleysi vörubifreiða- stjóra var rætt í bæjarstjórn Akureyrar í gær en 13 vörubif- reiðastjórar voru skráðir atvinnu- lausir um síðustu mánaðamót. Bifreiðastjórarnir höfðu sent Akureyrarbæ erindi þess efnis að biðja um leiðréttingu ýmissa mála er þeir telja að miður hafi farið í samskiptum þeirra við bæjarfélagið. 9. Þrír stjórnarmenn í Fjöri hf., sem stóð að Melgerðismela- hátíðinni 1988, voru dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið varðhald til tveggja ára vegna brota á lögum um söluskatt. 10. „Eins og högg fyrir neðan bringspalir," sagði Sólmundur Einarsson, formaður Skotveiði- félags íslands um leigusamning Akrahrepps og Skotveiðifélags Akrahrepps um rjúpnaveiði á Öxnadalsheiði. „Þarna er unnið þvert gegn hagsmunum skotveiðimanna um allt land,“ segja skotveiðimenn í Eyjafirði, sem ætla að fjölmenna á Öxnadalsheiði og fá fram kæru- mál til að fá skorið úr Iagalegu réttmæti þess að leigja einum aðila rétt til rjúpnaveiði á heið- inni. 17. „Með GATT-tilboði ríkis- stjórnarinnar er einungis opnað fyrir umræður með mjög skýrum takmörkunum,“ sagði Steingrím- ur J. Sigfússon, landbúnaðarráð- Þingfulltrúar ræðast við í rafmögnuðu andrúmslofti á Landsþingi hesta- manna sem haldið var á Húsavík. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins í góðum félagsskap á flokksþingi í nóvember. Á mynd- inni má meðal annars sjá Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, Olaf Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra og Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra er þau þágu boð um að heimsækja flokksþing Framsóknarflokksins. laugardag ^pið til sunnudag Wpiðtll Gamlárskvöld opið til hl. 04.00 Áramótadansleikur ótakmarkað dansgólf um allt hús. Bfóbarinn diskótek/efri hæðin |_j Ijómsveitin MAMM Heilsaðu Nýju Ári

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.