Dagur - 09.02.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 9. febrúar 1991
frétfir
t
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Samráðsfundur um gróður-
vemd og umhverfismál
- haldinn í samráði við umhverfisráðuneytið
Fjórðungssamband Norðlend-
inga stendur að samráðsfundi
um gróðurvernd og umhverfis-
mál í samráði við umhverfis-
ráðuneytið á Akureyri 22.
febrúar. Fundurinn verður
haldinn á Hótel KEA, og verð-
ur Júlíus Sólnes, umhverfis-
ráðherra, meðal framsögu-
manna. Samkvæmt ákvörðun
Fjórðungsþings Norðlendinga
1990 eru umhverfismál aðal-
mál þessa starfsárs.
Verkefninu er skipt í tvo meg-
inþætti. Hollustuverndarmál og
mengunarvarnir þeim tengdar,
sem eru á vegum sveitarfélaga.
Samráð er við sveitarfélög, gróð-
urverndarnefndir, náttúruvernd-
arnefndir og umhverfismála-
nefndir á þeirra vegum um gróð-
urvernd og umhverfisvarnir
tengdar nytjun landsins.
Varðandi fyrra verkefnið hefur
verið haft samráð við umhverfis-
ráðuneytið um kynningarfundi
og um viðræður um framkvæmd
mengunarvarna, sem leiði til
bættra hollustuhátta í þéttbýli.
Með þessum samráðsfundi
mun Fjórðungssamband Norð-
lendinga í samstarfi og fyrir
atfylgi umhverfisráðuneytisins
hefja kynningu á þeim þætti
umhverfismála er einkum varðar
gróðurvernd og náttúruvernd.
Til þessa fundar eru boðaðir
sérstaklega þeir menn sem eiga
sæti í starfsnefndum sveitarfélaga
á áðurnefndum vettvangi, svo og
þeir sem eiga sæti í sambæriieg-
um nefndum á vegum héraðs-
nefnda.
Það hefur komið í ljós að ekki
eru til staðar í mörgum sveitar-
félögum starfsnefndir, sem fjalla
sérstaklega um umhverfismál.
Þess vegna var sú leið valin að
boða einnig forráðamenn sveitar-
félaga á samráðsfundinn, bæði til
að öll sveitarfélögin eigi þess kost
að fylgjast með og sérstaklega
vegna þess að öll sveitarfélögin
eiga að bera ábyrgð á þessum
málaflokki að lögum, eins og
öðrum sveitarstjórnarmálum.
Eitt meginverkefni fundarins
er að kynna sveitarstjórnarmönn-
um og starfsnefndum sveitarfé-
laga lagaboð um framkvæmd
gróðurverndarmála og jafnframt
að hvetja til aðgerða. Með sama
hætti verða viðhorf og áform
umhverfisráðuneytisins kynnt,
bæði í umhverfismálum í heild og
sérstaklega hvað varðar skipulag
gróðurverndar og gróðurvernd-
arstefnu.
Til að nálgast aðstæður á
Norðurlandi verða fjórir fram-
sögumenn úr hópi heimamanna.
Hér er átt við fulltrúa bænda sem
hafa reynslu af uppgræðslu í
sambandi við Blönduvirkjun.
Einnig verður fulltrúi bænda,
sem búa við venjuleg búskapar-
skilyrði. í þriðja lagi forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar
Norðurlands, og skógræktar-
fræðingur er fjallar um gróður-
vernd í þéttbýli og þátt skógrækt-
ar í uppgræðslu.
Fulltrúar ráðuneytisins verða
Júlíus Sólnes, umhverfisráð-
herra, og Jón Gunnar Ottósson,
deildarstjóri. Þeir munu kynna
málefni ráðuneytisins og fram-
kvæmd verkefna á vegum þess.
Af hálfu ríkisins mun land-
græðslustjóri ræða um samstarf
við sveitarfélög, en gróðurvernd-
arfulltrúi ræðir um samstarf við
bændur um gróðurvernd. Lög-
fræðingur landbúnaðarráðuneyt-
isins fjallar um hinar lögboðnu
hliðar landnýtingar, t.d. laga-
ákvæði er snerta búfjárhald í
þéttbýli.
Samráðsfundurinn verður
haldin á Hótel KEA á Akureyri
föstudaginn 22. febrúar, hann
hefst kl. 13.00 og lýkur eigi síðar
en kl. 18.00. EHB
„Viltu aðeins lyfta upp fætinum.“
Mynd: Golli
Maverðmæti frystitogara:
Akureyrin EA-10 trónir á toppnum
- þrír norðlenskir togarar meðal fimm efstu
Akureyrin EA-10 sem Sam-
herji hf. á Akureyri gerir út
var fengsælasta frystiskipið á
síðasta ári sem jafnan áður.
Örvar HU-21, frystitogari
Skagstrendings á Skagaströnd,
er í öðru sæti hvað varðar afla-
magn og aflaverðmæti, en
þessi tvö skip skera sig úr
flotanum og eru þau einu sem
losa hálfan milljarð króna í
aflaverðmæti.
í skýrslu frá LÍÚ kemur fram
að aflaverðmæti Akureyrinnar á
árinu 1990 var ríflega 683 millj-
Landsvirkjun tekur neikvætt í að
selja varastöðina á Oddeyri
Rafveita Akureyrar hefur
spurst fyrir hjá Landsvirkjun
um kaup á varastöðinni á
Guðmundur Jónsson
arkitekt:
Athugasemdvegna
Listagðs
Guðmundur Jónsson, arkitekt,
hafði samband við Dag vegna
frétta um Listagil og vildi
árétta tölur um kostnað við
framkvæmdir við svonefndan
fjölnýtisal.
Dagur birti í gær frétt um þessi
mál þar sem Guðmundur segir að
134 milljónir króna kosti að inn-
rétta fjölnýtisal í Listagili. Guð-
mundur segir að þegar hann
nefni þessa upphæð þá eigi hann
bæði við innréttingu fjölnýtisalar
og myndlistasalar í Listagili, en
ekki aðrar framkvæmdir.
Guðmundur segir að stækkun
Amtsbókasafnsins sé orðin mjög
brýn, það viti allir. Burðarþoli
hússins hafi verið gróflega mis-
boðið, gólfin séu ekki gerð fyrir
þann þunga sem nú hvílir á þeim,
svo aðeins eitt dæmi sé nefnt.
EHB
Oddeyri. Landsvirkjun hefur
tekið frekar neikvætt í þessa
málaleitan, en hefur ekki látið
í Ijós opinbera afstöðu til sölu-
hugmyndarinnar.
í varastöðinni á Oddeyri eru
tvær díselvélar af gerðinni
Ruston. Við minni vélina, sem er
frá árinu 1965, er riðstraumsraf-
all sem afkastar 2000kw/2500
kVA, 6600 volt. Stærri vélin kom
árið 1968, rafallinn afkastar 3,5
megavöttum, 4375 kVA, og er
einnig 6600 volt. Til samanburð-
ar þá afkastar varastöðin á Rang-
árvöllum 7,8 megavöttum. Vara-
stöð þessi er ekki á neinn hátt
tengd við kerfi Landsvirkjunar
og er sárasjaldan keyrð.
Guðmundur Helgason, deild-
arstjóri rekstrardeildar Lands-
virkjunar, segir að engin niður-
staða sé fengin í málinu. Rafveita
Akureyrar hafi ekki sent inn
formlega fyrirspurn, og því ekki
fengið formlegt svar. „Við höfum
þó sagt að við séum frekar and-
vígir sölunni að svo stöddu,“ seg-
ir Guðmundur.
Eins og kunnugt er tók ný
gjaldskrá og rammasamningur
Landsvirkjunar gildi um árainót-
in. í kjölfarið er rafveitum skylt
að eiga aðgang að varaafli, og á
þeim grundvelli var fyrirspurn
Rafveitu Akureyrar gerð.
„Mér skilst að Hitaveita Akur-
eyrar sé að hugsa um að koma sér
upp varaafli, eftir áfallið sem þeir
urðu fyrir. Það gæti verið að raf-
veitan væri í einhverju samkrulli
með það. En fyrirspurn rafveit-
unnar var vegna svonefnds yfir-
álags, sem getur verið tekið af
hvenær sem er. Þá þurfa þeir að
hafa aðgang að díselvélum í
staðinn. Ég hef sagt rafveitu-
stjóra, að ef hitaveitan kemur sér
Laugar:
Tónleikar með Todmobfle
Nemendafélag Laugaskóla
stendur fyrir tónleikum með
hljómsveitinni Todmobile nk.
mánudagskvöld.
Tónleikarnir verða haldnir í
íþróttahúsi Laugaskóla í Reykja-
dal, og hefjast kl. 21.00. Selt er
inn á tónleikana. Þetta er í fyrsta
sinn sem félagið beitir sér fyrir
tónleikum af þessu tagi. EHB
upp díselvélum, og rafveitan væri
tilbúin til að nota slíkt varaafl
þegar illa stendur á, þá myndum
við taka því alveg eins og þeir
væru að semja við RARIK,“ seg-
ir Guðmundur. EHB
ónir króna og aflamagn 6.075
tonn. Örvar fékk 587,7 milljónir
fyrir sín 5.068 tonn. Meðalskipta-
verð á hvern úthaldsdag var hins
vegar ívið hærra hjá Örvari.
I þriðja sæti yfir aflaverðmæti
er Júlíus Geirmundsson ÍS með
464,5 milljónir, Haraldur Kristj-
ánsson HF fékk 429 milljónir og í
fimmta sæti er togari Útgerðar-
félags Akureyringa Sléttbakur
EA-304 með 416,4 milljónir
(4.559 tonn).
Norðlendingar eiga þannig
þrjá af þeim fimm frystitogurum
sem sköpuðu mestu verðmætin á
síðasta ári. Aðrir norðlenskir
frystitogarar sem veiddu fyrir
meira en 300 milljónir á síðasta
ári eru Margrét EA, Hjalteyrin
EA, Hólmadrangur ST, Mána-
berg ÓF og Sigurbjörg ÓF. SS
Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.:
Opið hús á Akureyri í dag
- þar sem boðið verður upp á
kynningu, ráðgjöf og fróðleg erindi
Verðbréfamarkaöur íslands-
banka hf. verður með opið hús
frá kl. 13.00-17.30 í dag í
afgreiðslu Islandsbanka í Skipa-
götu 14 á Akureyri. Þar verða
flutt þrjú fróðleg erindi, auk
þess sem kynnt verður á hvern
hátt Verðbréfamarkaðurinn
aðstoðar fólk við að leggja fyrir
og ávaxta sparifé sitt.
Fólki gefst einnig kostur á að
kynna sér fjármálaráðgjöf, reglu-
legan sparnað, verðbréfasjóði og
hlutabréf. Erindin þrjú verða
flutt kl. 14.00, 15.00 og 16.00.
Ásgeir Þórðarson ríður á vaðið
með erindi sem hann kallar; Fjár-
málin fylgja okkur alla ævina. Kl.
15.00 flytur Edda Vilhelmsdóttir
erindi sem hún kallar; Hvaða
verðbréf á ég að kaupa? og þriðja
og síðasta erindið flytur Svan-
björn Thoroddsen, sem hann
kallar; Hvers vegna eru hlutabréf
spennandi? Að loknu hverju
erindi gefst gestum tækifæri til að
bera upp spurningar og ræða efni
þess.
Víst er að þessi mál sem verða
til umfjöllunar í dag, eru ofarlega
í huga fjölmargra landsmanna og
hér gefst Norðlendingum kær-
komið tækifæri til þess að fræðast
nánar um þau.