Dagur - 09.02.1991, Blaðsíða 13
poppsíðan
Laugardagur 9. febrúar 1991 - DAGUR - 13
Madonna hrellir gyðinga
Það virðist sem engin takmörk
séu á þv! hversu poppgyðjan
Madonna er duglega við að vekja
allskyns hneyksli og vanþóknun
meö gerðum sínum og verkum.
Skemmst er að minnast að stuttu
fyrir áramót setti stúlkan allt á
annan endann með myndband-
inu við nýjasta lagið sitt, Justify
my lové, og náðu siðapostular
vart upp í nef sér fyrir bræði
vegna þess, eins og áður hefur
verið sagt frá hér á Poppsíðunni.
Enn er þetta lag í sviðsljósinu,
en nú af annarri ástæðu. Nú eru
það aðrir en bandarískir siða-
postular sem telja að sér vegið.
Þannig er mál með vexti að í
nýrri endurhljóðblandaðari
útgáfu af Justify my love, sem
Madonna hrellir gyðinga en hefur
litlar áhyggjur af því.
kallast The Beast within mix, er
ritningu úr nýja testamentinu
bætt inní á þann hátt að
gyðingdómurinn er bendlaður
við þann illa í neðra. Er ekki að
sökum að spyrja að þetta hefur
vakið harkaleg viðbrögð hjá hin-
um ýmsu leiðtogum og forystu-
mönnum gyðinga í Bandaríkjun-
um.
Hefur einn þeirra til að mynda
skrifað umboðsmanni Madonnu
og segir að þegar ein vinsælasta
stjarna poppsins beri slíka kenn-
ingu á borð gæti það stórlega ýtt
undir gyðingahatur sem hefði
ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för
meö sér.
Þá hefur einnig verið gagnrýnt
af leiðtogum gyðinga að svo
virðist sem endurgerðin hafi ver-
ið gefin út án þess að yfirmenn
Warner Brothers (útgáfufyrirtæki
Madonnu) hafi heyrt hana og
formlega gefið leyfi fyrir úgáf-
unni.
Madonna hefur hins vegar
með útgáfu yfirlýsingar neitað
þessum ásökunum og segir að
fólk geti litið á sig sem frægðar-
dýrkanda, en að hún sé kynþátta-
hatari eða hafi eitthvað á móti
gyðingum sé tómt rugl og að
hún ætli ekki einu sinni að reyna
að verja sig fyrir slíkum ásökun-
um. Hún segir ennfremur að til-
gangurinn með þvi að setja ritn-
inguna inní hafi verið að segja
skoöun á illsku yfirhöfuð en alls
ekki að bendla einn né neinn sér-
staklega við hið illa, því þegar allt
kemur til alls er lagið um ást en
ekki um hatur.
Hitt og þetta
Queen
Það hefur væntanlega ekki farið
framhjá aðdáendum bresku stór-
sveitarinnar Queen né öðrum
rokkunnendum að hljómsveitin
er komin á kreik á ný með nýtt
lag, Innuendo, en það fór beint í
fyrsta sæti vinsældarlistans
breska fyrir þremur vikum. Þykir
lagið, sem er þrítugasta og sjö-
unda smáskifulag Queen, vera
enn ein skrautfjöðurin í hatt
hljómsveitarinnar, því ekki að-
eins er það sjaldgæft aö lag fari
beint á toppinn, heldur er það
vægast sagt óvenjulegt að lag
upp á sex og hálfa mínútu eins
og Innuendo er að lengd nái hátt á
vinsældalistum. Nú þegar þetta
birtist ætti svo nýja breiðskífan,
sem einnig kallast Innuendo, að
vera komin út, en áætlaður út-
gáfudagur hennar var þann 4.
febrúar. Þess má svo að lokum
geta að á 12 tommu útgáfunni af
Innuendo og á smágeisladiskin-
um fylgir með útgáfa þeirra
Oueenfélaga á lagi David Bowie
Under Pressure.
Hljómsveitardauði...
Eftir sex ára starf og einar þrjár
þlötur hefur þjóðlagapoppsveitin
The men they couldn’t hang lagt
upp laupana. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar (sem heimsótti
(sland fyrir nokkrum árum ef
umsjónarmanni Poppsíðunar
skjátlast ekki) hafa ákveðið að
snúa sér að ýmsum öðrum hlut-
um hver fyrir sig, sem m.a. felast
í því að söngvarinn Cushætlar að
gerast trésmiður og Paul Simm-
onds hyggst skrifa tónverk. Mun
ákvörðunin um að hætta hafa
ráðist af því aö þeir félagar telja
sig ekki geta náð lengra saman
og því sé ekki ástæða til að
halda áfram.
...og hljómsveitarupprisa
Kvennarokksveitin Go-Bo’s, sem
gerði það gott bæði vestan hafs
og austan á fyrri hluta síðasta
áratugar, en hætti fyrir nokkrum
árum, er nú risin úr öskustónni
og ný útgáfa af laginu þeirra Cool
Jerk er komin út. Er lagið tekið af
væntanlegri safnplötu með
vinsælustu lögum Go-Go’s frá
1981-’85, eða frá þeim tíma sem
hljómsveitin byrjaði og þar til hún
hætti. Það er þó óvíst nema um
tímabundna endurreisn sé að
ræða og ekki er vitað hvort stelp-
urnar hyggjast taka upp nýja
plötu. Það er þó vitað að þær
tóku upp lag sem út kemur á
safnplötu með ýmsum flytjendum
nú í febrúar.
Sungið gegn stríði
Fáum blandast hugur um að inn-
rás (raka í Kúvæt var illur verkn-
aður og þeir ættu að hverfa það-
an hið snarasta, a.m.k. er það
skoðun flestra Vesturlandabúa.
Það er á hinn bóginn langt frá því
að allir séu sáttir við þær hernað-
araðgerðir, sem fylgt hafa í kjöl-
farið að hálfu Bandaríkjamanna
og bandamanna þeirra. Chuck D.
LL CoolJ og Michael Jackson sett-
ust inn í hljóðver stuttu áður en
stríðið hófst fyrir alvöru til að taka
upp lag gegn stríði og nú ætti
nýja útgáfan af laginu hans John
Lennon, Give peace a chance, með
breyttum texta, með tilvísun til
Persaflóastríðsins að vera komin
út. Er það heill herskari af frægu
tónlistarfólki sem kemur fram í
laginu og má nefna sem dæmi,
Jazzie D., MC. Hammer, Tom Petty,
Dave Steward, Cyndi Laupher, Iggy
Pob, Little Richard, Alannah
Myles, áðurnefndur LL Cool J,
Lenny Kravitz, meðlimi úr Guns ’n’
Roses ofl. ofl. Gaf ekkja Lennons,
Yoko Ono, góðfúslega leyfi fyrir
notkun lagsins en hagnaður af
útgáfu þess mun renna til styrkt-
arsjóðs til uppgræðslu jarðar,
sem kenndur er við John Lennon.
Tanita Tikaram
Söngkonan rámraddaða, Tanita
Tikaram, hefur ekki setið auðum
höndum síðustu mánuði því hún
er nú rétt búin að senda frá sér
nýja þlötu, þá þriðju í röðinni, og
sú önnur sem kemur trá henni á
tæpu ári. Platan nefnist Every
body’s angel og til að fylgja skíf-
unni eftir ætlar Tanita síðan að
halda í tónleikaferðalag vítt og
breitt um Bretlandseyjar og hefst
ferðin í Dublin fyrsta mars.
R.E.M.
Bandaríska rokksveitin R.E.M.
sendir frá sér sína sjöundu þlötu
í byrjun mars. Mun gripurinn
bera nafnið Outoftime og markar
vissa breytingu frá síðustu tveim-
ur plötum, Doccument Green,
hvað það varðar að minna er um
gítara, en þess í staö koma
strengir og hljómborð. Þessa
dagana er H.E.M. síðan aftur í
hljóðveri að taka upp lag á plötu
til heiðurs Leonard Cohen.
Stelpurnar í Go-Go's byrjaðar aftur.
auglýsingadeild • Simi 96-24222
Skilaírestur aug-
lýsingasem eru
2ja dálka (10
cm) á breidd
eða smáaug-
lýsinga er til kl.
11.00 daginn fyrir útgáfu-
dag, nema í helgarblað, þá
er skilafrestur til kl. 14.00 á
íimmtudag. Allar staerri aug-
lýsingar og lit þarf að panta
mcð 2ja daga fyrirvara. í
helgarblað þarf að panta all-
ar stærri auglýsingar fyrir kl.
11.00 á (immludag.