Dagur - 09.02.1991, Qupperneq 17
efst í huga
Laugardagur 9. febrúar 1991 - DAGUR - 17
l
Reksturinn má ekki
gleypa allt fjármagn
Það sem er flestum landsmönnum efst í
huga þessa dagana er veðurfarið frá ára-
mótum. Hver lægðin af annarri fer yfir landið
með miklum látum og allt virðist vera öfug-
snúið miðað við eðlilegt vetrarveður. Hver
skyldi trúa því að vegna snjóleysis í Hlíðar-
fjalli hafa Akureyringar ekki komist á skíði
nema einn dag frá áramótum og vinir ívars
eru farnir að senda honum einn og einn
kassa af snjó, sem kemur trúlega aö litlum
notum, eða hvað?
En er þetta veðurfar einsdæmi? Svo er
ekki. Stefán, menningarmálafrömuður á rit-
stjórn Dags, var að fletta Degi frá árinu 1935
og þá rakst hann á klausu, sem birtist í blað-
inu 31. janúar, og segir þar m.a.: „Hér á Is-
landi er enn hinn mildasti vetur. Fjallvegir
eru bílfærir hér austurum, á Austfjörðum og
Snæfellsnesi, blóm springa út í görðum og
vörpum sunnanlands og norðan, og dæmi til
þess í Vopnafirði að eigi sé farið að kenna
lömbum át. En suður um Evrópu eru grimmd-
arfrost og hríðar, svo að t.d. á (talíu er þetta
talinn kaldasti vetur í manna minnum..."
Þetta þótti mönnum 1935 einkennileg
veðrátta og svo er einnig nú. Það getur varla
talist eðlilegt að dag eftir dag, þegar hávetur
er hér á landi, að hitastigið skuli vera svipað
og við Miðjarðarhafið. Þetta er vissulega allt
eitthvað öfugsnúið. En nóg um það.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar fyr-
ir yfirstandandi ár, sem er í burðarliðnum, er
mörgum bæjarbúum umhugsunarefni.
íþróttaáhugamenn o.fl. hafa kvatt sér hljóðs
og vilja fá gervigrasvöll til knattspyrnuiðkun-
ar og telja sumir að hann eigi að hafa
forgang, en ekki íþróttahússbygging við
Lundarskóla. Það er nú einu sinni svo að
alltaf hljóta að verða skiptar skoðanir um
það í bæjarfélagi eins og Akureyri hvað á að
hafa forgang og hvað ekki. En einu mega
menn ekki gleyma, að samningar þeir, sem
gerðir hafa verið við íþróttafélög hér í bæ;
Þór, Golfklúbbinn, Skautafélagið og nú síð-
ast KA, eru af hinu góða og ég spyr: Hvar
stæðu þessi félög með sínar framkvæmdir
ef engir samningar hefðu verið gerðir? Það
eru allir sammála um það að bæta þarf
aðstöðu knattspyrnumanna hér í bæ, sem
nýtast myndi öllum Eyfirðingum og jafnvel
Þingeyingum og Skagfirðingum. En því er
ekki að leyna að ég hef vissar efasemdir um
að gervigras komi að notum miðað við eðli-
legt árferði hér á Akureyri.
Áður en farið verður í þá framkvæmd
þyrfti að huga að veðurfari hér í bæ t.d. síð-
ustu 10 ár og þá kæmi í Ijós hve marga daga
yfir veturinn slíkur völlur myndi nýtast. Yfir-
byggður malarvöllur er það eina, sem öruggt
væri að kæmi að fullum notum, en það er
víst mjög dýr framkvæmd.
Eitt er það, sem bæjarbúar mega aldrei
gleyma, það er sjálfvirkur rekstrarkostnaður
sem fylgir framkvæmdum á vegum bæjarfé-
lagsins. Það kostar'eitthvað að reka íþrótta-
mannvirki, dagvistir, aðstöðu fyrir menningu
og listir o.s.frv. Við verðum að gæta að því
að reksturinn gleypi ekki allt fjármagn bæjar-
félagsins, þannig að við stöndum uppi einn
góðan veðurdag með rekstrarkostnað, sem
nemur hærri upphæð en tekjur bæjarsjóðs.
Svavar Ottesen
Ný reglugerð um flokkun,
merkingu og meðferð eiturefna
Ný reglugerð um flokkun og
merkingu eiturefna og hættu-
legra efna og vörutegunda sem
innihalda slík efni hefur öðlast
gildi. Akvæði reglugerðarinn-
ar ná jafnt til efna sem notuð
eru á vinnustöðum og efna sem
ætluð eru til dreifingar á
almennum markaði í smásölu-
einingum. Með þessu er tekið
upp sama eða svipað flokkun-
ar- og merkingarkerfí og gildir
í öllum nágrannalöndum
okkar.
I Fréttabréfi Vinnueftirlits
ríkisins kemur fram að eiturefni
og hættuleg efni skulu flokkuð í
einn eða fleiri flokka. Myndin'
hér til hliðar sýnir varnaðarmerk-
in.
Einnig skal ákveða viðeigandi
hættusetningar (H-setningar) og
varnaðarsetningar (V-setningar)
fyrir hvert eiturefni og hættulegt
efni í ofangreindum flokki.
Umbúðir skulu merktar á
íslensku og þar skulu m.a. koma
fram eftirfarandi upplýsingar.
1. Heiti eiturefna og hættulegra
efna sent varan inniheldur.
2. Nafn og heimilisfang innlends
frantleiðanda, innflytjanda
eða umboðsaðila.
3. Notkunarreglur og aðrar
nauðsynlegar upplýsingar.
4. Varnaðarmerki.
5. Hættusetningar.
6. Varnaðarsetningar.
Varnaðarmerki skal vera svart
á appelsínugulum grunni og
heiti flokksins ritað með
svörtu letri á hvítum grunni
fyrir neðan merkið.
Með reglugerðinni fylgir flokk-
unarlisti þar sem fram kemur
með hvaða varnaðarmerki og
varnaðar- og hættusetningum
merkja skal umbúðir. Ef innlend-
ur framleiðandi, innflytjandi eða
umboðsaðili hyggst dreifa eitur-
efnunt eða hættulegunr efnum
sem ekki eru á flokkunarlistanum
ber þeim að óska fyrst eftir
bráðabirgðaflokkun efnanna.
Reglugerð um flokkunarlista
og öðrum fylgiskjölum hefur ver-
ið gefin út og fæst hjá Hollustu-
vernd ríkisins, Síðumúla 13 í
Reykjavík. ój
VARNAÐARMERKI
Tx T Xn X
STERKT EITUR EITUR VARUÐ HÆTTULEGT
C Xi E
£k X f|
ÆTANDI ERTANDI SPRENGIFIMT
Fx F O
i 1
MJÓG ELDFIMT
i
ELDFIMT
(
ELDNÆRANDI
SundLlaucj
Þelamerkurskóla
er opin um helgar, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 13.00 til 20.00.
Heitur pottur með loft- og vatnsnuddi.
10. bekkur.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
Hafnarstræti 90, Akureyri, verður opin
frá og með mánudegi 11. febrúar kl.
16.00-18.00. Síminn er 21180.
Framsóknarfólk er hvatt til að líta inn
eða hafa samband í síma.
Kosningaundirbúningur er að hefjast!
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til náms
á Spáni
Spænsk stjórnvöld bjóða fram eftirtalda styrki handa
fslendingum til náms á Spáni á námsárinu 1991-92.
Finn styrk til háskólanáms í 12 mánuði. Ætlast ertil að
ti sé kominn nokkuö áleiðis i háskólanámi og
nati mjcg gott vald á spænskri tungu.
Tvo styrki til að sækja spænskunámskeið í Madrid
sumarið 1991. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. 3
ára námi í spænskri tungu í íslenskum framhaldsskóla.
Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum
prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
10. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. febrúar 1991.
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 11. febrúar 1991, kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Heimir Ingimarsson og Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra
að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Tilboð
Vátryggingafélas íslands hf. óskar eftir tilboðum í
eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í umferðar-
óhöppum.
1. Isuzu Trooper árgerð 1989
2. Honda Accord EX árgerð 1988
3. Peugeot 205 XS árgerð 1988
4. Subaru 1800 st .. árgerð 1988
5. Citroen BX 16 TRS .... árgerð 1988
6. Toyota Corolla DX árgerð 1986
7. Lada Sport árgerð 1987
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS
að Furuvöllum 11 Akureyri, mánudaginn 11. febrúar
nk. frá kl. 9 til 16.00.
Tilboðum sé skilað fyrir kl. 17.00 sama dag hjá
Skoðunnarstöðinni.
s\Mf* VATRYGGIIMGAFELAG ^rlaí ÍSLANDS HF