Dagur - 09.02.1991, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 9. febrúar 1991
BOLLUKAFFI
að Hamri, félagsheimili Þórs, sunnudaginn
10. febrúar frá kl. 14.00-17.00.
Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Glæsilegar, ódýrar veitingar.
ÞÓR
Ljósritun
Hef opnað Ijósritunarstofu og umboðsskrif-
stofu í Ráðhúsinu á Dalvík.
Ef þú þarft að láta Ijósrita skýrslur, tilkynningar,
fundargögn, söngtexta fyrir árshátíðina eða
eitthvað annað þá er þetta rétti staðurinn.
Geri föst verðtilboð.
Sæki og sendi ef óskað er. beymib
Fljót og góð þjónusta. auglýsinguna
HELGI JÓNATANSS0N
Ljósritun og umboðsskrifstofa
Ráðhúsinu Dalvík.
Sími 63113 • Fax 63114
Heimasími 61066.
Vínar-
tónleikar
í íþróttaskemmunni Akureyri laugard.
9. febrúar kl. 17.00.
Einsöngvarar: Signý Sæmundsdóttir sópran og Óskar
Pétursson tenór.
Stjórnandi: Páll Pampichler.
50 manna hljómsveit!
StórviðburÖur.
Aðgöngumiðar kr. 1000 seldir við innganginn.
Kammerhljómsveit Akureyrar.
SIGMUNDUR ERNIR
FRÉTTAMAÐUR
...Rauttnef
£fýiurnrnrimann
Sala rauða nefsins er fyrir lokaátak húsbyggingar
Samtaka endurhæfðra mænuskaddaöra.
©SEM-hópurinn.
~k
of erlendum veffvangi
Ölvíman
- og breytileg áhrif hennar
Oft er spurt, hvers vegna sumir verði árásargjarn-
ir, þegar þeir neyta áfengis, en aðrir fyllast við-
kvæmni. Sumir halda því fram, að ölvunarein-
kennin myndu að mestu leyti hverfa, ef þeim, sem
drekka, væri ekki Ijóst, að þeir væru undir áhrif-
um. Getur þetta verið satt?
Þegar menn drekka áfengi verða
þeir hávaðasamir, þreytandi og
viðkvæmir. Oft einnig ögrandi og
árásargjarnir.
Flestir eru sammála unt þessa
lýsingu á áhrifum áfengis á okkur
mannfólkið. Eigi að síður er lýs-
ingin röng. Sífellt fleiri niður-
stöður rannsókna leiða í Ijós, að
hegðun einstaklinga undir áhrif-
um áfengis er háð því menning-
armunstri, sem viðkomandi búa
við, og svo því, hverju þeir sjálfir
og aðrir búast við.
Það er t.d. mikill munur á
hegðun Norðurlandabúa undir
áhrifum áfengis og íbúa Suöur-
Evrópu. Þá geta mannfræðingar
- þeir vísindamenn, sem kanna
lifnaðarhætti manna á mismun-
andi menningarsvæðum - stað-
fest það, að áfengisáhrifum fylgir
ekki nein ákveðin hegðun, sem
frá náttúrunnar hendi sé öllum
ásköpuð.
Meðal Mojave-indíánanna í
Arizona, sem búa þar nálægt
landamærum Mexíkó, haga þeir
innfæddu sér nánast eins undir
áhrifum áfengis og þcir gera
ódrukknir. Vissulega verður
þeim hættara við að hrasa, verða
klaufalegri í tilburðum, kannski
sljóir eða syfjaðir, en þeir brydda
ekki upp á neinni óeðlilegri
hegðan. Hjá þeim verður ekki
vart háreysti, árásargirni eða við-
kvæmni.
Hjá indíánum í norðurhluta
Kólumbíu, þeim sem ekki hafa
blandast „menningar-" þjóðfélag-
inu, má sjá annað dæmi þess
sama. Þar losar áfengið ekki um
málbeinið, nema síður sé. Sá,
sem hefur drukkið sig ölvaðan,
sest venjulega um kyrrt eða
leggst útaf og fer að sofa. Ekkert
tilefni verður til fjörugra og
hávaðasamra stjórnmálaum-
ræðna.
Það er ekkert náttúrulögmál, að
fólk verði hávaðasamt, æst eða árás-
argjarnt af að drekka áfengi. Þetta
er þvert á móti áunnin hegðun og
endurspeglun þess, sem við sjálf og
umhverfið gerum ráð fyrir sem
afleiðingum vímunnar.
I Taira-bæ á norðurströnd jap-
önsku eyjarinnar Okinawa eru
menningaráhrifin, sem segja fyrir
um það, hvernig ölvaður maður
skuli liaga sér, miklu greinilegri
en á okkar menningarsvæði.
Mannfræðingarnir hafa tekið eft-
ir því, að þegar karlarnir safnast
saman til áfengisdrykkju, gerist
það iðulega, jafnvel þó að aðeins
sé um óveruleg áfengisáhrif að
ræða, að allt logar í ofsafengnum
deilum og blóðugum slagsmál-
um. Drekki karlarnir hinsvegar í
félagsskap kvenna, gerist nánast
ekki neitt - jafnvel ekki þó að
þeir hafi drukkið frá sér ráð og
rænu.
En snúunt okkur að því, sem
nær okkur er. Áratugum santan.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Við námsbraut í sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla
íslands er laus til umsóknar lektorsstaða ( sjúkraþjálf-
un.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms-
feril og störf, skulu sepdar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 11. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. febrúar 1991.
Kí
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Auglýsing um styrki
til rannsókna- og þróunarverkefna
Stjórn Verkefna- og námsstyrkjasjóðs Kennara-
sambands íslands auglýsir styrki til kennara sem
vinna að:
Rannsoknum, þróunarverkefnum eða umfangs-
miklum verkefnum í skólum.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasam-
bands (slands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, fyrir
1. mars 1991.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu KÍ, fræðsluskrif-
stofum og hjá trúnaðarmönnum KÍ í skólum.
já öldunt saman. höfum við sagt,
að áfengir drykkir vektu árásar-
hneigð. Þessi „staðreynd" hefur
hlotið slíka viðurkenningu, að
við þorum varla aö setja spurn-
ingarmerki við hana. Eigi að síð-
ur er ný kynslóð vísindamanna,
sem kannar áhrif áfengis, farin að
láta spurningarmerkið sjást.
Samt sem áður hafa niðurstöður
kannana, sem benda til þess, að
áfenginu fylgi ekki sjálfkrafa
áhrif, sem leiði til árásargirni, átt
erfitt með að ná viöurkenningu.
En getur það verið, að þetta
„augljósa" samband sé í rauninni
ekki fyrir hendi. Jafnt alþýða
manna sem stjórnmálamenn og
aðrir þeir, sem ákvarðanir taka,
spyrja sjálfa sig þessarar spurn-
ingar, með efa í röddinni.
Og röksemdafærslan er á þá
leið, að enda þótt einhverjir
indíánaþjóðflokkar og Japanir,
sem búi utan endimarka siö-
menningarinnar. bregðist ekki „á
eðlilegan hátt" við áhrifum
áfengis, þá sé ekkert við því að
gera. - En við hér í norðrinu
séum þó siðmenntað fólk og
bregðumst því ööruvísi við. þeg-
ar við drekkum!
En vísindamennirnir halda fast
viö sitt. Og hér gæti verið við
hæfi að vitna til áhugaverðrar til-
raunar, sem sænskir vísindamenn
stóöu fyrir í þeim tilgangi að láta
reyna á kenninguna um að áfengi
valdi árásarhneigð.
Einstaklingum þeim. sem voru
þátttakendur í tilrauninni. var
skipt í þrjá hópa og valið í þá
þannig, að í öllum hópunum væri
fólk með hliðstæða atvinnu.
þjóðfélagsaðstæður o.s.frv.
Þeir, sent voru í hóp I. voru
látnir drekka hóflegt magn áfeng-
is, þannig að þeir urðu léttkennd-
ir. Síðan var veist að þeim meö
grófum móðgunum, og viðbrögð
þeirra urðu reiði og tilraunir til
að berja á mótgerðamanninum.
Þeini, sem voru í hóp II, var
sagt, að áfengi væri í þeim
drykkjum sent þeim voru bornir.
en í rauninni var ekkert áfengi í
þeim. Þátttakendur í þessum
hópi urðu því alls ekki fyrir
áfengisáhrifum. En þegar veist
var að þeim með móðgunum,
brugðust þeir alveg á sama hátt
við og þeir, sent voru í hóp I, og
reyndu að berja á þeim, sent
veittist að þeim.
í hóp III voru þátttakendum
bornir óáfengir drykkir og þeint
sagt rétt til um, hvað það væri.
sem þeir fengju að drekka. í
þessum hóp brugöust þátttakend-
ur á annan hátt við móðgunun-
um. Þeir reiddust, en stilltu sig og
sýndu engar tilhneigingar til
öfbeldis.
Vísindamennirnir halda því
fram, að þessi tilraun sýni, hvern-
ig fólki lærist að skella skuldinni
á áfengið, þegar það langar til að
brjóta reglur þjóðfélagsins. Allir
vita, að það er bannað að berja
samborgara sinn, jafnvel þó að
hann hagi sér heimskulega. og
ódrukknir stilla menn sig oftast
og þola móðgunina. En hafi
menn drukkið áfengi - eða haldi
að þeir hafi gert það - láta menn
slag standa og kenna svo áfeng-
inu um.
En fari svo, að þessar rann-
sóknir verði teknar alvarlega og
viðurkenndar, hlýtur það að ger-
breyta öllum viðhorfum til áfeng-
ismála frá því sem nú er. í stað
þess að einblína á strangar rcglur
og bönn, ber að snúa sér að því
að kenna fólki nýja og heppilegri
siði í umgengni við áfengi og
áhrif þess.
(Bengt Bengtsson í Fukta. -