Dagur - 09.02.1991, Side 19
Laugardagur 9. febrúar 1991 - DAGUR - 19
til umhugsunar ll
Dómgreindarskortur
eða borgarastyijöld
Gorbatsjov forseti Sovétríkjanna
hefur beitt tilskipanavaldi til að
lýsa ólöglega skoðanakönnun er
fram á að fara í Litháen nú um
helgina um viðhorf almennings til
framvindu mála þar í landi. Forset-
inn hefur sagt að þessi könnun sé
aðeins skoðanakönnun þjóðernis-
sinna er afla vilji stuðnings við
aðskilnaðarsjónarmið. Um nokk-
urt skeið hefur verið Ijóst að forset-
inn ætlar sér að berjast til þrautar
til að halda ríkjasamsteypu Sovét-
ríkjanna saman og virðist nú hafa
leitað fulltingis á meðal þeirra afla
er margir höfðu vonast til að væru
að deyja út meðal annars með kyn-
slóðaskiptum. Tilfinningaþrungin
afsagnarræða Eduards Sevardnase,
fyrrum utanríkisráðherra, fyrir
nokkru gaf til kynna að þróun mála
í Moskvu væri að taka nýja stefnu.
Sevardnase hafði aflað sér mikils
traust á Vesturlöndum fyrir ein-
arða framgöngu í því að uppræta
kalda stríðið. Asamt Gorbatsjov
var hann talinn einn aðal hvata-
maðurinn að þeim breytingum er
voru að eiga sér stað innan Sovét-
ríkjanna og hafa meðal annars
orsakað það sem kallað hefur verið
hrun kommúnismans í Austur-Evr-
ópu. Atburðir síðustu daga og
vikna sýna þó glöggt að hrunið er
ekki eins vel á veg komið í Sovét-
ríkjunum sjálfum og afturgöngur
eru þar víðsvegar á ferli innan
stjórnkerfis ríkjasamsteypunnar.
Haldið hefur verið fram að Gor-
batsjov geti aldrei orðið einræðis-
herra. Pað sé hreinlega ekki hans
stíll og verði hann því að hverfa frá
völdum ef harðlínuliðinu tekst að
hrifsa öll ráð á nýan leik. Enn virð-
ist þó sem forsetinn telji að hann
geti samið við þá sem augljóslega
missa löglega jafnt sem ólöglega
spón úr aski sínum ef lýðræðis- og
markaðskerfi fá að þróast með
eðlilegum hætti í landinu. Hann
virðist enn álíta að semja megi við
úlfa og afætur kerfisins um að láta
hlut sinn smátt og smátt af hendi.
Ólík menning sameinuð
með valdboðum
Á undanförnum árum hefur margt
bent til þess að Bandaríki Norður-
Ameríku séu hin eiginlega fyrir-
mynd er Gorbatsjov hyggðist
stefna að hvað framtíðarþróun
Sovétríkjanna varðaði. Hins vegar
hefur nú komið í ljós að á þeirri
leið eru mörg ljón á veginum. Peg-
ar aðstæður í Sovétríkjunum eru
metnar verður að hafa í huga
hvernig þau hafa orðið til. Ríkja-
samsteypan er sett saman úr mörg-
um ríkjum og samfélögum. Þau
eru byggð fólki af mismunandi
uppruna sem á sér mjög ólíkar
hefðir og menningu. Sameining
Sovétríkjanna átti sér stað með
valdboðum í nafni kommúnismans
er á þeim tíma boðaði sæluríki
almúgans hér á jörð. Raunveruleg-
ar lýðræðishefðir eru ekki til meðal
íbúa flestra þessara sundurleitu
þjóðfélaga og alræði stjórnvalda
hefur nú staðið í um það bil manns-
aldur. Því er tæpast til fólk í land-
inu sem þekkir annað markaðs-
kerfi af eigin raun en neðanjarðar-
brask. Af þeim sökum er ógerlegt
að bera tilurð Sovétríkjanna saman
við bandaríkst þjóðfélag þar sem
flestir landsmanna eru afkomendur
landnema fram í ættir þótt frá flest-
um heimshornum séu. Einnig má
minnast þess að bandaríska þjóð-
félaginu var ekki komið þrauta-
laust á og það þróaðist hvorki á
hálfum eða heilum áratug.
Fyrir 25 árum -
framtíð skriffinnskunnar
var ógnað
Um nokkurn tíma hafa framámenn
í Sovétríkjunum skynjað að sam-
félagsgerð þeirra var hætt að
standast. Á sjöunda áratugnum
reyndi Nikita Krutsjof og sam-
starfsmenn hans að hrinda umbót-
um af stað. En hin öfluga sveit sem
komið hafði sér fyrir í kerfi skrif-
finnskunnar og lifði í vellystingum
sá framtíð sinni ógnað og hug-
myndir og áætlanir Krutsjofs voru
gerðar að engu og honum ýtt til
hliðar. Á þeim tíma voru til her-
skáir umbótasinnar er kölluðu á
hefnd yfir þeim er leitt höfðu harð-
stjórn og forréttindi hinna útvöldu
og almenna kúgun yfir landslýð.
Þekktastur slíkra manna er rithöf-
undurinn Alexander Soltsénítsín
og eðlisfræðingurinn og mannvin-
urinn Andrei Shakarov kom þar
einnig nokkuð við sögu..
Gorbatsjov hamlaði á móti
- heimsótti Honecker
Eftir tímabil stöðnunar og aftur-
fara sem kennt er við Leoníd
Bhrésnef var ástand mála orðið
með þeim hætti að eitthvað varð að
gera. Vitað er að ýmiskonar undir-
búningur að breytingum og tilslök-
un hafði átt sér stað áður en Gor-
batsjov var trúað fyrir störfum
aðalritara Kommúnistaflokksins.
Hann fór sér einnig hægt af stað í
fyrstu en hjólin fóru síðan að snú-
ast hraðar en menn bjuggust við.
Er ríki Austur-Evrópu losuðu sig
hvert af öðru við afturgöngur komm-
únismans án þess að Kremlverjar
gætu við neitt ráðið var sýnilegt að
allt stefndi að stórfelldum breyting-
um á stjórnarfari austursins. í
fyrstu reyndi Gorbatsjov að hamla
á móti þessum hraða og fór jafnvel
í opinbera heimsókn til Eriks
Honeckers skömmu áður en aust-
ur-þýski kommiserinn hrökklaðist
frá völdum
Hlaut friðarverðlaunin -
en ófriður í
aðsigi heimafyrir
Á Vesturlöndum horfðu menn
með velþóknun á þróunina og Gor-
batsjov sá og skynjaði að með því
að ýta undir þessar breytingar
skapaði hann sér virðingu og traust
á meðal lýðræðisþjóða heimsins
sem foringjar Sovétríkjanna höfðu
aldrei getað látið sig dreyma um.
Hápunktur þessarar hrifningar af
góðlega manninum með valbrána á
enninu varð síðan þegar Nóbels-
nefndin ákvað að veita honum
friðarverðlaunin. Þótt veiting
þeirra sé einungis táknræn og hafi
ekkert að gera með framvindu
mála innan Sovétríkjanna bar veit-
ingin að nokkru upp á sama tíma
og verðlaunahafinn virtist vilja
efna til ófriðar við þá sem bundið
höfðu vonir við hann. Þótt sjálf-
stæðismál Eystrasaltsríkjanna beri
þar hæst eru þau aðeins brot af
þeim vandamálum sem Gorbatsjov
þarf að glíma við á síðustu tímum.
Þjóðfélag alræðisins -
til að losna við skúrk
verður að gerast meiri
skúrkur sjálfur
Eins og alls staðar sem einræði er
viðhaldið verður að þróa öflugan
her og leyniþjónustu. I ríki þar sem
viðskipti eru bönnuð til að vernda
einstaklingana fyrir þeim en hið
opinbera skammtar naumt og
dræmt á báða bóga verður hinn
mannlegi breyskleiki allri reglu og
skynsemi yfisterkari. Einstaklingar
Eftir Þórð
Ingimarsson.
sem ráðnir eru til að hafa eftirlit
með lífi náunga síns og fá völd til
að skammta honum einhverjar lífs-
nauðsynjar eru fljótir að koma sér
þannig fyrir að þeir geta notað það
sem þeim er trúað fyrir til að maka
krók sinn. í kerfisbákni alræðisins
er engin leið til að forðast spillingu
önnur en sú að beita enn meiri
spillingu. Til að losna við vondan
skúrk verður að gerast enn verri
skúrkur sjálfur. Við þvílík vanda-
mál verður Gorbatsjov nú að
glíma. Menn benda á AustupEvr-
ópu og segja að lýðræðisþróunin
hafi tekist þar. í ríkjum Austur-
Evrópu var nokkuð ólíku saman að
jafna. í fyrstu verður að viður-
kenna að nýfengið lýðræði þeirra
stendur enn víðast hvar á brauðfót-
um. í öðru lagi verður ekki gengið
fram hjá þeirri staðreynd að þessi
ríki eru flest byggð einni þjóð eða
tveimur. Þar er öðru saman að jafna
en aragrúa sovétþjóða. Evrópsk
menning á dýpri rætur í þessum
löndum en bæði á sléttum Rússa-
keisara og í Asíuhluta Sovétríkj-
anna.
Dómgreindarskortur eða
borgarastyrjöld
Hafi Gorbatsjov í raun trúað því
að honum tækist að búa til Banda-
ríki Rússlands og Norður-Asíu á
nokkrum árum virðist sá átrúnaður
vera lítils virði. Hvert sem þróunin
mun stefna er ljóst að tími mikillar
þjóðfélagsólgu er framundan innan
Sovétríkjanna. Hvernig hún mun
enda getur enginn séð fyrir nú en
atburðir síðustu vikna benda til
þess að hinir neysluglöðu kerfis-
kallar láti nú meira og meira til sín
taka. Þrátt fyrir hóglífi sitt og fjar-
lægð frá almenningi er þeim auð-
velt að ná vilja sínum fram. Þeir
liafa enn í hendi sér yfirráðin yfir
því kerfi sem haldið hefur samfé-
laginu saman. Þeir leyfa enn og
skammta enn. Þeir búa yfir mikilli
vitneskju um náungann eftir ára-
tuga öflugt njósnastarf. Þeim er í
lófa lagi að láta lífsnauðsynjar
hverfa eða týnast í járnbrautar-
vögnunum á fáförnum og hálfyfir-
gefnum stöðum á meðan almenn-
ingur stendur illur en hnípinn í
biðröðum við tómar verslanir. Þeir
hafa því í raun meiri völd, tögl og
hagldir í sovétsku þjóðfélagi en í
fyrstu mætti virðast. Gorbatsjov
hefur alla tíð gert sér grein fyrir
þessu og reynt að halda sig á miðju
stjórnmálanna. Reynt að brúa þá
erfiðu gjá sem er á milli umbóta-
sinnanna með orðsins brand og
kerfiskallanna með efnahaginn í
farteskinu. Því er til umhugsunar
hvort honum hafi nú brugðist dóm-
greind er hann veðjar á kerfisjálk-
ana eða hvort hann sé einungis að
bregðast við óumflýjanlegum að-
stæðum. Einnig er til umhugsunar
hvort Gorbatsjov sé í raun og veru
að reyna að forða allsherjar borg-
arastyrjöld innan Sovétríkjanna.
Ef svo er verða Vesturlönd að gefa
honum nokkurn umþóttunartíma
enn þótt hann virðist kominn í
sjálfheldu milli illsamræmanlegra
afla og þær hættur sem ýmsir spáðu
að samfara yrðu breytingum í
Sovétríkjunum séu að koma fram
hver af annarri.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Verkstjóri
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til
umsóknar starf verkstjóra með aðsetri í Stykkis-
hólmi.
Rafvirkjamenntun áskilin. Upplýsingar veittar á skrif-
stofu Rafmagnsveitnanna í síma 93-81154.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist fyrir 22. febrúar nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Hamraendum 2 • 340 Stykkishólmur
Fóðurfræðingar - bú-
fræðingar - kanditatar -
líffræðingar, takið eftir!
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins aug-
lýsir eftir sérfræðingi á tilraunastöðina á
Möðruvöllum í Hörgárdal.
Aðalviöfangsefni verða fóðurtilraunir með nautgripi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun í
fóðurfræði eða skyldum greinum.
Skriflegar umsóknir skulu berast Rannsóknastofnun
Landbúnaðarins Keldnaholti, 112 Reykjavík, eigi
síðar en 15. mars n.k.
Nánari upplýsingar gefa Þóroddur Sveinsson, til-
raunastjóri og Þorsteinn Tómasson forstjóri í síma
91-82230.
Atvinna
Vegna mikillar vinnu framundan óskum við
eftir starfsfólki á dagvakt og kvöldvakt við
saumaskap og saumatengd störf.
Hálfar vaktir eða hlutavaktir koma vel til greina.
Bónusvinna.
Mötuneyti á staðnum.
Uppl. hjá starfsmannastjóra, sími 21900 (220).
Álafoss hf. Akureyri
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN V. JÓHANNSSON,
f.v. vélstjóri,
Oddeyrargötu 4, Akureyri,
sem lést á Kristnesspítala sunnudaginn 3. febrúar, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12. febrúar kl.
13.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar.
Halldóra Kristjánsdóttir.