Dagur - 09.02.1991, Page 20
Pétur Helgason, framkvæmda-
stjóri Árvers á Árskógsströnd:
Útlitið ekki bjart
en áfram verður þraukað
- Kristján Þór EA mun leggja upp
rækju hjá Árveri
Pétur Helgason, framkvæmda-
stjóri Arvers hf. á Árskógs-
strönd, segir að óneitanlega sé
slæmt útlit með rækjuvinnsl-
una í landinu. Vinnslan sé rek-
in með umtalsverðu tapi og því
miður ekki horfur á að úr ræt-
ist á næstunni.
Þrátt fyrir erfiða stöðu hefur
tekist að halda uppi stöðugri
atvinnu hjá Árveri hf., en síðasta
vika er undanskilin. Unnið hefur
verið í átta tíma á dag, að lang-
stærstum hluta erlend rækja. Pét-
ur segir þó að horfur séu á að inn-
lend rækja fáist til vinnslu á næst-
unni því Kristján Þór EA, skip
Snorra Snorrasonar á Dalvík,
muni leggja upp hjá fyrirtækinu.
Rækjuverð fór mjög lágt á
erlendum mörkuðum á síðasta
ári og í raun lægra heldur en
svartsýnustu menn spáðu. Rækju-
verksmiðjurnar supu seyðið af
þessu og Árver var þar engin
undantekning. Pétur segir að
vissulega hafi þetta gert fyrirtæk-
inu erfitt fyrir, en verðfallinu hafi
verið mætt með því að draga eins
Helgarveðrið:
Hægviðri!
Norðlendingar geta loks kast-
að mæðinni eftir sviptingar í
veðri og hremmingar undan-
farnar vikur. Veðurspá helgar-
innar hljómar eins og lágvær,
fögur tónlist í eyrum lands-
manna. „Hægviðri,“ hvíslaði
starfsmaður Veðurstofu Islands
með lotningu þegar Dagur leit-
aði eftir helgarspánni.
Já, Norðlendingar fá hæga suð-
austan átt og bjart veður um
helgina. Á sunnudaginn verður
komið vægt frost.
Á mánudag er gert ráð fyrir
áframhaldandi hægviðri. Heldur
kólnar norðanlands og gæti orðið
nokkuð næturfrost. Þetta er
ljómandi haustspá. SS
og hægt var úr kostnaði. Yfir-
bygging fyrirtækisins sé lítil og
það komi sér vel á þrengingatím-
um.
Pétur bendir á að rækjuvinnsl-
an sé mikilvægust fyrir hinar
dreifðu byggðir landsins og því
komi verðfall á rækjumörkuðum
harðast niður á þeim. Árver er
fjölmennasti vinnustaðurinn á
Árskógsströnd með hátt í 20
manns á launaskrá og því má
hreppsfélagið ekki við því að
missa það úr rekstri. Því verður
að sögn Péturs áfram þraukað og
reynt að hagræða og spara eftir
mætti. óþh
í skólanum er skemmtilegt að vera.
Mynd: Golli
Hús Sjálfsbjargar á Akureyri:
Verður kjallarinn nýttur undir þjónustukjama?
- í framhaldi af vangaveltum um byggingu Qölbýlishúss fyrir aldraða við Bugðusíðu
Þeirri hugmynd hefur skotið
upp að hugsanlega sé unnt að
nýta kjallara Bugðusíðu 1,
húseignar Sjálfsbjargar á
Akureyri, fyrir þjónustumið-
stöð í tengslum við íbúðir aldr-
aðra. Áður hefur komið fram
að Ióð við Bugðusíðu er meðal
þeirra valkosta sem eru fyrir
hendi fyrir væntanlegar íbúða-
byggingar aldraðra í bænum.
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar, en Halldór Jónsson,
bæjarstjóri, segir koma til
greina að kanna hvort hér sé
um hentuga lausn að ræða.
Halldór segir að hugmyndin
um nýtingu kjallarins hafi komið
út frá vangaveltum um hvort
heppilegt sé að byggja fjölbýlis-
hús fyrir aldraða við Bugðusíðu.
„Þetta mál er að öllu leyti á
athugunarstigi. Það hefur ekki
einu sinni verið ákveðið hvar eigi
að byggja næst fyrir aldraða, og
ég tel slíka ákvörðun raunar ekki
vera bæjarins. Allsendis óvíst er
Trúlega kólnar um miðjan febrúar
og marsmánuður verður svalur
- segir Sigurlaug „spákona“ á Kárastöðum
Tíðarfarið það sem af er árinu
hefur orðið mörgum umhugs-
unarefni. Hvassviðrið og frost-
leysið í febrúar þykir tíðindum
sæta. Til að forvitnast um það
hvernig framhaldið gæti hugs-
anlega orðið, hafði blaðamað-
ur Dags samband við Sigur-
laugu á Kárastöðum í Hegra-
nesi en hún er þekkt fyrir að
spá um veðrið.
„Ég hafði spáð því að veturinn
yrði mildur og góður framan af.
Hvassviðrið sem verið hefur
undanfarið er alls ekki gott að sjá
fyrir. Ég gæti trúð að það kólnaði
um miðjan febrúar og að mars-
mánuður verði svalur,“ sagði
Sigurlaug „spákona“ á Kárastöð-
um.
Mörgum leikur forvitni á að
vita hvernig vorið verður og
margir hafa spáð því að það verði
kalt. Um það vildi Sigurlaug ekki
láta hafa neitt eftir sér en minnti
á að mildur vetur þyrfti ekkert
endilega að boða kalt vor.
Þegar Sigurlaug spáði í garnir
kinda sinna í haust, sá hún fyrir
góðviðriskafla á miðjum vetri og
fram yfir áramót. Hvort þeim
kafla lýkur að viku liðinni, verð-
ur að koma í ljós. -kg
hvort bærinn sem slíkur á að
standa fyrir þeim byggingum. Ég
hef látið þá skoðun í ljós að æski-
legt sé að bærinn væri minna inni
í þeim málum en var við Víði-
lundinn. Þjónustan hvílir þó
vissulega á bæjarfélaginu, og við
reynum að leysa þau mál á sem
hagkvæmastan hátt,“ segir hann.
Bæjarráði hafa verið kynntir
ofangreindir möguleikar, og auk
þess ýmsir aðrir staðir sem til
greina geta komi fyrir byggingar
aldraðra.
Akureyrarbær hefur undir
höndum skýrslu um málefni
Bjargs frá síðasta ári, unna á veg-
um ríkisins. Fjárveitingar í fjár-
lögum til Sjálfsbjargar taka mið
af henni, auk þess sem gerð er til-
laga um að Akureyrarbær komi
félaginu á einhvern hátt til
aðstoðar. Engin afstaða hefur
verið tekin til þessarar ábending-
ar, og Akureyrarbær var ekki
aðili að vinnu við skýrsluna.
„Við höfum hliðrað til við Sjálfs-
björgu með gerð langtímasamn-
ings um íþróttahúsið. Vel má
vera að í þessu dæmi leynist
lausnir þar sem menn geta slegið
fleiri flugur í einu höggi, og ég tel
jákvætt ef bærinn getur leyst
ákveðna hluti hjá sér á hagkvæm-
an hátt, á sama tíma og hann
veitti öðrum ákveðna úrlausn, án
þess að taka á sig aukin útgjöld,“
segir Halldór Jónsson. EHB
Aflaverðmæti ísfisktogara:
Vestflarðatogarar í sérflokki
- Sólbergið efst á Norðurlandi
Sólberg ÓF-12 fékk mesta
aflaverðmætið í flokki ísfísk-
togara á Norðurlandi á síöasta
ári eða 204,7 milljónir fyrir
2.739 tonn. Kaldbakur EA-301
veiddi hins vegar mest, 4.290
tonn, en verðmæti aflans var
170,6 milljónir. Þessar upplýs-
ingar koma fram í skýrslu frá
LIÚ.
Dalborg EA-317 fékk hæsta
skiptaverð á hvert kíló, 62,91 kr.,
en Sólbergið kom næst með 49,12
kr. Akureyrartogararnir Harð-
bakur, Svalbakur, Sólbakur og
Kaldbakur fengu lægsta skipta-
verð á kíló, 21,11-29,43 kr.
Vestfjarðatogararnir eru að<
Sólberg ÓF-12 fiskaði fyrir rúmar
204 milljónir króna á síðasta ári.
vanda aðsópsmestir ísfisktogara.
Guðbjörg ÍS-46 fékk 407,7 millj-
ónir fyrir 5.369 tonn, en þetta eru
hæstu tölur yfir allt landið, og
Bessi ÍS-410 var í öðru sæti með
303,9 milljónir fyrir 4.300 tonn.
Páll Pálsson ÍS-102 kom næstur
með 291,6 millj. fyrir 4.697 tonn.
Meðalskiptaverðmæti Vestfjarða-
togaranna á hvert kíló var 36-50
krónur.
Þegar tölur um aflaverðmæti
eru skoðaðar ber að hafa í huga
að flestir togarar hífa töluna upp
með sölu erlendis, mismikilli þó,
en t.a.m. togarar Útgerðarfélags
Akureyringa landa eingöngu í
heimahöfn. SS
Frestur til að skila skattframtölum rennur út á morgun:
Þó leyfilegt að skila á mánudag
Frestur til að skila skattfram-
tölum einstaklinga rennur út
á morgun, sunnudaginn 10.
febrúar. Þar sem síðasta skila-
dag ber upp á sunnudag gefst
fólki kostur á að skila framtöl-
um sínum á skattstofur á
Norðurlandi í síðasta lagi á
mánudaginn.
„Ég held að megi segja að allir
séu syndlausir sem skila á mánu-
daginn," sagði Guðmundur
Gunnarsson, fulltrúi á Skattstofu
Norðurlandsumdæmis eystra.
Bogi Sigurbjörnsson, skatt-
stjóri Norðurlandsumdæmis
vestra, sagði að samkvæmt aug-
lýsingu væri síðasti skiladagur 10.
febrúar, „en hjá mér hef ég látið
þau boð út ganga að ellefti sé í
lagi. “
Síðasti skiladagur skattfram-
tala atvinnurekenda er 15. mars
nk. óþh