Dagur - 12.02.1991, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 12. febrúar 1991
SKATTAFRAMfOL
fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki
Sími 25645 Sigurjón.
Sími 31236 Egill Örn.
ÞJÓÐARFLOKKURINN
OPIÐ HUS
um málefni kosninganna og flokksstarfið
alla miðvikudaga frá kl. 20.30 í Alþýðuhús-
inu 4. hæð.
Frambjóðendur.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
SAMTOK ATVINNUREKENDA j LOGGILTUM iðngreinum
Atvinnurekendur innan Landssambands
iðnaðarmanna á Norð-Austurlandi, munið
fundinn á Hótel KEA, 13. febrúar kl. 16.00.
Dagskrá fundarins hefur verið kynnt í bréfi, sem fé-
lagsmenn hafa fengið.
Landssamband iðnaðarmanna (L.I.),
Svæðisskrifstofa iðnaðarins á Norðurlandi
(S.I.N.).
Þorramatur - Þorramatur
Hrutspungar - Sviðasulta.
Lundabaggar - Bringukollar.
Vestfirskur skyrhákarl besti í bænum.
Harðfiskur að vestan.
Lúða - Þorskur - Ýsa - Steinbítur.
Gott verð
Fiskbúðin Strandgötu 11b
U
LANOSVIRKJUN
Fljótsdalslína 1.
Fljótsdalsvirkjun
Landsvirkjun boðar hér með fil kynningarfunda um
ofannefnd mannvirki sem fyrirhugað er að byggja á
næstu árum.
Fundirnir verða sem hér segir:
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991, kl. 20.30 í Skjól-
brekku.
Fundarstjóri verður Sigurður R. Ragnarsson oddviti.
Föstudaginn 15. febrúar 1991, kl. 20.30 í Frey-
vangi.
Fundarstjóri verður Birgir Þórðarson oddviti.
Á fundunum munu fulltrúar Landsvirkjunar lýsa
mannvirkjum og tilhögun framkvæmda og fulltrúar
frá Náttúruverndarráði og Skipulagi ríkisins reifa mál
er snúa að þessum stofnunum og tengjast áður-
nefndum mannvirkjum.
Fundirnir eru öllum opnir.
Landsvirkjun.
Minning:
Vernharður Sveinsson
fv. mjólkursamlagsstjóri
Fæddur 7. apríl 1914 - Dáinn 1. febrúar 1991
Mánudaginn 11. febrúar sl. var til
moldar borinn frá Akureyrar-
kirkju Vernharður Sveinsson, fv.
mjóíkursamlagsstjóri.
Vernharður var fæddur 7. apríl
1914 að Nesi í Grýtubakka-
hreppi. Foreldrar hans voru
hjónin Sigurlaug Vilhjálmsdóttir
og Sveinn Þórðarson, bóndi og
síðar hótelstjóri á Hótel Gullfossi
á Akureyri.
Systkini Vernharðar voru
Guðrún Magnússon, ekkja
Magnúsar V. Magnússonar fv.
sendiherra og Þórður Sveinsson,
(látinn) var giftur Jenný Jóns-
dóttur.
Vernharður kvæntist eftirlif-
andi konu sinni Marfu Svein-
laugsdóttur 1940. Foreldrar
hennar voru Sveinlaugur Helga-
son, útgerðarmaður á Seyðisfirði
og kona hans Rebekka Kristjáns-
dóttir.
Vernharður og María voru
ákaflega gestrisin og mjög
ánægjulegt að koma til þeirra, á
þeirra fallega heimili að Laugar-
götu 2.
Vernharður hóf störf hjá
Mjólkursamlagi KEA aðeins 15
ára gamall og starfaði þar því
sem næst óslitið til 77 ára aldurs
eða í u.þ.b. 62 ár og hlýtur því að
hafa verið með alhæsta starfsald-
ur hjá Kaupfélagi Eyfirðinga,
þegar hann lét af störfum sl.
haust.
Vernharður hóf nám í mjólk-
uriðn hjá Mjólkursamlagi KEA
undir handleiðslu Jónasar heitins
Kristjánssonar, mjólkursamlags-
stjóra, eins aðalfrumherja
nútíma mjólkuriðnaðar hérlend-
is. Jónas var mjög kröfuharður
um gæði og frágang þeirra vara,
sem framleiddar voru í mjólkur-
samlaginu, enda fór af því orð
um land allt, og viss ljómi og stolt
yfir þeirri fjölbreyttu iðnaðar-
uppbyggingu, sem átti sér stað á
Akureyri á þeim tíma.
Árið 1934 fór Vernharður til
framhaldsnáms til Danmerkur og
nam mjólkurfræði við Ladelund
mejeriskole og útskrifaðist þaðan
vorið 1935. Kynni hans af dönsk-
um mjólkuriðnaði voru honum
mjög lærdómsrík og minnisstæð
og ræddi hann oft um kynni sín af
því ágæta fólki, sem hann kynnt-
ist meðan hann dvaldi í dana-
veldi.
Er heim kom hóf hann störf
hjá mjólkursamlaginu, við fram-
leiðslu en síðar á skrifstofu, sem
aðstoðarmaður mjólkursamlags-
stjóra. Þegar Jónas lét af störfum
fyrir aldurs sakir 1966, var Vern-
harður ráðinn sem mjólkursam-
lagsstjóri og gegndi því starfi til
ársins 1982, en vann síðan áfram
hjá mjólkursamlaginu við skrif-
stofustörf allt fram á síðasta
haust.
í mjólkursamlagsstjóratíð
Vernharðar var hið nýja og glæs:
lega mjólkursamlag á Akureyri
byggt og það vígt með viðhöfn
19. júní 1980.
Vernharður átti sæti í stjórn
Osta og smjörsölunnar sf. frá
1974 til 1986 og reyndist þar hinn
ágætasti liðsmaður, hafði góða
yfirsýn og þekkingu á málefnum
mjólkuriðnaðarins og gætti vel
hagsmuna sinna umbjóðenda,
jafnframt því sem hann tók fullt
tillit til samstarfsaðilanna og
reyndi ávallt að stuðla að sáttum
og samstöðu um lausn mála.
Við Vernharður áttum mjög
gott samstarf meðan hann veitti
mjólkursamlaginu forstöðu og
hygg ég að það hafi orðið fyrir-
tækjunum sem við stóðum fyrir
til mikils góðs og mjólkuriðnað-
inum í heild til framdráttar.
Ég minnist einnig margra
góðra stunda bæði hérlendis og
erlendis sem við áttum með hon-
um og Maríu, við laxveiðar fyrir
norðan eða kynnisferðir til að
afla upplýsinga og kynnast
mjólkuriðnaði annarra þjóða.
Ég kynntist Vernharði bæði í
starfi og leik, þar fór drengur
góður.
Við Unnur vottum Maríu og
öðrum aðstandendum innilega
samúð okkar.
Óskar H. Gunnarsson.
In memoriam:
Vernharður Sveinsson fæddist að
Nesi í Höfðahverfi hinn 14. apríl
1914. Foreldrar hans voru hjónin
Sigurlaug Vilhjálmsdóttir frá
Nesi, Þorsteinssonar frá Grýtu-
bakka, og Sveinn Þórðarson frá
Höfða, Gunnarssonar bónda þar.
Móðir Sigurlaugar var Valgerður
Einarsdóttir, dóttir Elísabetar
Sigurðardóttur Jónssonar frá
Möðrudal, sem var síðari kona
Einars bónda Ásmundssonar í
Nesi. Vilhjálmur faðir Sigurlaug-
ar og afi Vernharðs var bóndi og
hákarlaformaður og kunnur sjó-
sóknari, eins og frændur hans
margir. Átti hann hákarlaskipið
Akureyrina sem var frægt skip á
sinni tíð, en þeir frændur voru
upphafsmenn útgerðar á þessum
slóðum. Þórður Gunnarsson var
mektarbóndi í Höfða, sonur séra
Gunnars Ólafssonar prests Þor-
leifssonar í Höfða. Gunnar varð
stúdent úr Bessastaðaskóla. 1842
og talinn merkismaður.
Vernharður Sveinsson ólst upp
í Nesi í hópi þriggja systkina,
Þórðar Vilhelms, sem fæddur var
1913 og dó 1964, og kvæntur var
Jennýju Oddsdóttur, og Guðrún-
ar, sem fædd er 1923 og gift var
Magnúsi heitnum Magnússyni
sendiherra. Árið 1928 fluttist
Vernharður með foreldrum sín-
um til Akureyrar þar sem þau
ráku um árabil Hótel Gullfoss af
miklum myndarbrag.
Hinn 1. október 1929 hóf
Vernharður Sveinsson störf hjá
Mjólkursamlagi KEA, sem stofn-
að hafði verið 1927 en tók til
starfa hinn 6. mars 1928 undir
stjórn hins merka frömuðar Jón-
asar Kristjánssonar samlags-
stjóra. Tókst með þeim Vern-
harði vinátta sem hélst ævilangt.
Fyrir áeggjan Jónasar fór Vern-
harður til Danmerkur árið 1934
og stundaði nám við Ladelund
Landbrugs- og Mælkeriskole á
Jótlandi suður af Álaborg og lauk
þaðan námi sem mjólkurfræðing-
ur árið 1935 auk þess sem hann
vann á eynni Als um tíma. Alla
tíð minntist Vernharður Dan-
merkurdvalar sinnar með ánægju
og mat Dani mikils fyrir festu
þeirra og vinnusemi og ávallt
þótti honum gott að koma til
Danmerkur og snæða góðan mat
á góðum veitingastað, Spinde-
rokken eða Sölleröd Kro.
Eftir heimkomuna 1935 hélt
Vernharður áfram störfum sínum
hjá Mjólkursamlagi KEA, fyrst
sem mjólkurfræðingur, síðar
sem fulltrúi Jónasar samlags-
stjóra og frá 1967 sem mjólkur-
samlagsstjóri til ársins 1982 og
fram til 1. september í haust við
ýmis reiknings- og þjónustustörf.
Vernharður var því starfsmaður
samlagsins hartnær 60 ár, þegar
frá er talinn námstími hans í
Danmörku. Er þetta fágætt, ef
ekki einsdæmi, hér á landi og
þótt víðar væri leitað og sýnir
betur en margt annað hollustu
Vernharðs Sveinssonar og festu
og reyndist hann fyrirtækinu
afburða vel og einkenndu trú-
mennska og heiðarleiki öll störf
hans.
Hinn 31. október 1940 gekk
Vernharður að eiga Maríu
Sveinlaugsdóttur Helgasonar,
skipasmiðs og sjósóknara frá
Grund í Mjóafirði, og Rebekku
Kristjánsdóttur frá Sandhúsi, af
Brekkuætt. María liafði ráðist
sem frammistöðustúlka til for-
eldra Vernharðs á Hótel Gull-
fossi tveimur árum áður. Bjuggu
þau fyrsta veturinn á heimili for-
eldra hans en vorið 1941 settust
þau að í gamla Frímúrarahúsinu
við Hafnarstræti á Akureyri þar
sem María stóð fyrir húsi mörg ár
af miklum dugnaði og myndar-
skap. Árið 1947 fluttust þau í
nýtt hús sitt að Laugargötu 2 á
Akureyri og bjuggu sér þar heim-
ili sem rómað var fyrir smekkvísi
og höfðingsbrag og hefur margur
maðurinn átt þar athvarf og var
þar gott að koma gestum og
gangandi.
Vernharður Sveinsson gekk í
reglu frímúrara ungur maður og
starfaði þar til æviloka og helgaði
sig því starfi af heilum hug. Hann
sat í stjórn Osta- og smjörsölunn-
ar um langt árabil og vann þar
gott starf og ásamt með vini
sínum, Val heitnum Arnþórssyni
kaupfélagsstjóra, vann hann að
byggingu hins nýja og glæsilega
húss Mjólkursamlags KEA og
lagði hann þar í allan hug sinn.
Mátu þeir tveir hvor annan
mikils.
Vernharður var einn af braul-
ryðjendum í golfi hér á Akureyri,
um mörg ár stundaði hann lax-
veiði með góðum vinum og um
langan tíma spilaði hann bridds
og naut lífsins í hópi vina sinna.
Vernharður Sveinsson hafði
engin bein afskipti af stjórnmál-
um, þótt menn vissu hvert hugur
hans hneigðist, en hann hafði
brennandi áhuga á efnahags- og
atvinnumálum og þjóðmálum og
fylgdist vel með gangi heimsmála
og var ekki komið að tómum kof-
anum þar. Hann hafði einnig sér-
stakan áhuga á íþróttum hvers
konar og var fús að ræða þessi
áhugamál sín við vini sína. Hann
var fróður um menn og málefni
og las stöðugt mikið, og síðasta
verk hans hér í heimi var að
panta bækur í Amtsbókasafninu
til að lesa en þeim lestri lauk
hann aldrei hérna megin grafar.
Vernharður Sveinsson var dag-
farsprúður maður og farsæll,
afskiptalítill. þurr á manninn í
viðskiptum, en hlýr og elskulegur
þeim sem honum kynntust. Ekki
síst hændust börn og ungmenni
að honum og sýndi hann þeim
virðingu og nærgætni. Venna
kynntist ég barn að aldri. Man ég
margar stundir með honum og
Maju, frænku minni, ekki síst á
jólum forðum daga heima í
Laugargötu. Kímilegar sögur og
leikir og þrautir og spilagaldrar
hans líða mér seint úr minni. Þá
var honum skemmt þegar aðrir
glöddust. Eftir að við settumst að
á Akureyri fyrir tæpum 20 árum
með stóran barnahóp komum við
Gréta til þeirra Venna og Maju
frænku hvern aðfangadag og hver
jól og þar áttum við öll athvarf.
Gott er að eiga góða að.
Vernharður Sveinsson var
höfðingi af íslenskum höfðingja-
ættum, stórlátur en hjartahlýr og
góður maður. Við Gréta og börn
okkar sendum Maju frænku vin-
arkveðjur og vottum henni sam-
úð okkar. Blessuð sé minning
Vernharðs Sveinssonar.
Tryggvi Gíslason.