Dagur - 21.03.1991, Qupperneq 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Ráðstafanir vegna loðnubrestsins:
Sveitarfélögin fá
100 milljómr
- flárveitinganefnd mun skipta þessum
ijármimum milli þeirra
i
Þaft var tómlegt um að litast í vinnslusal ÚA í gær. Mynd: Golli Mótmælaaðgerðir fiskvinnslufólks í gær: Unnið á þremur borðum hjá U.A. í gær lá vinna niðri í mörgum frystihúsum landsins, vegna mótmælaaðgerða fiskvinnslufólks, sem krefst m.a. hækkunar skattleysismarka. Frystihús KEA á Dalvík og frystihús Útgerðarfélags Akureyringa hf. voru meðal þeirra húsa þar sem þátttaka í vinnustöðvuninni var mikil. Eftir því sem Dagur kemst næst iggur afli ekki undir skemmdum af þessum sökum neins staðar, þótt vinnustöðvunin komi sér auðvitað lla fyrir vinnsluna. Myndin hér að ofan var tekin í vinnslusal Ú.A., þar var aðeins unnið á þremur vorðum í gær, en um 160 manns tóku þar þátt í vinnustöðvuninni. EHB
„Sjávarútvegssteftian heftir
skapað grunn til nýrrar sóknar"
- segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
Sjavarúlvegsráöherra sagði að
Umtalsverðum upphæðum
verður varið til stuðnings
loðnuverksmiðja og sveitarfé-
laga sem Iéleg loðnuvertíð hef-
Grímsey:
Rafmagn af
íbúðarhúsiim
skóla og
félagsheimili
Rafmagn fór af 11 íbúðarhús-
um í Grímsey í fyrrakvöld, sem
og skólanum og félagsheimil-
inu. Astæðan var fyrst og
fremst mikil ísing og veðurhæð
þannig að raflínur slitnuðu og
þverslár á staurastæðum
brotnuðu. Viðgerðarmenn
unnu að bráðabirgðaviðgerð í
gær en fullnaðarviðgerð getur
ekki lárið fram fyrr en viðrar
til að fá viðgerðarflokk úr
landi.
Porlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, sagði í gær að veður-
hæð hafi verið talsverð og dregið
hafi í allt að þriggja metra háa
skafla. Mikil úrkoma var í eynni í
fyrrakvöld og hitastig þannig að
mikið hlóðst á raflínur.
„Hér er unnið í fiskhúsunum
þrátt fyrir þetta en skólinn féll
niður enda upphitunarlaus og ill-
viðri hið mesta í dag,“ sagði Þor-
lákur síðla dags í gær.
Þorlákur sagði að hugsanlega
yrði reynt að tengja bráðabirgða-
taug í skólann og félagsheimilið
til að ná þar upp hita á ný en auð-
veldara væri að halda íbúðarhús-
unum frostlausum þangað til
fullnaðarviðgerð gæti farið fram
á raflínunum, þá með aðstoð úr
landi.
„En hér er ekkert neyðar-
ástand vegna þessa, fólk gat
komið sér í önnur hús þannig að
öllum líður vel. Menn hafa hægt
um sig þar til veðrið gengur yfir.“
JÓH
„Til okkar hafa engar upp-
sagnir borisf,“ sagði Valdimar
Bragason, framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Dalvíkinga hf.
vegna frétta um uppsagnir
togarasjómanna á Eyjatjarðar-
svæðinu, þar á meðal á togur-
um félagsins.
Útgerðarfélagið gerir út togar-
ana Björgvin og Björgúlf en hinn
síðarnefndi er nú í slipp á Akur-
eyri. Valdimar segir að undir-
mönnum á honum hafi verið sagt
ur fjárhagslega leikið grátt.
Þetta var eitt af þeim málum
sem Alþingi náði að afgreiða
fyrir þingslit. Einnig var sam-
þykkt frumvarp sjávarútvegs-
ráðherra um ráðstafanir til að
bæta loðnuskipum loðnumiss-
inn.
Milli sveitarfélaga, sem urðu af
miklum tekjum vegna loðnu-
brests, verður skipt 100 milljón-
um króna. Fjárveitinganefnd sér
um að skipta þessum fjármunum
að fenginni umsögn frá viðkom-
andi ráðuneytum. Af sveitarfé-
lögunt á Norðurlandi. sem illa
urðu úti af þessum sökum, má
nefna Siglufjörð, Þórshöfn og
Raufarhöfn. Einnig varð Akur-
eyrarbær af umtalsverðum tekj-
um vegna lítillar loðnubræðslu í
Krossanesi.
Til þess að leysa vanda loðnu-
verksmiðjanna renna 200 millj-
ónir króna og aðrar 200 milljónir
í sérstakan úreldingarsjóð til þess
að úrelda nokkrar loðnuverk-
smiðjur í landinu. Engin ákvörð-
un hefur verið tekin um hvaða
verksmiðjur skal úrelda.
Hvað viðkemur loðnuskipun-
um var samþykkt að heimila sjáv-
arútvegsráðherra að ákveða með
reglugerð að aflaheimildum Hag-
ræðingarsjóðs skuli að hluta eða
öllu leyti ráðstafað til þeirra. Við
skiptingu þeirra er heimilt að
taka ntið af aflahlutdeild skip-
anna af loðnu og loðnuafla þeirra
á síðustu haustvertíð.
Þá er sjávarútvegsráðherra
heimilt að auka leyfðan heildar-
afla af úthafsrækju og skipta
þeim viðbótarkvóta á milli loðnu-
skipanna.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
alþingismaður í Norðurlandskjör-
dæmi vestra og formaður sjávar-
útvegsdeildar neðri deildar, segir
að menn séu mjög ánægðir með
þessa lendingu í málinu. Þarna
hafi náðst samstaða um að koma
loðnuverksmiðjunum og því fólki
sem þar vinnur til hjálpar ekki
síður en útgerðum loðnuskip-
anna. óþh
upp áður en skipið fór í slipp og
því hafi þessir menn ekki ráðn-
ingarsamninga. „Þeir verða þá að
gera upp við sig hvort þeir
endurráða sig þegar þar að
kemur. Uppsagnir hafa hins veg-
ar ekki borist frá yfirmönnum á
Björgúlfi og frá Björgvini hefur
ekki borist nein uppsögn. Ég hef
leitað eftir hvort uppsagnir hafi
komið til skipstjórans og svo er
ekki. Því hafa engar uppsagnir
borist til Útgerðarfélags Dalvík-
Ég fullyrði að það er ekki
hægt að ná sátt í þessu landi
um neina aðra stefnu í stjórn-
un fiskveiðanna en þá sem nú
er rekin,“ sagði Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra m.a. í ræðu sinni á mið-
stjórnarfundi Framsóknar-
flokksins um síðustu helgi.
Hann sagði að flestir væru
sammála um að fiskveiðunum
yrði best stýrt með einhvers
konar kvótakerfi; deilan stæði
hins vegar um það hvernig
þessum kvótum skuli útdeilt.
inga,“ sagði Valdimar.
Valdimar segir að bréf hafi
borist til félagsins frá Sjómanna-
félagi Eyjafjarðar samhljóða því
bréfi sem sent var ÚA en áður
hafi sjómenn hjá ÚD óskað eftir
viðræðum við stjórn félagsins. Þá
hafi sjómönnunum verið greint
frá að samráð yrði haft með öðr-
um útgerðum á svæðinu og í
framhaldi af því hafi félagið boð-
ið hækkun á heimalöndunarálagi
frá 1. mars úr 30% í 40%.
áðrar leiðir við stjórnun fiskveiða
væru óraunhæfar og um þær næð-
ist engin sátt, það væri fullreynt.
Hann nefndi sem dæmi þings-
ályktunartillögu nokkurra
þingmanna um cinhvers konar
„heildarkvóta-stefnu“ að hætti
Evrópubandalagsins, sölu veiði-
heimilda eða auðlindaskatt og
einnig þá aðferð að afbenda fisk-
veiðiheimildarnar frystihúsunum
eöa byggðarlögunum.
Halldór sagði að með núver-
andi sjávarútvegsstefnu heföi
Reiknað er með að Björgúlfur
komi úr slipp eftir helgina og þá
reynir á hvað sjómennirnir gera.
Konráð Alfreðsson hjá Sjó-
mannafélagi Eyjafjarðar segir sér
kunnugt um að uppsagnarbréf,
frá a.m.k. flestum yfirmanna á
Björgúlli, sé á leiðinni til Útgerð-
arfélags Dalvíkinga. Þá sé vitað
að sjómenn á Björgvini muni
sennilega grípa til aðgerða þegar
skipið komi í land á föstudag.
tekist að byggja upp grunn til
nýrrar sóknar í þessari undir-
stöðugrein þjóðarbúsins. Stærstu
verkefnin framundan væru að
bæta nýtingú aflans og auka
gæðin. Hann nefndi að í þeim til-
gangi stæði yfir sérstakt átak í
þremur útgerðarfyrirtækjum í
landinu; þ.e. Útgerðarfélagi
Akureyringa, Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur og Síldarvinnslunni í
Neskaupstað. Hann nefndi sem
dæmi að í einu þessara fyrirtækja
hefðu 60% karfaflaka verið
skemmd í vinnslu en með sam-
eiginlegu átaki hefði starfsfólki
fyrirtækisins tekist að lækka þetta
hlutfall niður í 15%. „Hvað
halda menn að sé mikill auður í
verkefnum sem þessum?" spurði
sj á varút vegsráðherra.
Halldór Ásgrímsson leggur
mikla áherslu á að framsóknar-
menn haldi forystuhlutverki sínu
í sjávarútvegsmálunum og ríkis-
stjórn að afloknum kosningum.
„Sjálfstæðismenn vildu ekki taka
að sér sjávarútvegsráðuneytið
fyrir átta árum, þótt þeim stæði
það til boða. Nú segja þeir hins
vegar: „Við viljum fá lyklana að
sjávarútvegsráðuneytinu en ykk-
ur kemur ekkert við hvað við ætl-
um að gera þar inni!“ Framsókn-
arrnenn hljóta að afneita slíkum
mönnum og það vona ég að
íslenskir kjósendur geri einnig,“
sagði Halldór Ásgrímsson. BB.
Sjá bls. 11.
Uppsagnir hjá togarasjómönnum við Eyjaflörð:
„Höfum engar uppsagnir fengið“
- segir framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga hf.