Dagur - 21.03.1991, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 19
Heimir Guðjónsson.
Knattspyrna:
HeimiríKR
Heimir Guðjónsson, knatt-
spyrnumaður úr KA, hefur
ákveðið að leika með sínum
gömlu félögum í KR í sumar.
Heimir yfirgaf KR á sínum
tíma vegna ágreinings við Ian
Ross, þjálfara, en ákvað að
skipta aftur yfir í KR eftir að ljóst
varð að Ross yrði ekki með liðið
í sumar. Hann er fimmti leik-
maðurinn sem KA missir frá því í
fyrra en áður voru farnir Bjarni
Jónsson í Stjörnuna, Jón Grétar
Jónsson í Val, Kjartan Einarsson
í ÍBK og Þórður Guðjónsson í
ÍA.
Borðtennis:
Magnamenn sigursælir á Norðurlandsmótinu
Sl. sunnudag stóð íþróttafélag-
ið Akur fyrir Norðurlandsmóti
í borðtennis í íþróttahúsi
Sjálfsbjargar, Bjargi. Mótið
heppnaðist vel í alla staði, 42
keppendur leiddu saman spaða
sína en nokkrir þurftu að sitja
heima vegna ófærðar. Kepp-
endur úr Magna frá Grenivík
voru sigursælir á mótinu en
eins og margoft hefur komið
fram er mikil og góð borðtenn-
ismenning á Grenivík. Sigruðu
Magnamenn í öllum flokkum
að einum undanskildum.
í karlaflokki spilaði einn
gestur, Anders Garm frá Dan-
mörku, og sigraði hann alla sína
andstæðinga nokkuð örugglega.
Af heimamönnum varð Stefán
Gunnarsson, Magna, hlutskarp-
astur, Elvar Thorarensen, Akri,
varð annar og Sigþór Haralds-
son, Akri, þriðji.
í flokki drengja 16-17 ára sigr-
aði Jörundur Valtýsson, Akri,
Guðmundur Árni Þórisson,
Akri, varð annar og Steinn Sím-
onarson, Dalvík, þriðji.
Ægir Jóhannsson, Magna, sigr-
aði í flokki sveina 14-15 ára,
Gauti Valur Hauksson, Magna,
varð annar og Svavar Guðjóns-
son, Akri, þriðji.
í flokki pilta 13 ára og yngri
sigraði Ingi Hrannar Heimisson,
Magna, Ingólfur Jóhannsson,
Magna, varð annar og Birgir Már
Birgisson, Magna, þriðji.
Aðeins var spilað í tveimur
flokkum kvenna og í eldri
flokknum, 14-15 ára meyja, var
keppni það jöfn að oddalotu
þurfti í nær öllum leikjum. Elva
Helgadóttir, Magna, stóö uppi
sem sigurvegari, Elín Þorsteins-
dóttir, Magna, varð önnur og
Margrét Osk Hermannsdóttir,
Magna, þriðja.
I flokki telpna 13 ára og yngri
sigraði Margrét Ösp Stefánsdótt-
ir, Magna, Anna Birna Björns-
dóttir, Magna, varð önnur og
Sandra Mjöll Tómasdóttir,
Magna, þriðja.
Laugar:
Grunnskólamót með þátttöku 9 skóla
Fyrir skemmstu var haldið
grunnskólamót í frjálsum
íþróttum, knattspyrnu, körfu-
knattleik og skák á Laugum í
S.-Þingeyjarsýslu. Til keppni
var boðið öllum grunnskólum í
N.- og S.-Þingeyjarsýslu og
mættu níu skólar af tíu til leiks.
Mót þetta er liður í auknum
samskiptum grunnskóla á
svæðinu og var það álit móts-
lialdara að vel hefði tekist til.
Um 300 manns voru á mótinu,
þar af rúmlega 200 keppendur.
Keppt var í tveimur aldursflokk-
um karla og kvenna og stóð
keppni yfir í rúmar 8 klukku-
stundir. Um kvöldið var haldin
kvöldvaka og diskótek. Það voru
nemendur íþróttadeildar Lauga-
skóla sem sáu um allan undirbún-
ing og framkvæmd mótsins.
Hér á eftir fara helstu úrslit.
Boðhlaup 9.-10. bckkur
1. Húsavík
2. Litlu-Laugar
3. Skútustaðir
Boðhlaup 7.-8. bekkur
1. Húsavík
2. Litlu-Laugar
3. Lundur
Hástökk, stúlkur 7.-8. bckkur
1. Valgerður Jónsdóttir, Litlu-L. 1,40
2. Katla S. Skarphéðinsdóttir, Húsavík 1,35
3. Arnfríður G. Arngrímsd., Skútust. 1,35
Piltar 7.-8. bekkur
1. Skarphéðinn Ingason, Skútust. 1,50
2. Gunnar Þór Björgvinsson, Stórutj. 1,45
3. Magnús Þorvaldsson, Húsavík 1,40
Stúlkur 9.-10. bekkur
1. Sigrún Konráðsdóttir, Litlu-L. 1.40
2. Margrét Rósa Jochumsd., Laugum 1,35
3. Elín Þorsteinsdóttir, Grenivík 1,35
Piltar 9.-10. bekkur
1. Gunnar Leóson, Grenivík 1,65
2. SigurðurÖrn Arngrímsson, Laugum 1,65
3. Magni Sigmarsson, Laugum 1,55
Langstökk, stúlkur 7.-8. bekkur
1. Ingunn Lúðvíksdóttir, Litlu-L. 2,30
2. Erla Viðarsdóttir, Húsavík "2,27
3. Hjördís Skírnisdóttir, Grenivík 2,26
Piltar 7.-8. bekkur
1. Skarphéðinn Ingason, Skútust. 2,62
2. Magnús Þorvaldsson, Húsavík 2,44
3. Finnur Ingi, Litlu-L. 2,25
Stúlkur 9.-10. bekkur
1. Rósa Friðbjarnardóttir, Húsavík 2,45
2. Sigrún Konráðsdóttir, Litlu-L. 2,44
3. Kolbrún Pálsdóttir, Litlu-L. 2,41
Piltar 9.-10. bekkur
1. Leifur Ásgeirsson, Húsavík 2,80
2. Sigurður Arngrímsson, Laugum 2,71
3. lllugi Jónsson, Laugum 2,69
Þrístökk, stúlkur 7.-8. bckkur
1. Katla Skarphéðinsdóttir, Húsavík 6,83
2. Ingunn Lúðvíksdóttir, Litlu-L. 6,51
3. Hjördís Skírnisdóttir, Grenivík 6,42
Stúkan var þéttskipuð allan tímann.
Nemendur á 1. og 2. ári íþróttadeildar sem sáu um mótið.
Piltar 7.-8. bekkur
1. Skarphéðinn Ingason, Skútust. 7,87
2. Magnús Þorvaldsson, Húsavík 7,48
3. Gunnar Björgvinsson, Stórutj. 6,56
Stúlkur 9.-10. bekkur
1. 'Rósa Friðbjarnardóttir, Húsavík 6,91
2. Kplbrún Pálsdóttir, Litiu-I.. 6,89
3. Sigrún Konráðsdóttir, Litlu-L. 6,84
Piltar 9.-10. bekkur
1. Illugi Már Jónsson, Laugum 8,05
2. Valgarður Guðmundsson, Stórutj. 7,85
3. Guðni Rúnar Tómasson, Grenivík 7,60
Kúluvarp, stúlkur 7.-8. bekkur
1. Margrét Hermannsdóttir, Grenivík 7,92
2. Svandís Leósdóttir, Grenivík 7,50
3. Katla Skarphéðinsdóttir, Húsavík 7,30
Piltar 7.-8. bekkur
1. Daði Búi Halldórsson, Lundi 10,60
2. Skarphéðinn Ingason, Skútust. 10,32
3. Magnús Þorvaldsson, Húsavík 9.74
Stúlkur 9.-10. bekkur
1. Erna Héðinsdóttir, Skútust. 7,56
2. Linda Rúnarsdóttir, Stórutj. 7,04
6,94
3. Kristveig Sigurðardóttir, Lundi
Piltar 9.-10. bekkur
1. Sigurður Ö. Arngrímsson, Laugum 8,74
2. Heimir Harðarson, Húsavík 8,28
3. Gunnar Leósson, Grenivík 8,12
Knattspyrna stúlkur
1. Húsavík
2. Hafralækur
3. Laugar
Kuattspyrna piltar
1. Húsavík
2. Laugar
3. Hafralækur
Körfuknattleikur stúlkur
1. Hafralækur
2. Litlu-Laugar
Körfuknattleikur strákar
1. Húsavík
2. Laugar
Skák
1. Húsavík 7 vinningar
2. Hafralækur 3 vinningar
3. Þórshöfn 3 vinningar
Stcfán Gunnursson, sigurvegari í Ægir Jóhannsson, sigurvegari í
karlaflokki. flokki 13-15 ára.
Margréi Ösp Stefánsdóttir sigraði í llokki 13 ára og yngri.
Knattspyrna:
Guðmundur og ívar
í drengjalandsfiðinu
- sem tekur þátt í páskamóti á Möltu
Drengjalandsliðsnefnd KSÍ
hefur valið landslið sem tckur
þátt í sterku páskamóti á
Möltu um páskana, eða 27.
mars til 3. apríl. Tveir Akur-
eyringar eru í liðinu, Guð-
mundur Benediktsson, Þór, og
ívar Bjarklind, KA.
Eftirtaldir leikmenn skipa
liðið:
Gunnar Egill Þórisson Víkingi
Árni Arason ÍA
Einar Baldvin Árnason KR
Viðar Erlingsson Stjörnunni
Alfreð Ktirlsson ÍA
Lúðvík Jónasson Stjörnunni
Orri Þórðarson FH
Hrafnkell Kristjánsson FH
Þorvaldur Ásgeirsson Fram
Pálmi Haraldsson ÍA
Gunnlaugur Jónsson ÍA
Stefán Þórðarson ÍA
ívar Bjarklind KA
Guðmundur Benediktsson Þór
Jóhann Steinarsson ÍBK
Helgi Sigurðsson Víkingi
Guðmundur Benediktsson
gekkst undir aðgerð á hnéi fyrir
skömmu og er óvíst að hann
verði orðinn leikfær um páskana.
Hann fer þó með í ferðina.
Liðið leikur í riöli með Grikk-
landi og Kýpur. Á leiðinni til
Möltu verður stoppað í London
og leikið gegn unglingaliði
Arsenal. Þjálfarar eru þeir Þórð-
ur Lárusson og Kristinn
Björnsson.
Drengjalandsliðið tryggði sér
sæti í úrslitum Evrópukeppni
landsliða eins og komið hefur
fram og fer undankeppni riðl-
anna fram í Sviss 6.-13. maí.
Ferðin til Möltu er liður í undir-
búningi fyrir þá keppni.
Handknattleikur:
Flugleiðamót í‘\TÍr 30
ára og eldri á Húsavík
Dagana 3. og 4. maí nk. efna
íþróttaféiagið Völsungur á
Húsavík og Flugleiðir til hand-
knattleiksmóts fyrir leikmenn
30 ára og eldri í karlaflokki og
27 ára og eldri í kvennaflokki.
Mótið fer fram á Húsavík.
Flugleiðir munu bjóða hagstæð
fargjöld og gistimöguleikar eru
margir. Leikfyrirkomulag fer eft-
ir fjölda liða. Mótinu lýkur um
kl. 18 laugardaginn 4. maí og um
kvöldið verður verðlaunaafhend-
ing og létt skemmtun á Hótel
Húsavík.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 15. apríl en allar
nánari upplýsingar veita Arnar í
síma 96-41086 eða 985-32683 og
Pétur í síma 96-41813.