Dagur - 21.03.1991, Blaðsíða 17

Dagur - 21.03.1991, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 17 Hjálparstofnun kirkjunnar: Söfnun vegna sveltandi fólks í Afríkuríkjum „Stjórn Hjálparstofnunar ákvað á fundi sínum nýlcga að efna til sérstakrar fjársöfnunar vegna hungursneyðarinnar í nokkrum Afríkuríkjum en okkur barst beiðni um aðstoð fyrir nokkrum vikum og höfum við þegar sent tvær milljónir til Eþíópíu og Mósambik," segir Jónas Þórisson framkvæmda- stjóri Hjálparstofnunar kirkj- unnar, en næstu daga og fram yfir páska efnir Hjálparstofn- unin til þcssarar söfnunar. „Það hefur komið fram í frétt- um aö talið er að um 20 millj- ónir manna geti orðið hungri að bráð ef þeim verður ekki hjálpað en aðstoð er þegar tek- in að berast.“ Jónas segir að sérstök fjársöfn- un á vegum Hjálparstofnunar hafi ekki farið fram á föstu nokkur síðustu árin og breyti þessi litla herferð nú engu um hina árlegu landssöfnun á jólaföstu. „Við ákváðum að minna á ástandið í þessum ríkjum þar sem upp- skerubrestur og styrjaldarástand hafa valdið gífurlegum skorti á matvælum og við getum hrein- lega ekki þagað um það þegar slík hjálparbeiðni berst." segir Jónas en fremur. „Margar hjálp- arstofnanir liafa þegar sent mat- væli og fjármuni til þessara svæða og þó að við vitum vel að ekki komi stór skerfur frá íslandi í dæmi sem þetta þá munar um allt og við vonumst til að einhverjir hér séu aflögufærir. Það má skjóta að þeirri hugmynd að menn leggi á borð fyrir einunt fleiri en setjast til borðs við ein- hverja máltíðina um páskana og gefi andvirði þess til þeirra sem fá ekkert að borða.“ Gíróseðlar liggja frammi í bönkum og sparisjóðum en einn- ig má koma framlagi til skila á skrifstofu Hjálparstofnunar að Tjarnargötu 10. Hungursneyðin er einkum ríkjandi í fimm ríkjum Afríku: Angóla, Eþíópíu, Líber- íu, Mósambik og Súdan en hún stafar af uppskerubresti og stríðs- átökum. Fréttir af þessari neyð bárust um síðustu áramót og hafa hjálparstofnanir nú skipulagt matarsendingar og annað hjálp- arstarf sem nú er hafið. Jóhanna Sigurðardóttir: Þjónustan nær „Almenn þjónusta vegna hús- bréfa verður á næstunni færð til aðila urn land allt. Frá og með 15. april 1991 hefst móttaka umsókna í húsbréfakerfinu hjá bönkum, sparisjóðum og öðrum fjármálastofnunum. Umsækjend- ur munu þá fá umsagnir um greiðslumat hjá þessum aðilum. Á því Alþingi sem nú er nýlok- ið lagði ég fram frumvarp sem fól í sér að þjónusta húsnæðismála yrði færð til landsbyggðarinnar með því að settar yrðu á stofn umdæmisstjórnir og umdæmis- skrifstofur í öllum kjördæmum landsins. Umdæmisstjórnir áttu að annast margvíslega þjónustu í umboði húsnæðismálastjórnar auk þess sem þær átu að annast úthlutun þeirra heildarfjárveit- inga sem húsnæðismálastjórn veitti til félagslegs húsnæðis í umdæminu. Jafnframt áttu umdæmisstjórnir að annast ráð- gjöf og fræðslu um lánamáí og húsnæðismál almennt til einstaKi- inga, sveitarfélaga og félagasam- taka. Hér var á ferðinni ein veigamesta tilraun sem gerð hef- ur verið lengi til að færa mikil- væga þjónustu sem fólk hefur fólkinu þurft að sækja til höfuðborgar- svæðisins út á landsbyggðina. Því miður náði frumvarpið ekki fram að ganga að sinni. Það breytir því ekki að opnun húsnæðisskrifstofu á Akureyri er gott fyrsta skref, en betur má ef duga skal. í tilefni af opnun húsnæðis- skrifstofunnar á Akureyri vil ég færa Norðlendingum árnaðarósk- ir með þetta skref til að færa þjónustuna í húsnæðismálum nær þeint sem þurfa á henni að halda." Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðhcrra. Starfshópur samstarfsnefndar landshlutasamtaka sveitarfélaga: Tillögur um valddreifmgu í heilbrigðis- og tryggingamálum í frétt frá Fjórðungssambandi Norðlendinga er vakin athygli á þingsályktun frá Alþingi, þar sem því er beint til ríkisstjórnarinnar að stofna heilbrigðis- og trygginga- skrifstofur í öllum kjördæmum landsins á næstu fjórum árum. í fréttinni segir að með tilvísun til þessarar ályktunar Alþingis þyki rétt að kynna meginefni tillagna landshlutasamtaka sveitarfélaga um þjónustu og valddreifingu á sviði heilbrigðis- og trygginga- niála eftir læknishéruðum. Fer sú kynning hér á eftir: „Á síðustu misserum hefur starfshópur á vegum samstarfs- nefndar formanna og fram- kvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga unnið að tillögugerð um valddreifingu í heilbrigðis- og tryggingamálum. Tillögur starfs- hópsins hafa hlotið samþykki stjórna landshlutasamtaka sveit- arfélaga. í tillögum sínum leggur starfs- hópurinn til: 1. Heilbrigðismálaráð læknishér- aðanna verði skipað sveitar- stjórnarmönnum og kosið af samtökum sveitarfélaga í hverju læknishéraði. 2. Héraðslæknir í hverju kjör- dæmi, ásamt heilbrigðisráði hafi yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamála í læknishérað- inu. 3. í hverju héraði þ.e. kjördæmi, verði til staðar öll almenn sérfræðiþjónusta og viðkom- andi heilbrigðisstofnanir til að tryggja þjóimstujafnræði um heilbrigðisþjónustu í landinu, svo sem kostur er á. 4. í hverju læknishéraði verði umdæmisþjónusta frá almanna- tryggingum, þannig að bóta- þegar geti fengið þar trygginga- þjónustu, ásamt mati á bóta- rétti, hjá heilbrigðis- og trygg- ingamálaskrifstofu læknishér- aðs. Héraðslæknar veiti skrif- stofunum forstöðu. Skrifstofa heilbrigðis- og tryggingamála hlutast til um að í hverju heilsu- gæsluumdæmi verði til staðar leiðbeiningaþjónusta og upp- gjör kostnaðarreikninga, sem áður var á vegum sjúkrasam- laga. 5. Sérstakar ráðstafanir verði til jöfnunar kostnaðar þeirra, sem sækja þurfa heilbrigðis- þjónustu um lengri veg, svo að íbúar sama læknishéraðs sitji við sama borð. Um verkefni heilbrigðismála- ráða segir ennfremur í tillögun- unt: 1. Áætlanagerð um röðun verk- efna í heilbrigðisþjónustu í héraðinu. 2. Tillögugerð um fjárveitingar til heilbrigðismála í héraðinu. 3. Skipting fjárveitinga milli verkefna í héraði, eftir nánari ákvæðum laga eða tilmælum ráðuneyta. 4. Samræming starfshátta og skipulagning heilbrigðismála. auk annarrar tengdrar starf- semi í héraöi. 5. Samráð skal haft við heilbrigð- isráð um samstarf sjúkrahúsa innan héraðs eða á landsvísu. Um verkefni umdæmaþjón- ustu á sviði tryggingamála segir ennfremur í tillögunum: 1. Umdæmaskrifstofa skal veita fyrirgreiðslu á lífeyris- og sjúkratryggingasviði almanna- trygginga. 2. Örorkumat fari fram heima f héraði í samráði við trygg- ingalækni. 3. Umdæmaskrifstofa annist umsýsluþjónustu í héraði, sem er á vegum Trygginga- stofnunar ríkisins m.a. fyrir lífeyrissjóði. 4. Tryggingaráð getur falið heil- brigðismálaráðum héraðanna afgreiðslu mála er trygginga- ráð annast nú og varðar ein- stök héruð og íbúa þeirra sér- staklega.“ Venjum unga hestamenn ÚUMFERDAR RÁÐ Vetrarleikar hesta- manna haldnir á Akurevri um páskana íþróttadeild hestamannafélagsins Léttis efnir til vetrarleika núna um páskana eins og í fyrra. Vetrarleikarnir voru kærkomin nýbreytni fyrir hestaáhugafólk og fengu feikna góðar viðtökur af bæjarbúum og nærsveitamönn- um. Dagskráin í ár verður mjög fjölbreytt svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst á skírdag 28. mars kl. 14 með myndarlegri hópreið hestamanna inn á mótssvæðið, en þar taka við sýningar af ýmsu tagi. Laugardaginn 30. mars kl. 10 hefst opin töltkeppni í öllum aldursflokkum, þ.e. barna-, ungl- inga-, ungmenna- og fullorðins- flokki. Þá vcröur og 150 m skeið, opin keppni sem áætlað er að hefjist ki. 14.45. Dagskráin á annan í páskum hefst mcö fánareið og mótssetn- ingu kl. 13, þá verða úrslit í tölt- inu og gæðingaskeið verður síð- ast á dagskránni. Alla dagana verða fjölbreyti- legar sýningar, má þar nefna sölureið, unglinga- og kvenna- sýningu, fimleika á hesti o.fl. Valin kynbótahross veröa sýnd, stóöhestar og hryssur eldri en 6 vetra og ræktunarbúin á Höskuldsstöðum og í Litla-Garði í Eyjafirði verða með sýningar og einnig mun félag hrossabænda sýna valin söluhross. Allar keppnisgreinarnar eru opnar og vonast forráðamenn keppninnar eftir góðri þátttöku utanbæjarknapa, enda myndar- leg verðlaun í boði. Skráning er hafin og stendur til 23. mars. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir hverja keppnisgrein og greiðist inn á gíróreikning nr. 401110 íþróttadeildar Léttis eða stað- greiöist í Hestasporti á Akureyri. Verði veðurguðirnir móts- nefnd hliöhollir munu vetrar- leikarnir fara fram á ís, ef ekki verður gripið til annarra ráða. Hestamenn fjölmenniö til Akureyrar um páskana og gleöj- ist með glöðum. -t Sonur minn og bróðir okkar, BJÖRGVIN J. ÞÓRHALLSSON, Stóra-Hamri, lést 16. mars s.l. Fyrir hönd vandamanna, Þórhallur Jónasson og systkinin. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, TRYGGVI SÆMUNDSSON, byggingameistari, Furulundi 13a, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 22. mars kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjarta- og æðaverndunarfélag Akureyrar. Svanfríður Guðmundsdóttir, Gunnhildur Tryggvadóttir, Guðbrandur R. Leósson, Haukur Tryggvason, Steinunn Jonsdottir, Þorgerður Ása Tryggvadóttir, Hólmsteinn Björnsson og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, STEFÁNS ÁRNASONAR, frá Knarrareyri, Flateyjardal. Aðalgeir T. Stefánsson, Oddný Ólafsdóttir, Elísa J. Stefánsdóttir, Óskar Hjaltalín og barnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.