Dagur - 21.03.1991, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 21. mars 1991
Sauðárkrókur:
Alls tóku 65 nemendur í 10. bekk Glerárskóla þátt í starfskynningarnámskeiðinu. Mynd: Goiii
Starfskynningarnámskeið í Glerárskóla:
Námskeiðin af hinu góða
- segir Vilberg Alexandersson,
Fjölmiðlamenn
sæta gagnrýni
- fyrir neikvæðan
fréttaflutning
Nokkuð óvenjulegar umræður
urðu á bæjarstjórnarfundi á
Sauðárkróki sl. þriðjudag.
Aðilar í nieirihluta bæjar-
stjórnar settu ofan í við fjöl-
miðlamenn vegna fréttaflutn-
ings af gerð fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjóri gerði m.a. athuga-
semd við l'réttatlutning og
nefndi Ríkisútvarpið í því
sambandi.
Snorri Björn Sigurðsson bæjar-
stjóri sagði að fréttaflutningur af
gerð fjárhagsáætlunar hefði að
langmestu leyti snúist um hækk-
un á fasteignagjöldum og
gjaldskrám. Forseti bæjarstjórn-
ar Knútur Aadnegard gerði m.a.
saina atriði að umræðuefni í
ræðustól á sama fundi.
Fannst fréttamanni Útvarps
Maríu Björk Ingvadóttur ómak-
lega að sér vegið því hennar starf
og annarra fréttamanna væri að
flytja bæjarbúum fréttir af þeim
málum sem upp kæmu á bæjar-
stjórnarfundum. Hvort sem þær
fréttir væru neikvæðar eða
jákvæðar, gjaldskrárhækkanir
eða annað. Fréttamat væri ekki
hlutverk bæjarstjórnar heldur
blaða- og fréttamanna. kg
Samþykkt að
veita 200
mjiljónum til
rækjuverksmiðja
í lokahrinunni á Alþingi var
samþykkt 200 milljóna króna
fjárveiting til að aðstoða
rækjuverksmiðjur í landinu í
þeim miklu rekstrarerfiðleik-
um sem þær eiga nú við að
stríða.
Byggðastofnun hefur verið fal-
ið að útdeila þessum fjármunum
til rækjuverksmiðjanna, sem eru
víða um land.
Rækjuverð á mörkuðum er-
lendis er óvenju lágt um þessar
mundir og því er rekstur rækju-
verksmiðjanna mjög erfiður.
Samkvæmt upplýsingum Félags
rækju- og hörpudiskframleið-
enda, er rekstur þeirra yfirleitt
langt undir núllinu. óþh
í haust og vetur hafa verið
haldin námskeið í starfskynn-
ingu fyrir efstu bekki grunn-
skólans. Þau eru liður í átaki
sem menntamálaráðuneytið
hefur hrundið af stað í þá átt
að auka náms- og starfsráðgjöf
bæði í grunn- og framhalds-
skólunum. Þetta er þróunar-
verkefni á vegum skólaþróun-
ardeildar menntamálaráðu-
neytisins í samvinnu við fyrir-
tæki og stofnanir í þjóðfélag-
inu. Þrjú slík námskeið voru
haldin í Glerárskólanum á
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar var ekki afgreidd á löng-
um fundi bæjarstjórnar sl.
þriðjudagskvöld eins og að var
stefnt. Ekki tókst að ná sam-
Akureyri sl. mánudag og
þriðjudag.
Að sögn Vilbergs Alexanders-
sonar, skólastjóra Glerárskóla,
þá tóku 65 unglingar úr 10. bekk
skólans þátt í þessum námskeið-
um. Fyrsta námskeiðið var á veg-
um íslandsbanka um hlutverk
banka og sparisjóða, jafnframt
var reynt að gera nemendur
meðvitaðri um stjórn eigin fjár-
mála. Námskeið númer tvö var á
vegum Iðntæknistofnunar fslands.
Þar var fjallað um framleiðni í
iðnaði og stofnun og rekstur
komulagi meirihluta og minni-
hluta bæjarstjórnar um
afgreiðslu fjárhagsáætlunarinn-
ar og hefur þriðja umræða ver-
ið ákveðin næstkomandi
skólastjóri
fyrirtækis. Þriðja námskeiðið var
á vegum Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu, þar sem fjallað
var um réttindi og skyldur á
vinnustað og starfsemi verkalýðs-
félaga.
„Þessi námskeið eru af hinu
góða, því þjóðfélagið er alltaf að
verða flóknara. Skólarnir og yfir-
völd menntamála gera sér Ijóst
að eyða verður meiri tíma í
starfsfræðslu og kappkosta þann-
ig ásamt kennslunni að búa
nemendur sem best undir lífið,“
sagði Vilberg Alexandersson,
skólastjóri. ój
þriðjudag.
Samkvæmt upplýsingum Dags
snýst ágreiningurinn um fram-
kvæmdir á vegum bæjarins á
þessu ári. Meirihluti bæjarstjórn-
ar leggur áherslu á að fram-
kvæmdum verði haldið í lág-
marki á þessu ári og fjármunum
þess í stað varið til þess að
grynnka á skuldum bæjarsjóðs.
Þannig lítur meirihlutinn á að
svigrúm skapist til þess að gera á
næsta ári átak í byggingu íþrótta-
húss, sem ætlunin er að rísi milli
barnaskólans og sundlaugarinn-
ar.
Sfldarverksmiðjur ríkisins:
Ákvörðun um endurráðningu
bíður fundar nk. þriðjudag
Ólafsflörður:
Fjárhagsáætlun vísað til
þriðju umræðu í næstu viku
- meirihlutinn vill aðhald í framkvæmdiim
- minnihlutinn vill fleiri viðhaldsverkefni
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins mun væntanlega taka
ákvörðun um endurráðningu
starfsmanna á fundi nk. þriðju-
dag. Til stóð að þessu mál yrðu
rædd á stjórnarfundi í dag, en
honum hefur verið frestað
vegna veðurs og ófærðar.
Við afgreiðslu lánsfjárlaga á
Alþingi var Síldarverksmiðjun-
um heimilað að taka 300 milljóna
króna lán. Af þeim verður 200
milljónum króna varið til skuld-
breytinga. Annars vegar er um
að ræða lán vegna stofnkostnaðar
við endurbætur á verksmiðjunni
á Seyðisfirði og hins vegar
rekstrarlán sem Síldarverksmiðj-
urnar þurfa að taka árlega til þess
að brúa bilið milli loðnuvertíða.
Þá gerir samþykkt Alþingis ráð
fyrir að 100 milljónum króna
verði varið til þess að endurráða
starfsmenn Síldarverksmiðjanna
Mikið fannfergi er í Skagafirði
og í Húnavatnssýslum eftir
snjókomu í gær og fyrradag.
Skólaakstur lá niðri í innsveit-
um Skagafjarðar og víða voru
vegir ófærir í gærmorgun.
Að sögn lögreglu var mjög
mikið um hjálparbeiðnir og einn-
ig voru björgunarsveitir fengnar
til að aðstoða fólk. Að sögn lög-
reglu á Blönduósi voru margir
og vinna að ýmsum viðhaldsverk-
efnum til næstu loðnuvertíðar.
óþh
bíleigendur í vandræðum með
bíla sína og hafði lögreglan ekki
undan að aðstoða menn.
Snjókoman er með því mesta
sem sést hefur í innsveitum
Skagafjarðar og er kolófært heim
á marga bæi. Ekki er vitað til að
slys hafi orðið á fólki af völdum
óveðursins en minniháttar
ákeyrslur hafa orðið vegna slæms
skyggnis. kg
í máli eins fulltrúa meirihluta
bæjarstjórnar á fundinum sl.
þriðjudag kom fram sú skoðun
að stefna bæri að útboði á
íþróttahúsinu í haust og það yrði
síðan gert fokhelt á næsta ári.
í máli fulltrúa minnihlutans
kom hins vegar fram sú skoðun
að rétt væri að verja meiri fjár-
munum úr bæjarsjóði á þessu ári
til fleiri viðhaldsverkefna en
fyrirliggjandi tillögur gera ráð
fyrir. Um þetta mái varð töluvert
reiptog á bæjarstjórnarfundinum
og niðurstaðan varð sú að bæjar-
ráð myndi taka málið upp á nýjan
leik á fundi í dag og freista þess
að ná samkomulagi um tillögu,
sem bæjarstjórn geti orðið ásátt
um á bæjarstjórnarfundi nk.
þriðjudag. óþh
Norðurland vestra:
Víða mikil ófærð
fréttir
Punktarfrá
Hvammstanga
■ Hreppsnefnd hefur sam-
þykkt að hækka dagvistargjöld
Leikskóla Hvammstánga í kr.
6.000.- á mánuði frá og með 1.
apríl nk. Þetta er gert í sam-
ræmi við fjárhagsáætlun fyrir
árið 1991.
■ Hreppsnefnd hefur einnig
samþykkt að hækka gjaldskrá
Hitaveitu Hvammstanga um
10% frá og með 1. apríl nk. og
er það einnig gert í samræmi
við fjárhagsáætlun.
■ Hreppsnefnd hefur borist
erindi frá Félagi opinberra
starfsmanna í Húnavatnssýslu
um greiðslu í orlofsheimila-
sjóð og starfsmennturiarsjóö.
Svéitarstjöri lagði til að greitt
verði 0,5% í ortofshcimilasjóð
og 0,3% í starfsmenntunar-
sjóð af heildarlaunum, þar til
nýr samningur verður gerður
við félagið og var það
samþykkt.
■ Skólanefnd hefur bent á
nauðsyn þess að aukin vcröi
sérfræðiaðstoð á vegum
Fræðsluskrifstofu. Sú aðstoð
sem nú er veitt er góð en eng-
an veginn fullnægjandi og þarf
að bæta úr því með auknum
fjárveitingum og fjölgun á
starfsfólki á Fræðsluskrifstof-
unni.
■ Leikskóla- og leikvatla-
nefnd hefur ítrekað þá skoðun
sína sem fram kom á fundi fyr-
ir rútnu ári, að óeðlilegt er að
gengið sé fram hjá fastráönu
starfsfólki, þegar leysa þarf
forstöðukonu af.
■ Sveitarstjóri upplýsti á
fundi leikskóla- og lcikvallar-
nefndar að gjöld Leikskólans
stæðu aðeins undir 30-40% af
rekstrarkostnaði og ákveðin
hafi verið hækkun gjalda í vor,
eins og fram kemur hér að
ofan.
■ Lcikskóla- og leikvalla-
nefnd fagnar framlagi til bygg-
ingar léikskólans en bendir
jafnframt á aö þar setn stefnt
er að því að taka húsið í notk-
un á árinu 1992, væri gott að
gróðursetning á lóð leikskól-
ans og skjólbelti hæfist í vor,'
svo plönturnar næðu aö festa
rætur og komast aðeins á lcgg
áður en starfsemi hefst.
■ Bygginganefnd íþróttahúss
kom saman til síns fyrsta fund-
ar urn miðjan febrúar. Verk-
efni nefndarinnar er aö undir-
búa byggingu íþróttahúss á
Hvammstanga og leita hag-
kvæmra lausna og gera tillögur
um framkvæmdir. Nefndin er
sammála um að Hilmar Hjart-
arson verði formaður nefndar-
innar.
■ Fyrsfa verkefni bygginga-
ncfndar íþróttahúss er að
kanna hve stórt hús þarf fyrir
skóla með 150-200 nemendur.
Einnig þarf að gera grðfa
kostnaðaráætlun um byggingu
sala og annarrar aðstöðu sem
nauðsynleg er og miða við
þrjár salarstærðir, þ.e. 22x44
m, 19x31 m og sal af „normal
stærð“. Byggingarfulltrúa var
falið að vinna þetta verkefni
hið fyrsta.
■ Á fundi hafnarnefndar
nýlega, var lögð fram teikning
og magntöluáætlun um dýpk-
un hafnarinnar sent gerð var af
starfsmönnum Hafnarmála-
stofnunnar. Verið er að vinna
útboðslýsingu að verkinu og
verður það boðið Dýpkunar-
félaginu, Köfunarstööinni og
ístaki hf. til tilboðsgerðar.