Dagur - 21.03.1991, Síða 5
F élagsmálaráðherra:
Reglugerð um félagslegar íbúðir
og Byggingasjóð verkamanna
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, hefur gefið út
reglugerð um félagslegar íbúð-
ir og Byggingasjóð verka-
manna. Reglugerð þessi kem-
ur í stað eldri reglugerðar um
Byggingasjóð verkamanna og
reglugerðar um kaupleiguíbúð-
ir. Reglugerðin snýr m.a. að
ábyrgð og verksviði sveitar-
stjórna og húsnæðisnefnda,
lánum til félagslegra íbúða.
byggingu eða kaupum á félags-
legum íbúðum, rétti einstak-
linga til félagslegra íbúða og
réttarstöðu íbúöareigenda og
leigjenda og innlausn og end-
ursölu á félagslegum íbúðum.
I tilefni af útgáfu reglugerðar-
innar hefur félagsmálaráðherra
beint þeim tilmælum til hús-
næðismálastjórnar að beitt verði
ströngu aðhaldi hvað varðar
byggingarkostnað félagslegra
íbúða og stuðlað verði að rann-
sóknum á byggingarkostnaði
íbúða.
Samkvæmt ákvörðun félags-
málaráðherra verður komið af
stað sérstöku rannsóknarverk-
efni, með aðild Rannsókna-
stofnunar byggingaiðnaðarins og
Húsnæðisstofnunar ríkisins, sem
hefur það verkefni að greina
helstu þætti byggingarkostnaðar
og athuga þróun þessara mála.
Nefndin á einnig að gera tillögur
um hvernig stuðla megi að hag-
kvæmum byggingarháttum og
lækkun byggingarkostnaðar.
Reglugerð þessi hefur nú verið
send til sveitarstjórna, húsnæðis-
nefnda og félagasamtaka sem
starfa að húsnæðismálum. Á
næstu vikum verða haldin kynn-
ingarnámskeið á vegum Hús-
næðisstofnunar ríkisins um
félagslega íbúðalánakerfið. JÓH
Atvinnuþátttaka kvenna á íslandi er 76% í dag:
Aðeins í Svíþjóð er at-
vinnuþátttaka kvenna meiri
- meðalvinnutími kvenna á íslandi 48 tímar á viku
Atvinnuþátttaka kvenna á ís-
landi er 76% í dag og er hið
næst hæsta sem þekkist á
byggðu bóli en var 33% árið
1960. Aðeins í Svíþjóð er
atvinnuþátttaka kvenna nieiri
en á íslandi.
Pessar upplýsingar koma m.a.
fram í fréttabréfi BSRB. Ef
átvinnuþátttaka kvenna er skoð-
uð eftir hjúskaparstöðu, kemur í
ljós að þessi mikla aukning er að
mestu til kontin vegna aukins
fjölda giftra kvenna á vinnu-
markaðinum. Árið 1960 unnu um
20% giftra kvenna utan heimilis
og um 60% ógiftra. Árið 1986
unnu um 84% giftra kvenna utan
heimilis og um 79% ógiftra
kvenna.
Samkvæmt Lífskjarakönnun-
inni frá 1988 eru um 65% kvenna
sem eiga barn á aldrinum 0-6 ára
í launaðri vinnu það ár en 81%
þeirra sem eiga barn á aldrinum
7-15 ára. Ef atvinnuþátttaka er
skoðuð í ljósi fjölda barna kemur
í Ijós að 71% kvenna sem eiga
eitt barn eru í launaðri vinnu,
52% þeirra sem eiga tvö börn og
44% kvenna sem eiga þrjú börn.
Pá er vinnutíminn á íslandi
lengri en annars staðar á Norður-
löndum. Árið 1987 var meðal-
Fcrðakaupstefnan Nordic Tra-
vel IVfart verður haldin í
Reykjavík dagana 22.-25. apríl
natstkomandi. Norræna ferða-
kaupstefnan er nú haldin í
sjötta sinn og í fyrsta skipti á
Islandi.
Kaupstefnan er haldin til skipt-
is á Norðurlöndunum og í sam-
vinnu ferðamálaráða allra
Norðurlanda og flugfélaganna
Finnair, Flugleiða og SAS.
Á þessari kaupstetnu munu um
100 seljendur kynna ferðamögu-
leika á Norðurlöndunum t'yrir
vinnutími kvenna í fullu starfi 48
tímar á viku en karla 57 tímar.
-KK
120-140 kaupendum, sem allir
eru ferðaskipuleggjendur utan
Evrópu. Til Nordic Travel Mart
er eingöngu boðið kaupendum
frá Ameríku, Asíu og Ástralíu.
Pá er 40 blaðamönnum boðið til
kaupstefnunnar.
í fréttatilkynningu frá Ferða-
málaráði íslands segir að þetta sé
stærsta tækifærið sem íslenskir
ferðaþjónustuaðilar hafi fengið
til að kynna Island fyrir áhuga-
sömum ferðaskrifstofuaðilum frá
þessum fjarlægu markaðssvæð-
um. SS
Nordic Travel Mart:
Ferðakaupstefna í
Reykjavík í apríl
Hollustuvernd ríkisins:
Gæðum innflutts krydds er áfátt
Hollustuvcrnd ríkisins hefur
framkvæmt könnun á örveru-
fræðilegu ástandi krydds hér á
landi í samvinnu við heilbrigð-
iseftirlit sveitarfélaga.
Könnunin fór fram þannig að
rannsökuð voru samtals 56
sýni af eftirtöldum kryddteg-
undum: Hvítur pipar, svartur
pipar, paprika, laukduft,
karrýblanda og 10 sýni af ýms-
um öðrum kryddblöndum.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Hollustuvernd ríkisins, þá
voru sýni tekin frá 11 innflutn-
ings- og pökkunaraðilum. Flest
sýni eða 54 voru tekin í innflutn-
ingsfyrirtækjum, en tvö sýni voru
tekin í matvælaframleiðslufyrir-
tækjum, sem ekki höfðu flutt
kryddið inn til landsins. Eftirtald-
ir aðilar sáu um sýnatöku:
Heilbrigðiseftirlit Reykjavík-
ursvæðis; Heilbrigðiseftirlit Eyja-
fjarðarsvæðis; Hollustuvernd
ríkisins, heilbrigðiseftirlitssvið.
Niðurstöður könnunarinnar
voru þær að 38 sýni (68%) reynd-
ust söluhæf, 7 sýni (12%) voru
metin gölluð og 11 sýni (20%)
voru talin ósöltlhæf. Af þeim sýn-
um sem talín voru ósöluhæf
fengu 6 athugasemdir vegna
saurkólígerla, 3 vegna kólígerla,
2 vegna fjölda Bacillus cereus, 2
vegna myglusveppa og í tveimur
sýnurn fannst Salmonella, þ.e.
hvítum og svörtum pipar.
Fjöldi sýna sem pakkað var í
neytendaumbúðir erlendis var
29. Af þeirn voru 24 metin sölu-
hæf, 2 voru metin gölluð og 3 sýni
voru metin ósöluhæf. Fjöldi sýna
sem voru ópökkuð við móttöku á
rannsóknastofuna eða hafði verið
pakkað í neytendapakkningar
hér á landi voru 27. Af þeim voru
14 metin söluhæf, 5 sýni voru
metin gölluð og 8 sýni ósöluhæf.
Þrátt fyrir að stærstur hluti
sýna (68%) standist þær viðmið-
unarkröfur sem Hollustuvernd
telur fullnægjandi, þá benda
niðurstöður könnunarinnar til
þess að gæðum innllutts krydds
sé áfátt. Á þetta fyrst og fremst
við um krydd sem flutt er til
landsins í stærri umbúðum og
eingöngu þá vöru sem ekki hefur
fengið gerilsneyðandi meðhöndl-
un. Niðurstöður könnunarinnar
verður m.a að skoða í ljósi þess
að til staðar eru örverur, sem
valdið geta matarsýkingu eða
matareitrun, nái þær að fjölga sér
í matvælum. Hollustuvernd ríkis-
ins heíur sent heilbrigðisráðu-
neytinu tillogur um úrbætur,
m.a. með tilliti til eftirlits með
innflutningi á kryddi, og eru þær
nú til skoðunar hjá ráðuneytinu.
ój
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 5
Opnum nýja
glœsilega Smiðju
föstudaginn 22. mars
Nýr matseðill -
nýtt leikhústilboð - verð kr. 1.800
★
í tilefni opnunarinnar bjóðum við
um helgina fjögurra rétta hötíðarmatseðil
með fordrykk ó kr. 2.500.
★
Birna Helgadóttir og Arnbjörg Sigurðardóttir
leika á píanó og þverflautu fyrir matargesti
föstudags- og laugardagskvöld.
★
Velkomin í nýja Smiðju
Pöntunarsími: 21818
F. .......... — *
Sunnuhlíð 12 • Akureyri • Sími 96-25010
Til fermingargjafa
14“ sjónvarp með
fjarstýringu
Kr. 27.900,- stg:.
•w
Útvarpsvekjarar
Kr. 2.870,-
Ferðatœki - Tvöfalt segulband
Kr. 6.815,-
Hljómtœkja
samstœður
Margar gerðir
Hagstœtt verð