Dagur


Dagur - 21.03.1991, Qupperneq 6

Dagur - 21.03.1991, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 21. mars 1991 Til sölu 4 tonna Hino vörubifreið árg. ’80 Nýuppgeröur. Uppl. í síma 96-61643 og 96-61988. Ibúð með búnaði! Lögmannshlíðarsókn vill taka á leigu nú þegar íbúð með búnaði fyrir settan sóknarprest í Glerárkirkju í 1-2 mánuði. Upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar í síma 21161. Fiskverkunarhús á Hofsósi Fiskveiðasjóður íslands auglýsir til sölu einlyft stál- grindarhús á steyptum grunni, ca. 260 ferm. I húsinu er ýmiss búnaður fyrir skelfiskvinnslu, sem selst með því. Tilboð óskast send á skrifstofu sjóðsins, Suður- landsbraut 4, Reykjavík, fyrir 10. apríl nk. Nánari upplýsingar veittar í síma 91-679100. Fiskveiðasjóður íslands Suðurlandsbraut 4, 155 Reykjavík. Erum fluttir að Óseyri 1a Daglegar ferðir Akureyri-Reykjavík-Akureyri. Stefnir hf. sími 22624. Afgreiðsla í Reykjavík: Vöruleiðir, Skútuvogi 13. Stjórnmálafundir um atvinnu- og byggðamál Þórshöfn í félagsheimilinu: Laugardaginn 23. mars kl. 13.00. Raufarhöfn í féiagsheimilinu: Laugardaginn 23. mars kl. 16.30. Frambjóðendur okkar, Guðmundur Bjarnason, Val- gerður Sverrisdóttir, Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Daníel Árnason mæta á fundinn. Framsóknarflokkurinn. Auðlindskattur á veiðimenn Kvótakerfið hefur legið undir þungri gagnrýni undanfarið. Einkum hafa þar haft sig í frammi þeir, sem telja að kvóta- kerfið færi ákveðnum einstakl- ingunt mikil verðmæti ókeypis. Hefur verið farið stórum orðum um siðleysi kvótakerfisins. Fyrir- sagnir eins og „Mesta eignatil- færsla þjóðarsögunnar" hafa sést. Menn hafa einnig verið iðnir við að reikna út verðmæti óveidds fisks. Árlegt markaðs- verðmæti kvótans hefur verið metið á um 20 milljarða. Heildar- verð auðlindarinnar hefur einnig verið metið á 60-400 milljarða. Þegar slíkar upphæðir eru nefndar, er ekki að undra þótt menn sperri eyrun, bæði þeir sem leita dyrum og dyngjum að nýj- um skattstofnum, sem og hinir, sem finnst lítið í pyngjunni hjá sér, þegar reikningarnir hafa ver- ið greiddir. Hér verður leitast við að velta fyrir sér nokkrum hugtökum er snerta stjórn fiskveiða og komið hafa fram í umræðum um kvóta- kerfi og auðlindaskatt. Veiðiþjóðin og fískurinn Verulegur hluti af kaupmætti okkar er sprottinn af veiði- mennsku. íslendingar eru veiði- þjóð og verða það um ófyrirsjá- anlega framtíð. Því fer að vísu fjarri að hún standi öll í því að draga fisk, en svo hefur alltaf verið. Sumir hafa veitt fisk. Aðrir hafa keypt hann af þeim sem róa. Frá upphafi íslandsbyggðar hefur fiskurinn í sjónum tilheyrt þeim. sem hafa átt skip og dregið fisk úr sjó. Það er fyrst nú, þegar sóknar- getan virðist vera mun meiri en afkastageta iniðanna, að menn eru farnir að eigr.færa óveiddan fisk í sjó. íslendingar hafa með alþjóðlegum samningum eignast fiskinn innan fiskveiðilögsögunn- ar, og með áréttingu Alþingis gert hann að eign þjóðarinnar allrar. Slík eignafærsla gengur að lík- indum ekki hávaðalaust, enda hafa nú allmargir af þeim, sem ekki stunda sjóinn, gert kröfu til þess að eignast persónulega hlut- deild í verðmæti óveidds fisks. Sjómennirnir standa nú frammi fyirr því að svo geti farið að þeir eigi ekki lengur þann fisk, sem þeir draga á land. Og lái ég þeim ekki, þótt þeir séu nokkuð klumsa. Auðlindaskatturinn Helstu hugmyndafræðingar auð- lindaskattsins eða veiðileyfa- gjaldsins tefla fram eftirfarandi rökum: Þjóðin á fiskinn í sjónum. Fiskurinn er takmarkað- ur og eftir því verðmætur. Þess vegna á þjóðin að fá gjald fyrir hann. Aðgang að miðum, sem þjóðin á öll, er ekki hægt að tak- marka á réttlátan hátt, nema með því að selja hæstbjóðanda aðganginn að auðlindinni. Það er með öðrum orðum eignarréttur- inn og réttlætið, sem eru undir- staða hugmyndanna um auðlinda- skattinn. Eignarrétturinn og skatturinn Sambandið milli eignarréttar þjóðarinnar yfir miðunum og réttar ríkissjóðs til að heimta skatt af þeim, sem nýta þau, er ekki augljóst. í fyrsta lagi á ríkis- sjóður ekki miðin, því þau hafa ekki verið þjóðnýtt. Það er heldur ekki álveg aug- ljóst, að eignarhald þjóðarinnar á fiskimiðunum leiði sjálfkrafa til þess, að hún taki gjald fyrir afnotin, á grundvelli þess að nýt- ing auðlindarinnar sé uppspretta fjármagns. 1. grein Landið Bændur landsins nýta afrétt til beitar. Eignaréttur yfir afrétti er mjög mismunandi. Afréttur get- ur verið heimaland jarðar og því í raun tilheyrt eiganda hennar, þótt margir hafi rétt til takmark- aðrar notkunar landsins, án þess að sérstakt gjald komi fyrir. í öðrum tilfellum virðist afréttur vera eign þjóðarinnar, eins og til dæmis Landmannaafréttur. Sá afréttur er þó ekki eign ríkisins, eftir því sem dóinar hafa gengið. Þótt víðáttumikil afréttarsvæði séu þannig talin „eign þjóðarinn- ar“ leggur eigandinn ekki afnota- gjald á þá sem nýta eignina sér til tekna. Beitarréttur tilheyrir lög- býlum. Aðrir aðilar en eigendur lögbýla hafa ekki þennan rétt, og gildir það til dæmis um þá, sem byggja afkomu sína á fullvinnslu búvara. Orkan Áliðnaðurinn byggir tilveru sína hérlendis á tiltölulega ódýrri orku. Fallvötnin eru að vísu ekki nema að hluta til í eigu þjóðar- innar. Þau fylgja að öðru leyti jörðum, og þarf sá aðili, sent vill virkja þau, að kaupa vatnsrétt- indin af viðkomandi jarðeiganda. Áliðnaðurinn greiðir fyrir kaup á raforkunní, en seljanda orkunnar e'r ekki gert að greiða þjóðinni sérstaklega fyrir afnot auðlindar- innar, þótt vafalaust megi færa rök fyrir því að þjóðin eigi veru- lega hlutdeild í fallvötnunum. Önnur mesta auðlind íslendinga er ekki tilefni skattlagningar ríkisins. Heitt vatn er uppspretta gífur- legra fjármuna hér á landi. Það hefur heldur ekki verið lýst eign þjóðarinnar, og er nýtt af jarð- eigendum eða handhöfum hita- réttinda. Hugsanlegt er að þeir, sem lýst hafa fiskimiðin eign þjóðarinnar, hugsi sér einnig að slá þjóðareign á varmaorkuna í iðrum jarðar ög taka gjald af þeim, sem hana nýta. Sú hugsun hefur ekki komið fram há þeim, sem mest hafa skrifað um auðlindaskatt á sjávarútveginn. Ástæðan er ekki sú, að jarðhiti sé ótakmörkuð auðlind. Sennilega ræður það nokkru um áhugaleysi auðlindaskattsmanna á heita vatninu að helstu hugmynda- fræðingar þeirra njóta góðs af ódýru heitu vatni í Reykjavík, og er þeim sá skattstofn því ekki eins hugstæður og fiskimiðin. Auðlind ferðaþjónustunnar Auðlindahugtakið er hægt að útfæra. Þeir sem „selja landið“, ferðaskrifstofur, flutningaaðilar, hótel og þeir, sem stunda ferða- þjónustu almennt, greiða ekki fyrir afnot landsins, sem er þó undirstaða tekna þeirra. Þeir hafa „ókeypis afnot“ af auðlind- inni, ef svo má að orði komast. Þessir aðilar verða að koma sér upp farartækjum, hótelum, skrif- stofum og viðskiptasamböndum, en eigandi auðlindarinnar tckur ekki neitt fyrir að veita þeim „ókeypis aðgang“ að henni. Er það einungis vegna þess að menn hafa ekki komist að samkomulagi um það hver eigi ísland? Eða er það vegna þess að fegurð lands- ins er ekki takmörkuð? Urn síðarnefnda atriðið má deila. í Herðubreiðarlindum hef ég verið innan um svo marga erlenda og innlenda ferðamenn að það hefði nálgast kaldhæðni að flokka staðinn undir kyrrláta vin í öræfum íslands. Nær hefði verið að tala um vinsælan skemmtistað. Fegurð Herðu- breiðarlinda er svo sannarlega ofnýtt auðlind oft á tíðum. Hún er samt ekki skattlögð á þeim forsendum. Ekki enn, enda hefur hún ekki verið þjóðnýtt. Að róa á ríkismiðin Ef það bessaleyfi er tekið að útfæra enn hugtakið auðlind, má benda á þá aðila, sent hafa lífs- viðurværi sitt með beinum og óbeinum hætti af því að þjónusta ríkisbáknið. Þá aðila mætti nefna „útgerðarmenn". Miðin liggja að sjálfsögðu einkum í höfuðborg- inni, og stofninn ofveiddur svotil árlega, ef marka má halla á ríkis- sjóði. Menntun er að sjálfsögðu upp- spretta auðs, og sennilega mjög vannýtt auðlind hér á landi. Þar sem menntun, vísindi og menn- ing er í miklum mæli ríkisrekin og samþjöppuð á höfuðborgar- svæðinu, eins og í okkar þjóðfé- lagi, skapar hún fjölmörgum mönnum, einkum í þjónustu- störfum, aðstöðu til að þéna mikla peninga. Engum hefur samt enn dottið í hug að skatt- leggja þá, sem lifa á því að þjón- usta ríkisfyrirtæki eða stofnanir hins opinbera. Þvert á móti er þjóðin skattlögð æ meir til að auðlindin ríkissjóður geti orðið sterkari stofn þeim „útgerðar- mönnum“ sem á ríkismiðin sækja. Þau mið hafa orðið með hverju ári meiri örlagavaldur í byggðaþróun hér á landi. Réttlætismál eru yfirleitt ekki einföld. Hér hefur verið seilst víða til fanga, í þeim tilgangi að benda á að óumdeilt eignarhald þjóðarinnar á fiskimiðum og óveiddum fiski leiði ekki í sjálfu sér til þess, að þeir sem sjóinn stunda eigi að greiða fyrir það sérstakt gjald að fá að fara á sjó. Það er ljóst að kvótakerfið er langt frá því að vera fullkomið kerfi. Gallar þess eru margir og margvíslegir, og á það ekki síst við um þá hliðina, sem veit að fiskvinnslunni og þeim sem þar vinna. Hins vegar er erfitt að sjá fyrir sér að kvótakerfið sé í grundvallaratriðum ranglátt kerfi og brjóti í bága við það sem almennt telst viðunandi réttlæti. Að sama skapi er erfitt að fallast á að þjóðnýtingarhugmyndir þær, sem auðlindaskattur byggist á, vísi veginn til réttlætisins. Miklu frekar er þar um að ræða dulbúnar skattheimtuhugmyndir manna sem trúa því að frá ríkis- sjóði eigi allt frumkvæði í atvinnumálum að koma. Um síð- asttalda atriðið mun ég fjalla í næstu grein. Tómas Ingi Olrich. Höfundur skipar annað sæti á lista Sjálf- stæðismanna í alþingiskosningum á Norðurlandi eystra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.