Dagur - 21.03.1991, Qupperneq 9
Peningana eða lífið!
fppt yiRm rc -HintthiitmmH — íHirJAr! — ft
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 9
Hér í eina tíð var vinsæll leikur
hjá smástrákum að pota fingri í
bakið hver á öðrum og segja
rámri röddu: „Peningana eða
lífið“. En þessi leikur þótti smám
saman barnalegur og löngu áður
en strákarnir fóru í mútur voru
þeir farnir að stunda aðra leiki.
Þessir strákar hafa vaxið úr
grasi eins og gengur og gerist, og
leikir þeirra tekið á sig breytta
ntynd. Sumir hafa kornist í valda-
miklar stöður í þjóðfélaginu, og
leikir þeirra í dag hafa því áhrif á
lífsafkomu fjölda fólks. Ýmislegt í
leikjunum minnir samt óþægilega
mikið á gamla daga. Til dæniis
þegar þeir eru í foringjaleik og
metast unt það hver sé bcsti for-
inginn og safna um sig liössveit-
um. Pá geta þeir veriö óvinir um
stundarsakir eins og í bófa-
leikjunum í gamla daga, og allt
skal svo falla í ljúfa löð þegar
Ijóst er hver verður foringinn í
næsta leik.
Strákarnir stjórna þjóðfélags-
leik sem hefur þær reglur að
þeirra lið njóti ýmis konar for-
réttinda umfram stelpnaliðið.
Vakandi og sofandi passa þeir
upp á þetta, þótt þeir Itafi opin-
berlega sett leikreglur sent segja
að jafnrétti gildi, leikfélagar úr
báðum liðum eigi að njóta sömu
launa fyrir sömu störf og ekki
megi mismuna. Peir slá óspart
ryki í augun á stelpnaliðinu með
ýmsum aðferðum. Nú síðast var
gerður samningur sem gengur
undir nafninu þjóðarsátt, sem var
sagður eiga að stefna að því að
viðhalda óbreyttu ástandi um
tíma af því að það væri svo nauð-
synlegt. Þetta er það sama og hét
„frí“ í eltingarleikjunum í gamla
daga, en þá var þó aðeins einn
sem tók sér frí í einu.
Það hefur komið á daginn sem
ýmsa grunaði að einhvers staðar
hefur leynst platmerki, því þetta
allsherjar „frí“ sem átti að gilda í
launaleiknum hefur bara verið í
plati. Þjóðarsáttarleikurinn hefur
fryst laun þeirra sem þau hafa
Iægst, og þar eru konur í ntiklum
meirihluta, en tekjurýmissa ann-
arra hafa hækkað jafnt og þétt,
rétt eins og ekkert sé.
Löngu áður en strákarnir
fundu upp þjóðarsáttarleikinn
var komið upp andóf í röðum
stelpnaliðsins. Við tókum okkur
til nokkrar konur og stofnuðum
með okkur samtök, Kvennalist-
ann, sem hefur að markntiði að
við náum meiri áhrifum í þjóðfé-
lagsleiknum. Við gerðum þetta
vegna þess að leikreglur strák-
anna eru þannig að við fengurn
engu að ráða. Þá sjaldan að fyrir
kom að stelpa fékk að stjórna
einhverju, þá varð hún að gera
nákvæmlega eins og strákarnir
vildu alltaf bara vera í gömlu
strákaleikjunum, en það sem við
höfðum unað okkur við og lært í
gegnum tíðina, reynsluheimur
kvenna eða kvennamenning,
þótti þeim einskis nýtt.
Kvennalistinn hefur liaft að
markmiði að eyða þeim mun sem
er á aðstöðu liðanna tveggja,
strákaliðsins og stelpnaliðsins, og
var þess vegna á móti hinni svo-
kölluðu þjóðarsátt. í síðustu
kosningum barðist Kvennalistinn
fyrir því að lágmarkslaun hækk-
uðu í 40.000 krónur, sem jafn-
gildir 73.000 krónum í dag.
Kvennalistinn sýndi þá ábyrgð að
hafna setu í ríkisstjórn þegar sýnt
Tvær leiðir eru hentugar til þess að verja ungbarn í bíl Látið barnið annaðhvort liggja i bilstól fyrir ungbörn eða barnavagni sem festur er með beltum.
|| ■ UmrtntJAn Uráð
Valgerður Magnúsdóttir.
var að foringjum strákaliðsins
fannst þetta bara heimtufrekja og
vildu ekki ganga að þessari for-
gangskröfu, heldur halda áfram að
leika sinn misréttisleik. Og til að
bæta gráu ofan á svart héldu þéir
því fram að við sýndum ábyr.gð-
arleysi með því að hjálpa þcim
ekki að stjórna misréttisleiknum.
Lágmarkslaunin hafa ennþá
vaila náð þessum fjörutíu þúsund
krónum, og nú í lok kjörtímabils-
ins er krónan þó ekki nenta rúm-
lega hálfdrættingur að verögildi á
við það sem hún var fyrir fjórunt
árum. Þessi upphæð dugir hvergi
nærri til framfærslu, þannig að í
raun er um lífið að tefla. Við
konur verðutn að safna liði og
snúa vörn í sókn. Þess vegna hef-
ur Kvennalistinn aftur gert hækk-
un lágmarkslauna að skilyrði fyr-
ir þátttöku sinni í ríkisstjórn.
En það skyldi þó aldrei vera áð
reynsluheimur karla í-valdastöð-
um sé svo fábrotinn að þeir skilji
ekkert nema það sent runnið er
undítn rifjum smástrákamcnning-
arinnar? Ef til vil átta þeir sig þá
fyrst á alvöru málsins ef við otum
fingri í hryggsúluna á þeim og
segjum dintmum og karlalegum
rómi: „Peningana eða lífiö".
Valgerður Magnúsdóttir.
(Höfundur skipar 7. sæti framboðslista
Kvcnnalistans í Norðurlandskjördæmi
eystra í komandi kosninguni).
Fraxnsóknarvist
fimmtudaginn 21. mars kl. 20.30.
Spilað verður á 6 stöðum í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Akureyri:
Nú spilum við í Félagsborg
(sal starfsmanna Álafoss).
Verðlaun fyrir besta árangur á öllum stöðum
er ferðavinningur að verðmæti kr. 80.000
með Samvinnuferðum-Landsýn.
Góð kvöldverðlaun.
Ávarp:
Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
ij óbaáijiiikeppni
Btoujs ul) MENOR
Menningarsamtök Norblendinga og dagblabib Dagur
hafa ákvebib ab efna til samkeppni í ijóblist
Keppnin verbur í tveimur flokkum Ijóba:
a) Hefbbundin Ijób
b) Óbundin Ijób
Verblaun fyrir besta Ijóðiö í hvorum flokki eru íslenska alfræbiorbabókin.
Sérstök viburkenning fyrir annab besta Ijóbib í hvorum flokki er íslandshandbokin
Þau Ijób, sem hljóta verblaun eba
viðurkenningu, verba birt í Degi og
Fréttabréfi MENOR. Abstandendur
keppninnar áskilja sér einnig rétt til ab birta
önnur Ijób, sem send verba til keppninnar.
Engin mörk eru sett um lengd Ijóðanna í
keppninni.
Ljóbin skal senda undir dulnefni, en meb skal
fylgja rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í
lokubu umslagi, aubkenndu dulnefninu.
Skilafrestur Ijóba er til 26. apríl nk., sem er
síbasti póstsendingardagur.
Utanáskriftin er;
Menningarsamtök Norölendinga
b/t Hauks Ágústssonar
Gilsbakkavegi 13
600 Akureyri
Menningarsamtök Norblendinga — Dagur
Islenska alfræbiorbabókin er lit-
prentub í þremur bindum og hefur
að geyma um 37 000 uppflettiorb
og lykilorb, auk um 4500 Ijós-
mynda, teikninga og korta og
taflna sem auka upplýsingagildi
hennar. Útgefandi er Örn og
Örlygur.
m
*y. "
W/&
j
. i'". \
'mm.
ISLANDS
HANDBOKIN
9
íslandshandbókin er tvö
bindi, rúmlega 1000 blab-
síbur. Efni bókarinnar er
skipt eftir sýslum. í upphafi
hvers kafla er sýslukort,
sérstaklega teiknabfyrir
bókina. Utgefandi er Örn
og Örlygur.