Dagur - 25.01.1992, Blaðsíða 13

Dagur - 25.01.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 25. janúar 1992 - DAGUR - 13 Öfugsnúið tíðarfar í janúar: Auð jörð oghlýindi ekkert einsdæmi Fólk er að verða dálítið þreytt á þessum suðlægu vindum og hlýindum í janúarmánuði. Að minnsta kosti kjósa flestir Norðlendingar snjó, vægt frost og stillt veður á þessum árstíma. Menn vilja fara á skíöi, krakkar þrá að draga fram sleða og snjóþotur. En það er ekki eins og auð jörð í janúar sé einsdæmi, þótt mað- ur gæti haldið að svo væri af viðbrögðum fólks að dæma, því við þurfum ekki að horfa lengra aftur en til janúarmán- aðar í fyrra til að finna sunnan leiðindi. Já, janúar 1991 heilsaði með miklum hvelli þegar ísingarveðr- ið mikla skall á. En þá var snjór yfir öllu og skafrenningur og veðrið svo sem ekkert óvenjulegt miðað við árstíma. Hins vegar var lítill snjór í Hlíðarfjalli en lyfturnar voru þó gangsettar laugardaginn 12. janúar. „í rauninni er frekar lítill snjór hérna, þótt ótrúlegt megi virðast, og ég segi stundum að snjórinn sé allur í bænum og fjölmiðlum,“ sagði Ivar Sigmundsson, forstöðu- maður Skíðastaða, í samtali við Dag 9. jan. ’91 og hann hvatti skíðafólk til að fara varlega vegna þess hve lítill snjór var í brekkunum. Sunnan rok og hlýindi í fyrra Góð aðsókn var í Hlíðarfjalli umræddan laugardag en sælan reyndist skammvinn. Á sunnu- daginn skall á rok með rigningu og tók snjó upp. Spáð var áfram- haldandi hlýindum. Norðlendingar fengu sunnan eða suðvestan áhlaup mánudag- inn 21. janúar og var fárviðri á Akureyri. Vindur fór yfir 12 vindstig, allt upp í 105 hnúta, og þakplötur fuku af húsum og bílar skemmdust. Raunar urðu fok- skemmdir mjög víða um Norður- land. Enn var hlýtt 24. janúar, 10 stiga hiti á Akureyri, og Dagur birti mynd af börnum á reiðhjóli, enda hvergi snjóföl að sjá. Kylf- ingar héldu þorramót uppi á Jaðri og í Degi birtust sumar- myndir dag eftir dag. Sunnudaginn 3. febrúar kom enn eitt fárviðrið og varð töluvert tjón á lyftum í Hlíðarfjalli. þak- plötur losnuðu og flugskýli lagð- ist saman á Blönduósi. Enn á ný urðu margir Norðlendingar fyrir tjóni. Skíðamenn voru orðnir óróleg- Blautt, hvasst og hlýtt. Einkunnarorð fyrir janúarmánuð 1992. Fólk hefur furðað sig á þessu veðurfari en það er hreint ckkert óvenjulegt. Janúar 1964 var heitasti janúarmánuður sem um getur á landinu og hér má sjá hvernig umhorfs var á Akureyri í þessum mánuði. ir í febrúar og sendi Kristján Möller kassa af snjó frá Siglufirði til ívars í marauðu Hlíðarfjalli. Menn voru farnir að setja sumar- dekk undir bílana og reiðhjóla- sala var lífleg, meðan sala á skíð- um lá niðri. Þannig var nú hlýindakaflinn frá miðjum janúar fram í miðjan febrúar 1991. Methitamánuðurinn 1964 Islendingar hafa gaman af því að tala um veður og ýmis met tengd veðrinu. Ekki er útlit fyrir að þetta verði hlýjasti janúarmánuð- ur sem sögur fara af því meðal- hitinn á landinu í janúar 1964 fór vel yfir 3 gráður og verður það met seint slegið. Dagur getur stuttlega um hlýindin í þessum mánuði 1964. í blaðinu 15. janúar það ár segir eftirfarandi: „Tæpast finnst svellblettur á vegum innan hér- aðs um þessar mundir og er óvenjulegt en þó ekki einsdæmi á þessum árstíma. Vegir á Vaðla- heiði og Fljótsheiði eru að þessu leyti sagðir svipaðir. Samgöngur eru því hinar greiðustu á landi.“ Mynd af auðri jörð á Akureyri birtist í blaðinu 22. janúar 1964 og á henni má sjá að svo til snjólaust er í Vaðlaheiði en Kaldbakur hvítur að vanda. Einhver snjór var kominn í byrjun febrúar þetta ár því ný KylFingar hafa verið tíðir gestir á Jaðri að undanförnu en ekki þarf að leita lengra aftur en til janúarmánaðar 1991 til að fínna sambærilegar aðstæður. togbraut var vígð í Hlíðarfjalli 1. febrúar og haldið skíðamót við það tækifæri. Og 5. febrúar var Dagur farinn að flytja hefð- bundnar fréttir af snjó og ófærð á mörgum fjallvegum. Hvaö verður um vetrarparadís? Nei, snjóleysi í janúar er auðvit- að ekkert einsdæmi og ekki held- ur suðlægir vindar og hlýindi. En þetta veðurfar er vissulega hvim- leitt fyrir þá sem beinlínis gera út á snjó og vetrarríki og þegar skíðavertíðin ætlar að bregðast ár eftir ár er gremja manna skiljanleg. Það hefur ekki fengist staðfest að veðurfarið hér á landi sé að breytast vegna gróðurhúsaáhrifa eða annarra áhrifa, a.m.k. ekki að neinu gagni. Því verðum við bara að benda á duttlunga veður- guðanna sem skýringu á þessu öfugsnúna tíðarfari í janúar nú og í fyrra. Hugsanlega verður þessi mánuður afskaplega snjó- þungur næstu árin, en haldi þetta áfram í svipaðri rnynd hlýtur maður að geta farið að tala um þróun eða varanlegar breytingar á veðurfari. Á þessari stundu er lítið hægt að gera nema bíða eftir snjó og paradísarheimt; vetrarparadísar- heimt. SS MYNDLISTASKOLINN Á AKUREYRI Kaupvangsstræti 16 Almenn námskeið 3. febrúar til 20. maí Barna- og unglinganámskeiö 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 6-8 ára. Tvisvar í viku. 4. fl. 8-9 ára. Tvisvar í viku. 5. fl. 9-10 ára. Einu sinni í viku. 6. fl. 11-12 ára. Einu sinni í viku. Myndlistardeild Byrjendanámskeið. 13-14 ára. Einu sinni í viku. Framhaldsnámskeið. 14-15 ára. Einu sinni í viku. Kvöldnámskeiö fyrir fullorðna Teiknun Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Módelteiknun Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Grafísk hönnun Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Byggingalist Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Skrift og leturgerð Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958. Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga. Skólastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.