Dagur - 27.02.1992, Síða 11
Fimmtudagur 27. febrúar 1992 - DAGUR - 11
Skemmtistaðurinn 1929:
„Miðnæturhiti“
- Árin sem fæstir vilja muna?
„Miðnæturhiti - árin sem fæst-
ir vilja muna?“, skemmtidag-
skrá byggð upp af söng- og
dansatriðum, sló í gegn í
„1929“ á Akureyri um síðustu
helgi. Frábær söngur sem dans
var aðalsmerki sýningarinnar
og undirtektir gesta „1929“
voru sem best var á kosið.
Vegna fjölda áskorana verður
„Miðnæturhitinn“ endursýnd-
ur föstudaginn 6. mars og laug-
ardaginn 7. mars, en um helg-
ina mun Todmobile frá Reykja-
vík verða í „1929“ í tilefni þess
að skemmtistaðurinn er eins
árs.
„Miðnæturhiti - árin sem fæstir
vilja muna?“ er fimmtíu mínútna
skemmtidagskrá er Þráinn Lárus-
son, veitingamaður og staðar-
haldari Skemmtistaðarins 1929,
býður gestum upp á. Ekki skal
hér greint frá skemmtuninni í
smáatriðum heldur eru allir, ung-
ir sem gamlir, er hafa aldur til að
rölta inn á öldurhús, hvattir til að
mæta í 1929 um aðra helgi og
hlýða á listafólkið sem kemur
fram í sýningunni.
Flytjendur „Miðnæturhitans“
eru eftirtalin: Þórhildur Örvars-
dóttir, Sigrún Sif Jóelsdóttir,
Hjörtur Howser, Valgeir Skag-
fjörð, Baldvin Ringsted, Kormák-
ur Geirharðsson, Baldur
Rafnsson, María Bragadóttir,
Jóhann Arnarsson og Kristinn
Freyr Magnússon. ój
Dansatriðin eru aðalsmerki sýning-
arinnar.
Veitingahúsið Greifmn á Akureyri:
Sj ávarréttakvöld í Stássinu
Næstkomandi föstudags- og
laugardagskvöld ætlar veit-
ingahúsið Greifinn á Akureyri
að halda sjávarréttakvöld í
„Stássinu“ hinum nýja veislu-
sal sínum. Að sögn Páls
Jónssonar yfirmatreiðslumanns
á Greifanum eru sjávarréttir
alltaf að sækja á í vali veitinga-
húsagesta á mat.
Því ætlar veitingahúsið Greif-
inn að standa fyrir sjávarrétta-
veislu þessi tvö kvöld, í samvinnu
við Gunnar Pál Rúnarsson, hinn
landskunna matreiðslumann á
veitingastaðnum „Við Tjörnina“
í Reykjavík. Gunnar Páll er son-
ur hins rómaða matreiðslumanns
Rúnars Marvinssonar og hafa
þeir feðgar getið sér gott orð fyrir
matreiðslu á fiski.
Á boðstólum verður glæsilegt
hlaðborð með yfir 30 tegundum
af sjávarréttum, bæði heitum og
köldum, ásamt fjölbreyttu úrvali
af meðlæti. Á meðal rétta eru;
sniglar í blaðdeigspoka, innbök-
uð skelfiskkæfa, grillaður smokk-
Gunnar Páll Rúnarsson matreiðslu-
maður í Reykjavík, hefur veg og
vanda af sjávarréttaveislunni á
Greifanum.
fiskur, kryddleginn fiskur, fyllt
tindabikkja, reyksoðinn fiskur,
marineraðar gellur, stórlúðu-
steikur og margt fleira.
Gunnar Páll, sem er þekktur
fyrir ljúffenga og glæsilega sjáv-
arrétti, þykir oft frumlegur í vali
sínu á sjávarfangi og notar aðeins
besta hráefni sem völ er á.
Með sjávarréttaveislu, vill
Greifinn auka fjölbreytni í mat
og um leið koma til móts við hinn
breiða hóp viðskiptavina sinna.
Er ætlunin að vera með fleiri slík
kvöld í framtíðinni og bjóða þá
uppá t.d. argentísk steikarhlað-
borð, Fondue, kínverska mat-
reiðslu og fleira í þeim dúr. Við-
skiptavinir eru minntir á að panta
borð í tíma.
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
f EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
RATTARVEXTI
Við minnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. FEBRÚAR
1. MARS___________
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísvtölu.
[& HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Lj SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK Sl'MI 696900
Sértilboð: Eitt símtal og viö gerum þér tiiboö
AKUREYRI
96-24838
Bílaleigan Örn
Flugvöllur og Tryggvabraut 1.
ÞÓRSHÖFN: Tel. 96-81175
VIÐ ÞJÓNUM ÞÉR
RVS-AVIS
Licency
Akureyringar —
Eyfirðingar
Alþýðubandalagsdagar
Alþýðubandalagsdagar verða á Akureyri og í
Eyjafirði dagana 27.-29. febrúar.
Þessa daga munu forustumenn Alþýðubandalagsins heim-
sækja fyrirtæki og stofnanir, ræða við starfsfólk og hitta
sveitastjórnarmenn, forsvarsmenn verkalýðshreyfingar og
atvinnulífs að máli.
Almermir stjórnmálafundir verða:
Á Akureyri fimmtudagskvöldið 27. febrúar kl.
20.30 í Alþýðuhúsinu, á Ólafsfirði föstudaginn
28. febrúar kl. 20.30 í Tjarnarborg og á Dalvík
laugardaginn 29. febrúar kl. 14.00 í Víkurröst.
Laugardagskvöldið 29. febrúar verður árshátíð Alþýðu-
bandalagsfélaganna við Eyjafjörð haldin á Akureyri á Fiðl-
aranum. Allir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins og gestir
þeirra eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þeir sem vilja
tryggja sér miða þurfa að láta skrá sig sem fyrst hjá Kára í
síma 21783, Gunnari s. 25830, Kristjáni s. 61855 eða Birni
Þór s. 62270, sem veita jafnframt allar nánari upplýsingar.
Alþýðubandalagið.