Dagur - 20.03.1992, Síða 15

Dagur - 20.03.1992, Síða 15
Föstudagur 20. mars 1992 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson Knattspyrna: Pollamót Þórs Hið árlega „Pollamót" Þórs í knattspvrnu fer fram helg- ina 3.-5. júlí 1992. Þau félög sem hafa verið meö til þessa sitja fyrir ef fjöldi þátttökuliða verður of mikill. Þvf er mikilvægt að nienn skrái sig sem fyrst. eigi síðar en 15. apríl nk., til að hægt sé að láta aðra vita tímanlega hvort þeir geti verið með eður ei. Þátttökugjald fyrir hvert lið er 20.000 kr. og greiöist stað- festingargjaldið, 10.000 kr., um leið og liðin skrá sig. Fjöl- breytt dagskrá fyrir keppend- ur, konur þeirra og börn verð- ur send út í lok apríl eða byrj- un maí. Nánari upplýsingar verða veittar í félagsheimili Þórs, Hamri, eftir kl. 16 í síma 96- 22381. Skíðaráð Akureyrar: Æfingatafla Foreldraráð Skíöaráðs Akur- eyrar hefur gengið frá æfinga- töflu fyrir 6-12 ára börn og fer hún hér á eftir. ALPAGREINAR - Hlíðarfjall 8 ára og yngri (f. ’83-’85); Miðvikudagar 17-19, laugar- dagar 10.30-12.30 og sunnu- dagar 10.30-12.30. 9 ára (f. ’82); Þriðjudagar 17-19, laugardag- ar 10.30-12.30 og sunnudagar 10.30-12.30. 10 ára (f. ’81); Mánudagar 17-19, miðviku- dagar 17-19 og föstudagar 17- 19. 11 ára (f. ’80); Mánudagar 17-19, fimmtudag- ar 17-19 og föstudagar 17-19. 12 ára (f. ’79); Æfingar í samráði við þjálfar- ann, Rúnar Inga Kristjánsson, s: 22112. SKÍÐAGANGA - Kjarnask. eða HlíðarQ. 12 ára og yngri: Þriðjudagar 17.30-18.30 og fimmtudagar 17.30-18.30. Því er við þetta að bæta að á morgun verður haldið Akur- eyrarmót í stórsvigi 6-12 ára barna. Keppni fer fram í Hlíð- arfjalli og hefst kl. 10. Skíða- börn frá Ólafsfiröi kcppa sem gestir í flokki 10-12 ára. ✓ Iþróttir HANDKNATTLEIKUR Fnsludagur 2. deild: l’ór-ÍR Laugardaour 2. deild: kl. 20.30 Völsungur-ÍR kl. 14.00 BLAK Föstudagur 1. deild karlu: KA-HK Laugardagur kl. 20.00 Bikarkeppni kvenna: Þróttur N.-KA Sunnudagur Bikarkeppni karla: kl. 14.00 HK-KA kl. 18.00 JÚDÓ íslandsmótið fcr frain í Rcykjavík á laugardag. 15-20 manna hópur frá KA verður meðal kcppenda. SKÍÐI Fyrsta góngumót vetrarins, Þórsmót. i Hlíðarfjalli fer fram á sunnudag. Kcppt verður í öllum aldursnokkum karla og kvenna og gcngið meö hefð- bundinni aðferð. Mótið fcr fram við cfra gönguhúsið og hcfst kl. 14.00. Akureyrarmót í stórsvigi 6-12 ára fcr fram í Hlíðarfjalli á laugardag og hefst kcppni kl. 10.00 Fyrsta risasvigmötiö á íslandi fcr l'ram í Oddskarði á laugardag. Bláfjallagangan fer fram i Rcykjavík á sunnudag. B-keppnin í handknattleik: Óskabyrjun gegn Hollendingunum Islendingar unnu auðveldan sigur á Hollendinguni, 30:20, í fyrstu umferð B-keppninnar í handknattleik í Austurríki í gær. Eftir fremur slæina byrj- un náðu íslendingar þriggja marka forystu fyrir hlé og gerðu síðan út um leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks. Liðið mætir Belgum á morgun og Norðmönnum á sunnudag. íslendingar virtust óstyrkir fyrstu mínúturnar og gerðu tölu- vert af mistökum í sókninni auk þess sem vörnin var ekki nægi- lega sannfærandi. Bergsveinn Bergsveinson varði hins vegar mjög vel í markinu og smám saman batnaði leikur íslenska liðsins og staðan var orðin 12:9 í hléi. í upphafi seinni hálfleiks gerðu fslendingar út um leikinn með því að skora 9 mörk gegn 2 og Hollendingar áttu þá aldrei möguleika. „Þetta var mun betra en ég bjóst við og lofar góðu,“ sagði Alfreð Gíslason, „sérfræðingur“ Dags í gærkvöld. „Það sem mér fannst mikilvægast var frammi- staða Bergsveins sem stóð sig mjög vel og varði eins og hann hefur verið að gera í deildinni í vetur. Vörnin var einnig mjög sterk og reyndar átti liðið í heild góðan leik. Mér fannst gaman að sjá hvað Siggi Sveins kom sterkur út því ég var hálfhræddur um að hann myndi ekki falla vel inn í leik liðsins. Héðinn var sterkur, sérstaklega í fyrri hálfleiknum, og það eina sem ég hef út á hann að setja var hvað hann spilaði langt frá vörninni. Hollendingar- nir voru slakir en ég hef trú á að þeir bæti sig verulega fyrir leikinn gegn Norðmönnum." Aðspurður hvort það væri kannski ekki gott að byrja á svona stórum sigri sagðist Alfreð halda að þctta myndi færa liðinu aukið sjálfstraust og menn myndu halda sig við jörðina. Alfreð ekki út Heyrst hefur að Bidasoa hyggist kalla Júlíus Jónasson heim aftur í Valdimar Grimsson var markahæstur Islendinga með 6 mörk. leik 27. mars þannig að hann missi af tveimur síðustu leikjun- um í keppninni. Alfreð sagði að þó þetta gengi eftir væru nánast engar líkur á að hann færi út. „Ég held að það megi hreinlega ekki nema Júlíus spili þá ekkert í keppninni. Eftir að 16. maðurinn er kominn í hópinn má ekki breyta honum eftir því sem ég best veit,“ sagði Alfreð Gíslason. Mörk íslands: Valdimar Grímsson 6/2, Sigurður Sveinsson 5/1, Héðinn Gilsson 4, Konráð Olavsson 4, Geir Svcinsson 4, Stórleikur í 2. deildinni í handknattleik í kvöld: Úrslitaleikur Þórsara og ÍR-inga I kvöld fer fram hreinn úrslitaleikur í 2. deild íslands- mótsins í handknattleik á Akureyri. Þá mætast topplið Þórs og ÍR og hefst leikurinn kl. 20.30. Bæði liðin hafa tryggt sér sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili en barist er um sigur í deildinni og standa Þórsarar þar inun betur að vígi. Þeir unnu fyrri leik lið- anna í Reykjavík 24:22 og eru eina lið deildarinnar sem ekki hefur tapað stigi. Reikna má með að Þórsurum nægi jafn- tefli til að ,tryggja sér sigur í deildinni. ÍR-ingar spila við Völsung á Húsavík á morgun kl. 14. Auk leiksins í kvöld eiga Þórs- arar eftir að mæta Aftureldingu heima en ÍR-ingar Völsungi á Húsavík og Fjölni í Seljaskólan- um. Þórsarar hafa nú 142 mörk í plús en ÍR-ingar 138 og má því reikna með að ÍR-ingar vinni deildina leggi þeir Þórsara að velli í kvöld því trúlega verða þeir með hagstæðara markahlut- fall þegar upp verður staðið. Þórs- arar þurfa því a.m.k. jafntefli en stefna þeir ekki að því að fara taplausir í gegn um mótið? „Jú, við gerum það og ætlum Sævar Árnason og félagar hans í Þór freista þess að lcggja IR-inga að velli í kvöld. okkur hiklaust að sigra ÍR,“ sagði Jan Larsen, þjálfari Þórs, í samtali við Dag. „Það er góður hugur í mannskapnum, við erum komnir upp og getum því farið rólegir í leikinn og hugsað um að gera góða hluti. ÍR-liðið er mjög efnilegt, með 4-5 ungl- ingalandsliðsmenn og Gunnar Einarsson sem þjálfara. Liðið stefnir hátt og kemur vel undir- búið í 1. deildina. Mér finnst vera Bikarkeppnin í blaki: KA-Uðin spila í undanúrsUtum Karla- og kvennalið KA spila bæði í undanúrslitum bikar- keppninnar í blaki um helgina. Þá mæta karlarnir HK í ís- landsmótinu í KA-húsinu í kvöld. Leikur KA og HK í íslands- mótinu hefst í kvöld kl. 20. Þessi lið mætast einmitt einnig í undan- úrslitum bikarkeppninnar en sá leikur fer fram í Kópavogi á sunnudag kl. 18. Þess má geta að ólíklegt er að Stefán Magnússon Ieiki með KA þar sem hann veiktist af lungnabólgu nýlega. KA-stúlkur spila á morgun kl. 14 við Þrótt Neskaupstað í undan- úrslitum bikarsins. Þess má geta að vonir karlaliðs KA um Islandsmeistaratitilinn glæddust í fyrrakvöld þegar Þróttur R.- vann óvæntan si"ur á Stúdentum í fimm hrinurn. KA á því möguleika sem felast í að sigra ÍS og treysta síðan á að ÍS tapi einnig fyrir HK. góð stemmning í bænum fyrir leiknum og vona að fólk fjöl- menni. Það er mjög mikilvægt fyrir félagið að fólk standi vel við bakið á því,“ sagði Jan. Krakkar úr 4., 5., 6. og byrj- endaflokki Þórs verður boðið að mæta í Hamar í kvöld og þiggja léttar veitingar. Síðan verður þeim ekið í rútum á leikinn. Gunnar Gunnarsson 3, Sigurður Bjarna- son 2, Kristján Arason 1, Bjarki Sigurðs- son 1. Veermann var markahæstur Holl- endinga með 7/1 mörk. Handknattleikur: Seinni leikir í Akurevrarmóti Síðari umferð Akureyrarmóts- ins í handknattleik hefst í KA- húsinu á laugardag. Þá fara fram eftirtaldir leikir: Kl. 10.00 6. fl. A-lið Kl. 10.35 6. fl. B-lið Kl. 11.10 6. fl. C-lið Kl. 11.45 5. fl. A-lið Kl. 12.30 5. fl. B-lið Kl. 13.15 5. fl. C-lið Kl. 14.00 4. fl. A-lið Kl. 14.50 4. fl. B-lið Kl. 15.40 3. fl. A-lið Þór gaf seinni leikinn í 4. flokki kvenna. Þá á 2. flokkur karla eftir að leika báða leikina og fara þeir fram fljótlega. Á fimmtudaginn kl. 20.30 mætast meistaraflokkar félag- anna í seinni leiknum. Kl. 21.50 mætast síðan „Old Boys-“liðin. Toppslagurinn Hverjir verða íslandsmeistarar 2. deildar? Úrslit fást í kvöld Þór-ÍR í kvöld kl. 20.30 Dregið í happdrætti í leikhléi. Tryggið ykkur miða í tíma. Happdrættismiði gildir sem aðgangsmiði á leikinn. Miðar seldir í Hamri, Topp-sport, Sporthúsinu og í íþróttahöllinni. Fjölmennum í Hamar fyrir og eftir leik. Allir yngri flokkar mæta í Hamar kl. 18.30. Spjallað við leikmenn. Öllum ekið í rútu upp í Höll og til baka eftir leik. Akureyringar! Styöjum okkar heimamenn og fjölmennum í Höllina BLIKKRÁS HF.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.