Dagur - 04.07.1992, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 4. júlí 1992
KORFU - ejjan fagra
Elía, vinur okkar, yfírþjónn á Hótel Marina, og Svavar Ottesen höfundur
greinarinnar.
Skoðunarferö um Korfubæ. Nokkrir af feröafélögunum.
Grikklands. Mér telst til aö sam-
tals höfum við verið tólf tíma á
sjó í þcssum ferðum, sem við
fórum. Það er af Grikklandsferð-
inni að segja að nokkrir íslend-
ingar urðu sjóveikir í þeirri ferð
og annarra þjóða fólk einnig, en
við komumst á leiðarenda. Ann-
ar hátur, sem var með í för, sneri
við í Paxos. Ekki var þetta nú
mikill sjór, en vindur var ein 6-7
vindstig og þessir bátar ekki mikil
sjóskip.
Síðar mun ég segja frá ferðinni
til Albaníu hér í blaðinu, en hún
var allrar athygli verð og fyrsta
skipulagða hópferð fslendinga til
þess lands. Það voru um 130
íslendingar sem þar tóku þátt.
Korfu-bær
íbúar eyjarinnar munu vera um
100 þúsund, en í Korfubæ búa
unt 30 þúsund manns, sem flestir
lifa á ferðamannaþjónustu. Eftir
því sem ég best veit eru hótelin
opnuð 1. apríl og þeim lokað síð-
ast í október. Ferðamannatíminn
er því um 7 mánuðir. Ekki er ég
viss um hvað íbúar Korfu-bæjar
gera þessa 5 mánuði sem fáir
ferðamenn sækja eyjuna heim.
Verðlag á Korfu er mjög hag-
stætt og það lægsta sem ég hef
kynnst í utanlandsferðum. Aðal
vandamálið er að hemja konurn-
ar okkar elskulegu við innkaup-
in, því allt er svo ódýrt og því
„stórgróði" að versla í Korfu-bæ.
En að öllu gamni slepptu þá er
ótrúlegt úrval af vörum í Korfu-
bæ og hægt að kaupa næstum því
allt frá bílum niður í saumnálar.
Þó munu gull- og silfurmunir og
föt úr leðri vera á hagstæðara
verði en íslendingar þekkja. Þá
er matur afar ódýr og til marks
um það get ég sagt frá því að við
Sóley snæddum 'A kjúkling og
pizzu á útiveitingastað og kostaði
máltíðin fyrir okkur bæði um
260-270 íslenskar krónur. Það er
því engin spurning að hægt er að
lifa á Korfu fyrir brot af þeirri
upphæð sem það kostar hér á
landi. Laun eru þar líka lág eftir
því sem ég best veit.
Að lokum vil ég segja það, að
ég vona að Samvinnuferðir-
Landsýn sjái sér fært að bjóða
Korfu-ferðir næsta vor og ekki er
spurning að við Sóley förum aftur
og getum vel hugsað okkur að
dvelja þar þá í 5 vikur.
Svavar Ottesen.
- yljað sér við minningar frá grísku eyjunni Korfu
í kuldakastinu á dögunum
hvern veginn vera þannig með það þýddi en komumsl
Það er að öllu jöfnu ekki í frá-
sögur færandi þó fólk fari í
sumarleyfi til sólarlanda, en
mér fínnst full ástæða til að
segja frá þriggja vikna sumar-
leyfí á grísku eyjunni Korfu í
maí og júní sl. Samvinnuferðir-
Landsýn eiga þakkir skildar
fyrir að ríða á vaðið og bjóða
Islendingum upp á skipulagðar
hópferðir til þessarar fögru
eyjar. Það voru rúmlega 150
manns, sem mættu á Keflavík-
urflugvelli 25. maí sl. í þessa
fyrstu ferð íslenskrar ferða-
skrifstofu til Korfu. Við Sóley
vorum einu Akureyringarnir,
sem tókum þátt í þessari ferð.
Ágætir fararstjórar
Flogið var með Flugleiðum til
Korfu og millilent í Luxemborg.
Frá Luxemborg til Korfu er rúm-
lega tveggja tíma flug. Á flugvell-
inum í Korfu tóku á móti okkur
fararstjórar Samvinnuferða-
Landsýnar, þær Helga Einars-
dóttir og María Perelló, en þess-
ar ágætu konur áttu eftir að gera
sitt til að gera þetta sumarleyfi
okkar ógleymanlegt.
Hótel Marina
Þegar íslendingarnir höfðu fast
land undir fótum á Korfu dreifð-
ist hópurinn á mörg hótel. Af til-
viljun höfðum við Sóley valið
að gista á Hótel Marina, sem er
um einn kílómetra frá miðbæ
Korfu. í ljós kom kom að tvenn
hjón úr Reykjavík, þau Jón og
Erla og Indriði og Margrét,
höfðu einnig valið þetta hótel og
vorum við því sex íslendingarnir
sem þar dvöldum í góðu yfirlæti í
þrjár vikur.
Það verður að segja eins og er
að mikill munur er á hótelum á
Korfu og þeim hótelum, sem við
eigum að venjast hér á landi og í
Norður-Evrópu. Það virðist ein-
hvern veginn vera þannig með
sólarlandabúana, að allt sem
heitir viðhald er í lágmarki og
það vakti sérstaka athygli okkar
að hús virðast drabbast niður og
málning virðist vera munaðar-
vara. Þá eru frárennsiismálin í
Korfubæ öll önnur en við eigum
að venjast hér á landi og víðast
hvar annars staðar í Evrópu. Það
kom í ljós á fararstjórafundi að
morgni 26. maí, að bannað er að
setja pappír, að ekki sé talað um
dömubindi, í klósettin, heldur er
sérstakur lokaður kassi sem ætl-
aður er til þeirra nota. Þetta kom
íslendingunum mjög á óvart, en
þetta finnst mér nauðsynlegt að
allir Korfu-farar viti. Þeir sem
komnir eru á miðjan aldur eða
yfir, vita hvernig klósettmálum
var háttað hér á landi fyrir nokkr-
um tugum ára. En nóg um kló-
settmálin. Þess skal þó getið að
kassarnir umræddu, eru losaðir
daglega og enginn skortur er á
klósettpappír.
Gríski maturinn
smakkaðist vel
Við vorum í svokölluðu hálfu
fæði á Hótel Marina. Auðvitað
vissum við ekki fyrirfram hvað
Vinkonur okkar á Hótel Marina,
Danni og Barbara, brosa sínu blíö-
asta...
það þýddi en komumst að raun
um að maturinn var bæði mikili
og í flestum tilfellum góður, þó
hann værti auðvitað talsvert ólík-
ur því sem við eiguin að venjast
hér á landi. Á morgnana fengum
við kaffi eða te og djús, síðan
gáturn við valið um tvær tegundir
af áleggi og auðvitað smjör á
franskbrauðið, en franskbrauð
var alltaf á borðum á morgnana
og yfirleitt alltaf með öðrum mat.
Á kvöldin var svo alltaf tvíréttuð
máltíð og desert á eftir. Það var
samdóma álit okkar sexmenning-
anna á Hótel Marina að ekki
þyrfti að kaupa mikinn mat auka-
lega.
Elskulegt og
vingjarnlegt fólk
Grikkir eru að ég held upp til
hópa vingjarnlegir og kunna vel
að taka á móti ferðamönnum,
enda er það lifibrauð eyjar-
skeggja auk landbúnaðar. Árið
1991 komu um 900 þúsund ferða-
menn til Korfu.
Á Hótel Marina var okkur
íslendingunum ákaflega vel tekið
af þjónustufólkinu og að þrem
vikurn liðnum kvöddum við þessa
vini okkar með nokkrum sökn-
uði, sérstaklega yfirþjóninn Elía
og þær Danni og Barböru, sem
þjónuðu okkur í borðsalnum.
Flugið helmingi lengra
Davalartími íslendinganna í
þessari ferð var mun lengri en
annarra, því algengast mun vera
að Bretar dvelji á Korfu í 7-10
daga, Þjóðverjar og Hollending-
ar í 10-14 daga og Danir, Norð-
menn, Svíar og Finnar í 14 daga.
Þá kemur mikill fjöldi skemmti-
ferðaskipa til Korfu og farþegar
dvelja þar nokkra klukkutíma.
Vandkvæði okkar íslendinga
eru alltaf þau sömu, að flug frá
íslandi til sólarlanda er helmingi
lengra og vel það en annarra
Evrópubúa og því verður kostn-
aður við flugið helmingi rneiri.
Eyjan fagra
Það verður ekki annað sagt en
Korfu sé fögur eyja. Við kynnt-
umst því allvel í skoðunarferðum
um eyjuna. Hún er mjög gróður-
sæl og gróðurinn var í blóma er
við dvöldum þar.
María og Helga, okkar ágætu
fararstjórar, höfðu undirbúið
margar skoðunarferðir fyrir okk-
ur og eftirminnilegust fannst mér
dagsferð til Albaníu og ferð til
eyjarinnar Paxos og þaðan yfir tii
Frú Sóley stendur hér í stafni á leiðinni til Paxos, en ágjöf var veruleg og
sjóveiki nokkur meðal farþega.
Það stansa flestir
í Staðarskála
Fjölbreyttir gistlmöguleikar.
★ Alltaf girnilegir réttir á matseðlinum.
/mAkfm
Hrútafirði • Opið frá kl. 8.00-23.30.
Sími 95-11150 • Fax 95-11107.
Svangir og þyrstir íslendingar mynda röð eins og þeim einum er lagið. Myndin tekin í strandferð sem farin var frá
Korfubæ.