Dagur - 29.08.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 29. ágúst 1992
Fréttir
Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra á Stéttarsambandsfundi:
„Er reiðubúiiffi til að taka alla þætti hins
nvja búvörusafflffings til endurskoðunar frá grunni“
„Texti dagsins í dag er hvernig
takast megi að leysa bænda-
stéttina úr viðjum framleiðslu-
stýringar og úreltra viðskipta-
hátta til þess að bóndinn njóti
sín þar sem hann situr á búi
sínu með eld árvakans á arni,“
voru inngangsorð Halldórs
Blöndal, landbúnaðarráðherra
í ræðu sinni á aðalfundi Stéttar-
sambands bænda, sem nú
stendur yfir að Laugum í
Reykjadal. Halldór fjallaði
ýtarlega um vanda landbúnað-
arins í ræðu sinni og megin
tónninn í málflutningi hans
var, að finna þurfi landbúnað-
inum nýjan farveg - farveg
frelsis í stað hafta og miðstýr-
ingar. Landbúnaðarráðherra
kvaðst reiðubúinn til að taka
alla þætti hins nýja búvöru-
samnings til endurskoðunar frá
grunni í því sambandi.
Atburðarásin hafí verið hröð
og nú blasi við að heimildir til
innflutnings á landbúnaðarvör-
um verði víkkaðar með nýju
GATT-samkomulagi er feli í
sér breyttar áherslur á stuðn-
ingi við landbúnaðinn.
Mánudagur31. ágúst 1992
Mánudagur 14. sept. 1992
Mánudagur 5. okt. 1992
Mánudagur 19. okt. 1992
Landbúnaðarráðherra sagði
meðal annars að óraunhæft sé og
skaði bændur sjálfa að halda
dauðahaldi í lögskráð verð og
staðgreiðslu afurða. Sú vernd er í
því hafi átt að felast sé falsvernd,
jafnvel þótt ríkið hafi hingað til
ábyrgst sölu afurðanna. Ráðherra
benti á að nú þegar greiðslu-
ábyrgð ríkisins sleppi geti afurða-
stöðvarnar ekki undirgengist
slíka kvöð til lengdar þar sem
hún brjóti í bága við heilbrigða
viðskiptahætti.
Ráðherra minntist á nýjar
raddir er komið hafi fram að
undanförnu þar sem talað sé á
öðrum nótum en menn hafi átt að
venjast. Hann nefndi erindi
Valdimars Einarssonar, ráðu-
nautar á nýafstöðnum aðalfundi
Landssambands kúabænda sem
dæmi um nýja hugsun þar sem
hann setti fram tillögur um gjör-
breytt framleisðlu- og afurða-
sölukerfi sem fundurinn fól
stjórn sinni að brjóta til mergjar
og taka síðan til umræðu á nýjan
leik. „Eins og ég skil það, byggir
það á því að skilgreina bein-
greiðslurnar með nýjum og öðr-
um og rýmri hætti en nú og losa
Mánudagur 2. nóv. 1992
Mánudagur 16. nóv. 1992
Mánudagur 30. nóv. 1992
Mánudagur 14. des. 1992
um framleiðslutakmarkanir,
brjóta upp héraðslæg mörk slát-
urhúsa og nýta hagkvæmni mark-
aðarins út í æsar til að lækka
framleiðslu- og vinnslukostnað,“
sagði Halldór Blöndal.
Halldór lagði mikla áherslu á
að kannað verði til hlítar hvernig
unnt sé að lækka rekstrarkostnað
í landbúnaði og minntist í því
sambandi á upplýsingar um
mismun á verði ýmissa aðfanga
hér á landi og í Skotlandi er
komu fram á aðalfundi Lands-
sambands sauðfjárbænda í síð-
ustu viku. Þar kom meðal annars
fram mikill verðmunur á áburði
íslandi í óhag. Ráðherra sagði að
ákvörðun hefði verið tekin um að
breyta Áburðarverksmiðju ríkis-
ins í hlutafélag og frumvarp þess
efnis verði lagt fram á Alþingi í
haust.
Halldór Blöndal ræddi nokkuð
um samningana um hið Evrópska
efnahagssvæði og kvað niður-
stöðu sína vera að viðunandi
lausn hafi fundist hvað landbún-
aðinn varðar, ekki síst í ljósi þess
hversu slæm staðan hafi verið við
stjórnarskiptin í fyrra en þá hafi
íslendingar sniðgengið þær við-
ræður er snertu landbúnað og lát-
ið öðrum þjóðum eftir að semja
um þau mál. Sá samningstexti er
staðið hafi verið frammi fyrir hafi
gert ráð fyrir verulegri rýmkun á
innflutningi á blómum, ávöxtum
og grænmeti frá löndum Suður-
Evrópu auk þess sem búið hafi
verið að setja nokkrar unnar
mjólkurafurðir á frílista þó þann-
ig að innheimta mætti af þeim
jöfnunargjöld við innflutning.
Halldór Blöndal benti á að
EES-samningurinn feli ekki í sér
aðild íslands að reglum Evrópu-
bandalagsins um landbúnaðar-
mál þótt ákvæði hans taki til
svonefnds staðfesturéttar - það
er réttur manna til að stofna til
atvinnurekstrar í landbúnaði.
Ráðherra greindi einnig frá því
að ákvæði EES-samningsins
röskuðu ekki núgildandi reglum
jarða- og ábúðarlaga, enda væru
hliðstæðar reglur í gildi í ýmsum
aðildarríkjum samningsins varð-
andi land til landbúnaðar og
viðurkennt að einstök ríki geti í
löggjöf sinni sett reglur, er miði
að því að tryggja eðlilega og hag-
kvæma nýtingu lands með tilliti
til þarfa landbúnaðar.
„Pað hefur verið hlutskipti
mitt í ráðherrastóli að vera oft
'boðberi válegra tíðinda. Ég rek
þó ekki í einstökum atriðum þær
efnahagslegu þrengingar sem
íslenska þjóðin er nú að ganga í
gegnum. Það jákvæða er að verð-
bólga er minni nú en hún hefur
verið um áratuga skeið og, sem
ekki er síður mikils virði, þorri
fólks virðist gera sér grein fyrir
því alvarlega ástandi, sem hér
ríkir á atvinnumarkaðnum,“
sagði landbúnaðarráðherra í
niðurlagi ræðu sinnar. Hann
sagði að of margir töluðu nú á
Ástandið í sauðfjárræktinni
var eitt meginumræðuefni
manna í umræðum á aðalfundi
Stéttarsambands bænda fyrsta
dag fundarins og var verulegur
áhyggjutónn í þeim málflutn-
ingi er fram fór á fundinum.
Þrátt fyrir að ræðumenn væru
sammála um að samdrátturinn
í sölu á kindakjöti væri alvar-
legt vandamál fyrir bændur og
jafnframt margar byggðir
landsins greindi menn nokkuð
á um á hvern hátt skynsamleg-
ast væri að taka á vandanum.
Mjög ákveðins tóns gætti í
ræðum margra að endurskipu-
leggja verði sölukerfi landbúnað-
arins og þá einkum sauðfjárrækt-
arinnar. Ekki verði lengur unað
við að kindakjötið, eitt kjötteg-
unda, sé enn háð opinberum
verðlagsákvæðum er geri því nær
ómögulegt að keppa við aðrar
kjöttegundir þar sem verðlagning
er frjáls. Menn voru hins vegar
ekki á einu máli um leiðir til að
ná markmiðum um aukna sölu á
kindakjöti og ræddu nokkrir
fundarmanna um kjötmarkaði í
því sambandi. Ekki virðist þó að
fullu ljóst við hvað menn eiga
þegar þeir ræða um stofnun
slíkra kjötmarkaða - hvort um
uppboðsmarkað eigi að vera að
ræða eða einhvernskonar bú-
vörumarkað sem vinnslustöðvar
þeim nótum, að bændastéttin
standi frammi fyrir meiri erfið-
leikum en vera þurfi, þar sem hún
hafi kosið að brjóta af sér hlekki
vanabundinnar framleiðslustýr-
ingar. Með slíkum fullyrðingum
sé aðeins verið að gefa í skyn að
pólitískar og stéttarlegar forsend-
ur hafi verið fyrir óbreyttri fram-
leiðslustefnu en þær fullyrðingar
séu ósannar. Landbúnaðarráð-
herra kvaðst trúa því að landbún-
aðurinn muni styrkja sig á næstu
árum vegna þess að ný sjónarmið
muni ryðja sér til rúms og nýir
kraftar leysast úr læðingi. ÞI
og smásöluaðilar geti leitað til
með kaup á vinnslukjöti. Greini-
legt var að menn greinir verulega
á um þessar hugmyndir og vör-
uðu einstakir ræðumenn sterk-
lega við hugmyndum af þessu
tagi og kváðu þær aðeins verða til
þess að afhenda öflugum smásölu-
aðilum á höfuðborgarsvæðinu
möguleika til þess að ákveða
verð á kjöti, sem bændur yrðu
síðan að lúta. í máli Hauks Hall-
dórssonar, formanns Stéttar-
sambsandsins, kom meðal annars
fram sú skoðun að ef uppboðs-
markaður verði settur á stofn
yrði hann einungis niðurboðs-
markaður þar sem kaupendur
biðu vöruna niður því verið væri
að selja vöru sem of mikið magn
væri til af og ætti auk þess í harðri
samkeppni á markaði.
Nokkur gagnrýni kom fram á
forystu Stéttarsambandsins og
sökuðu einstakir ræðumenn for-
ystumenn þess um slælega fram-
göngu í málefnum bænda og
kváðu þá vera búna að glutra nið-
ur þeim ávinningum er forverar
þeirra hefðu náð. í máli for-
svarsmanna Stéttarsambandsins
kom hinsvegar fram að við
gjörólíkar aðstæður væri nú að
fást þar sem bæði markaðsað-
stæður og einnig pólitísk sjón-
armið í landinu væru með allt
öðrum hætti en verið hefði fyrir
einum til tveimur áratugum. ÞI
Kjörnir fulltrúar í nefndum og ráðum svo og aðrir
sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til
að mæta á þessa fundi.
Höldum bæjarmálastarfinu skilvirku og öflugu.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
YSJÁLFSTÆÐISMENN
AKUREYRI
Bæjarmálafundir verða
haldnir eftirtalda daga:
Vandi sauðflárræktar
aðalmál fimdarins
- skiptar skoðanir um ágæti kjötmarkaðs
[ tilefni 130 ára afmælis Akureyrarbæjar
sendir Landsbankinn bæjarstjórn,
bæjarstjóra svo og öllum
Akureyringum árnaöar- og
framtíðaróskir. L‘ndÍS,'i?"nds