Dagur - 29.08.1992, Blaðsíða 24
Stofnfundur Sambands sveitarfélaga
í Norðurlandskjördæmi vestra:
Heimili og varnarþing
verður á Hvammstanga
I gær var haldinn á Hvamms-
tanga stofnfundur Sambands
sveitarfélaga í Norðurlands-
kjördæmi vestra um leið og
sambærilegt samband var
stofnað fyrir sveitarfélög í
Þórshöfn:
Búið að upplýsa
skemmdarverk
-einn tekinn grunaður
um ölvunarakstur
á Akureyri
Lögreglunni á Þórshöfn tókst
að upplýsa skemmdarverk á
bílum sem framin voru fyrir
nokkru. A Akureyri var einn
tekinn grunaður um að aka
undir áhrifum áfengis.
Sagt var frá því í Degi um
miðja síðustu viku að tíu bílar
hefðu verið skemmdir á Þórshöfn
og reynt að brjótast inn í þá.
Búið er að upplýsa málið og í ljós
kom að tveir utanbæjarpiltar 14
og 15 ára voru þar að verki.
Á fimmtudagskvöld var einn
ökumaður tekinn á Akureyri
grunaður um ölvun við akstur.
Af öðrum stöðum á Norður-
landi eystra var lítið að frétta og
voru menn helst á því að veðrið
hefði þar áhrif á. KR
Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjar-
sýslum.
Björn Sigurbjörnsson frá
Sauðárkróki, formaður undir-
búningsnefndar, setti fundinn og
síðan var samþykkt eftir margar
breytingartillögur að heimili sam-
takanna og varnarþing yrði á
Hvammstanga. Lýst var yfir
stofnun SSNV. Samkvæmt tillög-
um undirbúningsnefndar að lög-
um eiga sæti á ársþingi SSNV
fjórir fulltrúar fyrir sveitarfélag
sem hefur 2.500 íbúa og fleiri,
þrír fulltrúar fyrir sveitarfélag
sem hefur 1.000-2.499 íbúa, tveir
fulltrúar fyrir sveitarfélag sem
hefur 500-999 íbúa og einn full-
trúi fyrir sveitarfélag sem hefur
499 íbúa og færri.
Framvegis verða ársþing SSNV
haldin á sama tíma, þ.e. um mán-
aðamótin ágúst-september. Sam-
kvæmt lögum sem samþykkja átti
í gær verður ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrir SSNV.
Tillögur undirbúningsnefndar
um verkefni á fyrsta starfsári gera
ráð fyrir að m.a. verði hagsmuna
sveitarfélaganna gagnvart ríkis-
valdinu gætt í samráði við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.
Einnig á að taka þátt í umræðum
um skiptingu á fjármunum til
opinberra framkvæmda í kjör-
dæminu og unnið verður að
stefnumótun um staðsetningu á
opinberum stofnunum í kjör-
dæminu. GT
Frá aðalfundi Stéttarsambands bænda á Laugum í Reykjadal. Sjá fréttir bls. 2 og 4.
Mynd: ÞI
Hvammstangi:
Stofnfundur Eyþings
- sambands sveitarfélaga í EyjaQarðarsýslu og Þingeyjarsýslum
Á aukaþingi Fjórðungssam-
bands Norðlendinga sl. vor var
kjörin undirbúningsnefnd til
stofnunar sambands sveitarfé-
laga á Norðurlandi eystra. í
gærmorgun var stofnfundur
sambandsins, Eyþings, haldinn
á Hvammstanga.
Akureyri haustið 1994:
Þing Sambands sveitarfélaga
Á fundi sínum 14. ágúst síðast-
liðinn samþykkti stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
að næsta landsþing samtak-
anna verði haldið á Akureyri
haustið 1994. Landsþing eru
aðeins haldin einu sinni á
hverju kjörtímabili og verður
þetta í fyrsta skipti sem slíkur
fundur er haldinn utan höfuð-
borgarsvæðisins, að sögn Sig-
ríðar Stefánsdóttur, forseta
Ostakarið á Húsavíkurhöfða:
Vatnið virðist virka vel
Fyrr í sumar var sagt frá tilraun
psoriasissjúklinga á Húsavík
sem fólgin var í því að baða sig
O HELGARVEÐRIÐ
Fyrir suðaustan og austan
land er víðáttumikið lægðar-
svæði sem þokast norðaustur
og 1022 millibara hæð er yfir
Grænlandi. Búast má við
áframhaldandi norðaustanátt
um allt land, víða stinnings-
kalda eða allhvössum vindi
norðan- og vestanlands en
hægari á Suðaustur- og Aust-
urlandi. Væntanlega verður
rigning á láglendi en slydda til
fjalla. Hiti verður á bilinu 3-10
stig, hlýjast að deginum syðra.
Á sunnudag má búast við að
fari að létta til sunnan og vest-
anlands en áfram verður rign-
ing og strekkingur norðan og
austanlands.
úr steinefnaríku borholuvatni í
gömlu ostakari á Húsavíkur-
höfða. Nú er Ijóst að vatnið
virðist virka vel og psoriasis-
sjúklingar á Húsavík ánægðir
með árangurinn.
Við upphaf tilraunarinnar voru
þrír sjúklingar settir í læknis-
skoðun og myndaðir í bak og
fyrir. Búið er að taka myndir
aftur og er sjáanlegur munur.
„Fyrstu tuttugu dagana notuð-
um við eingöngu vatnið og eftir
það voru teknar af okkur
myndir," sagði Jón Ásberg
Salomonsson einn þeirra þriggja
sem taka þátt í tilrauninni og
kvaðst hann ánægður með árang-
urinn. „Síðan höfum við verið að
prófa fleira t.d. Þeistareykjaleir
og sérstakan psoriasislampa. Það
þýðir ekki annað en að prófa
allt.“ Jón Ásberg sagði óljóst
með framhaldið því varla væri
hægt að nota ostakarið í vetur
nema að byggja yfir það. KR
bæjarstjórnar Akureyrar.
Vænta má að fulltrúar sveitar-
félaga á landsþinginu verði um
600 talsins en Akureyri hefur
þegar unnið sér orðstír sem ráð-
stefnubær; í fyrra var haldið um
700 manna Lionsþing í bænum og
í október næstkomandi eru vænt-
anlegir um 800 fulltrúar á þing
Alþýðusambands íslands.
Landsþing Sambands íslenskra
sveitarfélaga verður haldið í byrj-
un september 1994 á Akureyri í
kjölfar sveitarstjórnakosninga
um vorið en venja er að nýkjörn-
ir sveitarstjórnarfulltrúar komi
saman á haustin og kjósi meðal
annars 10 manna stjórn. GT
Þegar kjörnefnd hafði sam-
þykkt kjörbréf kom í Ijós að 39
fulltrúar sveitarfélaga voru mætt-
ir eða 83% af þeim sem rétt eiga
til setu. Formaður kjörnefndar
var kjörin Guðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.
Því næst mælti Einar Njálsson,
bæjarstjóri á Húsavík, fyrir frum-
varpi til laga Eyþings og öðluðust
þau gildi þegar er stofnfundur
hafði samþykkt þau. Samkvæmt
lögunum er Eyþing „landshluta-
samtök sveitarfélaga á Norðaust-
urlandi frá Ólafsfirði að vestan til
Sauðaneshrepss að austan að
báðum meðtöldum" og er stofn-
að með tilvísun til sveitarstjórn-
arlaga.
Samkvæmt lögum Eyþings er
heimilt að ráða framkvæmda-
stjóra en ekki verður það gert
fyrst um sinn enda er ætlunin að
Eyþing verði umsvifaminna en
Fjórðungssamband Norðlend-
inga sem Iagt verður niður síð-
degis í dag. Þetta má m.a. sjá af
því að heimili og varnarþingi
Eyþings er ætlað að vera hjá for-
manni Eyþings hverju sinni.
Ólíkt eðli Eyþings og Fjórð-
ungsþings má einnig sjá á því að
sveitarfélögin greiða sjálf kostn-
að aðalfundarfulltrúa.
Samkvæmt lagafrumvarpi eiga
rétt til setu á aðalfundi einn full-
trúi fyrir sveitarfélög fyrir 300
íbúa eða færri, tveir fulltrúar fyr-
ir sveitarfélög með 301-1.500
íbúa, þrír fyrir sveitarfélög með
allt að 2.500 íbúum og fjórir fyrir
sveitarfélög með allt að 5.000
íbúum. Eftir það bætist einn full-
trúi við fyrir hverja 5.000 íbúa.
Töluverðar umræður urðu um
fjölda fulltrúa. „Ákveðin byggða-
stefna er í því fólgin að tryggja
rétt minni sveitarfélaga þótt ekki
þurfi það að gerast á kostnað
hinna stærri," sagði Einar Njáls-
son varðandi fjölda fulltrúa á
aðalfundi miðað við íbúafjölda í
sveitarfélögum.
Samkvæmt breytingartillögu
Jónasar Vigfússonar í Hrísey var
gert ráð fyrir að aðalfundir
Eyþings yrðu opnir íbúum á
starfssvæði sambandsins. Nokk-
uð var rætt um hvort alþingis-
menn í Norðurlandskjördæmi
eystra ættu að eiga rétt til áheyrn-
ar eingöngu eða hvort þeir skyldu
hafa málfrelsi og tillögurétt, enda
mundu menn Fjórðungsþing á
Sauðárkróki, en bent var á að þar
hefðu það verið alþingismenn úr
Norðurlandskjördæmi vestra sem
hefðu verið málglaðastir. GT
Fyrsta holan í Hólsgerði gaf
yfir 60 gráðu heitt vatn
Fyrsta rannsóknarholan sem
boruð er á þessu hausti í landi
Hólsgerðis í Eyjafjarðarsveit
gefur af sér 5 sekúndulítra af
61 gráðu heitu vatni. Fjórar
rannsóknarholur höfðu verið
boraðar á svæðinu í fyrrasum-
ar og í vor fór fram viðnáms-
mæling og að fengnum niður-
stöðum úr henni mælti Orku-
stofnun með að bora fjórar
rannsóknarholur til viðbótar.
Fyrsta holan sem nú var boruð
gaf þetta vatnsmagn af sér á inn-
an við 50 metra dýpi og þykir hún
auka enn á bjartsýni á fyrirætlan-
ir um hitaveitu fyrir fremsta hluta
sveitarfélagsins.
„Þetta er mjög áhugavert og
þarna virðist vera hiti á stóru
svæði. En þetta er erfitt svæði að
leita á,“ sagði Pétur Þór Jónas-
son, sveitarstjóri Eyjafjarðar-
sveitar í samtali við blaðið í gær.
Sveitarfélagið stendur ásamt níu
bændum að heitavatnsleitinni í
Hólsgerði og aðspurður um fram-
haldið segist Pétur Þór fastlega
reikna með að boraðar verði
nokkrar holur í þessari lotu til að
afmarka það svæði endanlega
sem hiti er í. JÓH