Dagur - 15.09.1992, Síða 5
Þriðjudagur 15. september 1992 - DAGUR - 5
Fra formlegri opnun söluskrifstofunnar á Akurcyri. F.v. Anna Guðmundsdóttir, sölustjóri, þa vinningshafarmr
Ingibjörg Tryggvadóttir og Björk Viðarsdóttir og starfsstúlkurnar Sigríður Sigtryggsdóttir, Guðlaug Ringsted og
Sigríður Hjartardóttir. Mynd: Golli
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn:
Opnar söluskrifstofu á Akureyri
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
hefur opnað söluskrifstofu á
Akureyri. Til þessa hefur
Ferðaskrifstofa Akureyrar haft
með höndum umboð Úrvals-
Útsýnar í bænum en nú hefur
fyrirtækið hafið sjálfstæða
starfsemi.
Söluskrifstofa Úrvals-Útsýnar
hefur verið tengd móðurtölvu
ferðaskrifstofunnar og getur
starfsfólk því gefið nákvæmar
upplýsingar úm ferðamöguleika í
viðurvist viðskiptavina. Úrval-
Útsýn vill sérstaklega,, þakka
Gísla Jónssyni, framkvæmda-
stjóra Ferðaskrifstofu Akureyrar,
fyrir góða samvinnu undanfarin
ár en breytingar þær sem nú eru
kynntar, voru framkvæmdar í
nánu samstarfi við hann.
Starfsfólk FA mun starfa
áfram hjá Úrval-Útsýn og
afgreiðslustjóri söluskrifstofunnar
á Akureyri er Anna Guðmunds-
dóttir.
í tilefni af formlegri opnun
söluskrifstofunnar á Akureyri
dró fyrirtækið út nöfn tveggja
farþega sem bókað höfðu ferð til
Edinborgar beint frá Akureyri.
Þær Björk Viðarsdóttir, Helga-
magrastræti 40 og Ingibjörg
Tryggvadóttir, Hafnarstræti 88,
voru þær heppnu og fengu and-
virði Edinborgarferðarinnar
endurgreitt að fullu.
Einnig afhenti Anna Guð-
mundsdóttir forsvarsmanni Félags
eldri borgara, Aðalsteini Óskars-
syni, ferðavinning fyrir tvo til
Kanaríeyja með Urvali-Útsýn en
vinninginn hefur félagið til
frjálsrar ráðstöfunar.
Þess skal að lokum getið að
Úrval-Útsýn mun greiða Akur-
eyrarbæ aðstöðugjald af þeirri
starfsemi ferðaskrifstofunnar
sem fram fer á Akureyri.
(Úr fréttatilkynningu)
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju:
„Mömmumorgnar“ heíjast að nýju
tátiljur og
legghlífar
í marsmánuði 1991 var hleypt af
stokkunum nýstárlegri starfsemi í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Þar var um að ræða eins
konar opið hús á miðvikudags-
morgnum þar sem foreldrar gátu
komið með börn sín og dvalið
með þeim í safnaðarheimilinu í
tvo tíma. Fyrirfram var gert ráð
fyrir að það yrðu einkanlega
mæðurnar sem nýttu sér þctta og
kom það á daginn. Starfsemin
hlaut því nafnið „mömmumorgn-
ar“.
Fyrirhugað er að „mömmu-
morgnarnir" hefjist að nýju í
þessari viku eftir sumarhlé og
verði á dagskrá á miðvikudögum
frá kl. 10.00-12.00 flestar vikur í
vetur. Ekkert aldurstakmark er,
og má sem dæmi nefna að síðast-
liðinn vetur komu börn frá 3ja
vikna aldri og upp í 11 ára með
mömmu sinni eða jafnvel ömmu.
Gert er ráð fyrir að öðru
hverju verði fengnir sérfræðingar
til að fjalla um ýmislegt er varðar
börn, barnauppeldi, heintilið og
fjölskylduna. Þess á milli verða
„frjálsir tímar“.
I safnaðarheimilinu er ágæt
leikaðstaða fyrir börnin og tals-
vert af leikföngum, þannig að
börnunum ætti ekki að leiðast.
Eins og síðastliðinn vetur leggur
Akureyrarkirkja til aðstöðuna,
kaffi og te fyrir foreldrana og
djús handa börnunum en skipu-
„Möinmumorgnar“ eru ætlaðir börnum á öllum aldri og foreldrum þeirra.
Mynd: Golli
lag og framkvæmd starfseminnar
er alfarið í höndum foreldra
barnanna.
Fyrsti „mömmumorgunn“ vetr-
arins verður sem sagt í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á morg-
un kl. 10.00-12.00 og eru foreldr-
ar á Akureyri hvattir til að mæta
með börn sín og taka þátt í starf-
inu.
Úrval af
íþrótta-
skóm
Já! Ekki öðruvísi...
Eins og flestir vita, stendur yfir áskrift-
arherferð og kynning á blaðinu okkar á
Norðurlandi, svo nú er blaðinu dreift í
stórauknu upplagi.
Við á auglýsingadeild viljum vekja
athygli á þessu.
Skilafrestur auglýsinga er til kl. 11.00
daginn fyrir útgáfudag, nema í helgar-
blaðið, skilafrestur í það blað er til kl.
14.00 á fimmtudögum.
auglýsingadeild
sími 24222.
Opið frá kl. 08.00-17.00 virka daga nema
föstudaga frá kl. 08.00-16.00.
Einnig er opið í hádeginu.