Dagur - 15.09.1992, Side 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 15. september 1992
ENSKA KNATTSPYRNAN______________________________________Þorleifur Ananíasson
Litli Jón afgreiddi Iiverpool
- vantar einhvern Hróa hött í sóknarleik Forest
- allt tekst hjá Norwich og Mark Robins þessa dagana
Neville Southall markvörður Everton ver hér frá Mark Hughcs miðherja Man. Utd., en varð þó að sækja boltann
tvívegis í netið.
Enn láta liðin sem svo óvænt
hafa setið í efstu sætum Úr-
valsdeildarinnar engan bilbug
Úrslit
Úrvalsdeildin
Arsenal-Blackburn 0:1
Chelsea-Norwich 2:3
Crystal Palace-Oldham 2:2
Everton-Manchester Utd. 0:2
Ipswich-Wimbledon 2:1
Manchester City-Middlesbrough 0:1
Nottingham For.-Sheffield Wed. 1:2
Sheffield Utd.-Liverpool 1:0
Southumpton-Q.P.R. 1:2
Lceds Utd.-Aston Villa 1:1
Coventry-Tottenham inánud.
1. deild
Barnsley-Derby 1:1
Bristol City-Southend 0:1
Charlton-Cambridge 0:0
Millwall-Birmingham 0:0
Newcastle-Portsmouth 3:1
Oxford-Sunderland 0:1
Petcrborough-West Ham 1:3
Swindon-Bristol Rovers 2:2
Tranmere-Grimsby 1:1
Watford-Notts County 1:3
Brentford-Luton 1:2
Leicester-Wolves 0:0
Staðan
Úrvalsdeild
Norwich 8 6-1-1 17:11 19
Blackburn 7 5-2-0 12: 4 17
Man. Utd. 8 5-1-2 10: 6 16
Coventry 7 5-0-2 9: 6 15
QPR 8 4-3-1 10: 6 15
Ipswicli 8 2-6-0 10: 8 12
Man. City 8 3-2-3 11: 9 11
Middlesbrough 7 3-1-3 12: 8 10
Aston Villa 8 24-2 10: 8 10
Arsenal 8 3-14 10:10 10
Tottenham 7 2-3-2 7:11 9
Leeds 8 2-4-214:13 9
Chelsea 8 2-3-312:11 9
Everton 7 2-3-2 7: 6 9
Liverpool 8 2-3-3 9:11 9
Oldham 81-5-2 14:15 8
Sheff. Utd. 8 2-1-5 8:15 7
Sheff. Wed. 81-3-410:14 6
Southampton 8 1-34 6:10 6
Wimbledon 81-2-5 8:12 5
Crystal Palace 8 0-5-310:10 4
Nottingham Forest 71-0-6 7:18 3
1. deild
Newcastle 6 6-0-0 14: 5 18
Charlton 7 5-2-0 11: 2 17
Wolves 7 4-3-0 12: 5 15
Birmingham 6 4-1-1 8: 5 13
Swindon 6 3-2-1 14:10 11
Leicester 7 3-2-2 8:10 11
West Ham 5 3-0-2 6: 5 9
Bristol City 5 2-2-1 10: 7 8
Tranmere 5 2-2-1 8: 6 8
Millwall 5 2-2-1 6: 5 8
Notts County 6 2-1-3 9: 9 7
Watford 6 2-1-3 9:10 7
Sunderland 5 2-1-2 7: 9 7
Portsmouth 6 2-1-3 6:11 7
Peterborough 5 2-0-3 7:10 6
Brcntford 6 2-0-4 8: 9 6
Oxford United 5 1-2-2 4: 6 5
Grimshy 5 1-2-2 7: 9 5
Barnsley 6 1-2-3 4: 5 5
Cainbridge United 61-14 2:10 4
Bristol Rovers 7 1-1-5 11:17 4
Southend 51-04 6: 9 3
Luton 6 0-24 5:12 2
Derby 6 0-24 7:11 2
á sér finna og halda sínu striki
eftir leiki helgarinnar. Lið
Manchester Utd. sem var svo
óheppið að missa af meistara-
titlinum í fyrra sækir hins veg-
ar á og virðist til alls líklegt á
meðan Arsenal nær ekki að
koma lagi á leik sinn. En þá
eru það leikir laugardagsins.
■ Norwich vann heppnissigur á
útivelli gegn Chelsea eftir að hafa
lent 2:0 undir. Þeir voru sei.nir til
leiks þar sem bifreið liðsins bilaði
á ieiðinni til Lundúna og hófu
leikinn án þess að hita upp. Strax
á 2. mín. þrumaði Dave Beasant
markvörður Chelsea fram og
Robert Fleck sem áður lék með
Norwich renndi boltanum fram-
hjá Bryan Gunn markverði
Norwich. Hann fékk þó ekki
markið því Mick Harford kom
aðvífandi og þrumaði boltanum
yfir marklínuna. Chelsea lék
mjög vel og enginn betur en
Fleck, en það var þó Dennis
Wise sem lagði upp síðara mark
Chelsea fyrir Andy Townsend og
liðið hafði yfir 2:0 í hálfleik og
sigurinn virtist í höfn. Strax á 1.
mín. síðari hálfleiks lagaði Mark
Robins stöðuna fyrir Norwich
eftir sendingu Ian Culverhouse
og Beasant í ntarki Chelsea
missti misheppnað skot hans í
netið. Robins jafnaði síðan fyrir
Norwich 2:2 eftir sendingu Rob
Newman með lausu innanfótar-
skoti. Sigurmarkið var þó ódýrast
af þeim öllunt, 8 mín. eftir af
leiknum og David PhiIIips reyndi
skot af um 20 metra færi sem fór
af Beasant í markið. Áhorfendur
bauluðu á Beasant er hann yfir-
gaf völlinn að Ieik loknum og víst
má með réttu kenna honum um
tapið, en heppni Norwich heldur
áfram.
■ Lið Man. Utd. virðist mjög
sterkt um þessar mundir, sigrar í
A sunnudag mættust Eng-
landsmeistarar Leeds Utd. og
Aston Villa á Elland Road.
Eftir mikla og harða baráttu
urðu liðin að sættast á jafntefli
1-1 og eru sennilega bæði held-
ur óánægð með þau úrslit.
Mikill hraði og gífurleg barátta
var í leiknum og mikið af mark-
tækifærum, áhorfendur fengu því
nóg fyrir peningana sína. En það
sem á vantaði var að menn gæfu
sér betri tíma og vönduðu það
sem þeir voru að gera. Paul
McGrath lék mjög vel í vörn
Villa og Eric Cantona sýndi oft
mjög góð tilþrif í sókninni hjá
Leeds Utd. Rétt fyrir hlé átti
hann viðstöðulaust skot að marki
Villa sem Nigel Spink varði glæsi-
lega. En þá hafði Villa tekið for-
ystuna með marki Garry Parker í
stöng og inn eftir góðan undir-
búning Ray Houghton á 18. mín.
Stuttu síðar bjargaði Parker með
skalla á marklínu og tvívegis í
síðari hálfleik björguðu Hough-
ton og McGrath á línu, auk þess
sem Spink varði mjög vel frá
Scott Sellars. Það virtist því allt
stefna í tap meistaranna, en er 5
mín. voru til leiksloka fékk Steve
Hodge sem komið hafði inná sem
varamaður hjá Leeds Utd. óvænt
boltann óvaldaður innan víta-
hverjum leiknum á eftir öðrum
og fær varia mark á sig. Góður
sigur vannst á útivelli gegn Ever-
ton og þann sigur getur liðið
þakkað góðum varnarleik og
fljótum framherjum. Brian
McClair náði forystu fyrir Man.
Utd. á 29. mín. eftir góða send-
ingu frá Mark Hughes. Liðið
tryggði sér síðan sigurinn 13 mín.
fyrir leikslok með öðru markinu
sem Steve Bruce skoraði af
öryggi úr vítaspyrnu eftir að
Andrei Kanchelskis hafði sloppið
í gegnurn vörn Everton eftir
sendingu McClair og Neville
Southall markvörður Everton
hafði brotið á honum. En Ever-
ton barðist vel og á milli marka
Utd. fékk liðið færi á að jafna,
Peter Beardsley átti skot í hliðar-
netið, Mo Johnston misnotaði
gott færi og John Ebbrell skaut
naumlega framhjá. Allir hefðu
þeir hæglega getað skorað, en
þrátt fyrir að liðið leiki létta og
skemmtilega knattspyrnu vantar
brodd í sóknarleikinn og sigur
teigs og skoraði af öryggi jöfn-
unarmark Leeds Utd. Eins og í
leiknum gegn Liverpool á dögun-
um mátti ekki tæpara standa fyrir
meistarana að verjast tapi á
heimavelli, en liðið hefur ekki
tapað deildaleik á heimavelli
mjög lengi. Coventry og Totten-
ham léku síðan á mánudags-
kvöldið í leik sem sýndur var
beint í gervihnattasjónvarpi og
lágu úrslit ekki fyrir er blaðið fór
í prentun.
I ' , , &' =t
Steve Hodge kom inná hjá Leeds
Utd. gegn Aston Villa og jafnaði á
elleftu stundu.
Utd. var sanngjarn.
■ Ekkert lát er á óheppni Nott-
ingham For. og lánleysi sóknar-
manna liðsins er algert. Þeim
veitti ekki af hæfileika Hróa hatt-
ar að hitta það sem þeir miða á,
en Hrói höttur var um langt skeið
meistaraskytta í nágrenni Nott-
ingham hér áður fyrr. Sem fyrr
lék Forest vel í fyrri hálfleik gegn
Sheff. Wed. og Stuart Pearce var
þrívegis nærri því að skora fyrir
liðið á 5 mín. kafla og Nigel
Clough átti stórleik. En sjálfs-
traustið fór síðan þverrandi er
ekki tókst að skora og Sheffield
menn gengu á lagið. Paul War-
hurst náði síðan forystu fyrir
Sheff. Wed. rétt fyrir hlé eftir
frábæran undirbúning Chris
Waddle. Graham Hyde bætti síð-
an öðru marki við fyrir Sheff.
Wed. eftir klukkutíma leik. For-
est náði aftur undirtökunum eftir
það, en tókst aðeins að laga
stöðuna með marki Gary Bann-
ister undir lokin.
■ Sú var tíðin að það var dauða-
dómur fyrir lið að skora snemma
gegn Liverpool og var aðeins til
að efla liðið. En það er liðin tíð
og eftir mark Adrian Littlejohn
fyrir Sheffield Utd. á 4. mín. virt-
ist Liverpool aldrei hafa mögu-
leika. Ekki vantar baráttuna í
liðið, en hæfileikarnir eru ein-
faldlega ekki þeir sömu og áður.
Einstaklingarnir eru sterkir, en
samstaðan sem áður var sterkasta
vopnið er ekki til staðar nú. Þetta
var fyrsta mark Littlejohn fyrir
Sheff. Utd., gott skot eftir að
hann hafði stungið sér á milli
þeirra Mark Wright og David
Burrows. Mark Walters og Paul
Stewart áttu góð langskot fyrir
Liverpool, en sigur Sheff. Utd.
var ekki í hættu og Carl Brad-
shaw og Dane Whitehouse hefðu
átt að bæta við mörkum fyrir lið-
ið auk þess sem Brian Deane átti
skalla í þverslá.
■ Leikmenn Southampton voru
niðurbrotnir í leikslok eftir að
Q.P.R. hafði rænt þá stigunum
úr leik liðanna. Southampton átti
leikinn, Dave Speedie misnotaði
dauðafæri og tvívegis var bjargað
naumlega hættulegum skallabolt-
um frá Ken Monkou áður en
Matthew Le Tissier náði forystu
fyrir liðið á 11. mín. með góðu
marki. En Q.P.R. sem ekki hafði
fengið svo mikið sem hornspyrnu
bætti í hraðann í síðari hálfleik
og sneri töpuðum leik í sigur með
tveim mörkum á þrem mín.
Andy Sinton jafnaði á 53. mín.
úr aukaspyrnu af löngu færi og
Justin Channing skoraði sigur-
markið eftir sendingu Les Ferdin-
and. Þetta voru einu skot Q.P.R.
sem hittu á markið hjá Sout-
hampton, en það gildir að nota
færin.
■ Lélegasti leikur laugardagsins
í Úrvalsdeildinni var leikur
Arsenal á heimavelli gegn
Blackburn, mikil harka og þóf og
John „Faxi“ Jensen var sem naut
í flagi á miðjunni hjá Arsenal.
Ekkert virtist geta komið í veg
fyrir markalaust jafntefli, en í
síðari hálfleik tókst Mike Newell
að skora sigurmark Blackburn og
kom markið uppúr nánast engu.
Byrjunin er því ákaflega slæm
hjá Arsenal, en að sama skapi
góð hjá Blackburn þrátt fyrir
frammistöðuna í leiknum.
■ Crystal Palace keypti í vik-
unni Chris Armstrong fyrir £1
milljón frá Millwall og hann byrj-
aði vel, skoraði bæði mörk Pal-
ace í 2:2 jafnteflinu gegn
Oldham. Ian Olney náði foryst-
unni fyrir Oldham í leiknum og
Graeme Sharp jafnaði síðan und-
ir lokin.
■ Ipswich vann góðan sigur á
heimavelli gegn Wimbledon 2:1
og skoraði Mide Stockwell bæði
mörk Iiðsins. Dean Holdsworth
jafnaði 1:1 fyrir Wimbledon með
skalla eftir að John Fashanu
hafði skallað boltann til hans.
■ Nýliðar Middlesbrough komu
verulega á óvart og náðu að sigra
hið sterka lið Manchester City á
útivelli. Þeir fengu þó aðstoð því
eina mark leiksins var sjálfsmark
Gary Flitcroft leikmanns Man.
City, en frammistaða Middles-
brough í deildinni er góð.
1. deild
■ Newcastle undir stjórn Kevin
Keegan hefur ekki tapað stigi til
þessa og er í efsta sæti deildarinn-
ar. Liðið sem vill fá Guðna
Bergsson til liðs við sig sigraði
Portsmouth af öryggi 3:1. Mick
Quinn skoraði tvö og David
Kelly eitt, en eina mark Ports-
rnouth gerði Guy Whittingham.
■ Ian Benjamin skoraði sigur-
mark Southend gegn Bristol
City.
■ Léleg frammistaða Derby hef-
ur komið mjög á óvart, en liðið
náði þó jöfnu gegn Barnsley er
Paul Kitson jafnaði eftir að Andy
Rammell hafði komið Barnsley
yfir.
■ Trevor Morley, Martin Allen
og Kevin Keen skoruðu mörkin
fyrir West Ham gegn Peter-
borough.
■ Pat Nevin kom Tranmere yfir
gegn Grimsby, en það dugði ekki
til sigurs og leikmenn Grimsby
jöfnuðu áður en yfir lauk.
Þ.L.A.
Tæpt hjá Leeds Utd.
gegn Aston Villa