Dagur - 15.09.1992, Síða 16
II
Kodak ^
Express
Gæöaframköllun
FYRIR ÞA SEM GERA KROFUR
^ ^Peóíomyndir^
Skipagötu 16 - Sími 23520
Um 40 fengu atvinnuleysisbætur á
Siglufirði 17. ágúst til 4. september:
Eðli atvirmuleysis hér
á landi að verða
eins og í Evrópu
- segir Kolbeinn Friðbjarnarson
„Atvinnuleysi hér áður fyrr
var tímabundið og staðbundið.
Nú skiptir ekki máli hvar borið
er niður, það er allsstaðar orð-
ið varanlegt atvinnuleysi allt
árið. Mér sýnist því að eðli
atvinnuleysis sé að verða ann-
að og líkara því sem þekkt er
niður í Evrópu, þ.e. að fastur
hluti atvinnubærra manna sé
án atvinnu, með öllum þeim
hörmungum sem því fylgir,“
sagði Kolbeinn Friðbjarnar-
son, hjá Verkalýðsfélaginu
Vöku á Sigiufirði.
Fyrir tímabilið 17. ágúst til 4.
september sl. fengu 38 greiddar
atvinnuleysisbætur hjá Verkalýðs-
félaginu Vöku á Siglufirði. Kol-
beinn segir að í þessum hópi séu
meðal annars sjómenn, vöru-
flutningabílstjórar og verkafólk
sem komið er yfir sextugt. Þá hafi
fólk innan við tvítugt fengið
greiddar bætur. Hann segir að fólk
sem komið er yfir sextugt og missi
þá atvinnuna eigi núorðið mjög
erfitt með að fá vinnu á nýjan
leik. „Petta á fyrst og fremst við
um verkafólk," segir Kolbeinn.
Kolbeinn segir að tala fólks á
atvinnuleysisskrá hafi verið nokk-
uð svipuð undanfarin misseri, á
bilinu 30 til 60. „Þetta hefur verið
svona frá árinu 1989 og ég sé ekki
að það sé neitt að birta til í þess-
um efnum. Það virðist vera orðið
varanlegt atvinnuleysi og ef
eitthvað er þyngist það í vetur, “
sagði Kolbeinn.
Stundum er talað um eðlilegt
eða náttúrulegt atvinnuleysi
vegna tilfærslna fólks á milli
starfa, en Kolbeinn segir að í sín-
um huga sé atvinnuleysi aldrei
eðlilegt. „Ég tel það frekar eðli-
legt ástand þegar er umframeft-
irspurn eftir fólki í vinnu. Frá því
um 1970 til 1988 eða 1989 var
atvinnuleysi nánast óþekkt hér á
Siglufirði og frekar umframeft-
irspurn eftir vinnuafli. Það var að
mínu mati eðlilegt ástand,“ sagði
Kolbeinn. óþh
Blönduós:
Boðuðu verkfaJIi
frestað um viku
- samningafundur fyrirhugaður á fimmtudag
Verkalýðsfélag Austur-Hún-
vetninga hefur frestað boðuðu
verkfalli um viku en það átti að
hefjast í gær. Eins og skýrt var
frá tókust samningar á milli
verkalýðsfélagsins og Sölufé-
Iags Austur-Húnvetninga fyrir
helgi og kom því ekki til verk-
falls hjá sláturhúsinu og mjólk-
ursamlaginu á Blönduósi.
Að sögn Valdimars Guð-
mannssonar, formanns Verka-
lýðsfélags Austur-Húnvetninga,
hefur verið boðaður fundur deilu-
aðila næstkomandi fimmtudag en
ekkert hefur miðað í samkomu-
lagsátt hingað til. Eftir að samið
var við Sölufélagið nær boðað
verkfall meðal annars til rækju-
vinnslunnar Særúnar, Húnfjörðs
auk nokkurra smærri fyrirtækja.
ÞI
Súkkulaðiverksmiðjan
Linda:
Greiðslustöðvun
í tvo mánuði
- unnið að sölu fasteigna
og öflunar nýs hlutajár
Súkkulaðiverksmiðjan Linda á
Akureyri fékk í gær greiðslu-
stöðvun til 10. nóvember næst-
komandi. Verksmiðjan hefur
verið í greiðslustöðvun síðustu
þrjár vikur.
O VEÐRIÐ
Áframhaldandi norðanátt,
svalt og hætt við næturfrosti
voru skilaboð Veðurstofunnar
fyrir daginn í dag. Um 995 mb.
lægð var um 200 km. norð-
austur af Langanesi og um
1020 mb. hæð yfir Grænlandi.
í dag er gert ráð fyrir norðan
golu eða kalda með lítilsháttar
rigningu og slyddu til fjalla á
Noröur- og Austurlandi. Hiti á
landinu verður á bilinu 4 til 12
stig yfir daginn en fer niður
undir frostmark í nótt.
Linda fékk greiðslustöðvun 20.
ágúst síðastliðinn og þá til þriggja
vikna. Á þessum tíma átti að
kynna skuldhöfum aðgerðir sem
ráðast á í til lausnar fjárhags-
vanda fyrirtækisins og var það gert
í síðustu viku. Engin athugasemd
var gerð af hálfu skuldhafanna og
því var málið lagt fyrir Héraðs-
dóm Norðurlands eystra og veitti
hann fyrirtækinu í gær greiðslu-
stöðvun til tveggja mánaða. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins fel-
ast væntanlegar aðgerðir í sölu
fasteigna og öflun nýs hlutafjár.
JÓH
,Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur'
Tungurétt í Svarfaðardal.
Norðan beljandi og úrkoma á gangnamenn í Fjörðum:
Meðalfallþungi líklega minni
en á síðasta hausti
„Þessum göngum má lýsa meö
því aö segja að það var slydda
og kuldi á öllu leitarsvæðinu
og snjór í fjöllum og eitthvað
af fé hefur komið niður en ég
er ekki viss um að fjárskaðar
hafi orðið meiri hér eftir júní-
hretið en þá kom í ljós,“ sagði
Jón Stefánsson bóndi að
Gönguskörðum í Skagafírði.
Göngur gengu mjög vel á
Tröllaskaga en gengið var á
föstudag og laugardag og réttað í
Tungurétt í Svarfaðardal um
hádegið á laugardag. Veður var
miklu skaplegra en það hafði ver-
ið dagan þar á undan en að vísu
rigndi nokkuð en ekki til veru-
legra trafala. Fé var lítið komið
niður, hélt sig mjög víða upp í
snjórönd. Um þúsund fjár var í
Tungurétt og er heldur að fjölga
aftur eftir að allt sauðfé var skor-
ið niður í Svarfaðar- og Skíðadal
vegna riðuveiki. Sláturfé úr
Svarfaðardal fjölgar mjög milli
ára, er nú um þrefalt fleira en
haustið 1991 en jöá var fyrst slátr-
að að einhverju marki eftir niður-
skurðinn.
Gangnamenn úr Höfðahverfi
hrepptu afleitt veður í Fjörðum,
norðan beljandi og úrkoma allan
tímann og skyggni lítið enda var
talað um það í réttunum að
heimtur væru mjög daprar og
lömbin rýrari en í fyrra. Ekki
fannst neitt fleira af dauðu fé eft-
ir áhlaupið sem gerði seinni hluta
júnímánaðar enda sáu gangna-
menn lítið frá sér og fóru eins lít-
ið um og þeir frekast máttu.
Mjög vetrarlegt er nú orðið
víða, t.d. er Leirdalur alhvítur og
eins og um hávetur að litast inn á
Þjófadal.
Óli Valdimarsson sláturhús-
stjóri segir að við fyrstu skoðun
virðist svo sem meðalfallþungi
verði minni en í fyrra en þá var
hann mjög góður, 15,4 kg, og lík-
ur á að hann fari allt niður í 14,5
kg-
Fé virðist hafa farið einna verst
í utanverðum Fnjóskadal og í
Höfðahverfi á veðuráhlaupið í
júní þar stærstan hlut að máli.
Hins vegar telur Óli nokkuð
snemmt að segja til um það því
Kindakjöt:
Salan langt imifram áætlun
Sala kindakjöts dróst ekkert
saman milli verðlagsáranna
1990/1991 og 1991/1992. Bæði
árin seldust tæp 8.400 tonn.
Þetta þýðir að birgðastaða
kindakjöts er nú mun betri en
hún var við síðustu verðlags-
áramót, eða um 300 tonn nú í
stað 1400 tonna 1. september í
fyrra.
Þetta er niðurstaða af bráða-
birgðauppgjöri sem nú liggur
fyrir. Um tíma voru horfur á að
sala á kindakjöti drægist saman
um 500 tonn milli ára en talið er
að birgðalækkunina megi rekja
til aukinnar sölu til verslana og
þess að aðilár í kjötvinnslu hafi
leitast við að birgja sig upp af
kindakjöti áður en nýr búvöru-
samningur gekk í gildi.
Með þessari kerfisbreytingu
sem varð um mánaðamótin féll
verðábyrgð ríkissjóðs niður og
framleiðsla og sala sauðfjár-
afurða og mjólkurafurða verður
framvegis á ábyrgð bænda og
afurðastöðva. Liður í þessum
breytingum er að birgðastaða
kindakjöts væri að hámarki 500
tonn þegar verðábyrgðin félli
niður og allt kindakjöt umfram
það flutt út. Ljóst er því að ekki
kemur til þessa. JÓH
t.d. sé ekkert fé ennþá komið til
slátrunar úr utanverðum Eyja-
firði. Hæsti meðalþungi hjá Slát-
urhúsi KEA var í fyrra úr Svarf-
aðardal, en fyrstu lömbin koma
ekki þaðan til slátrunar fyrr en á
föstudag. GG
Framhaldsskólinn
á Húsavík:
Fimm ára
afmæli í dag
í dag eru fímm ár liðin síðan
Framhaldsskólinn á Húsavík
var settur fyrsta sinn. Á þess-
um árum hefur nemendum
skólans fjölgað mikið og hratt,
fyrsta árið voru þeir 44 en eru
188 í haust.
í tilefni afmælisins verða
haldnir tónleikar í sal barnaskól-
ans í kvöld. Þar leikur Jónas Ingi-
mundarson á píanó en allir
bæjarbúar eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Jónas Ingimundarson mun
koma í skólann, leika fyrir
nemendur og spalla við þá um
tónlist kl. 10 árdegis. Vegleg
afmælisterta verður á borðum og
ávörp flutt, að viðstöddum
nemendum og kennurum, og
einnig eru allir velunnarar skól-
ans velkomnir.
Öll gömul skólaspjöld sem til
eru og tengjast sögu unglinga-
fræðslu á Húsavík allt frá 1906
hafa verið hengd upp í göngum
skólans. Þetta eru spjöld frá Lýð-
skóla Benedikts Björnssonar,
Gagnfræðaskóla Húsavíkur og
Framhaldsskólanum á Húsavík.
Fram fer samkeppni milli nem-
enda skólans um hverjir geta
fundið flesta frændur á spjöldun-
um, þremenninga eða skyldari. Sá
sem finnur flest ættmenni sigr-
ar og hlýtur sæmdarheitið; Þing-
eyingur Framhaldsskólans á
Húsavík 1992-93. IM