Dagur - 23.12.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 23.12.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992 Verslun með vandaðar vörur 5% staðgreiðsluafsláttur 3% aukaafsláttur af þvottavélum til jóla Kaffivélar frá kr. 2.640 Straujárn frá kr. 2.990 Braun hrærivél kr. 9.000 Philips hrærivél kr. 14.800 . 1961-1992 Litg a6*kr. Oseyri 6 • Næg bílastæði Ingvi R. Jóhannsson rafvirkjameistari Símar 26383 & 24223 Bridgefélag Akureyrar íslandsbankamót Hið árlega jólamót íslandsbanka og Bridgefélags Akureyrar fer fram í Verkmenntaskólanum sunnudaginn 27. desember. Spilaður verður Mitchell tvímenningur. Mótið hefst kl. 10.00 og þarf skráningu að vera lokið 15 mínútum fyrr. íslandsbanki gefur vegleg verðlaun sem afhent verða í mótslok. Þátttökutilkynningar berist til Páls Jónssonar (hs. 21695, vs: 25200) eða Hermanns Tómassonar í síma 26196. Þátttökugjald er kr. 1000 á spilara. Takið effir! IMilli jóla og nýórs koma út tvö blöð, þriðjudaginn 29. og miðvikudaginn 30. desember. Skilafrestur auglýsinga í þriðjudagsblaðið er til kl. 11.00 mönudaginn 28. desember en fyrir miðvikudagsblaðið er skilafrestur auglýsinga til kl. 11.00 þriðjudaginn 29. desember. ♦ Fyrsta blað ö nýju öri kemur út þriðjudag- inn 5. janúar. auglýsingadeild, sfmi 24222. Jólastenuniimg í Lundarseli Á morgun ganga jólin í garð. „Loksins, ioksins," segja börnin, sem hafa beðið eftir hátíðinni miklu með óþreyju, enda jólin öðru fremur þeirra hátíð. Síðustu daga hafa margir tekið forskot á sæluna og haldið „Litlu jólin“ hátíðleg. Jólasveinarnir hafa haft í mörg horn að líta og staðið vakt allan sólarhringinn. Á nóttunni fara þeir um allt og setja eitthvað fallegt í skóinn hjá börn- unum en á daginn fara þeir í heimsóknir í skóla, sjúkrastofn- anir, fyrirtæki, verslanir og aðra þá staði, þar sem nærveru þeirra er óskað. í liðinni viku heimsóttu þeir félagar Hurðaskellir og Kjöt- krókur börnin í leikskólanum Lundarseli á Akureyri. Þar skein einlægni, gleði - og á stundum undrun - úr hverju andliti og félögunum tveimur var vel fagnað. Þeir sungu og sprelluðu með börnunum og færðu þeim loks gjafir að skilnaði áður en þeir héldu áfram för sinni um mannheima. Á meðfylgjandi myndum er gerð tilraun til að festa stemmninguna á filmu. Sögufélag Skagfirðinga: SkagÐrzkar æviskrár VI. og Skagfirðingabók Út er komið VI. bindi Skag- fírzkra æviskráa sem Sögufélag Skagfirðinga gefur út. Sömu- leiðis rit félagsins, Skagfirð- ingabók, en það er 21. árgang- ur ritsins. Skagfirzkar æviskrár eru í bókaflokknum Skagfirzk fræði. VI. bindið fjallar um tímabilið 1850-1890. Aðalhöfundur Guðmundur Sigurður Jóhanns er son, en Hjalti Pálsson sá um útgáfuna. Bókin er 432 bls. að stærð og er útgáfan styrkt af ýms- um aðilum, m.a. Sauðárkróksbæ og sveitarsjóðum hreppanna í Skagafirði. í 21. árg. Skagfirðingabókar, riti Sögufélagsins, eru sjö þættir eftir jafnmarga höfunda. Þættirn- ir eru eftirtaldir: Björn Þorkels- son á Sveinsstöðum eftir Björn Egilsson, Við hljóma Stafnsréttar eftir Magnús H. Gíslason, Um legsteina í Hóladómkirkju eftir Sigurjón P. ísaksson, Vöð á Hér- aðsvötnum eftir Stefán Jónsson, Þjóðsagan um Mannskaðahól eftir Axel Þorsteinsson, Gangna- minning eftir Þorbjörn Kristins- son og Minningarbrot úr Stíflu eftir Pál Sigurðsson. Ritið er 232 bls. og myndskreytt. sþ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.