Dagur - 23.12.1992, Blaðsíða 15
Efst íhuga
Svavar Ottesen
Ókeypis súpa og brauð
í henni Reykjavík
Ég verð að viðurkenna það, að mér var
nokkur vandi á höndum þegar ég settist nið-
ur til að skrifa þennan pistil, sem birtist rétt
fyrir jólin, en þau eru gjarnan nefnd hátíð
Ijóss og friðar. Ættingjar og vinir reyna eftir
mætti að gleðja hverjir aðra með gjöfum,
jólakveðjum og heimsóknum, fólk flykkist í
kirkjur landsins og fjölskyidumeðlimir fjar-
staddir koma heim til að halda hátíðleg jól í
faðmi fjölskyldunnar.
Þó ég reyni eftir mætti að vera jákvæður í
þessum pistli þá er því ekki að leyna, að yfir
jólahaldinu í ár hvílir viss skuggi í hugum
margra, skuggi atvinnuleysis, sem við
(slendingar höfum verið svo blessunarlega
lausir við, skuggi óvissu um hvað framtíðin
ber í skauti sér og fullvissa landsmanna um
versnandi lífskjör á næsta ári.
Ailir landsmenn gera sér grein fyrir því, að
vegna ytri aðstæðna eru erfiðleikatímar á
(slandi nú um stundir, eins og víðast hvar í
Evrópu og Ameríku, hjá þessum svokölluðu
lýðræðisþjóðum, en í Austur-Evrópu víða,
Afríku og Asíu svelta menn heilu hungri um
þessi jól. Þetta er umhugsunarefni fyrir okk-
ur íslendinga. Við erum ekki nema 250 þús-
und og búum í stóru og gjöfulu landi eins og
stundum er sagt. Margir hverjir hrukku því
við þegar þær fréttir bárust frá Reykjavík, að
prestur Fríkirkjusafnaðarins, Cecil Haralds-
son, sem okkur er að góðu kunnur á Akur-
eyri, hafi séð ástæðu til að auglýsa að nú
væri þannig komið í henni Reykjavík að
ástæða væri til að bjóða upp á ókeypis súpu
og brauð og hann lýsti því jafnframt yfir að
ástandið væri víða mjög slæmt hjá mörgum
einstaklingum. Það er því ekki óeðlilegt að
fólk um allt land hrökkvi illilega við þegar slík
tíðindi berast.
Við Austurvöll í Reykjavík sitja 63 alþing-
ismenn, sem við kusum í síðustu kosning-
um. Þeir hafa talað bæði dag og nótt að
undanförnu, eins og alþjóð er kunnugt. Þeir
sem ráða ferðinni eru ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar með þá Davíð og Jón Baldvin í farar-
broddi. Það vita allir að það eru erfiðleikar
framundan, en þegar harðæri er til landsins
þá er gjarnan auglýst: Munið að gefa smá-
fuglunum. Staðreyndin er sú, að það má
aldrei gleymast, sama hverjir stjórna land-
inu, að muna eftir „litla manninum", eins og
Albert Guðmundsson sagði og Ingi Björn,
sonur hans, minnti sína flokksbræður svo
rækilega á í þingræðu sl. föstudag.
Það verða því mín lokaorð í þessum pistli,
að það má aldrei gleyma þeim, sem minnst
mega sín í þjóðfélaginu, fólkinu með lægstu
launin og þeim sem ganga um atvinnulausir.
Er nema von að fólk fái smá gæsahúð þegar
sá ágæti maður, Vilhjálmur Egilsson, sem er
ekki bara alþingismaður heldur líka í vinnu
hjá Verslunarráði, kemur á skjáinn í Sjón-
varpinu allglaðhlakkalegur að sjá, og segist
sem formaður fjárhags- og viðskiptanefndar
Alþingis vera búinn að finna ágæta lausn á
viðkvæmu máli, það skuli bara lækka
persónuafsláttinn og ná þannig einum 600
milljónum. Er nema von að fólki blöskri?
Bestu óskir um gleðileg jól.
undirfatnaður er töfrandi léttur.
Einnig náttkjólar í miklu úrvali
po/tunette®
Gamla myndin
M3-2589.
Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri
Hver kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags telja sig
þekkja fólkið á myndinni hér
eru þeir vinsamlegast beðnir
að koma þeim upplýsingum á
framfæri við Minjasafnið á
Akureyri (pósthólf 341, 602
Akureyri) eða hringja í síma
24162. SS
Verslun og
tímburvinnsla
verða lokaðar vegna vörutalníngar
milli jóla og nýárs
Skrifstofan verður opin
28., 29. og 30. desember frá kl. 09.00-
18.00 og 31. desember frá kl. 09.00-12.00
Opnum aftur
mánudaginn 4. janúar kl. 08.00
Gleðilega hátíð
LONSBAKKA « 601 AKUHEYRI
FAX 96 27813
BRAUÐGERÐ