Dagur - 23.12.1992, Blaðsíða 31
Miðvikudagur 23. desember 1992 - DAGUR - 31
Iþróttir
Kristinn Björnsson:
Ölympíuleikarnir voru hátindur ársins
Skíðamaður ársins 1992, Krist-
inn Björnsson frá Ólafsfirði,
dvelur nú við nám og skíða-
æfíngar í Noregi. Hann er að
eigin sögn óðum að komast í
sitt gamla form, enda hefur
hann verið að standa sig vel á
alþjóðlegum mótum að undan-
förnu. Hann er nú staddur hér
á landi og Dagur átti við hann
stutt spjall.
Kristinn lét vel af veru sinni í
Noregi. Snjórinn kom óvenju
snemma að þessu sinni og hvað
Íshokkí:
Erlendir leikmenn
flykkjast til landsins
Skautafélag Akureyrar er nú
að fá til sín 2 erlenda leikmenn
til viðbótar, sem styrkja eiga
liðið í baráttunni um Islands-
meistaratitilinn. Fyrir var hinn
Finnski þjálfari Pekka Sant-
anen.
Hér er um að ræða 2 Finna.
Annar er markvöröur, mög
sterkur eftir því sem næst verður
komist og hinn er útileikmaður.
Báðir munu þeir koma til lands-
ins fljótlega upp úr áramótum og
starfa hjá Skautafélaginu við
æfingar o.fl. SR hefur einnig bætt
við sig finnskum leikmönnum, en
félagið var með 2 Rússa og 2
Finna fyrir. Þykir mörgum sem
þessi mál séu komin út í miklar
öfgar og ekki ólíklegt að reynt
verði að setja einhverjar reglur
um fjölda erlendra leikmanna
fyrir næsta vetur.
hann alla aðstöðu til skíða-
iðkunnar eins og best væri á
kosið. Æfingar taka að sjálfsögðu
drjúgan tíma en hann stefnir þó á
að klára skólann í vor. Hvað tek-
ur við eftir það er óljóst.
Næstu Ólympíuleikar verða í
Lillehammer í Noregi. Þá verður
Kristinn á nokkurs konar heima-
velli, þar sem hann er orðinn vel
kunnugur í Noregi. „Ég stefni
ótrauður á næstu Ólympíuleika,
það er engin spurning. Síðustu
Ólympíuleikar voru stórkostleg
upplifun, alveg ógleymanlegir og
tvímælalaust það sem stendur
uppúr þegar maður hugsar til
baka um það sem gerðist á árinu
sem er að líða,“ sagði Kristinn.
Hann á enn mörg ár eftir í skíða-
mennskunni og því spennadi að
sjá hvaða afrek líta næst dagsins
ljós hjá piltinum.
Valdimar Leó ráðinn
framkvæmdastjóri UMSE
Stjórn UMSE hefur ráðið nýj-
an framkvæmdastjóra til
félagsins. AIIs sóttu 9 manns
um stöðuna og fyrir valinu
varð Yaldimar Leó Friðriks-
51.
-fyrfrþlg ogþína fjölskyldu! leikvikd
Nær fulltrúi ungu kyn-
slóöarinnar að sigra
Enn einu sinni er Logi Már Einarsson mættur til leiks í getrauna-
leik Dags. Hann hefur sigrað 6 sinnum, nú síðast Þorkel Björns-
son á Húsavik. Logi hefur víða leitað fanga þegar hann skorar á
andstæðinga sína. Lfna Langsokkur er t.d. ein af þeim mörgu
sem hann hefur lagt.
Að þessu sinni er það fulltrúi ungu kynslóðarinnar sem mætir
til leiks. Logi Már skoraði á Halldór Oddsson, 9 ára stuðnings-
mann Arsenal. Að sögn Halldórs legst vel í hann að taka þátt í
getraunaleiknum. Hann fylgist vel með ensku knattspyrnunni
og er sem fyrr segir harður stuðningsmaður Arsenal. Halldór er
m.a. félagi í Arsenalklúbbnum á (slandi og fær fréttabréf
klúbbsins sent mánaðarlega, þar sem hann getur fylgst með því
helsta sem er að gerast hjá félaginu og á vegum klúbbsins.
Leikirnir é þessum seðli fara fram á annan í jólum. Þann daa
er opið fyrir getraunasölu í sölukössunum frá kl. 9.00 til 11.55. Á
aðfangadag er opið 9.00-12.00. Aftur verður leikið 2. janúar og
þann dag er opið fyrir getraunasölu 9.00-13.00. Lokað er á
nýársdag en opið á gamlársdag 9.00-12.00. Og þá er bara að
drífa sig á næsta sölustað.
Logi Halldór CL co C n.
1. Arsenal-lpswich 1 1
2. Blackburn-Leeds 12 12
3. Chelsea-Southampton 1 1
4. Coventry-Aston Villa 1X X2
5. Crystal Palace-Wimbledon 1 1
6. Everton-Middlesbro 1 2
7. Man. City-Sheff. Utd. 1 12
8. Norwich-Tottenham 12 1
9 Nottinqham. Forest-QPR 12 X2
10. Sheff. Wed.-Man. Utd. 1X X2
11. Charlton-West Ham 1 1
12. Newcastle-Wolves 1 1
13. Tranmere-Millwall 1 12
Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir:
Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455
Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888
son.
Valdimar hefur víðtæka reynslu
á sviði fégasmála, bæði innan JC
hreyfingarinnar og víðar. Hann er
menntaður fiskeldisfræðingur frá
Skotlandi og hefur auk þess
stundað nám í stjórnmálafræði
við HÍ. Hann var einn af stofn-
endum Félags fiskeldisfræðinga
og fyrsti forinaður félagsins.
Valdimar mun hefja störf hjá
UMSE fljótlega upp úr áramót-
um.
Valdimar Leó Friðriksson.
Skíðamaður
Björnsson.
ársins, Kristinn
Jóladagskrá Skauía-
félgs Akureyrar
Yeðrið hefur ekki verið upp á
það besta fyrir skautafólk að
undanförnu en nú mun vera að
rætast úr því. Opið verður á
skautasvæði Skautafélags
Akureyrar yfir jól og áramót
eins og hér segir.:
Föstudagur 25. des:
Ekki opið en öllum heimilt að:
fara á svellið ef aðstæður leyfa.
Laugardagur 26. des:
Opið fyrir almenning 13-16 og
20-22. Íshokkíæfing, meistara-
flokkur 17-19.
Sunnudagur 27. des:
Opið fyrir almenning 13-16. Jóla-
skemmtun 17-19 þar sem m.a.
verður keppni milli fjölmiðla-
fólks og yngri flokka SA. Jóla-
sveinar mæta á svæðið með söng
og sætindi. Ilmandi kakó, kaffi
og piparkökur. Jólaball um
kvöldið fyrir ,,táningana.“
Mánudagur 28 des:
Opið fyrir almenning 13-16 og
20-22. Boðið upp á skauta-
kennslu 13-14. Listhlaupaæfing
17-18. Íshokkí 10-12 ára 18-19.
Þriðjudagur 29. des:
Opið fyrir almenning 13-16 og
20-22. Boðið upp á skauta-
kennslu 13-14. Íshokkí 9 ára og
| yngri 18-19.
Miðvikudagur 30. des:
Opið fyrir almenning 13-16 og
20-22. Skautakennsla 13-14.
Íshokkí 10-12 ára 17-18. Íshokkí
13-16 ára 18-19.
Fimmtudagur 31. des:
Lokað
Föstudagur 1. janúar: Ekki opið
en öllum heimilt að nýta sér bún-
ingsaðstöðu og skautasvell í
tilefni af 56 ára afmæli félagsins.
íþróttamaður
Norðurlands 1992
Nafn íþróttamanns:
íþróttagrein:
jL
2.
3,
Æ
5.
Nafn:
sími:
Heimilisfang:
Sendist til: íþróttamaður Norðurlands 1992
B.t. Dagur, strandgötu 31,600 Akureyri
Skilafrestur er til 8. janúar 1993.
Bautamótíð í
knattspymu
Sunnudaginn 3. janúar
verður hið árlega Bautamót
í knattspyrnu haldið í KA-
húsinu.
Mótið er jafnan vel sótt og
þykir talsverður viðburður á
knattspyrnusviðinu. Þátttak-
endur eiga að hafa samband
við Svein Brynjólfsson í síma
25885, eða vinnusíma 21000.
Þátttökugjald er kr. 9000 fyrir 1
lið en 15.000 ef sama félag
sendir 2 lið til keppni. Mótið
hefst strax um morguninn en
búsist er við að úrslit hefjist
um kl. 17.00. Á síðasta Bauta-
móti mættu 12 lið til leiks og
þá vann A-lið KA B-lið Þórs í
úrslitaleik 2:1.
Frjálsar íþróttir:
Akureyrarmót,
Jólamót UMSE
Ungmennafélag Akureyrar
heldur sitt árlega Akureyrar-
mót í frjálsum íþróttum
innanhúss sunnudaginn 27.
desember. Mótið hefst kl.
14.00 í íþróttahöllinni á
Akureyri.
Grqinarnar sem keppt verð-
ur í eru:
50 m hlaup - 600 m hlaup -
800 m hlaup - Langstökk og
þrístökk án atrennu - Hástökk
- Kúluvarp.
Keppt verður í karla og
kvennaflokki og eftirtöldum
aldursflokkum:
10 ára og yngri -11-12 ára -
13-14 ára - 15-16 ára - 17-18
ára.
Skráning er á mótsstað frá
kl. 13.00 til 13.40. Mótið er
opið öllum Akureyringum,
sama í hvaða félagi þeir eru
skráðir og þátttökugjald er
ekkert. Verðlaun verða veitt
fyrir 3 efstu sætin í öllum
aldursflokkum.
Daginn eftir eða 28. desem-
ber heldur UMSE síðan sitt
árlega jólamót í frjálsum
íþróttum. Það mót fer einnig
fram í íþróttahöllinni og hefst
kl. 10.00.
Gamlárshlaupið
- 2 vegalengdir í boði
Samkvæmt venju mun hið
árlega Gamlárshlaup verða
haldið 31. desember, á
gamlársdag. Hlaupið hefst
kl. 12.00 á hádegi.
Hlaupið er að sjálfsfcgðu öll-
um opið. Hlaupnir verða 4 km
og 10 km, byrjað inni í Eyja-
firði og endað á Ráðhústorgi.
Skráning er í Dynheimum á
gamlársdag milli kl. 10.30 og
11.30 og þátttökugjald er 300
kr. keppt verður í karla- og
kvennaflokki og 4 aldursflokk-
um.
14 ára og yngri.
15-19 ára.
20-39 ára.
40 ára og eldri.
Verðlaunabikar er fyrir 1.
sæti í öllum aldursflokkum,
bæði karla og kvenna og verð-
launapeningar fyrir 2. og 3.
sæti. Sem fyrr segir er öllum
heimil þátttaka í hlaupinu og
eru skokkarar á öllum aldri
hvattir til þess að mæta og
hlaupa af sér gamla árið.