Dagur - 23.12.1992, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992
Ungir og upprennandi þverflautuleikarar.
Ungir blásturshljóðfæraleikarar léku m.a. á mjög óvenjuleg hljóðfæri auk
hefðbundinna hljóðfæra og uppskáru gott klapp. Stjórnandi þeirra er
Christopher Thomton. Myndir: GG
Vistmenn Hlíðar fjölmenntu er tónlistarfólkið flutti sína dagskrá og nutu hennar í hvívetna.
Jólakvöldvaka í Hlíð:
Nemendur Tónlistarskólans og vistmenn
áttu saman ánægjulega kvöldstund
Að frumkvæði Kiwanisklúbbs-
ins Kaldbaks tóku nemendur
Tónlistarskólans á Akureyri
þátt í jólakvöldvöku sem hald-
in var fyrir vistmenn á Hlíð,
dvalarheimili aldraðra á Akur-
eyri, fimmtudagskvöldið 17.
desember sl.
Par komu fram söngvarar,
strengjaleikarar, blásturhljóð-
færaleikar og píanóleikar og voru
undirtektir áheyrenda mjög
góðar. Tónlistarfólkið var á öll-
um aldri en á það sammerkt að
vera nemendur Tónlistarskólans
á Akureyri.
Til stóð að halda jólakvöld-
vöku úti í Skjaldarvík á föstu-
dagskvöldið en vegna veðurs féll
hún niður. Veðurguðirnir hafa
nú sett æði stórt strik í reikning
þeirra sem standa fyrir samkomu-
haldi vegna jólanna eins og t.d.
jólakvöldvökum og aðventu-
kvöldum í kirkjunum. GG
Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnaði strengjasveit, en einleikarar með
henni voru Gunnar Benediktsson á óbó og Arnbjörg Sigurðardóttir á þver-
flautu.
Þú fœrð gjafavöruna
hjá okkun
Ekta kínverskar silkislœður... kr. 1.160
Ekta kínversk dömunáttföt... kr. 4.700
Ekta kínverska sloppa......... kr. 4.800
Barnanáttföt................ kr. 990
Treflar..................... kr. 1.590
Amsterdam sófasett 3+2.......kr. 69.900
Reyrhúsgögn - Stakir stólar.
Úrval af gjafavöru og bastkörfum.
BicUki fíiiinn
rar’i Kaupangi v/Mýrarveg.
Sími 12025.
VISA
Jólagjafimar handa
vélsleða- og útilífsfólkinu:
Hjálmar m/gerðir ★ Hanskar ★ Lúffur
★ Moon Boots ★ Vatnsþétt kuldastígvél
★ Vélsleðagallar ★ Töskur ★ Brúsar
★ Olíur o.fl. o.fl.
nestin
Mannslíkaminn er skennnti-
legt viðfangseftii
- segir myndlistarmaðurinn Samúel Jóhannsson, sem nú sýnir á Teríunni
og í húsakynnum Byggðastofnunar á vegum Menningarsamtaka Norðlendinga
Samúel Jóhannsson við mynd sína Heimsóknin sem er til sýnis á Teríunni.
Þegar gríman fellur stendur
maðurinn nakinn eftir. Ekkert
skýlir honum - hvorki útliti
hans, hugsunum eða athöfn-
um. Aðrar persónur eru faldar
á bak við grímur er skapa
leyndardóma og er áhorfand-
anum látið eftir að ráða í hvað
þar muni að baki búa. Þannig
birtast myndir Samúels
Jóhannssonar - sterkar myndir
þar sem hver dráttur höfðar
næstum æpandi til áhorfand-
ans og hann kemst ekki hjá að
veita þeim athygli hvort sem
myndlistamaðurinn dregur
þær með litum eða svörtum
strikum á hvítan grunn.
Samúel Jóhannsson sýnir nú 13
myndir á vegum MENOR, Menn-
ingarsambands Norðlendinga, á
Súlnabergi, Teríunni á Hótel
KEA og í húsakynnum Byggða-
stofnunar við Geislagötu. Á
Teríunni eru átta myndir, akrýl-
myndir og teikningar en fimm
akrýlmyndir eru til sýnis í
Byggðastofnun. Samúel er Akur-
eyringur og hefur fengist við
myndlist í mörg ár. Hann kvaðst
hafa sinnt henni reglubundið frá
árinu 1980 og á þeim tíma hefur
hann haldið níu einkasýningar,
bæði á Akureyri og í Reykjavík
auk þess að tak þátt í mörgum
samsýningum.
í myndinni Heimsóknin, sem
er til sýnis á Teríunni, hafa
manneskjurnar kastað af sér
grímunum og standa naktar, en
óræður bakgrunnurinn getur
nánast táknað allt umhverfi - allt
frá mannfjölda til auðnar. í
myndinni Hvenær sem er, sem
einnig er til sýnis á Teríunni,
dregur listamaðurinn fram áhrif
augnabliksins - þess augnabliks
sem getur verið á næsta leiti sé
maðurinn á annað borð reiðubú-
inn að kasta af sér grímunni og
auk þess að láta umhverfið, sem
er í bakgrunninum, ekki hafa
áhrif á gerðir sínar.
í flestum myndum Samúels
Jóhannssonar er mannslíkaminn
í fyrirrúmi þar sem listamaðurinn
gerir ýmsar tilraunir með form og
stíl. Samúel kvaðst hafa þörf fyrir
að mála - túlka hugsanir sínar í
rnyndverkinu. Er hann var spurð-
ur hvað liggi að baki myndum
hans nefndi hann fyrst og fremst
sjálfan sig og þessa þörf sem
hann kvað ekki láta sig í friði.
Spurningunni um hvort myndir
hans væru erótískar vildi hann
ekki svara neitandi en bætti við
að mannslíkaminn væri skemmti-
legt viðfangsefni fyrir myndlistar-
mann þar sem sífellt væri hægt að
takast á við breytileg form.
Samúel hyggur á sýningarhald
í höfuðborginni á næsta ári og
kvaðst hann ætla að sýna eitthvað
af þeim myndverkum á þeirri
sýningu, sem nú eru kynnt. Vel
er til fundið af forsvarsmönnum
Menningarsamtaka Norðlend-
inga að nýta Teríuna til myndlist-
arkynninga. Terían á sér langa
hefð sem kaffihús í miðbæ Akur-
eyrar og þangað liggur leið
margra, bæði heimamanna og
annarra er ferðast til bæjarins.
ÞI