Dagur - 23.12.1992, Page 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992
- ----------------
Um leið og við óskum
viðskiptavinum okkar
árs og friðar
þökkum við fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
ÁSBYRGIHF.
Vörudreifing Akureyri - Sími 96-23280/96-11155
Óskum viðskiptavinum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gleðilegs nýárs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Tölvufræöslan
Furuvöllum 5 - Sími 27899
Sendum félagsmönnum og
framsóknarmönnum um land allt
bestu jóla~
og ngárskveðjur
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórn Framsóknarfélags
Akureyrar
Borgarbíó óskar
viðskiptavinum sfnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
BORGARBÍÓ
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
slippstödin..
Mannlíf
Framsóknarfélag Húsavíkur
var stofnað 9. júlí 1932. Haldið
var upp á 60 ára afmæli félags-
ins fyrsta sunnudag í desember
með kvöldverðarhátíð á Hótel
Húsavík. Til fagnaðarins voru
boðnir félagar og stuðnings-
menn á Húsavík, auk þing-
manna flokksins, kjördæmis-
sambandsstjórn og formanna
félaga í sýslunni. Fæstir gest-
anna sáu sér fært að koma
vegna slæmrar færðar á
vegum, en formenn úr nær-
sveitum mættu. Guðmundur
Bjarnason, alþingismaður og
frú Vigdís Gunnarsdóttir létu
sig heldur ekki vanta.
Sérstakur heiðursgestur á
hátíðinni var Þórir Friðgeirsson,
stofnfélagi. F>órir sat 12 ár í
Þórir Friðgeirsson, stofnfélagi var heiðraður í afmælishófínu.
Myndir: Víkurblaðið/Jóhannes
Framsóknarfélag Húsavíkur 60 ára:
Stoftifélagi heiðraður á afinælishátíð
Bæjarstjórn Húsavíkur, hann sat
einnig í stjórn Framsóknarfélags-
ins og gegndi trúnaðarstörfum á
þess vegum. Þórir ávarpaði sam-
komuna og þakkaði þann heiður
er honum var sýndur.
Þormóður Jónsson flutti brot
úr sögu félagsins, gerði grein fyrir
stofnfundarfélögum og færði rök
fyrir hvernig framsóknarhugsjón-
in gengur í ættir og erfist. Einar
Njálsson, veislustjóri las upp úr
fundargerðum Félags ungra
framsóknarmanna, sem starfaði
með miklum blóma um árabil.
Félögin hafa sameinast. Ósk
Þorkelsdóttir söng gamanvísur.
Ósk fór á kostum og rifjaði upp
nokkra framsóknartexta frá fyrri
árum. Sólveig Jónsdóttir kom
fram ásamt unglingum og léku
þau og sungu við hrifningu gesta.
Guðmundur Bjarnason og Ind-
riði Ketilsson ávörpuðu samkom-
Bergþóra Bjarnadóttir og Ragnheiður Jónasdóttir.
una. Hreiðar Karlsson flutti vísur
sem „faxast“ hafa milli kaup-
félagsmanna á Húsavík og í
Unga fólkið syngur við undirleik Sólveigar Jónsdóttur.
Skagafirði, og fleiri aðila, undan-
farna mánuði. Var gerður góður
rómur að. Finnur Kristjánsson
kom mörgum veislugestum til að
gráta af hlátri yfir óborganlegum
sögum af tilsvörum Snorra Jóns-
sonar frá Þverá í Laxárdal. Flest-
ar sagnanna má finna í nýútkom-
inni Arbók Þingeyinga sem Finn-
ur ritstýrir. Natalia Chow frá
Hong Kong heillaði alla er
hlýddu á söng hennar, við undir-
leik Helga Péturssonar.
Matreiðslumeistarar á Hótel
Húsavík stóðu sig með prýði við
framreiðslu á Húsavíkurhangi-
kjöti og meðlæti. Voru veislu-
gestir hinir ánægðustu yfir góðum
mat og menningarlegri skemmtan,
eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum ritstjóra Víkurblaðsins,
Jóhannesar Sigurjónssonar. IM
Félag íslenska prentiðnaðarins og Félag bókagerðarmanna:
Hafa tekið höndum saman í bar-
áttunni gegn atvinnuleysi
Félag íslenska prentiðnaðarins
og Félag bókagerðarmanna
hafa tekið höndum saman í
baráttu gegn atvinnuleysi í
prentiðnaði og ásókn erlendra
prentsmiðja á íslenska bóka-
og blaðamarkaðinn.
Til að vekja athygli á þeim
bókum sem prentaðar eru á ís-
landi hafa félögin látið útbúa
auglýsingaspjöld til að hengja
upp í bókabúðum. Jafnframt hef-
ur náðst samvinna við allmarga
útgefendur um að merkja bækur
prentaðar á íslandi með sérstök-
um límmiðum, sem á stendur:
„Þessi bók er framleidd á ís-
landi.“
Samhliða þessu hafa birst aug-
lýsingar í blöðum þar sem
III
\
| Bækur og blöð
| framleidd á íslandi
skapa störf í landinu
almenningur er hvattur til að
kaupa íslenskar bækur til jóla-
gjafa að þessu sinni og stuðla
þannig að meiri atvinnu.
Atvinnuleysi meðal bókagerð-
armanna hefur aukist mikið á
undanförnum misserum og er nú
komið í 4,5% og stefnir í 10% á
næstu mánuðum. FÍP og FBM
hafa bent á að með upptöku virð-
isaukaskatts á bækur muni draga
enn frekar úr atvinnu bókagerð-
armanna.
FÍP mun veita sérstaka bóka-
viðurkenningu í fyrsta sinn í byrj-
un næsta árs. Viðurkenningin
verður veitt fyrir bækur sem
þykja skara fram úr hvað varðar
útlit og vörugæði og eru prentað-
ar á Islandi árið 1992 og koma
hvers kyns bækur til greina.