Dagur - 23.12.1992, Síða 25
Miðvikudagur 23. desember 1992 - DAGUR - 25
Árbók Þingeyinga:
„Töluvert merkflegt heimfldarrit“
- segir Finnur Kristjánsson, ritstjóri - 34. bókin komin út
Árbók Þingeyinga 1991 er
komin út. Þetta er 34. bindi.
Frumkvöðlar að útgáfu bókar-
innar í upphafi voru Jóhann
Skaptason sýslumaður og frú
Sigríður Víðis og hefur bókin
verið jgefín út árlega síðan
1958. Arbókin er eitt útbreidd-
asta átthagarit á landinu og er
hún prentuð í 1450 eintökum,
að sögn Finns Kristjánssonar
sem ritstýrt hefur bókinni í 13
ár. Ritstjórar Árbókarinnar
voru lengst af Bjartmar Guð-
mundsson og síðar Sigurjón
Jóhannesson, og hafa þeir öðr-
um fremur mótað ritið.
Árbókin er gefin út af Suður-
Pingeyjarsýslu, Norður-Ping-
eyjarsýslu og Húsavíkurbæ. í rit-
nefnd eiga sæti einn fulltrúi frá
hverjum aðila: Helga Helgadótt-
ir, Garði, Jóhann Hermannsson,
Húsavík og Pórhallur Bragason,
Landamótsseli.
Um 500 greinar á
34 árum
Finnur giskar á að um 500 greinar
megi finna í bókunum 34, þar
sem um 15 greinar séu í hverri
bók. Fimm bókanna eru uppseld-
ar en aðrar eru til sölu hjá Finni í
Safnahúsinu. Nýir áskrifendur fá
bækurnar á afar vægu verði, þær
elstu á 300 kr. eintakið.
„Höfuðefnið er allskonar fróð-
leikur, aðallega um málefni Ping-
eyinga. Efni ritsins skiptist í
tvennt; greinar og annað efni og
annála hreppanna. Einnig er get-
ið allra þeirra er látist hafa á
árinu. Árbókin er orðin töluvert
merkilegt heimildarrit, þegar lit-
ið er til annálanna. Þessi fróð-
leikur geymist þarna á einum
stað, og ég hef oft verið að velta
því fyrir mér hvað af honum
hefði orðið, ef Árbókin kæmi
ekki til. Árbókin heldur sínum
hlut nokkuð vel, þrátt fyrir öll
þau glanstímarit sem út eru
gefin,“ segir Finnur. Hann segir
að töluvert efni berist í bókina,
en einnig reyni hann að fá kunn-
uga menn til að skrifa um tiltekin
efni. „Það er afar góð samvinna
við Norður-Pingeyinga og í raun
gengur mér betur að fá efni í
bókina úr Norðursýslunni en
Suðursýslunni,“ segir Finnur.
Af ferðum til Húsavíkur
og Vesturheims
Forsíðu nýútkominnar Árbókar
prýðir ljósmynd af Laxárvirkjun
sem tekin er af Jóni Jóhannes-
syni. Ef gluggað er í efnisyfirlit
kennir ýmsra grasa samkvæmt
venju. Má þar nefna: Grein um
Jón í Möðrudal, eftir Þóru Pór-
oddsdóttur frá Pórshöfn. Ljóð
sem nefnist Fjólan og hrakninga-
saga er eftir Hallgrím Pétursson
frá Árhvammi. Grein um Stöng
og önnur eyðibýli við norðanvert
Mývatn, eftir Eystein Tryggva-
son og grein sem nefnist Horft til
baka og er eftir Þórólf Jónsson
frá Auðnum. Grein um kvenfé-
lagið Hringinn í Mývatnssveit.
Ljóð eftir Jón Stefánsson frá
Mýrarkoti. Grein um harða lífs-
baráttu á Hólsfjöllum eftir Ragn-
ar Pór Kjartansson. Minningar-
orð um Sigríði Víðis Jónsdóttur
eftir Finn Kristjánsson og minn-
ingarorð um Hjördísi Tryggva-
dóttur Kvaran eftir Sigurjón
Jóhannesson. Grein eftir Porkel
Skúlason um Fellselsfeðga og
ljóð eftir þá. Frásögn eftir Pál H.
Jónsson. Öxarfjarðarbragur 1944
eftir Steingrím Baldursson. Hug-
leiðing um eyðibýli eftir Sigurð
Gunnarsson. Frásögn Þorgils
gjallanda af Húsavíkurferð, og
frásögn eftir Gunni Sigdísi Gunn-
arsdóttur af Vesturheimsferð.
Kasthvammsbær í Laxárdal og
Júlli, frásagnir eftir Yngva M.
Gunnarsson og sagnir af Jóhanni
Bessasyni eftir Jóhann Skapta-
son, fréttir úr héraði og fleira.
Alls er bókin 278 síður.
Ekki líkur Kristi
Finnur veitti góðfúslega leyfi sitt
til birtingar á broti af efni sem
Garðar Jakobsson tók saman og
fjallar um gamansemi, blót og
snilliyrði Snorra Jónssonar
hreppstjóra á Pverá í Laxárdal:
„Snorri bjó sín fyrstu búskaparár
á Öndólfsstöðum í Reykjadal.
Kom þá séra Hallgrímur biskup
Finnur Kristjúnsson.
ÁRBÓK
WNGEYINGA
1991
Forsíða Árbókar Þingeyinga 1991.
og vísiteraði á Einarsstöðum.
Snorri var við biskupsmessuna,
og þegar þar er komið í guðs-
þjónustu að biskup sté í stólinn
tekur barn að gráta, segir þá
biskup: „Er ekki meðhjálpari
Þakkir frá
starfsfólki
bæklunar-
deildar FSA
Pann 21. desember sl. var bækl-
unardeild FSA fært sjónvarp að
gjöf. Var það gefið í minningu
Júlíu Stefánsdóttur, er lést 29.
janúar 1971, af foreldrum
hennar, systkinum og fjölskyld-
um þeirra.
Færum við, starfsfólk bæklun-
ardeildar, þeim hugheilar þakkir
fyrir höfðinglega gjöf. Guð gefi
ykkur öllum gleðileg jól.
Myndin er af Hringskonum sem gáfu kolaofn, búnað í elhús o.fl. í þinghúsið að Skútustöðum 1904.
P ' ™ M Wíi, . vi"j Ífe-** ml -' W
Lii Wjt íf
5 *;i a 1
fjslfvj • |
j § p I iH
viðlátinn?“ Jú, hann gefur sig
fram. „Hjálpið þér konunni og
barninu út, svo við getum haldið
áfram guðsþjónustunni." Segir
þá Snorri stundarhátt við sessu-
naut sinn: „Hann er ekki líkur
Kristi þessi, því hann sagði „leyf-
ið börnunum að koma til mín og
bannið þeim það ekki“ en þessi
segir, farið út með konuna og
barnið.“
Þá ekki á roðið
Löngu seinna þegar Snorri var
orðinn bóndi á Pverá, kom Þór-
hallur biskup í Þverá og gisti þar.
Um morguninn þegar biskup
kom á fætur og kemur út að viðra
sig, sér hann að kýrnar höfðu
brotist inn í skemmu og voru
farnar að úða í sig saltfiski, sem
þar var geymdur. Gerir hann nú
viðvart um skaðann og gengur
síðan út aftur og er þá Snorri far-
inn að verka óhreinindin af
fiskinum. Pórhallur hefur orð á
því að kýrnar hafi farið illa með
matinn, en Snorri tók því rólega
og sagði: „Læt ég það allt vera,
meira drulluðu þær í fyrra og þá
ekki á roðið."
Síðan söðlaði Snorri hest sinn
og hugðist fylgja biskupnum yfir
Laxá. En hann þurfti svo margt
að tala við biskupinn að hann
gætti ekki að fyrr en hann var
staddur við túnhliðið í Reykja-
hlíð. Varð þá Snorra að orði:
„Nú þykist ég aldeilis vera búinn
að reka hafurinn úr túninu.““
IM
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin.
Norðurtanga 3 - Sími 26662 - Akureyri
Jólatré
Sjálfsbjargar og
íþróttafélags fatlaðra
veröur haldið mánudaginn 28. desember
kl. 15.30 í félagssalnum Bjargi.
Allir velkorrmir.
Skemmtinefndin.
■ r ■ m ■■ gm m jr jr
Jolagjofin ■ ar
Mýjung á íslandi
Þetta er ekki straujárn en straujar allt.
Komdu og kynntu þér þetta undratæki.
Við verðum við verslunina Amaro í dag, 23. desember.
Jólatilboð, ótrúlegt en satt, kr. 3.990.