Dagur - 23.12.1992, Side 30

Dagur - 23.12.1992, Side 30
30 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992 Félag harmonikuunnenda Dansleikur verður annan í jólum, 26. desember í Lóni við Hrísalund, frá kl. 22.00-03.00. Stjórnin. íf§t Iðjufélagar Akureyri og nágrenni Almennur félagsfundur verður í Alþýðuhúsinu 4. hæð, þriðjudaginn 29. desember kl. 17.00. Fundarefni: 1. Uppsögn samninga. 2. Önnur mál. Stjórn og trúnaðarráð Iðju. Frostrásin FM 98,7 Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri. VERTU MEÐ... 10 Ijósatímar á dag í TOPP SÓL, 1 geisladiskur daglega gefinn til hlustenda frá Radiónaust. Jólahúfan, fylgstu meö á Frostrásinni og „I sporum jólasveinsins", sem er jólaleikur Frostrásarinnar og Radiónausts. Einnig bíómiðar, jólaöl og margt fleira. Frostrásin, sími 27687. Auglýsingasími 27691. Myndsendir 27692. Frostrásin - Gefandi stöð. Frostrásin FM 98,7 Sími 27687* Útvarp með sál Jóladagskrá S.A. Opið verður á skautasvæði Skáutafélags Akur- eyrar yfir jól og áramót sem hér segir. 25. desember: Ekki opið en öllurn heimilt að fara á svellið ef aðstæður leyfa. 26. desember: Opið fyrir almenning 13-16 og 20-22. Íshokkíæfing meistaraflokkur 17-19. 27. desember: Opið fyrir almenning 13-16. Jóla- skemmtun 17-19. Jólaball 20-23. 28. desember: Opið fyrir almenning 13-16 og 20-22. Boðið upp á skautakennslu 13-14. List- hlaupsæfing 17-18. Íshokkí 10-12 ára 18-19. 29. desember: Opið fyrir almenning 13-16 og 20-22. Boðið upp á skautakennslu 13-14. Íshokkí 9 ára og yngri 18-19. 30. desember: Opið fyrir almenning 13-16 og 20-22. Boðið upp á skautakennslu 13-14. Íshokkí 10-12 ára 17-18. Íshokkí 13-16 ára 18-19. 31. desember: Lokað. 1. janúar: Ekki opið en öllum heimilt að nýta sér búningsaðstöðu og skautasvell í tilefni af 56 ára afmæli félagsins. POPP Með hugann á himni Það vakti þónokkuð mikla athygli ■ í haust er Ný dönsk af ýmsum ástæðum ótilgreindum flutti sig um set frá Steinari yfir til Skífunn- ar. Hafði hljómsveitin um sumar- ið átt nýtt lag á safnplötu Steina, Bandalögum 5, lagið Steypireið, gott lag sem lofaði góðu, þannig að hin skyndilegu umskipti komu á óvart. Hvort það var vegna þessara umskipta eða einhvers annars, þá virðist ýmislegt fleira hafa einnig tekið breytingum hjá hljómsveitinni og þá e.t.v. hvað helst hugarfarið varðandi hvert skuli stefna. Það er nefnilega til- fellið með Himnasendingu, nýju plötuna frá Ný dönsk, sem er sú fimmta í röðinni, að hún lýsirtölu- vert miklum metnaði í þá átt að gera hlutina vel og þaö betur en síðast. [ umfjöllum sinni um síðustu plötu Ný danskrar de luxe, var Poppskrifari einmitt með þær vangaveltur að nú væri tímabært að breyta eitthvað til. De luxe væri ágætisplata í anda hippa- tímans, ytra sem innra, en ekki yrði gengið lengra í þá átt án þess að stöðnunar færi að gæta. Þetta virðast þeir félagar í Ný dönsk hafa verið meðvitaðir um a.m.k. mestanpart, Þegar þeir settust niður til að skapa efnið á Himnasendingu. Sú ákvörðun að taka plötuna upp í Surrey á Eng- landi hefur líka margt að segja um hljómgæði plötunnar, sem eru betri en oftast áður. Ættu þeir félagar að hafa lært nóg í ferðinni svo önnur utanferð verði óþörf. Þessar breytingar þýða þó ekki að öllu hafi verið umsnúið og að Himnasending sé endilega betri en de luxe. Lög eins og llmur og Elding t.d. bera óneitanlega keim af hippatímabilinu, en lög á borð við titillagið og Fluga, sem eru nútímalegri, sjá til þess aftur á móti að fjölbreytpin er' meiri. Tel- ur Poppskrifari því að Himna- sending sé nokkuð gott og já- kvætt framhald af de luxe, en um leið samt ekki mikið betra verk. Fyrrnefndur metnaður skilar vissulega miklu samanber titil- lagið og Horfðu til himna, sem eru í hópi bestu laga hljómsveit- arinnar frá upphafi að mínu mati, en hún á áreiðanlega eftir að gera enn betur í framtíðinni. Ur ýmsum áttum Nú þegar árið er senn á enda eru hin ýmsu popptímarit úti í hinum stóra heimi farin að velta fyrir sér og leggja mat á hvað bitastæðast hafi komið út á því. Eitt þeirra, breska mánaðarritið VOX, sem þykir nokkuð vandað, hefur t.d. birt sína niðurstöðu í þessum efnum. Skiptir blaðið bestu plötum ársins niður eftir tónlistarstefnum, þannig að í raun er um margfalt val að ræða. Eru helstu niðurstöðurnar þær að í dansgeiranum var hljómsveitin Rested Development talin eiga besta gripinn, í sveitatónlistinni söngkonan Mary Carpenter með plötuna Come On, Come on og í blúsnum Robert Cray með I Was Warned. Þrjár bestu rokkplöturn- ar voru svo valdar Automatic For The People með REM númer 1, Copper Blue með Sugar sem sú næstbesta og Drive með hinni efnilegu PJ Harvay sem sú þriðja besta. Gömlu rokkjaxlarnir Jimmy Page, fyrrum gítarleikari Led Zeppelin og David Cover- dale söngvari Whitesnake, sem um nokkurt skeið hafa verið að bauka eitthvað saman undir nafninu Legends, hafa nú ákveð- ið að breyta því. Munu þeir ein- faldlega kalla sig Coverdale/ Page og er væntanleg plata frá þeim næsta vor sem nú gengur undir vinnuheitinu North And South. Er útgáfudagur hennar nánar tiltekið þann 1. mars í Bandaríkjunum, en evrópska útgáfan verður nokkrum vikum síðar. Með þeim á plötunni verða bassaleikarinn Ricky Phillips, sem áður var í Bad English og trommuleikarinn Danny Carmassi sem komið hefur við sögu hjá Heart og Montrose. Verður fróð- legt að heyra hvernig útkoman verður hjá þessum frægu köpp- um. Gamla Bítlabrynið Paul McCartney boðaði til blaða- mannafundar fyrir skömmu þar sem hann boðaði mikil tíðindi og stór á komandi ári ef að líkum lætur. Þá munu líklega hann og hinir eftirlifandi Bítlarnir, George Harrison og Ringo Starr, koma saman að nýju í tengslum við nýja heimildarmynd sem á að gera og það sem meira er e.t.v. setjast niður og semja ný lög saman með útgáfu í huga. Þarf vart að orðlengja það að breska pressan er nær á öðrum endan- um vegna þessara tíðinda frá McCartney og eru menn mjög spenntir fyrir hvernig til muni tak- ast ef af verður. McCartney skýrði svo einnig frá því að hann myndi fara í tónleikaferð í mars til að fylgja eftir nýju plötunni sinni, Off The Ground, sem koma á út í febrúar. Sendi McCartney síðast frá sér plötuna Flowers In The Dirt árið 1989. Mun nýja platan geyma tólf lög, þar af tvö sem McCartney samdi í félagi við vin sinn Elvis Costello. Jólunum, sem nú eru rétt í þann mund að skella á, fylgja alltaf þónokkuð margar plötur sem geyma sérstaklega efni þeim tengdum. Eru þessar plötur af ýmsu tagi með jafnt klassískri/ kórsöng sem poppi og rokki, þannig að fjölþreytnin er mikil. Ein plata, sem nú er endurútgefin á geislaplötu, fimmtán árum eftir að hún kom fyrst út, er platan Jólastrengir frá Skífunni. Naut hún á sínum tíma mikilla vin- sælda, en það var Karl J. heitinn Sighvatsson sem útsetti hana. Geymir platan mörg sígild jólalög í flutningi söngvara á borð við Ruth Reginalds, Egil Ólafsson, Vilhjálm Vilhjálmsson og fleiri. ær stórfregnir hafa nú borist frá Bandaríkjunum, svona sem forskot á jólagleðina, að Sykurmolarnir séu aldeilis farnir að gera það gott á danslistum þar í landi með lagið Leash Called Love af plötunni sinni It’s It. Er lagið nefnilega samkvæmt nýj- asta hefti Billboard tímaritsins í efsta sæti yfir danstónlist, sem er hreint frábær árangur. Það er því greinilegt að tónleikaferðin með U2 sem Sykurmolarnir fóru í fyrr í haust, ætlar að skila sér og vel það. Verður spennandi að sjá hvað þetta mun þýða fyrir hljóm- sveitina í náinni framtíð, hvort heimsfrægðin sé nú endanlega á næsta leyti.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.