Dagur - 17.12.1993, Qupperneq 8

Dagur - 17.12.1993, Qupperneq 8
8 B - DAGUR - Föstudagur 17. desember 1993 4 á 4 4 4 * 4 jól og farsœlt fcomandi ár Sjálfsbjörg félag fatlabra á Akureyri og nágrenni Bugðusíbu 1 - Sími 26888 í * 4 4 á4á4á4á444á4á4á á4á4á4á4á4á4á4á 4 4 * íóln og núnrouocöíut * 4 4 Sendum vidsfciptavinum okfuir bestu * 4 4 4 Þöffum vidsfiptin. A.V.J. TEIKNISTOFA Tryggvabraut 10 - Sími 25778 i. 4 á4á4á4á4á4é4á4á á4á4á4á4á4á4á4á Sendum vidsfiptavinum offar bestu íóín* og núnroUoeðju TRÉSMIÐJAN Frostagötu 2 - 603 Akureyri Simi 96-21909 - Fax 96-21287 4 4 4 4 á 4 4 á4á4á4á4á4á4á4á ák4á^4á^4á^4^.4áfe.4á^4á^ * * * <JÍMcÖílc0 jól í ocj farsœll fomandi ár - Þöffum viðsfiptin á árinu sem er ad lída. l M Landsbanki * Mk Islands Banki allra landsmanna <SlCðílC0 jóí ocj Jarsœlí fomandi ár Þöffum vidsfiptin á árinu sem er að líða. á4á4á4á4á4á4á4á 4 4 á 4 áá 4 4 á 4 4 4 4 4 4 á4á4á4á4á4á4á4á FJALLALAMB HF. SlMAII 96-52140 OG 96-52165 ■ KÓI‘ASKi:Hl Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri: Varðveisla, greining og skráning gamalla mynda Á ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri hittum við fyrir Hörð Geirsson. Ljósmyndir eru hans ær og kýr, jafnt í starfi sem leik, ekki síst gamlar myndir og af þeim er mikið til á Minjasafninu. Hann ætlar að fræða okkur um ljósmyndadeild safnsins en þar eru margar dýrmætar perlur varðveittar. Deildin er þó ekki aðeins geymsla fyrir gamlar myndir, þar fer fram heimildaöfl- un, skráning og þjónusta við þá sem vilja skyggnast inn í fortíðina. öröur byrjaði í hlutastarfi á Minjasafninu 1986 en hann hefur verió í fullu starfi frá árinu 1988, í hálfri stöðu á ljósmyndadeildinni og hálfri sem húsvöróur. „Aður en ég byrjaði á ljós- myndadeildinni höfðu Eiríkur Ei- ríksson og Friðrik Vestmann hafíð þetta starf og Friðrik var búinn að kópera um 18 þúsund myndir. Eg tók síðan upp þráðinn og hef hald- ió starfmu áfram,“ sagði Hörður. Gömul glerplötusöfn og nýrri ljósmyndasöfn - I hverju er starfsemin á ljós- myndadeildinni fólgin? „Myndasöfnin eru grunnurinn að starfseminni. Annars vegar eru það gömlu glerplötusöfnin. Þar er stærst safn Hallgríms Einarssonar, þá safn ljósmyndastofu sem hét Jón og Vigfús og myndir frá ljós- myndurunum Guórúnu Funk- Rasmussen og Guðmundi Trjá- mannssyni. Þessar glerplötur eru um þaó bil 89 þúsund talsins. Síðan eru þaó nýrri söfnin, Ijósmyndasöfn sem hafa komið inn á allra síðustu árum. Þar er safn frá Degi, tímaritinu Heima er bezt og frá afmælisári Akureyrar 1962. Stærstu söfnin eru frá KEA, um 16 þúsund myndir, og Islend- ingi, á bilinu 10-15 þúsund mynd- ir, en það hefur ekki verið farið yfir það enn. Starfsemin felst í því að taka á móti ljósmyndum, gefa þeim númer, skrá þær, reyna aó greina hverjir eru á mannamyndunum og síðan eru myndirnar tölvuskráðar. Þar með erunt við tilbúnir til að hjálpa fólki aö útvega myndir sem þaó óskar eftir.“ Fólk á gömlum manna- myndum nafngreint Hörður fór nánar yfir einstaka þætti starfsins: „Það fer fram kópering á göml- unt glerplötum og fílmum og einnig er tekió eftir gömlum myndum sem hætta er á að skemmist. I sambandi við grein- inguna höfum við haft þá aðferð að fá valda einstaklinga til að fara fyrstu umferð yfir myndirnar. Þetta eru Haraldur Sigurðsson, Haraldur Sigurgeirsson, Páll Helgason og hjónin Helgi og Sig- ríður Schiöth. Eftir að þau hafa lit- Spjallað við Hörð Geirsson um starfsemina ið á myndirnar höfum við látið þær liggja framrni á Amtsbóka- safninu, en við höfum haft gott samstarf við bókasafnið í mörg ár. Gestir safnsins fletta myndaal- búmum og skrá niður nöfnin á fólkinu sem þeir þekkja. Þessi að- feró hefur skilaó urn 60% mynd- anna greindum. Myndirnar sem torveldast hefur reynst að greina hafa verið birtar í helgarblaði Dags allt frá haustinu 1990 og frá þeim tíma hafa birst um 150 myndir. Þetta eru yfirleitt mjög gamlar myndir og mér heföi ekki komið á óvart þótt fáir könn- uðust viö fólkió á þeim, en það er skemmst frá því að segja að ár- angurinn hefur verið mjög góður. Um 75% af fólkinu á öllum þess- um myndum hefur verið nafn- greint, sem eru sannarlega góðar heimtur. Lesendur Dags hafa ver- ið iónir við að skril'a og hringja til okkar upplýsingar.“ Hörður Geirsson við tölvuna þar sem uppiýsingar um gömlu myndirnar eru skráðar. Nú eru komin 30.900 nöfn inn í tölvuna og þau gsetu orðið 100 þús- und um næstu aldamót. Mynd: Robyn Magnús Ólafsson tók þcssa mynd upp eftir Strandgötu á árunum 1903-06. Götumyndin er sannarlega tiikomumikil. Efstu húsin eyðijögðust flest í stórbruna 18. október 1906. Hægt er að sjá myndina í þrívídd á Minjasafninu. Ljós- mynd: Magnús Ólafsson/Minjasafnið á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.